Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Qupperneq 38
Föstudagur 22. maí 200938 Ferðir innanlands
Munið okkar frábæru PIZZA tilboð:
Fjöldskyldutilboð 2x16” heimsent 3.200.-ísk.
Boltatilboð 9” og gosglas 1.200.-ísk.
Heimsent tilboð
16” 2 álegg 2L gos 12”hvítlauksbrauð aðeins 2.390.-ísk.
Sótt tilboð
16” 2 álegg 2L gos 1.790.-ísk.
Hoflandssetrið er notalegur
veitingastaður í Hveragerði
Hoflandssetrið
Heiðmörk 58 - 810 Hveragerði - S: 483-4467 - www.hoflandssetrid.is
Kajakklúbburinn stendur fyrir veg-
legri ferðadagskrá í sumar, sem all-
ir áhugasamir ræðarar geta tekið
þátt í. Klúbburinn stendur fyrir ferð-
um, hvort sem er fyrir þá sem kjósa
að róa um lygn vötn eða úfið haf-
ið á sjókajak eða á straumkajak, þar
sem róið er niður beljandi fljót. Ekki
er gerð krafa um að þátttakendur í
ferðum séu meðlimir í klúbbnum, en
hins vegar eru þeir fyrirvarar settir í
öryggisstefnu klúbbsins að ræðarar
séu ekki alveg óvanir á kajak.
Gísli H. Friðgeirsson, formað-
ur ferðanefndar klúbbsins, seg-
ir að skýrar öryggisreglur séu í gildi
varðandi ferðir klúbbsins. Aðspurð-
ur hvaða ferð hann mælir með fyrir
þá sem eru tiltölulega óvanir, segist
hann mæla með árlegum Jónsmessu-
róðri klúbbsins. Þá er haldið út á haf
á miðnætti á Jónsmessu og róið inn
í nóttina, þennan lengsta dag ársins.
Undanfarin ár hefur verið róið út frá
Hvammsvík í Hvalfirði og búist er við
því að svo verði áfram.
Þurfa að Þekkja sínar
takmörk
Það stendur ekki á svörum hjá Gísla,
þegar hann er spurður hvers vegna
fólk ætti að prófa að róa á kajak yfir
sumartímann. „Kajakróður er mjög
góð aðferð til að vera úti í náttúr-
unni og sjá landið frá öðru sjónar-
horni heldur en vanalega.“ Hann seg-
ir kajakróður reyna á jafnvægi og gefa
mikla hreyfingu. „Þetta er líkamsrækt
um leið. Svo er það mikið atriði að
meta sínar takmarkanir, því aðstæð-
ur geta snögglega breyst, svo maður
ræður ekki við þær. Kajakróður þarf
ekki að vera neitt hættulegur, ef mað-
ur þekkir sín takmörk,“ segir Gísli.
róið um
Breiðafjarðareyjarnar
Ein mest spennandi ferð sumars-
ins að mati Gísla er helgarferð um
Breiðafjörðinn, sem fram fer helg-
ina 7. til 9. ágúst. Þá verður lagt af
stað frá Króksfjarðarnesi á föstu-
degi. Róið verður í fyrsta áfanga inn
Króksfjörðinn og yfir að Borgareyri
og Pjattarsteini þar sem tjaldað verð-
ur. Daginn eftir verður farið á milli
Hríseyjar og lands að Reykhóla-
ströndinni og þörungavinnslunni
í Karlsey, yfir í Akurey þar sem áð
verður til sunnudags.
Kajakklúbburinn mun einn-
ig standa fyrir styttri ferðum, svo
sem dagsferð meðfram Vatnsleysu-
ströndinni auk haustferðar um
Þingvallavatn. Þá verða ýmsar ferðir
í boði fyrir straumkajakfólk, meðal
annars Galtaleikarnir sem fara fram
um miðjan júní. Tungufljótskapp-
róðurinn fer fram 27. júní, en í hon-
um keppa straumkajakræðarar í því
hver er fyrstur niður ána, um leið og
þeir leysa ákveðnar þrautir í straum-
vatninu.
Nánari upplýsingar um ferða-
dagskrá klúbbsins má finna á vef-
síðunni kayakklubburinn.com.
valgeir@dv.is
„Kajakróður þarf ekki
að vera neitt hættuleg-
ur, ef maður þekkir sín
takmörk.“
Kajakklúbburinn er með fjölda skipulagðra ferða í sumar, bæði fyrir straumkajakræðara og sjókajakræðara. Gísli
H. Friðgeirsson, formaður ferðanefndar Kajakklúbbsins, segir kajakróður gefa fólki færi á að sjá landið með
öðrum hætti en vanalega. Lengri og styttri ferðir eru í boði í sumar. Meðal annars helgarferð í ágúst þar sem róið
verður um eyjar Breiðafjarðar. Á Jónsmessunótt verður lagt af stað frá Hvammsvík og róið út í sumarnóttina.
annað
sjónarHOrn
Á nÁttÚruna
Kajak Kajakræðarinn Örlygur
Sigurjónsson sést hér í árlegri
ferð Kajakklúbbsins um eyjarnar á
Breiðafirði. Mynd Sveinn Axel