Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 58

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 58
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 201558 ÞVERSTÆÐAN UM LÝÐRÆÐISLEGT SKÓLASTARF því að einn af grunnþáttum menntunar í aðalnámskrá sem gefin var út árið 2011 var lýðræði og mannréttindi. En hvað þýðir þetta í raun fyrir skóla, t.d. grunnskóla? Hvað getur skólafólk gert til að efla lýðræði? Hvernig getur skóli verið lýðræðislegur? Það er síður en svo ljóst hvernig ætti að svara þessum spurningum. Í aðra röndina virðast skólar styðja við lýðræðið með venjubundinni kennslu í hefðbundnum greinum. Þetta sjónarmið kom fram þegar árið 1946, þegar ný heildarlög um almenna grunnmenntun voru sett, en þá var litið á slíka menntun sem lykilatriði í því að byggja upp sjálfstætt, nútímalegt og lýðræðislegt samfélag (Hlynur Ómar Björnsson, 2008; Ólafur Páll Jóns- son, 2014). Á hinn bóginn virðist næsta fráleitt að skólar geti beinlínis verið lýðræðis- legir þar sem þeir eru ekki samfélag jafningja, stjórnendur eru ekki valdir af þeim sem undir þá eru settir, nemendur hafa ekki nema takmarkað um það að segja hvað gert er í skólanum – og sömu sögu er raunar að segja um kennarana sjálfa. Hér birtist því einhvers konar þverstæða um lýðræðislegt skólastarf. Annars vegar virðist flest sem tilheyrir venjulegu skólahaldi falla vel að lýðræðislegu hlutverki skóla en hins vegar virðist fráleitt að skóli geti yfirleitt verið lýðræðislegur. Þessa þverstæðu væri e.t.v. auðvelt að leysa upp með því að gera greinarmun á lýðræði sem markmiði (undir- búningshlutverk skólanna) og lýðræði sem leið að marki (starfshættirnir). Sú leið er þó ekki opin þar sem skýrt er kveðið á um að markmiðinu eigi að ná með því að starfa lýðræðislega. Viðfangsefni mitt í þessari grein er tvíþætt. Annars vegar að gera grein fyrir þver- stæðunni og hins vegar að leysa hana. Ég byrja á að útskýra fyrri þátt þverstæðunnar, þá hugmynd að skólar sinni lýðræðislegu hlutverki sínu með venjulegri kennslu í hefðbundnum greinum (II. kafli). Ég ræði síðan hugmynd Sókratesar um kennivald skynseminnar (III. kafli) og nota hana til að hafna þessum skilningi á lýðræðislegu undirbúningshlutverki skóla. Að því búnu (IV. kafli) set ég fram frekari greiningu á kennivaldshugmyndinni áður en ég nota hana til að skýra nánar hugmynd um mótun lýðræðislegra borgara (V. kafli) sem samrýmist því að skóli geti verið lýðræðislegur þótt hann sem samfélag lúti ekki lýðræðislegri stjórn. Að lokum (VI. kafli) tengi ég þessar hugmyndir við nýlegar hugmyndir um skóla sem lærdómssamfélag og geri þá greinarmun á því sem kallað er faglegt lærdómssamfélag (e. professional learning community) og því sem ég kalla lýðræðislegt lærdómssamfélag. II HVAÐ GETA SKÓLAR GERT? Til að svara spurningunni um það hvað skólar geti gert til að efla lýðræði mætti hugsa sér að greina starfið í afmarkaða þætti, tengja svo hvern þátt við virkni lýðræðislegs samfélags eftir efnum og ástæðum og leggja síðan sérstaka áherslu á þá þætti sem tengjast lýðræðinu. En líklega myndi flest eða jafnvel allt sem gert er í skólum lenda á listanum yfir það sem tengist lýðræðinu, því hvað eina sem lýtur að menntun og fræðslu getur búið í haginn fyrir lýðræði með einum eða öðrum hætti. Þessi leið væri því í besta falli ómarkviss og ekki til þess fallin að leiðbeina um endurskoðun starfsins og eflingu skóla sem lýðræðislegra stofnana.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.