Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 VERÖLD
BOLLINN SEM REFSAR DRYKKJUÓÐUM Pýþagórasarbolli er heiti á
drykkjarfangi sem neyðir þann sem drekkur til að neyta drykkjarins aðeins í hófi. Bollinn leyfir neyt-
andanum að fylla hann með víni upp að ákveðnu marki. Ef sá sem drekkur fyllir bollann upp að mark-
inu má hann drekka í friði. Ef sá sem drekkur sýnir græðgi hins vegar með því að fylla glasið umfram
það, hellir bollinn niður innihaldinu í gegnum botninn, oftast í kjöltu hins óhófsama drykkjumanns.
Bollinn ber útlit venjulegs drykkjarfangs fyrir utan að súla stendur í miðjunni. Eðlisfræðileg öfl valda
því að drykkurinn hellist niður ef óhóflega er hellt í bollann. Vökvaþrýstingur í pípum innan í bollan-
um og súlunni sjá til þess. Bollinn er sagður uppfinning hins mikla forngríska stærðfræðings Pýþag-
órasar frá eyjunni Samos, en ferðamenn geta keypt bollann í minjagripabúðum á grísku eyjunni.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
HJÓLSÖGIN
Í HAFINU
n Hjólhákarlinum svipaði mjög til
hárkarlategunda nútímans en hann varð
útdauður fyrir um 300 milljón árum.
Hárkarlategundir nútímans eru stöðugt
að missa tennur og koma því nýjar
jafnskjótt í staðinn, liggja þannig nokkrar
raðir tanngarða saman í hvorum kjálka
fyrir sig. Hjá hjólhákarlinum var þetta
öðruvísi háttað því hann hafði sérstakan
neðri kjálka sem leit út eins og hjólsög.
Nýjar tennur á hjólinu ýttu þeim eldri
burt. Líffræðingar eru ekki á eitt sáttir
um alla starfsemi tannanna í þessum
útdauða hákarli, en eitt er víst að hann
leit mjög furðulega út.
RISAVAXIN
HUNDRAÐFÆTLA
n Arthropleura armata var gríðarlega
stór hundraðfætla sem varð útdauð
fyrir um rúmlega 300 milljón
árum síðan en ekki þykir líklegt að
dýrið snúi aftur í bráð, sem betur fer
kannski. Það er stærsta hryggdýrið
á landi sem vitað er um í sögunni
og náði um 2,5 metra lengd. Dýrið
átti enga óvini á landi, en ekki er
vitað hvernig það dó út. Líklegt er
að smærri arthropleura-tegundir
hafi nærst á plöntum á meðan þær
stærstu hafi verið alætur og notað
sterkbyggða kjálkana til að hakka í sig
græna rétti og til að veiða smávaxin
dýr og skordýr. Líffræðingar telja að
þessi risavaxna hundraðfætla hafi
nærst á um tonni af gróðri á ári.
STÆRSTI API
SÖGUNNAR
n Prímatar eru ættbálkurinn sem
sameinar menn, apa og lemúra.
Giganto pithecus, „gríðarstóri apinn“,
er talinn vera stærsti prímati sem uppi
hefur verið. Vitað er að hann lifði í Kína,
Suðaustur-Asíu og á Indlandi. Hann var
allt að 3-4 metrar á hæð þegar hann reis
upp á afturlappirnar. Tegundin er talin
hafa verið uppi um nokkuð langt skeið,
frá 5 milljónum ára til 300-200 þúsund
árum síðan. Ekki er vitað nákvæmlega
út af hverju gigantopithecus varð
útdauður en sumir telja að hann hafi ekki
getað aðlagað sig breyttum skilyrðum
á jörðinni en ísöld var skollin á um það
leyti sem apinn hvarf. Gigantopithecus
var fjarskyldur ættingi órangútans.
Margir halda að pýramídarnir í Giza í Egyptalandi liggi einir í víðum faðmi eyðimerkurinnar. Ástæðan er að flestar ljósmyndir sem við sjá-um af þessum ótrúlegu undrum fornaldarinnar eru teknar frá sama
sjónarhorni, hliðinni sem snýr út að eyðimörkinni. Fæsta langar til að smella
myndum af pýramídunum frá þeirri hlið er snýr að úthverfum stórborgarinnar
Kaíró. Það virðist á einhvern hátt eyðileggja fyrir ferðalöngum þá einföldu sýn
er þeir hafa af pýramídunum. Líkt og þeir vilji flýja raunveruleikann og ímynda
sér að ríki faraóanna sé enn þá við lýði.
Mörgum ferðalöngum þykir þannig grátlegt að horfa upp á nútímabygg-
ingarnar er hafa hrannast upp við rætur pýramídanna. Í þessum byggingum er
mikil starfsemi í kringum túrismann, en Giza er einn vinsælasti ferðamanna-
staður í heimi. Einnig hefur það verið erlendum ferðamönnum hinn mesti
þyrnir í augum að sjá að skyndibitakeðjurnar KFC og Pizza Hut selja mat í
nokkurra skrefa fjarlægð frá djásnum Fornegyptanna.
Blaðamaður rakst inn á spjallsvæði á tjáskiptasíðunni reddit.com þar sem
nábýli pýramídanna og Pizza Hut var rætt. Ónefndum netverja leist illa á fyr-
irkomulagið og spurði: „Hverjum datt eiginlega í hug að reisa pýramída við
hliðina á pizzastað?“
Áslaug Einarsdóttir kvikmyndagerðarkona ferðaðist til Egyptalands fyrir
nokkrum árum. „Þetta var eins og vera persóna í súrrealskri bíómynd að sitja
á Pizza Hut og horfa á Spfinxinn fyrir utan gluggann. Þarna er ákaflega sérstök
menningarleg blanda og svæðið í kringum pýramídanna alltaf að verða vest-
rænna,“ segir Áslaug.
PIZZA HUT
PÝRAMÍDARNIR Í GIZA OG
SPFINXINN OG
PÍTSAN Fæstir vita
að fáein skref skilja
sfinxinn og Pizza Hut
að. Enda hafa flestir
einungis séð
ljósmyndir á
borð við þessa.
Í FORNÖLD? Ljósmyndarar velja
frekar að mynda pýramídana frá
hliðinni er snýr að eyðimörkinni.
HORFT ÚT AF PÍTSUSTAÐNUM
Útsýnið yfir pýramídanna er
stórkostlegt frá Pizza Hut.
DV1001288722