Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 43
29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 43
Eiður Smári Guðjohnsen er kominn aftur til Englands. Hann gengur nú í raðir Tottenham eftir að hafa
verið hársbreidd frá því að endurnýja kynni sín við Gianfranco Zola hjá West Ham. Var þetta rétt valið
hjá Eiði? West Ham er lið án framherja á meðan Tottenham er með fjóra mjög góða framherja. Bíður
hans meiri bekkjarseta eða slær hann aftur í gegn?
BEKKURINN
BÍÐUR EIÐS
„Að fara í eitthvert annað lið á Eng-
landi væri eiginlega skref niður á
við,“ hefur Eiður Smári Guðjohnsen
látið hafa eftir sér. Eiður lék auðvit-
að lengi á Englandi með Chelsea og
varð tvisvar Englandsmeistari. Þessi
orð mælti hann þegar ljóst væri að
hann myndi yfirgefa Chelsea og svo
aftur síðar meir þegar látið var að því
liggja að hann væri að fara frá Barce-
lona.
Hann er þó kominn í þá stöðu að
geta ekki annað en fallið frá þessum
orðum, og það er allt í lagi. Hann
gengur nú í raðir Tottenham þegar
öll vötn virtust renna til West Ham.
En hvað bíður hans hjá Tottenham?
Meiri bekkjarseta? Hjá Tottenham
eru tveir landsliðsframherjar Eng-
lands sem Harry Redknapp, stjóri
liðsins, lætur byrja alla leiki. Meira
að segja markamaskínan og fyrir-
liði liðsins, Robbie Keane, er látinn
verma tréverkið.
ZOLA SVIKINN
Mikið hefur verið skrifað og skrafað
í enskum fjölmiðlum um Eið Smára
Guðjohnsen eftir því sem honum
hefur gengið verr og verr í franska
boltanum. Breska pressan hefur
ávallt dásamað hann og hefur und-
anfarnar vikur og mánuði keppst við
að koma honum að í úrvalsdeild-
inni. Lengi vel var haldið að Sam
Allardyce hjá Blackburn myndi fá
Eið til sín en undanfarið hefur West
Ham verið hvað áhugasamast um
Eið.
Gianfranco Zola, stjóri West Ham,
lék með Eiði hjá Chelsea og eru þeir
ágætir vinir. Samkvæmt fréttum frá
Englandi fór Eiður í læknisskoðun
hjá West Ham og virtist ekki annað
í stöðunni en hann myndi ganga í
raðir liðsins. Það var þá sem Harry
Redknapp, stjóri Tottenham, bland-
aði sér í málin. Hann hafði samband
við Arnór Guðjohnsen, föður Eiðs,
og upp frá því hófst rússíbanareið.
Svo fór á endanum að Eið-
ur samdi við Tottenham, að því er
virðist ekki peninganna vegna eins
og margir vilja halda fram. Harry
Redknapp fullyrti í fjölmiðlum að
Totten ham myndi ekki greiða krónu
meira en West Ham væri að bjóða
honum. Mætti því segja að Eiður
hafi svikið félaga sinn Zola á endan-
um. Stuðningsmenn félagsins, það
er að segja West Ham, hafa allavega
ekki vandað Eiði Smára kveðjurnar
á spjallborðum félagsins. Hafa þar
fallið mörg misfalleg orð.
BÍÐUR BARA BEKKURINN?
West Ham virtist í fljótu bragði vera
draumastaður fyrir Eið að komast
á. Lið þar sem hann væri orðinn
kóngurinn enda hefði hann verið
eitt langstærsta nafnið í liðinu. Það
sem meira er þá er West Ham í fram-
herjavandræðum og vantar einmitt
leikmann eins og Eið. Reynslumik-
inn mann með afbragðstækni sem
getur haldið boltanum, haldið uppi
spilinu, verið fyrir aftan fremsta
mann og jafnvel sett nokkur mörk.
Staðan er klárlega önnur hjá Tot-
tenham. Þar er framherjaparið al-
gjörlega niðurneglt. Landsliðs-
mennirnir Jermaine Defoe og Peter
Crouch eru klárlega par númer
eitt hjá Harry Redknapp enda fáir
þjálfarar í heiminum jafnhrifn-
ir af því að vera með einn stór-
an og annan lítinn frammi. Eru
þeir svo geirnegldir frammi að
fyrirliði liðsins, Robbie Keane,
kemst ekki lengra en á bekkinn.
Það er ansi gróft þegar hugsað
er til þess að Keane hefur rað-
að inn mörkunum fyrir Totten-
ham og ekki má gleyma að
hann er 10. markahæsti leik-
maður ensku úrvalsdeildar-
innar frá upphafi.
Tottenham er síðan með
fjórða framherjann, Rússann
Roman Pavlychenko. Ansi
líklegt er þó að hann yfirgefi
félagið, sérstaklega með
komu Eiðs. Eiður þarf líka
að vona það til þess að verða
ekki fimmti framherji liðsins.
Harry Redknapp hefur lýst yfir aðdá-
un sinni á Eiði en blákalt á málið lit-
ið er Redknapp gífurlega íhaldssam-
ur og spilar á því sem hann heldur
að virki endalaust. Og honum verður
ekki haggað.
Ekki eru heldur miklar líkur á
því að Eiður detti niður á miðjuna.
Totten ham spilar 4-4-2 með tvo afar
vinnusama miðjumenn. Er erfitt að
hugsa til þess að Redknapp treysti
Eiði Smára í það verkefni.
En einu má ekki gleyma.
Það sem alltaf er sagt um
Eið Smára Guð-
johnsen. Hann
kemur allt-
af til baka.
Þannig
mað-
ur er
hann. Enski bolt-
inn hentar honum
og Tottenham er vel
spilandi lið. Nú er
samt komið að Eiði
að svara öllum.
Og það gerir
hann á vell-
inum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
JERMAIN DEFOE
n Mörk á tímabilinu: 19
n Landsleikir/mörk: 37/11
PETER CROUCH
n Mörk á tímabilinu: 12
n Landsleikir/mörk: 34/16
ROBBIE KEANE
n Mörk á tímabilinu: 10
n Landsleikir/mörk: 92/40
19 MÖRK12 MÖRK 10 MÖRK
KEPPINAUTARNIR
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
Endurkoma eða bekkjarseta?