Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Síða 2
INGIBJÖRG Í EINKAÞOTU
n Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáver-
andi formaður Samfylkingarinnar
og utanríkisráðherra, flaug í einka-
þotu á vegum Kristínar Ólafsdóttur,
konu auðmannsins Björgólfs Thors
Björgólfssonar, frá eyjunni Barbados
í Karíbahafinu og til eyjunnar Jamaíka í lok
mars 2008.
Ingibjörg og Kristín sóttu ráðstefnu á Barbad-
os um alþjóðlega samvinnu á sviði sjálfbærrar
þróunar og fóru þaðan til Jamaíka til að kynna
sér starfsemi UNIFEM, þróunarsjóð Sam-
einuðu þjóðanna fyrir konur. Ráðstefnan var
samstarfsverkefni á milli Íslands og smáey-
þróunarríkja í Karíbahafi. Ingibjörg fór á ráðstefnuna út
af starfi sínu sem utanríkisráðherra.
Þotan sem Kristín og Ingibjörg flugu í var leigð á Barbados af Kristínu til að
fljúga til Jamaíka, samkvæmt heimildum DV. Björgólfur Thor Björgólfsson
var ekki með í för. Flugtíminn á milli eyjanna er tvær og hálf klukkustund
en um 2.000 kílómetrar eru á milli þeirra.
KLÍKAN Í LÚXEMBORG TEKIN
n Interpol lýsti eftir Sigurði Einarssyni,
fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, á
þriðjudagskvöld. Í kjölfar íslenska
bankahrunsins fluttu þrír af stjórn-
endum Kaupþings til Lúxemborg-
ar og ráku ráðgjafarfyrirtæki sitt,
Consolium, þar. Þetta voru þeir
Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur
Helgason og Steingrímur Kárason. Fyrir í
Lúxemborg bjó Magnús Guðmundsson sem
stýrt hafði Kaupþingi þar í landi fyrir hrun.
Svo vildi til að einungis skömmu eftir að
Kaupþing í Lúx tók til starfa undir nýju
nafni í júlí 2009 spurðist það út að Hreiðar
Már væri fluttur þangað. Nýi bankinn hét
Banque Havilland og var stýrt af Magnúsi
sem fyrr. Ingólfur og Steingrímur fluttu svo einnig til Lúx um þetta leyti.
Með handtöku fjórmenninganna er væntanlega bundinn endi á þessa
tengingu við Banque Havilland í Lúxemborg þar sem Magnúsi hefur verið
sagt upp störfum og afar ólíklegt verður að teljast að Hreiðar, Ingólfur og
Steingrímur fái að vinna fyrir bankann aftur.
ÞAR SEM SLÓÐIRNAR ENDA
n Leiðirnar sem voru farnar á árunum fyrir hrun til að fela eignarhald eða
koma fjármagni undan skattayfir-
völdum voru fjölbreyttar
og margar. Hin svoköll-
uðu skattaskjól eða af-
landssvæði eru víða um
heim og mikið fjármagn
sem falið er í skjóli þess-
ara sannkölluðu skattaparadísa.
Fjallað er um fjölmörg aflands-
félög föllnu íslensku bankanna
í skýrslu rannsóknarnefndar al-
þingis sem fyrst og fremst voru
notuð til að fela eignarhald þar sem komist var hjá yfirtökuskyldu og hækka
verð á hlutabréfum í bönkunum. Hinir svokölluðu útrásarvíkingar áttu
einnig fjölmörg félög sem skráð voru á aflandseyjum víða um heim. Þessi
félög má finna á stöðum eins og á Kýpur, Panama, Bresku Jómfrúreyjunum,
Delaware-fylki í Bandaríkjunum, Cayman-eyjum og fleiri stöðum. Allt eru
þetta þekkt aflandssvæði þar sem mjög erfitt getur reynst að fá upplýsing-
ar um raunverulega eigendur félaganna. Talið er að yfir 90 skattaskjól séu í
heiminum í dag þar sem milljónir huldufélaga eru starfræktar.
2
3
1 MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 10. – 11. MAÍ 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 53. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395VANTAÐI Í RANNSÓKNARSKÝRSLUNA:
Í JOGGING-GALLA
Á LITLA-HRAUNI
n SAKSÓKNARI TIL LONDON Á EFTIR SIGURÐI EINARSSYNI
FÓLK
„ÉG FÉKK
BARA
FAR“
n INGIBJÖRG SÓLRÚN
FÓR MEÐ EINKAÞOTU
EIGINKONU BJÖRGÓLFS
n VAR Á RÁÐSTEFNU UM
FÁTÆKT Í BARBADOS
n FÓR TIL JAMAÍKA MEÐ
KRISTÍNU ÓLAFS
n „EKKI AUÐVELT AÐ FARA
Á MILLI ÞESSARA EYJA“
ÚRSLIT
IDOL
FRÉTTIR
27 RÁÐGEGN
KRABBAMEINI
RANNSÓKNIR:
HRUKKU-
KREMIN
VIRKA
EKKI!
BÆ,BÆ,
BROWN
CHELSEA
BEST
SPORT
ÚTTEKT
NEYTENDUR
ERLENT
FRÉTTIR
ÚR GRÆNMETI
Í KAUPÞING
n MILLJARÐA LÁN TIL AÐ KAUPA Í KAUPÞINGI FRÉTTIR
NÝTT: VEÐRIÐ MEÐ
SIGGA STORMI
JÓN ÁSGEIR Á
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 12. – 13. MAÍ 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 54. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
MILLJARÐAMENNIRNIR Í KAUPÞINGI:
ÞANGAÐ FÓRU
PENINGARNIR
n DV RANNSAKAR SLÓÐ PENINGA FRÁ ÍSLANDI TIL SKATTASKJÓLA
KLÍKAN Í
LÚX TEKIN
FRÉTTIR
n STARFA SEM RÁÐGJAFAR FYRIR
ARFTAKA KAUPÞINGS Í LÚXEMBORG
n TITRINGUR MEÐAL ÍSLENDINGA Í LÚX
n SYSTIR SIGURÐAR VEIT EKKERT UM HANN
n SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI: „HANN
VERÐUR BARA AÐ SJÁ ÞAГ
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
STEINGRÍMUR
KÁRASON
SVIPT
ÞJÓÐERNI
FRÉTTIR
n „ÉG ER HLUTI AF
SAMFÉLAGINU“
BÝR Í
HJÓL-
HÝSI
n KEYRIR UM
Á CADILLAC
LAUS UNDAN ATVINNULEYSI:
FÉKK
LOKSINS
VINNU
FRÉTTIR
FRÉTTIR
GRUNAÐUR UM MANNDRÁP:
VARÐ SJÁLFUR
FYRIR
ÁRÁS
n EINFARI, EN ÁGÆTIS DRENGUR
FRÉTTAMENN STÖÐVAR 2:
‚‚Við erum
sorgmædd‘‘
FÓLK
Leiðirnar sem voru farnar á ár-
unum fyrir hrun til að fela eignar-
hald eða koma fjármagni undan
skattayfirvöldum voru fjölbreyttar
og margar. Hin svokölluðu skatta-
skjól eða aflandssvæði eru víða um
heim og mikið fjármagn sem fal-
ið er í skjóli þessara sannkölluðu
skattaparadísa. Borgirnar sem eru
skilgreindar sem skattaskjól (e. Tax
havens) eru margar á fjarlægum
slóðum.
Skattaskjólin mörg
Fjallað er um fjölmörg aflandsfélög
föllnu íslensku bankanna í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis sem
fyrst og fremst voru notuð til að
fela eignarhald þar sem komist var
hjá yfirtökuskyldu og hækka verð
á hlutabréfum í bönkunum. Hin-
ir svokölluðu útrásarvíkingar áttu
einnig fjölmörg félög sem skráð
voru á aflandseyjum víða um heim.
Þessi félög má finna á stöðum eins
og á Kýpur, Panama, Bresku Jóm-
frúareyjunum, Delaware-fylki í
Bandaríkjunum, Cayman-eyjum
og fleiri stöðum. Allt eru þetta
þekkt aflandssvæði þar sem mjög
erfitt getur reynst að fá upplýsing-
ar um raunverulega eigendur félag-
anna. Talið er að yfir 90 skattaskjól
séu í heiminum í dag þar sem millj-
ónir huldufélaga eru starfræktar.
Í mörgum tilfellum er aflandsfé-
lag sett upp af bankastofnun í landi
sem býr við mikla bankaleynd,
til dæmis Lúxemborg, Sviss eða
Liecht enstein. Starfsmenn í þess-
um bankastofnunum stjórna fé-
lögunum og eru þeir einu sem vita
hverjir raunverulegir eigendur af-
landsfélaganna eru.
Slóðirnar hverfa
Fjölmargir lögmenn sem DV hef-
ur rætt við og koma að skiptamál-
um þrotabúa segja leiðir búanna
liggja til aflandssvæða í mörgum
tilfellum. „Það er í flestum tilfellum
nánast ómögulegt að rekja slóðir
þessara fyrirtækja því það eru vegg-
ir sem við rekumst á,“ segir lögmað-
ur en oft eru einu upplýsingarn-
ar sem fást að viðkomandi félag sé
dottið af skrá. „Þegar maður hefur
samband við skráningarskrifstofu
þessara félaga í viðkomandi landi
fær maður oft þau svör að engar
upplýsingar sé að hafa því ekki hafi
verið greidd skráningargjöld af fyr-
irtækinu.“
Peningar hverfa
Sem dæmi um þessar flóknu fléttur
er hægt að setja eitt dæmi upp með
fjögur fyrirtæki sem öll eru skráð á
aflandssvæðum. Fyrirtæki A lánar
fyrirtæki B eitt hundrað milljón-
ir króna. Þá er fyrirtæki C sem fær
þessar hundrað milljónir að láni.
Fyrirtæki D yfirtekur fyrirtæki C, en
fyrirtæki D hefur ekki greitt skrán-
ingargjöld á sínu aflandssvæði og
því er engar upplýsingar um það
fyrirtæki að hafa. Þar endar slóðin
og mjög erfitt getur verið að finna
hana. „Það liggur fyrir að afskrifa
þarf þessar upphæðir sem finnast
ekki – hvað svo varð um peningana
í raun veit enginn,“ segir lögmað-
ur sem rekur slóð peninga í einu af
þeim fjölmörgu þrotabúum sem nú
eru til skipta í íslensku samfélagi.
Á Íslandi virkar leitin
Einn lögmaður sem rannsak-
ar slóðir peninga um allan heim í
þrotabúi segir að kerfið virki mjög
vel á Íslandi við að finna slóðirn-
ar. „Þetta virkar allt mjög vel hér
heima og ég hef allar heimild-
ir til að kalla eftir upplýsingum frá
bönkum, skattayfirvöldum og þeim
sem hafa verið í viðskiptum við fé-
lagið hér heima. Um leið og slóðin
fer til útlanda vandast málið. Þó við
höfum vald hér heima virkar það
ekki úti.“
Enginn veit hver á
Félög á aflandssvæðum hafa ver-
ið notuð til að fela eignarhald í ís-
lenskum fyrirtækjum meðal ann-
ars vegna samkeppnissjónarmiða
og yfirtökuskyldu. Þá eru stærstu
eigendur fyrirtækjanna að kaupa
meira af hlutabréfum í viðkomandi
fyrirtæki og fara með því á svig við
reglur. En það veit enginn að þeir
eigi þessa hluti í fyrirtækjunum
því fyrirtæki á aflandssvæðum eru
skráð fyrir hlutabréfunum og eng-
ar upplýsingar er að fá um eignar-
haldið.
Í þessum málum er líka mjög
erfitt að fá upplýsingar. Eitt þeirra
íslensku dæma sem nú eru til rann-
sóknar í þrotabúi er íslenskt einka-
hlutafélag sem á eignir á Íslandi.
Íslenska fyrirtækið er svo í eigu af-
landseyjafélags sem ekki er hægt
að fá upplýsingar um hver á og því
veit í raun enginn hver á eignirnar
á Íslandi.
Lögmenn dýrir erlendis
Ein leiðin sem lögmenn hafa rætt
um er að ráða erlendar lögmanns-
stofur til að rekja slóð peninganna.
„Fólki hér á landi finnst þjónusta ís-
lenskra lögmanna býsna dýr en hún
er bara hátíð miðað við það hvað
verið er að borga lögmönnum í út-
löndum,“ segir íslenskur lögmaður.
Mörg þeirra þrotabúa sem eru
til skipta eru eignalítil en skipta-
stjórar þrotabúanna fá greitt fyr-
ir vinnu sína við að finna eignir og
koma þeim í verð með þeim eign-
um sem fyrir eru. Staðan getur því
verið sú að eignirnar dugi ekki fyr-
ir þeirri vinnu að leita eignir eða
peninga uppi. „Eru kröfuhafarnir
12 MIÐVIKUDAGUR 12. maí 2010 FRÉTTIR
Lögmenn sem starfa við rannsóknir á þrotabúum íslenskra fyr-
irtækja segja erfitt að rekja slóðir eigna eða peninga til aflands-
svæða. Slóðirnar enda í aflandsfélögum sem enginn veit hver á.
Dýrt sé að leita aðstoðar erlendis við að finna eignirnar.
Íslenska fyrir-tækið er svo í
eigu aflandseyjafélags
sem ekki er hægt að fá
upplýsingar um hver á
og því veit í raun eng-
inn hver á eignirnar á
Íslandi.
JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is
Bankaleynd Í Genf í Sviss eru margar fjármálastofnanir þar sem vitneskju um aflandsfélög víða um heim er að finna. Banka-leyndin í landinu er það sterk að sjaldnast tekst að fá upplýsingar um raunverulega eigendur aflandsfélaganna.
ÞAR SEM SLÓÐIRNAR ENDA
Skattaskjól Á eyjunni Tortóla, sem er sú stærsta
af Bresku Jómfrúareyjunum, eru þúsundir
aflandsfélaga skráðar. Það reynist þrautin þyngri
að fá upplýsingar um eigendur félaganna sem oft
eru „leppuð“ með fölsku eignarhaldi.
tilbúnir til að setja milljónir í það
að leita að eignun. Félagið finnst
svo fyrir rest og það kann að vera
eignalaust eða gjaldþrota. Það er
því þannig að ef það eru nokkurra
milljóna króna kröfur á félög í út-
löndum afskrifar maður þær,“ segir
íslenskur lögmaður sem vinnur að
uppgjöri íslensks þrotabús.
Slóðina er hægt að rekja
Bankamenn sem störfuðu í Lúx-
emborg og öðrum stöðum í Evrópu
á vegum íslensku bankanna segja
að það sé alltaf hægt að finna slóðir
peninganna. „Allar greiðslur fara raf-
rænt fram og það hlýtur að vera hægt
að rekja sig þannig áfram,“ sagði einn
þeirra. Eva Joly hefur einnig látið
FRÉTTIR 12. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
Það liggur fyrir að afskrifa þarf þessar upphæðir sem
finnast ekki – hvað svo varð um
peningana í raun veit enginn.
Paul Cristian Radu er rúmensk-
ur rannsóknarblaðamaður sem
hefur um árabil unnið að rann-
sóknum tengdum fjármálaspill-
ingu og glæpastarfsemi. Paul er
margverðlaunaður rannsóknar-
blaðamaður og hlaut meðal annars
alþjóðleg verðlaun Knight-stofn-
unarinnar fyrir afbragðs blaða-
mennsku á alþjóðlegum vettvangi
árið 2004. Hann stundar nú nám
við Stanford-háskóla í Bandaríkj-
unum. Hann hefur starfað við ýmsa
fjölmiðla í Rúmeníu en einnig í Evr-
ópu og Bandaríkjunum hjá með-
al annars fréttaskýringaþættinum
20/20 sem sýndur er á ABC-sjón-
varpsstöðinni, auk annarra sjón-
varpsstöðva svo sem NBC, BBC
og CBS. Paul er ritstjóri fréttavefj-
ar sem fjallar um skipulagða og al-
þjóðlega glæpastarfsemi í löndum
Austur-Evrópu og hefur á þeim vett-
vangi komið að ritstjórn fjölmargra
verkefna á sviði rannsóknarblaða-
mennsku.
Margföld lagskipting
Paul segir að það sé mjög erfitt og
vandasamt að feta sig eftir slóð
peninganna hjá fólki sem vill fela
þá slóð. „Það er ekki bara erfitt fyr-
ir blaðamenn sem eru að skoða
þessi mál heldur einnig lögregluyf-
irvöld. Aflandssvæði gera mönnum
það kleift að fela sig bak við stað-
gengla, lögfræðinga og leyndarlög.
Það er heill her af lögmönnum sem
eru sérhæfðir í að veita viðskipta-
mönnum ráðgjöf um að fela eign-
arhald á fyrirtækjum með marg-
faldri lagskiptingu af fyrirtækjum
og leyndarhjúpum. Skjöl og önnur
gögn frá þessum svæðum eru mjög
takmörkuð og þegar þau finnast
leiða þau oftast til staðgengils en
ekki raunverulegs eiganda fyrir-
tækisins,“ segir Paul en hann hefur
gefið út bækling fyrir rannsóknar-
blaðamenn þar sem bent er á leið-
ir til að þræða slóð raunverulegra
eigenda fyrirtækja.
Fela peninga og eignarhald
Að mati Pauls er ástæða þess að fólk
og fyrirtæki stundi viðskipti á af-
landseyjum í fyrsta lagi sú að með
því sé komist hjá því að greiða skatta
í heimalandi viðkomandi. „Önn-
ur ástæða, og þá sérstaklega þeg-
ar horft er til skipulagðrar glæpa-
sarfsemi, er sú að þá vilja menn
fela peninga og leyna eignarhaldi
á fyrirtækjum og öðrum eignum.
Í báðum tilvikum er um spillingu
að ræða sem leiðir til fjárhagslegra
erfiðleika hjá þjóðum viðkomandi,“
segir Paul.
Reynt að opna
Á síðustu misserum hafa stjórnvöld
á mörgum aflandssvæðum skrif-
að undir alþjóðlega samninga um
að veita upplýsingar. „Það er mikill
þrýstingur núna á aflandssvæðin frá
ýmsum löndum innan Evrópusam-
bandsins og í Bandaríkjunum um
að veita upplýsingar. Hins vegar vilja
mörg þessara svæða sem minnstar
upplýsingar veita þar sem fjárhags-
leg innkoma vegna aflandsfélaga er
mikilvægur þáttur í efnahag svæð-
anna,“ segir Paul. johanneskr@dv.is
Margverðlaunaður rúmenskur blaðamaður hefur rannsakað
slóð peninga um allan heim með góðum árangri. Hann segir
flétturnar sem notaðar eru til að fela slóð peninga mjög flóknar.
Flóknar fléttur
Rekur slóðir Paul Radu hefur skrifað fjölmargar fréttir um alþjóðlega glæpastarf-semi í Austur-Evrópu þar sem honum hefur tekist að rekja slóð eignarhalds og fjármagns til glæpaforingja, spilltra stjórnmálamanna og kaupsýslumanna.
Aflandssvæði gera mönnum
það kleift að fela sig
bak við staðgengla, lög-
fræðinga og leyndarlög.
Eitt af þeim verkefnum sem Paul
Radu hefur unnið að er að skrifa
bækling fyrir rannsóknarblaða-
menn sem ber heitið „Að rekja
slóð peningana“ og hægt er að
nálgast frítt á netinu. Þar eru
raktar sögur af blaðamönn-
um sem hafa rannsakað flókn-
ar fyrirtækjafléttur þar sem ver-
ið er að leyna eignarhaldi eða
fela fjármagn. Það getur reynst
mjög erfitt að finna raunveruleg-
an eiganda fyrirtækisins og hafa
blaðamenn í fyrrverandi ríkjum
Júgóslavíu rakið raunverulegan
eiganda fyrirtækis í gegnum tut-
tugu fyrirtæki sem öll voru notuð
til að leyna eignarhaldi.
Flækjurnar flóknar
Í bæklingnum kemur fram að
forsprakkar glæpahópa notist
oft við sömu lögmennina í fyr-
irtækjafléttunum. Það geri þeir
til að blanda sem fæstum inn í
glæpastarfsemina. En þetta hef-
ur þann kost í för með sér að
blaðamenn sem hafa rannsak-
að þessi mál finna oft mörg fyrir-
tæki undir viðkomandi lögmanni,
jafnvel allt upp í hundrað. Þegar
eignarhald hvers og eins fyrirtæk-
is er skoðað koma oft í ljós teng-
ingar við alþjóðlega glæpa-
starfsemi.
Eignarhlutir faldir
Þeir sem eru í forsvari glæpa-
samtaka og eru þekktir hjá bæði
lögregluyfirvöldum og blaða-
mönnum hafa reynt ýmsar að-
ferðir við að leyna eignarhaldi á
fyrirtækjum sem þeir koma ná-
lægt. Slíkt dæmi er rakið í bæk-
lingnum þegar ungverskt fyr-
irtæki, Eural TransGas, fékk
samning um sölu á gasi fyrir
rússneska fyrirtækið Gazprom í
Austur-Evrópu. Viðskiptin námu
hundruð milljónum evra á hverju
ári. Blaðamenn fóru að kanna
eignarhaldið á Eural TransGas og
sýndi hluthafaskráin að þrír rúm-
enskir ríkisborgarar voru eigend-
ur fyrirtækisins. Blaðamenn fóru
og heimsóttu eigendurna sem
voru fyrrverandi leikkona á átt-
ræðisaldri og ungt bláfátækt par
sem bjó í foreldrahúsum. Ekkert
þeirra hafði heyrt um Eural Trans-
Gas og þá síður að þau væru skráðir
eigendur.
Alltaf tengingar
Umdeildir rússneskir viðskipta-
menn sem vildu fela eignarhald
sitt á fyrirtækinu fengu ungverskan
lögmann til að finna fólk sem gæti
„leppað“ fyrirtækið og orðið eig-
endur á blaði. Ungverski lögmað-
urinn þekkti dóttur öldruðu leik-
konunnar sem aftur þekkti unga
parið, sem bjó í íbúðinni við hlið-
ina. Þeim var greidd smáþóknun
gegn því að fá leyfi til að nota vega-
bréf þeirra í Ungverjalandi. Í bæk-
lingnum segir að það séu alltaf
tengingar sem hægt sé að rekja sig í
gegnum í málum sem þessum.
johanneskr@dv.is
Bæklingur sem skrifaður er fyrir rannsóknarblaðamenn um allan heim:
„Að rekja slóð peninganna“
FRAMHALD
Á NÆSTU
SÍÐU
hafa það eftir sér að það sé alltaf hægt
að rekja slóðir peningana. Rannsókn-
arblaðamönnum víða um heim hef-
ur einnig tekist að rekja slóðir eign-
arhalds og peninga til yfirmanna
alþjóðlegra glæpasamtaka í gegnum
fjölmörg félög á aflandseyjum. Fé-
lög sem nota bankastofnanir þar sem
bankaleyndin er mikil.
Follow the Money:
A Digital Guide
for Tracking Corruption
By Paul Cristian Radu
Follow the money Í
bæklingnum er bent á leiðir
til að rekja slóðir peninga og
eignarhalds.
2 FÖSTUDAGUR 14. maí 2010 FRÉTTIR
ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
ÞETTA HELST Ítalski lögmaðurinn Giovanni di Stefano hefur boð-ist til að verja Hreiðar Má Sigurðsson í réttarhöldum yfir honum.
Giovanni var lögmaður Saddams Hussein og hefur lýst því yfir
að hann myndi vilja verja bæði Adolf Hitler og Jósef Stalín. Hann
segir Hreiðar Má vera blóraböggul breskra yfirvalda.
HITT MÁLIÐ
Ítalski lögmaðurinn Giovanni di
Stefano hefur boðist til að verja
Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings, í yfirvof-
andi réttarhöldum yfir honum hér
á landi. Lögmaðurinn er vanur að
verja skjólstæðinga í erfiðri stöðu,
því hann varði meðal annars Sadd-
am Hussein, fyrrverandi einræð-
isherra Íraks. Hann var einnig við-
skiptafélagi serbneska herforingjans
Željko Ražnatovic.
Í samtali við DV segir di Stefano
að handtakan á Hreiðari Má sé sorg-
leg. „Handtakan á Hreiðari Má og
allt Kaupþingsmálið er vegna þrýst-
ings af hálfu bresku ríkisstjórnar-
innar gagnvart Íslendingum,“ segir
hann.
Strengjabrúður Breta
Þegar di Stefano er beðinn um að út-
skýra hvað hann eigi við, segist hann
viss um að bresk yfirvöld hafi hótað
ríkisstjórninni að stöðva lánveitingar
ef Hreiðar Már yrði ekki handtekinn.
Hann segist eiga gögn til sönnunar
um það, sem hann mun leggja fram
ef Hreiðar Már leitar til hans. „Íslend-
ingar mega ekki verða strengjabrúð-
ur Breta. Rannsókn hefur staðið yfir
frá því Kaupþing féll og þeir hafa ekki
fundið nein sönnunargögn. Þetta er
sakamál og ef þeir hefðu eitthvað á
Kaupþingsmennina væri löngu búið
að handtaka þá. Þeir eru hins veg-
ar aðeins handteknir vegna þess að
breska fjármálaeftirlitið beitti sér-
stakan saksóknara þrýstingi,“ segir di
Stefano og er mikið niðri fyrir.
Lögmaðurinn komst í fréttirnar á
Íslandi árið 2007, þegar hann tók að
sér að verja hinn íslenskættaða Paul
Einar Aðalsteinsson, öðru nafni Ian
Strachan, sem var dæmdur í fangelsi
fyrir að kúga fé út úr frænda Elísa-
betar Bretadrottningar. Hann hefur
ennfremur haft aðsetur í Vestmann-
eyjum, að eigin sögn. Hann hefur
lýst því yfir að hann myndi jafnvel
vilja verja Adolf Hitler og Jósef Stalín
í réttarhöldum.
Var sjálfur með
reikning í Kaupþingi
Aðspurður hvers vegna hann vilji
verja Hreiðar Má, svarar di Stef ano:
„Ég var með reikning hjá Singer &
Friedlander. Það sem gerðist á Ís-
landi hefur haft áhrif á öll viðskipti
Íslendinga í Bretlandi síðan þá. Eins
og ég segi er handtakan á Kaup-
þingsmönnunum ekki eitthvað sem
sérstakur saksóknari tók ákvörðun
um sjálfur. Þetta var allt vegna þrýst-
ings frá ríkisstjórn Gordons Brown. “
Hann segist þó ekki hafa náð sam-
bandi við Hreiðar Má ennþá, enda er
honum haldið í einangrun á Litla-
Hrauni. Hann segist hins vegar hafa
komið sér í samband við fjölskyldu
hans. „Ef Hreiðar Már vill að ég verji
hann, mun ég glaður gera það. Ég
hef haft aðsetur á Íslandi og ég var
sem fyrr segir innistæðueigandi hjá
Kaupþingi, þannig að ég ætti að hafa
fulla ástæðu til að vera reiður út í þá,
en ég kvarta ekki. Mér líður mjög illa
fyrir hans hönd. Það er mjög mikil-
vægt að sakamál sem eru fyrir dóm-
stólum blandist aldrei stjórnmálum.
Af þeirri ástæðu myndi ég taka málið
og ég myndi leggja fram mörg skjöl
sem sanna það að Hreiðar Már er í
fangelsi vegna þrýstings Breta.“
Fá ekki að verða blórabögglar
Hann segist vona að fjölskylda
Hreiðars Más hafi samband við sig.
„Fjármálaeftirlitið í Bretlandi hef-
ur einnig verið að rannsaka Kaup-
þingsmenn en þeir hafa ekki fundið
nein sönnungarögn. Það hefur haft
í för með sér pólitískt bakslag fyrir
fráfarandi ríkisstjórn Bretlands. Af
þeirri ástæðu vildu þeir láta hand-
taka hann. Áætlun Bretanna er að
skella skuldinni á Hreiðar Má. Það
má hins vegar aldrei gerast að hann
verði gerður að blóraböggli. Hann
hefur ekki gert neitt rangt. Líttu bara
á Royal Bank of Scotland, þar hafa
engir stjórnendur verið handteknir. Í
staðinn beina þeir sjónum að Íslend-
ingunum og ég ætla ekki að leyfa því
að gerast.“
LÖGMAÐUR
SADDAMS
VILL VERJA
HREIÐAR
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Ef Hreiðar Már vill að ég verji hann,
mun ég glaður gera það.
Skjólstæðingur
Saddam Hussein
var skjólstæðingur
Giovannis di Stef-
ano í réttarhöldum
yfir honum.
Giovanni di Stefano
„Handtakan á Hreiðari Má
og allt Kaupþingsmálið er
vegna þrýstings af hálfu
bresku ríkisstjórnarinnar
gagnvart Íslendingum.“
Hreiðar Már Sigurðsson Ítalski
lögmaðurinn segir Hreiðar Má vera í
fangelsi vegna þess að bresk yfirvöld
ætla að gera hann að blóraböggli.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verkir í hásin?
Vandaðar stuðningshlífar
til meðferðar á hásinabólgu
Fjölbreytt úrval