Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 14. maí 2010 FÖSTUDAGUR 15
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
SÉRA ÓSKAR SÉR
UM SELFOSSKIRKJU
Prestadeilur í Selfosskirkju eru enn og
aftur á borði biskups Íslands, Karls Sig-
urbjörnssonar. Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum DV hefur sóknarpresti
kirkjunnar, séra Kristni Ágústi Frið-
finnssyni, litist illa á tregðu samstarfs-
manns síns, séra Óskars Hafsteins
Óskarssonar, til samstarfs. Því leitaði
Kristinn Ágúst til biskups til að leysa
vandann.
Vandinn hefur snúið að því að Ósk-
ar hefur viljað hafa vald yfir Selfoss-
kirkju en við það hefur sóknarprest-
urinn ekki getað unað. Fram til þessa
hafa þeir ekki getað komið sér saman
um verkaskiptingu sín á milli.
Ósætti um símann
Kornið sem fyllti mælinn hjá sókn-
arprestinum var nýlegur árekstur við
prestinn þegar séra Óskar fór á dög-
unum norður að kveðja gamla söfn-
uðinn sinn á Akureyri. Eftir því sem
DV kemst næst ákvað séra Kristinn að
stilla síma Selfosskirkju í farsímann
sinn. Það gramdist Óskari samkvæmt
heimildum DV og hið sama má segja
um sóknarnefnd kirkjunnar sem fund-
aði um málið og lýsti yfir óánægju með
gjörning sóknarprestsins.
Á miðvikudag í síðustu viku komst
Karl biskup svo að þeirri málamiðlun
að séra Óskar héldi utan um daglegt
starf kirkjunnar, þar með talið sam-
skipti við starfsfólkið, á meðan Krist-
inn sæi um mótun þess. Í úrskurði
biskups er þess sérstaklega getið að
sóknarprestur hafi ekki stjórnunarvald
yfir presti.
Rifust um skrifstofu
Frá því að Kristinn Ágúst tók við sókn-
arprestsembættinu í nýsameinuðu
Selfossprestakalli hafa áður komið
upp árekstrar milli hans og séra Ósk-
ars. Þannig hafnaði sá síðarnefndi til
dæmis því að hleypa sóknarprestin-
um inn á skrifstofu kirkjunnar og sat
þar sjálfur sem fastast. Nú er verið að
útbúa nýtt skrifstofurými fyrir sóknar-
prestinn í kirkjunni í staðinn.
Á borði biskups
Á þeim mánuðum sem liðnir eru
frá því að báðir voru ráðnir í Selfoss-
prestakall hafði þeim ekki tekist að
ganga frá samstarfssamningi sín á
milli. Samningsgerðin hefur fram til
þessa strandað á því að séra Óskar
vill stýra daglegu starfi Selfosskirkju
en samkvæmt vinnureglum Biskups-
stofu er það hlutverk sóknarprestsins
að vera í forsvari fyrir það.
Málið endaði á borði biskups þar
sem hann mun reyna að leysa presta-
deiluna á Selfossi. Áður hafði prófast-
ur umdæmisins reynt sættir og vígslu-
biskupinn í Skálholti einnig. Þegar
það dugði ekki til kom það í hlut Karls
biskups að reyna að leysa hnútinn.
Varð það niðurstaða hans að séra Ósk-
ar sæi um daglegt starf Selfosskirkju.
Aðspurður segist Kristinn Ágúst
nú ætla að meta úrskurð biskups með
ráðgjöfum sínum og lögmönnum.
Fyrr en því er lokið vill hann ekki tjá
sig um málið.
Við vinnslu fréttarinnar var reynt
að ná á Óskar Hafstein en án árangurs.
Deilur presta í Selfosskirkju standa enn og erfiðlega gengur að koma þeim tveimur prestum sem þar þjóna
saman. Þeir hafa deilt um skrifstofu kirkjunnar og nýverið einnig um síma hennar. Sóknarpresturinn, séra
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, leitaði liðsinnis biskups til að leysa deiluna.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Hnúturinn leystur? Eftir að bæði prófastur og vígslubiskup höfðu reynt að sætta
prestana tvo kom það í hlut Karls biskups að leysa hnútinn í Selfosskirkju.