Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Síða 26
FJÖLBREYTT Á
SÓDÓMU
Hljómsveitirnar Árstíðir og Lights On
The Highway standa fyrir tónleik-
um á Sódómu á laugardag auk enska
söngvaskáldsins Toms Hannay.
Hann mun stíga á svið með nokkr-
um íslenskum spilurum. Tónleikarnir
eru undirbúningur Árstíða fyrir tón-
leikaferð um Svíþjóð en Lights on the
Highway er nýkomin úr tónleikaferð
til London þar sem sveitin gerði góða
hluti. Lag hennar Leiðin heim hefur
fengið mikla spilun undanfarið og
verið í toppsæti vinsældalista Rásar 2
svo vikum skiptir.
UM HELGINA
VINJETTUHÁTÍÐ Á EYRARBAKKA
Vinjettuhátíð verður haldin í Húsinu á Eyrarbakka á sunnu-
daginn klukkan 16. Níu einstaklingar munu lesa þar upp, þar
á meðal Auðbjörg Guðmundsdóttir, fyrrv. húsfreyja í Húsinu,
Sigurgeir H. Friðþjófsson leikari, Þóra Grétarsdóttir leikkona
og Ármann Reynisson vinjettuhöfundur. Einnig verður boðið
upp á píanó- og flautuleik. Gert er ráð fyrir að dagskráin
standi í tvær klukkustundir. Aðgangur er ókeypis.
BEDROOM
COMMUNITY Í
ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Stofnendur Bedroom Commu-
nity, þeir Valgeir Sigurðsson, Nico
Muhly, Ben Frost og Sam Ami-
don, halda tónleika í Þjóðleik-
húsinu á sunnudag. Tónleikarn-
ir kallast The Whale Watching
Tour og eru partur af Listahá-
tíð í Reykjavík. Þeir félagar hafa
gert það gott víða um Evrópu
með tónleikunum en tónleikarn-
ir á sunnudag eru þeir síðustu í
röðinni. Ýmsir listamenn koma
fram á tónleikunum svo sem
Nadia Sirota, Una Sveinbjarnar-
dóttir, Borgar Magnason og Helgi
Hrafn Jónsson. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 20.00 og er miðaverð
3.500 krónur.
26 FÖSTUDAGUR 14. maí 2010
David Byrne tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík í ár:
POPPSTJARNA Á LISTAHÁTÍÐ
VIGDÍS SETUR
VATNSMÝRAR-
HÁTÍÐ
Vatnsmýrarhátíð verður sett á laug-
ardag klukkan 14.00 við Norræna
húsið. Frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, setur
hátíðina en hún er helguð vísindum
og leik, umhverfi og náttúru, börn-
um landsins og barnamenningu.
Á hátíðinni koma fram fjölmargir
listamenn svo sem Blikandi stjörn-
ur, Lúðrasveitin Svanur og trúðar úr
leikritinu Bláa gullið. Við gróðurhús
Norræna hússins verður skemmti-
leg bragðtilraunasmiðja fyrir börn.
Henni stýrir Mads Holm, upplýs-
ingafulltrúi Norræna hússins fyrir
nýnorrænan mat. Allir velkomnir.
David Byrne er sennilega best þekkt-
ur sem tónlistarmaður og meðlimur
hljómsveitarinnar Talking Heads. Þegar
því samstarfi lauk hélt Byrne áfram að
vinna að margvíslegum tónlistarverk-
efnum, en einnig að myndlist. Hann
vinnur talsvert með innsetningar í al-
mannarými og utan hefðbundinna sýn-
ingarsala og hefur Byrne sýnt ýmis verk
víða um heim allt frá árinu 1990.
Á Listahátíð í Reykjavík er Byrne
með tvær innsetningar; annars veg-
ar Inside Out, ljósmyndir í gluggum
Hafnarhúss Listasafns Reykjavíkur, og
hins vegar Moral Dilemmas sem sam-
anstendur af siðferðislegum og eða ein-
kennilegum spurningum sem lesa má
auk svarmöguleika á upplýsingastönd-
um Reykjavíkurborgar. Þetta er í fyrsta
sinn sem síðarnefnda sýningin er sýnd
í almenningsrými. Verk beggja þessara
sýninga eru komin upp.
„Pshyco killerinn“ Byrne segir með-
al annars um ljósmyndaverkefnið að
hann hafi alltaf hrifist af auglýsinga-
tækninni sem notuð sé til að þekja hlið-
ar og glugga strætisvagna. Fólkið sem sé
inni í vagninum sjái út en það fólk sem
úti er og horfir inn sjái aðeins stóru aug-
lýsingamyndirnar.
„Það er eins og heimurinn sé pakk-
aður inn í myndir og auglýsingar;
eins og hvert yfirborð sé ekki bara það
sjálft, heldur eitthvað annað líka. Mér
datt í hug að setja dyr og glugga yfir
glugga, til að leika mér að þessu fyr-
irbrigði. Kannski augljós hugmynd.
En ef nútímalistasafn gæti litið út eins
og nútímalistasafn en einnig eins og
samblanda af lúxushóteli, vefnaðar-
vöruverslun og venjulegu húsi – þá væri
það dásamlegt.“
David Byrne Í kunnuglegum stellingum. Á Listahátíð í Reykjavík sýnir Byrne á sér
hlið sem færri þekkja til. MYND GETTY
STÓRSTJÖRNUR SÝNA SAMAN
Verk eftir miklar stjörnur myndlistar-
heimsins gefur að líta á sýningum sem
opnaðar verða í Listasafni Íslands um helg-
ina í tengslum við Listahátíð í Reykjavík.
Á einni þeirra verður sýnd fræg mynda-
röð Cindy Sherman sem skaut henni upp
á stjörnuhimininn fyrir þrjátíu árum,
grafík verk eftir sjálfan Edvard Munch
eru á annarri og loks verður opnuð yfir-
litssýning á íslenskri myndlist frá lokum
19. aldar til nútímans.
„Hún er á topp tíu í heiminum á
meðal myndlistarkvenna myndi ég
segja. Serían sem við erum að sýna
er fyrsta serían hennar og skaut
henni upp á stjörnuhimininn þegar
hún var kornung,“ segir Sigríður Mel-
rós Ólafsdóttir, annar sýningarstjóra
sýninganna þriggja sem opnaðar
verða í Listasafni Íslands á morgun,
laugardag. Hún talar þar um banda-
rísku myndlistarkonuna Cindy Sher-
man sem á myndirnar á sýningunni
Ónefnd kvikmyndaskot, eða Untitled
Film Stills.
Myndaröðin sem þar gefur að líta
samanstendur af 69 svarthvítum ljós-
myndum sem unnar voru á árunum
1977 til 1980. Sherman sviðsetur þar
sjálfa sig í ímynduðum kvikmyndum
sem kalla fram hughrif löngu liðinn-
ar gullaldar svörtu myndanna svo-
kölluðu, film noir, um miðja 20. öld.
„Þessi myndaröð breytti stöðu
ljósmyndarinnar sem miðils í list-
inni,“ segir Sigríður. „Á þessum tíma
var myndlistarheimurinn dálít-
ið karlaveldi og stærstu málararn-
ir voru miklar stjörnur. Síðan kemur
hún þarna kornung með þessa seríu,
allt annan miðil, og má segja að hún
skjóti körlunum að nokkru leyti ref
fyrir rass. Og Sherman hefur haldið
sínu alveg síðan. Hún kemur reglu-
lega með nýjar myndaraðir og þær
eru ekkert að dala. Sherman hefur
þannig verið stórstjarna í þrjátíu ár.“
Myndaröð sem markaði
tímamót
Á myndunum ímyndar Sherman
sér að hún sé í senu í einhverjum
bíómyndum. Þetta eru ekki neinar
ákveðnar kvikmyndir sem hafa ver-
ið gerðar, og hún er engin ákveðin
kvikmyndapersóna eða kvikmynda-
stjarna, að sögn Sigríðar. „En þetta
eru allt trúverðugar myndir, myndir
sem líta út eins og senur í gömlum,
svarthvítum kvikmyndum.“
Þau tímamót sem myndaröðin
markaði segir Sigríður fyrst og fremst
felast í þeim möguleikum sem Sher-
man sýndi fram á að hægt er að nota
í listrænni notkun og framsetningu
ljósmynda.
„Allt í einu verður mögulegt að
nota ljósmyndina sem listaverk. Hún
er ekki ljósmyndari heldur myndlist-
armaður og presenterar þetta sem
listaverk. Jafnframt notar hún per-
formans á nýjan hátt. Hún er sjálf á
öllum myndunum, hún farðar sig,
er með leikmynd og búninga og býr
þannig til leikrit eða performans
sem birtist bara í myndinni. Og hún
er ein að verki – hún er ljósmyndar-
inn, módelið, farðarinn, leikmynda-
hönnuðurinn og hvaðeina. Enginn
sér þetta fyrr en myndin er tilbúin
og með þessu öllu setur hún perfor-
mansinn í aðeins aðra vídd.“
Sigríður bætir við að Sherman
hafi þó vissulega ekki verið algjör-
lega ein á þessari listrænu leið með
ljósmyndaformið. Þetta hafi ver-
ið í deiglunni víða um heim, á Ís-
landi hafi Sigurður Guðmundsson
til dæmis verið farinn að vinna með
ljósmyndir.
Betra seint en aldrei
Spurð hvers vegna þessi þekkta
myndaröð Shermans sé sett upp
hér á landi núna segir Sigríður að
Cindy Sherman Ein myndanna í myndaröðinni
frægu.
ÓNEFND KVIKMYNDASKOT / UNTITLED FILM STILLS, 1978
SVARTHVÍT LJÓSMYND / BLACK AND WHITE PHOTOGRAPH
8 X 10 TOMMUR / INCHES
MEÐ LEYFI LISTAMANNS OG METRO PICTURES / COURTESY OF THE ARTIST
AND METRO PICTURES