Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 14. maí 2010 NÆRMYND meira um smáatriðin,“ segir fram- kvæmdastjórinn fyrrverandi. Annar af samstarfsmönnum Sigurðar orðar þetta sem svo að Sigurður hafi lítið komið að dag- legum rekstri á meðan Hreiðar hafi séð um hann. „Siggi var mikill leiðtogi og hafði mikinn hæfileika til að átta sig á fólki og skilja his- mið frá kjarnanum... Hann var ekki maður smáatriðanna en vissi það sem hann þurfti að vita.“ Fyrrverandi viðskiptafélagi hans orðar þessa hugsun á sams konar hátt og telur jafnframt að Sigurður hafi verið betri í því að átta sig á fólki en tölum. „Mér fannst hann aldrei vera talna- glöggur maður þó að það hafi ver- ið sagt um hann í seinni tíð. Mér fannst hann mjög lélegur með töl- ur. En hann var mjög góður vin- ur vina sinna og traustur náungi. Hann er hins vegar ekki mjög „art- iculate“ maður, hann er dálítill búri, mjög ákveðinn og fastur fyrir. Hann er dálítið svona gamaldags bankamaður sem hugsar miklu meira um menn en einhverjar töl- ur,“ segir viðskiptafélaginn fyrrver- andi. Sigurður líklega ábyrgur Alveg ljóst er af því sem vitað er um starfshætti Kaupþings að við- skiptin sem sérstakur saksóknari rannsakar hefðu ekki átt sér stað nema með vitneskju Sigurðar Ein- arssonar. Hversu mikið hann vissi nákvæmlega um tæknileg atriði í viðskiptunum og smáatriði þeim tengd er erfitt að segja. Aðalatriðið í rannsókn sér- staks saksóknara á stjórnend- um Kaupþings, samkvæmt því sem kemur fram í greinargerð sérstaks saksóknara með gæslu- varðhaldsbeiðninni yfir Magnúsi Guðmundssyni, snýst um meinta markaðsmisnotkun bankans um árabil vegna viðskipta hans með hlutabréf í sjálfum sér og lánveit- ingar vegna fjárfestinga í slíkum bréfum. Þar má til dæmis nefna Al-Thani-málið sem líklega er frægasta meinta markaðsmisnotk- unarmálið í íslenska bankahrun- inu. Ef Hreiðar, Magnús, Ingólfur og Steingrímur eru sekir um lög- brot er alveg ljóst að Sigurður Ein- arsson er líka sekur. Þó að erfitt sé að segja til um það núna hversu mikil aðkoma Sigurðar var að þessum viðskipt- um sem eru til rannsóknar, meðal annars skuldatryggingarviðskipt- um við Deutsche Bank, má þó rýna eftir svörum í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis þar sem rætt var við Sigurð um skulda- tryggingarviðskiptin. Sigurður sagði í yfirheyrslunni að ástæðan fyrir viðskiptunum hefði verið að skapa framboð eft- ir tryggingunum sem hefði nánast ekki verið neitt og að frumkvæðið að þeim hefði komið frá Deutsche Bank. Um viðskiptin sagði Sigurð- ur: „Þær fólust í því að fá aðila til þess að skrifa tryggingarnar á móti þeim sem vildu kaupa þær. Til þess að skapa framboð á trygging- unum, sem var ekki neitt.“ Svo virðist því sem viðskiptin með skuldatryggingarnar hafi ekki farið fram á fyllilega eðlilegum forsendum og er það þessi mark- aðsmisnotkunarþáttur sem er til skoðunar hjá embættinu. Segja má að Sigurður nánast viðurkenni markaðsmisnotkun með þessum orðum hér að ofan. Sigurður búinn DV spurði viðmælendur blaðsins hvað þeir teldu að Sigurður myndi gera í þeirra stöðu sem hann er kominn í. „Vegir Sigurðar eru órannsakanlegir. Þetta kemur mér ekkert á óvart hvernig hann læt- ur núna. Hann verður áfram þrár og þrjóskur. Hann fer ekkert að koma hingað heim með buxurn- ar niður um sig og byrjar að vera með væmni og væla. Þegar hann fer í yfirheyrslur þá verður hann hrokafullur og grjótharður. Ég veit ekki hverju það mun skila honum en hann er trúr sínu: Hann fer ekki að fá sér hárkollu og sólgleraugu og þykjast vera einhver annar en hann er,“ segir einn af Kaupings- mönnunum. „Hann kemur heim á endanum, það liggur fyrir,“ segir einn þessara fyrrverandi félaga hans í bankan- um. „Hann er búinn hvernig sem þú lítur á þetta. Þú áttar þig á því að þú ert að skrifa um mann sem er „through“. Þetta er ekki lengur einhver maður sem þarf að fella. Þetta er maður sem liggur. Dauða- dómurinn hefur verið kveðinn upp. Það þarf bara að framfylgja honum núna,“ segir einn af fyrr- verandi samstarfsmönnum Sig- urðar sem segir að það sé hörmu- legt hvernig komið er fyrir honum. „Nú er þetta bara spurning um tíma.“ Sigurður er yngsta barn Þórunnar Sigurðardóttur húsmóður og Einars Ágústssonar, utanríkisráðherra Fram- sóknarflokksins á áttunda áratugnum. Hann fæddist árið 1960 í Reykjavík, gekk í Æfingadeild Kennarahá- skólans, Hlíðaskóla og Réttarholtsskóla þaðan sem Sigurður lauk landsprófi. Sigurður fór svo í MH, lauk stúdentsprófi árið 1980. Þá lá leið Sigurðar til Danmerkur þar sem nam hag- fræði og stjórnmálafræði við Kaupmannahafnarháskóla jafnframt því að starfa hjá Den Danske Bank. Faðir Sigurðar var sendiherra Íslands í Danmörku frá árinu 1980 og til dauðadags árið 1986 þannig að tenging Sig- urðar við Danmörku er nokkur. Sigurður flutti aftur til Íslands árið 1988. Eftir heimkomuna starfaði hann fyrst sem sérfræðingur hjá Iðn- aðarbankanum og svo hjá Íslandsbanka á árunum 1990-94. Hann varð forstöðumaður hjá Kaupþingi árið 1994, aðstoðarforstjóri tveimur árum seinna og tók svo við forstjórastöðu Kaupþings árið 1997. Síðustu ár hefur Sigurður verið stjórnarformaður Kaupþings með aðsetur í London. Hann lét af störfum í bankanum í hruninu 2008. Ekki er vitað hvað hann hefur unnið við síðan þá. Eiginkona Sigurðar er Arndís Björnsdóttir viðskiptafræðingur. Þau kynntust á fyrri hluta tíunda áratugar- ins og gengu í hjónaband árið 1995. Með Arndísi, sem er fimm árum eldri, á Sigurður tvö börn, fjórtán ára stúlku og ellefu ára dreng. Sigurður átti þrjár eldri systur en aðeins ein er á lífi, Kristjana Erna, hjúkrunarfræð- ingur á Seltjarnarnesi. Systur hans tvær létust langt fyrir aldur fram, önnur í bílslysi og hin úr krabbameini. Í síðustu viku handtók sérstakur saksóknari, Ólafur Hauksson, fjóra fyrrverandi samstarfsmenn Sigurð- ar hjá Kaupþingi. Í kjölfarið var greint frá því að saksóknarinn hefði reynt að ná Sigurði til landsins svo hægt væri að yfirheyra hann en án árangurs. Handtökuskipun var gefin út á hendur Sigurði og lýsti Interpol svo eftir honum. MEINT LÖGBROT KAUPÞINGSMANNA: Grunur um skjalabrot skv. 17. kafla almennra hegningarlaga. Auðgunarbrot skv. 26. kafla almennra hegningarlaga. Brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þ.m.t. markaðsmisnotkun. Brot gegn hlutafélagalögum. FRÁ FÁLKAORÐU TIL INTERPOL LÍFSHLAUP SIGURÐAR Þetta er ekki lengur einhver maður sem þarf að fella. Nánir samverkamenn Sigurður Einarsson var alla tíð yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og má ætla að hann hafi vitað af flestu því sem hann gerði í bankanum. Nú hefur Hreiðar Már verið handtekinn en Sigurður gengur enn laus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.