Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2010, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 14.maí 2010 ÚTLIT Verslunin GK er byrjuð að selja íslenska hönnun. Meðal þess sem þar má finna eru litríkar og flottar flíkur eftir Munda vonda. Fallega hálskraga frá Áróru. Slaufur, bindi, klúta og annað góðgæti frá íslenska merkinu Go With Jan. Prjónalínuna Blik eftir Laufeyju Jónsdóttur og síðast en ekki síst höfuðskraut, hatta og spangir frá Thelmu design. Í árferði sem þessu er ekki úr vegi að styðja íslenska hönnun og því tilvalið að kíkja á úrvalið í GK og gera góð kaup. Ýr Þrastardóttir útskrifaðist á dögunum sem fatahönn-uður frá Listaháskóla Ís-lands eftir þriggja ára nám. Útskriftarlína hennar vakti mikla at- hygli en hún var til sýnis í Hafnar- húsinu á útskriftarsýningu Listahá- skólans. Ýr fer nýjar leiðir í hönnun sinni þar sem hún blandar saman notuðum efnum við ný svo úr verð- ur nokkurs konar bútasaumur. Lín- an hennar samanstendur af tólf flík- um, hverri og einni einstakri. Ýr segir mikla vinnu liggja í hverri flík. „Hugmyndin var sú að nýta gömul efni því ný eru svo dýr.“ Ýr klippti niður gamlar leður og rú- skinnsflíkur sem hún notaði svo til að sauma við nýtt efni. Gömlu flík- urnar fékk hún svo hjá Rauða kross- inum. „Hver flík er eiginlega hálfgerð- ur bútasaumur. Ég lét svo prenta graf- ík sem ég hannaði á efni út í Bretlandi.“ Ýr segir mik- inn tíma hafa farið í hönnun línunnar. Fyrst lagðist hún í rannsóknarvinnu og skoðaði þá gömul Vogue-tímarit frá seinni hluta áttunda áratugarins og fyrri hluta þess níunda. Þá sótti hún innblástur í snið gömlu meist- aranna, svo sem Thi- erry Mugler, Valent- ino, Versace og fleiri. „Þaðan komu þessar stóru axlir og þröngt mittið. En svo þróaðist þetta áfram.“ Hefð er fyrir því að annars árs nemar í Listaháskólanum sýni einn- ig afrakstur annarinnar á vorin. Í fyrra vann Ýr líka með leður og rú- skinn í þeirri sýningu. „Mig lang- aði til þess að halda áfram með það sem ég byrjaði á þá. Þróa það áfram og taka það lengra. Ég fékk líka mjög góð viðbrögð við þeirri línu og ákvað að gera ýktari útgáfu af henni núna. Þá get ég kannski frekar farið að eigna mér þessa aðferð.“ En áður en Ýr gat lagt lokahönd á útskriftarlínuna þurfti hún að vinna lengi með hverja flík. Fyrst þurfti að sauma prufu- eintök sem hún mátaði á módel- um og svo saum- aði hún sjálf- ar flíkurnar eftir þeim. „Það kom mér mjög á óvart hvað þetta var langt ferli og mik- il vinna.“ En vinn- an var þó ekki til einskis og Ýr hef- ur fengið vægast sagt góð viðbrögð við línunni. „Báð- ar sýningarnar sem við héldum voru mesta kikk sem ég hef upplifað, bæði á öðru ári og svo útskriftarsýningin. Þetta var brjáluð vinna en svo allt í einu kem- ur þetta allt heim og saman og mað- ur fattar að þetta var þess virði. Út á það gengur þetta allt.“ Línan er ekki til sölu neins stað- ar eins og er en það stendur til bóta. „Ég ætla að nota sumarið bæði til að sauma og til að finna leiðir til að geta framleitt línuna,“ segir Ýr. Stefnan er að vinna með tveimur klæðskeramenntuðum stelpum að því að koma línunni á koppinn. Þá hyggst hún skoða hvernig hún geti stækkað línuna og er að vinna að viðskiptaáætlun. „Ég ætla að kanna framleiðslumöguleika og skoða hvar hægt er að sækja um styrki. Það er bjart fram undan. Ég verð að byrja einhvers staðar,” segir hún og hlær. Draumurinn er að fara til Dúbaí í sumar, þar sem systir hennar býr, og kanna möguleikana þar. „Von- andi get ég fengið fjárfesti og komið minni hönnun í framleiðslu þar. Mér skilst að þar sé allt frekar ódýrt.“ Hún segist eiga mikið af hug- myndum á blaði því aðeins nokkr- ar flíkur hafi endað í útskriftarverk- efninu. „Hugmyndin er svo að láta sauma kannski um fimmtán til tut- tugu eintök af hverri flík.“ Fram undan eru því spennandi tímar hjá Ýr sem er ungur og upp- rennandi fatahönnuður sem vert er að fylgjast með í náinni framtíð. viktoria@dv.is Gamlar flíkur fá nýtt líf í út- skriftarlínu Ýrar Þrastardóttur. Hún blandar saman notuðu og nýju með einstakri útkomu. Mikið lagt í hverja flík MYNDIR DANIEL CLAUS REUTER Sítt skal það vera Síðir kjólar eru það allra heit- asta í sumar. Það voru ekki margir sem bjuggust við að síðir kjól- ar kæmust aft- ur í tísku, en þeir eru svo sannarlega komnir aft- ur. Það sann- ar það forn- kveðna, tískan fer í hringi. Allar búðir eru full- ar af fallegum síðum kjólum. Einlitum, mynstr- uðum, blómótt- um...hvernig sem er svo lengi sem þeir séu síðir. Þægileg tíska og falleg á þeim sem bera hana. Kon- ur sem eru mjög lágvaxnar ættu þó ekki að klæðast alveg síð- um kjólum. Síð- ir kjólar eru flottir við sandala, lág- botna skó, grófa hæla eða svokall- aða „platforms“ skó. KJÓLARNIR ERU FRÁ ASOS. COM MYND RÓBERT REYNISSON Nauðsynlegt er að eiga falleg sund- föt fyrir heita sumardaga í laugum landsins. Sundfötin þetta sumarið eru fjölbreytt og sækja áhrif til fyrri tíma. Háar buxur og bikiníbrjósta- haldarar í anda sjötta áratugar- ins eru það sem koma skal í sum- ar. Sundbolirnir sækja líka áhrif til fyrri tíma og minna á bomb- ur 5. og 6. áratugar síðustu aldar. Blómamynstraðir sundbolir, sund- bolir með einni öxl og svokallaðir „bombubolir“ eru það allra heit- asta fyrir heita sumardaga. Það er þó mikilvægt að hver og ein velji sér sundföt eftir vexti. Sunföt í anda 6. áratugarins eru vinsæl í sumar Sundföt fyrir sumarið Mundi vondi selur hönnun sína í GK: Íslenskir hönnuðir í GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.