Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Side 6
6 föstudagur 4. júní 2010 fréttir Nýir veNdir sópa n Fréttir um 37 prósenta hækkun kyndingarkostnaðar á svæði Orku- veitu Reykjavík- ur á næstu árum leggst illa í íbúa höfuðborgar- svæðisins. Þeir eins og aðrir hafa þurft að þola miklar búsifjar vegna allskyns æfinga ráða- manna og útrásarvíkinga sem um síðir leiddu til hruns bankakerfisins. Spakir menn benda á að Orkuveitan hafi að nauðsynjalausu tapað um 70 milljörðum króna á undanförnum árum, einkum með andvaraleysi í gengismálum á tímum þegar flestir vissu að krónan ætti eftir að falla eins og steinn. Nú, þegar nýir vendir sópa von bráðar í borgarstjórn, búast menn allt eins við því að Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, lendi í sorptunnunni. Hvað gera HiNir fátæku? n Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor hættir ekki að koma mönn- um á óvart. Hann skrifaði í vikunni tímamótapistil á vefmiðli Press- unnar þar sem hann réttlætti kaup atvinnurek- enda á fylgispekt Sjálfstæðisflokks- ins við drauma þeirra um frjálst at- vinnulíf. Styrkir við flokka, sem and- snúnir væru frjálsu atvinnulífi, væru óréttlætanlegir. Rifjast þá upp sagan af því þegar fjáraflamenn Sjálfstæð- isflokksins stóðu á gólfi hjá Jóni Ólafs- syni og sögðu honum að fjölmiðlafyr- irtæki hans bæri að greiða 5 milljónir til flokksins. Jón neitaði og naut ekki upp frá því frjálsa atvinnulífsins í boði Sjálfstæðisflokksins. ÞjóðerNisHlið króNuNNar n Vísir menn eru hugsi varðandi fléttu Más Guðmundssonar seðla- bankastjóra í gjaldeyrismálum. Þykir mörgum sem of miklar fórnir séu nú færðar fyrir krónuna með því að véla lífeyrissjóðina til þess að selja erlendar eignir sínar fyrir 512 milljónir evra og kaupa fyrir þær íslenskar krónur. Efasemdamenn segja að einmitt þetta ættu lífeyr- issjóðirnir ekki að gera. Með þessu sé lítil þjóð að setja öll egg sín í sömu körfuna, allt í þágu krónu sem ávallt snýr þjóðernishliðinni upp. Auk þess hegði ríkið og Seðlabankinn sér eins og hver annar útrásarvíkingur með því að bjóða lífeyrissjóðunum góð kjör. Lífeyrissjóðirnir leiði hins veg- ar hjá sér að mjög áhættusamt er að skipta við íslenska ríkið. Þeir bræðurNir n DV sagði frá því á dögunum að fyr- irtækið Hringbraut ehf. hefði hreiðr- að um sig í húsakynnum Base ehf. á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið hefur gert samning við tryggingarfélagið Sjóvá um að taka við tjónabílum af til- teknum gerðum og endurvinna úr þeim vara- hluti. Bræðurn- ir Árni og Þór Sigfússynir koma með beinum og óbeinum hætti að Hringbraut hvor úr sinni áttinni. Árni situr í stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar sem seldi Base ehf. almennnings- eigur á vellinum á sínum tíma. Úr hinni áttinni kemur Þór, bróðir hans, þótt nafn hans hafi verið þurrkað út af pappírum. Sést hefur til Þórs með Sverri Gunnarssyni, aðaleiganda Hringbrautar, eftir að Sjóvársamn- ingurinn var gerður. sandkorn SlitaStjórnarmaður í viðSkiptafléttum Ólafur Garðarsson, slitastjórnarmaður hjá Kaupþingi, átti hlut að máli þegar Magn- ús Jónatansson, náinn viðskiptafélagi Ólafs, gerði nýverið tilraun til að komast yfir hálfbyggðar glæsiíbúðir á Seltjarnarnesi. Ólafur og Magnús voru viðskiptafélagar í stórfelldum fasteignaviðskiptum í Örfirisey. Ólafur Garðarsson, formaður slita- stjórnar Kaupþings, tengist við- skiptahugmyndum með eignir sem heyra nú undir Arion banka. Ólafur og Magnús Jónatansson, viðskipta- félagi hans, hafa meðal annars skipst á upplýsingum við starfsmenn fyrir- tækjasviðs Arion banka um mögu- leg kaup Magnúsar á hálfbyggðum glæsiíbúðum á Hrólfsskálamel á Sel- tjarnarnesi. Í samtali við blaðamann DV neit- aði Ólafur því í fyrstu að kannast við að hafa komið nálægt málinu en kvaðst síðar hafa komið boðum milli sín, Magnúsar og Halldórs Bjark- ars Lúðvígssonar hjá fyrirtækjasviði Arion banka. DV er kunnugt um að viðskiptafélagarnir Ólafur og Magn- ús hafi í aprílmánuði síðastliðnum einnig verið í sambandi við Inga Guðmundsson vegna málsins, en hann er yfirmaður á fyrirtækjasviði Arion banka. Glæsiíbúðir Íslenskir aðalverktakar byggðu íbúð- irnar við Hrólfsskálamel en svæð- ið hefur verið skipulagt eftir að Ís- bjarnarhúsið og fleiri hús á melnum voru rifin. Allt verkefnið komst um síðir í hendur verktakafyrirtækisins Ármannsfells, en Landey, dótturfé- lag Arion banka, hefur nú tekið yfir rekstur félagsins og eignir þess. Íbúðirnar við Hrólfsskálamel eru á mismunandi byggingarstigi, en tal- ið er að ljúka megi frágangi margra þeirra á skömmum tíma. Aðeins er búið í einni íbúð sem stendur, tvær íbúðir til viðbótar eru seldar og samningar um sölu á fjórum til við- bótar eru í uppnámi samkvæmt upp- lýsingum sem DV hefur aflað. Eins og gefur að skilja hafa Arion banki og Landey, dótturfélag bankans, hag af því að fá sem mest út úr íbúðunum og framkvæmdunum á Hrólfsskála- mel. Það gæti gerst með tvennum hætti; að Landey komi sjálft eignun- um smám saman í verð eða selji þær hæstbjóðanda. Um er að ræða mikil verðmæti. Íbúðirnar við Hrólfsskálamel 2 til 8 eru metnar á um 1,7 milljarða króna samkvæmt upplýsingum sem Ingi Guðmundsson hjá fyrirtækjasviði Arion banka lét Ólafi Garðarssyni í té í byrjun apríl síðastliðins. Upplýsing- unum var augljóslega komið til Ól- afs vegna þess að hann hafði gefið til kynna að hann væri með áhugasam- an kaupanda. Ólafur kom raunar ótvíræðum boðum til Inga Guðmundssonar og Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar þessa sömu daga um að Magnús Jón- atansson hefði áhuga á að kaupa all- ar íbúðirnar af Arion banka. Í kjölfar- ið bað Ingi um fund með Magnúsi til að ræða málið frekar og hitti Magn- ús Inga eða aðra starfsmenn Arion banka síðar í aprílmánuði. Viðskiptahugmynd fæðist Eins og áður segir kannaðist Ólaf- ur ekki við málið þegar blaðamaður DV bar það upp við hann í upphafi. Hann viðurkenndi síðar að hafa ver- ið í sambandi við menn í Arion banka vegna málsins og nefndi nafn Hall- dórs Bjarkars í því sambandi. Sagðist Ólafur ekki vera í neinum viðskipt- um með eignir Arion banka sem væri auk þess óviðkomandi störfum hans í slitastjórn Kaupþings. Aðspurður gaf hann jafnframt til kynna að slík tengsl væru auk þess óviðeigandi. Magnús Jónatansson segir í sam- tali við DV að hann hafi haft ákveðn- ar hugmyndir um framkvæmdir á Hrólfsskálamel. „Ég vissi af þessu og að lítil hreyfing væri varðandi íbúð- irnar og lóðina. Ég spurði Ólaf við hvern ég ætti að tala innan bankans og það er allt og sumt. Þetta lognað- ist út af eftir fyrsta fund þar sem lóð- in var komin í hendur Seltjarnarnes- bæjar.“ Þessi orð Magnúsar benda til þess að hann hafi ekki aðeins haft áhuga á íbúðunum heldur einnig óbyggðum hluta lóðarinnar sem Seltjarnarnes- bær fékk nýlega í skiptum fyrir Lýsi- slóðina svonefndu. Magnús lýsir Ólafi viðskiptafélaga sínum sem vammlausum manni. „Það er vandfundinn slíkur heilinda- maður. Hann er góður lögfræðing- ur og réttsýnn í viðskiptum,“ segir Magnús. Nánir viðskiptafélagar Ólafur og Magnús eru nánir við- skiptafélagar og stofnuðu meðal annars eignarhaldsfélagið MÓS 2009 ehf. í lok síðasta árs ásamt Steini Loga Björnssyni. DV hefur heimildir fyrir því að MÓS ehf. hafi í samvinnu við Askar Capital og erlent fyrirtæki haft uppi áform um að bjóða í trygg- ingarfélagið Sjóvá, sem að mestu leyti er nú í eigu kröfuhafa Glitnis. Askar Capital er nú starfrækt í skjóli skilanefndar Glitnis. Íslandsbanki á um 10 prósent í Sjóvá en unnið er að sölu tryggingar- félagsins af hálfu skilanefndarinnar og Íslandsbanka. Ólafur og Magnús komu að kaup- um á hreinlætisvörufyrirtækinu Besta ehf. á dögunum, en meðal kaupenda var Ingólfur Garðarsson, bróðir Ólafs. Félagið Lindberg ehf., sem var að hluta í eigu Ólafs, skuldar Icebank rúmlega 3,5 milljarða króna. Eftir því sem næst verður komist er Lind- berg enn í eigu Magnúsar Jónatans- sonar, eignarhaldsfélagsins Grettis- stiklna og Icebank. Vísbendingar eru um að Ólafur Garðarsson vinni enn fyrir félagið. Lindberg keypti á árun- um 2006 og 2007 tugi fasteigna í Örf- irisey í Reykjavík. Skuldir félagsins nú eru um 2,3 milljarðar króna um- fram eignir samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2008. Ljóst er að kröfuhaf- ar neyðast til þess að afskrifa umtals- vert af skuldum félagsins. Vel haldnir skilanefndar- og slitastjórnarmenn Ólafur Garðarsson er hæstarétt- arlögmaður og einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur. Eigend- ur lögfræðistofunnar eru áberandi í skilanefndum og slitastjórnum Landsbanka Íslands hf. og Kaup- þings. Þar má nefna lögmennina Lárentsínus Kristjánsson, formann skilanefndar Landsbankans, og Steinar Þór Guðgeirsson, formann skilanefndar Kaupþings. DV hef- ur áður greint frá ríflegum kjörum skilanefndar- og slitastjórnarmanna en þeir hafa innheimt upp und- ir 25 þúsund krónur á tímann. Tíu klukkustunda vinnudagur getur því hæglega skilað 250 þúsund krónum í verktakagreiðslum. Skilanefndir eru nú undir boðv- aldi kröfuhafa í hinum föllnu bönk- um en ekki Fjármálaeftirlitinu. Slitastjórnir föllnu bankanna eru skipaðar af Héraðsdómi Reykjavík- ur og lítur Fjármálaeftirlitið svo á að boðvald yfir þeim sé að einhverju leyti undir dómstólnum. Vélað um glæsiíbúðir Glæsiíbúðirnar á Hrólfsskálamel 2 til 8 eru metnar á samtals 1,7 milljarða króna. Arion banki reynir nú að koma þeim í verð. Slitastjórnarmaðurinn Ólafur Garðarsson er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur og hefur frá upphafi verið í innsta kjarna hóps sem fæst við skil og slit Kaupþings. H&N-mynd Minnisvarði góðæris ÍAV hóf byggingu íbúðanna við Hrólfs- skálamel. Arion banki hefur leyst þær til sín en bankinn er að sínu leyti undir stjórn skilanefndar Kaupþings. JÓHaNN HauKSSoN blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Ég spurði Ólaf við hvern ég ætti að tala innan bankans og það er allt og sumt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.