Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 4. júní 2010 FRÉTTIR
Sigríður Benediktsdóttir, hagfræð-
ingur og einn höfunda Rannsókn-
arskýrslu Alþingis, kom fram á ráð-
stefnunni Tengslanet – Völd til
kvenna, sem haldin var á Bifröst síð-
astliðinn föstudag. Þar fjallaði Sigríð-
ur Benediktsdóttir um brotalamir í
bankakerfinu og skort eftirlitsaðila á
hugrekki til þess að takast á við vand-
ann.
Hætti eftir rannsókn á Baugi
Hugleysið mætti sjá af ýmsu, með-
al annars því að Fjármálaeftirlit-
ið gaf eftir þær reglur sem það setti
við einkavæðingu bankanna um að
Samson-félagið mætti ekki vera í öðr-
um rekstri en bankarekstri til þess
að koma í veg fyrir að hægt væri að
leggja bréf Landsbankans að veði til
þess að kaupa Eimskip. Eftir tveggja
ára þrýsting frá eigendum Lands-
bankans var reglunum breytt og þeim
leyft að fara í annan rekstur samhliða
bankarekstri.
Enda hefði verið „ticking box“ eft-
irlit með fjármálakerfinu, þar sem
reglurnar voru sveigðar mjög til að
hægt væri að uppfylla ákveðin skil-
yrði. „Ef við hugsum efni fram yfir
form. Sjálf er ég mun hrifnari af grísku
aðferðinni en þeirri rómversku, og þá
er ég ekki að meina að við eigum að
safna skuldum eins og Grikkir. Gríska
leiðin felst í því að setja upp stoð-
ir sem halda og leyfa fyrirtækjum að
starfa innan þess ramma. Rómverjar
skrifa allt í stein. Ég tel að fjármála-
markaðir þróist það hratt að það sé
ekki hægt að skrifa allt í stein. En við
þurfum að vinna okkur inn traust og
gerum það ekki án góðra eftirlits-
stofnana.“
Sigríður tók annað dæmi um hug-
leysi Fjármálaeftirlitsins. „Starfsmað-
ur Fjármálaeftirlitsins vann að rann-
sókn þar sem hann var að tengja
saman öll Baugsfyrirtækin. Þessi
starfsmaður hætti áður en starfi hans
lauk og það gerðist aldrei neitt meira.
Hann hætti sennilega meðal ann-
ars af því að hann var frústreraður.
Það skorti hugrekki til þess að stoppa
þetta.“ Aðspurð hvort hann hefði
jafnvel verið keyptur inn í fjármála-
stofnanirnar sagði hún að það hefði
örugglega verið þannig, en hún gæti
þó ekki tjáð sig um það sem kom fram
í skýrslutökum en var ekki notað í
rannsóknarskýrsluna. En það væri al-
veg ljóst að það hefði ekki verið svig-
rúm fyrir gagnrýni.
Range Roverinn ekki þess virði
Þá sagði hún að eigendur bankanna
hefðu sett sér markmið og hvergi
hnikað frá þeim, sama hvað og jafn-
vel þótt ljóst hefði verið að aðrar leið-
ir væru ákjósanlegri. Líkti hún því
við mann sem stendur fyrir framan
fjall, horfir á toppinn og ákveður að
fara beina leið þangað, í stað þess að
meta hvaða leið væri greiðfærust og
taka svo einn áfanga í einu.
Vöxtur bankanna væri orsök
hrunsins, því þegar bankar yxu svona
hratt yrði hrakval á viðskiptavinum
og lánabúið versnaði. Þetta væri vel
þekkt staðreynd. Vöxturinn hefði ver-
ið byggður á sandi, en stóru bankarn-
ir þrír tuttugufölduðust á sjö árum.
Efnahagur og útlán uxu hraðar en
innviðir þeirra réðu við. Bankakerf-
ið var allt of stórt fyrir íslenskt hag-
kerfi. Stjórnvöld og eftirlitsstofnanir
hefðu þurft að hafa hugrekki til þess
að skoða þessa stefnu en höfðu það
ekki. Hvorki innra né ytra eftirlit jókst.
„Bönkum var leyft að fara í fjárfesting-
arstarfsemi sem er vitað er áhættu-
samari en venjuleg bankastarfsemi.
Kerfið var orðið svo stórt að það var
enginn trúverðugur bakhjarl á bak
við það. Það er öllum bönkum nauð-
synlegt að hafa trúverðugan bakhjarl
sem opnar helst aldrei budduna en er
þarna og á nóg ef á reynir.
Það var aldrei nein krítísk hugsun
um það hvernig við værum að gera
hlutina. Stjórnvöld skorti hugrekki til
þess að stöðva það sem var í uppsigl-
ingu.
Það var hvergi til staðar nein pæl-
ing eða útreikningar á því hvað þetta
myndi kosta ef þetta gengi ekki upp.
Það er rosa gaman að allir geti keypt
sér Range Rover en ég skal lofa ykkur
því að það er ekki þess virði.“
Ónefndum bankastarfsmanni í ís-
lenskum viðskiptabanka þótti kúlu-
lánin heldur ekki þess virði. Hann
talaði um persónulegu kúlulánin í
viðkomandi banka sem byssukúlur.
Að hann hefði tekið á sig byssukúlu.
Hefðu átt að læra af Íslands-
málinu
Árið 2006 stóð tæpt að það yrði efna-
hagshrun á Íslandi og var Sigríður þá
fengin til þess að vinna við svokall-
að Íslandsmál úti í Bandaríkjunum,
þar sem aðstæður hér á landi höfðu
slæm áhrif á fjölda erlendra mynt-
kerfa. Í stað þess að læra af þeirri
reynslu var stefnunni haldið. „Stefna
stjórnvalda árið 2007 var áframhald-
andi vöxtur bankanna. Stefnunni var
haldið, það var ekki skipt um skoðun.
Stundum er gott að skipta um skoð-
un.“ Viðhorfið breyttist ekki fyrr en
það var of seint.
Sömuleiðis kom ákall um hjálp allt
of seint. „Við biðjum ekki um aðstoð
fyrr en í e-maili til Seðlabankastjóra
Bretlands árið 2008. Þá kemur beiðn-
in sem önnur setning: „by the way,
otherways we might need ... Þetta er
gert í lok dags þegar krónan er í sínu
mesta falli í áraraðir. Við biðjum um
hjálp þegar það er orðin neyð.“
Samkvæmt Sigríði hefði þurft að
grípa til aðgerða, ekki seinna en árið
2006 til þess að koma í veg fyrir fall
bankanna án þess að það kæmi veru-
lega niður á eignum þeirra. Tilraun-
ir til að bjarga bönkunum án þess að
viðurkenna vandann hefðu reynst
kostnaðarsamar. Seðlabanki Íslands
hefði til að mynda lánað 500 milljarða
og þar af hefðu 300 milljarðar verið
með veði í hlutabréfum bankanna.
Atvinnuleysi of lítið
Sigríður sagði einnig að varúðar-
merki eða svokölluð rauð flögg eins
og hún kallaði það hefðu verið huns-
uð. Atvinnuleysi hefði til dæmis ver-
ið allt of lítið á Íslandi og væri það
merki um of mikinn hagvöxt. „0,7%
atvinnuleysi er því miður merki um
að það sé bullandi þensla. Ég er ekki
að segja að rauða flaggið sé gott, en
þetta er rautt flagg.“
Þá sagði hún að það hefði alls ekki
verið gáfulegt að lækka skatta í bull-
andi uppsveiflu og auka aðgengi að
íbúðarlánum. Einu áhrifin sem það
hefði væri að fólk sæti uppi með dýr-
ari eignir og dýrari lán, en ekki meiri
eignir.
„Við vorum ekkert sérlega gáfuð í
okkar efnahagsstjórn. Þegar stjórn-
málamönnum var bent á að bíða
með skattalækkanir í tvö til þrjú ár ár,
til dæmis þangað til Kárahnjúkavirkj-
un væri tilbúin hlustuðu þeir ekki.“
Hún benti á að skuldir heimilanna
hefðu aukist gríðarlega og farið frá
400 milljörðum í 1800 milljarða á tut-
tugu árum sem er sexföld aukning.
Og heimilin hefðu verið í svokölluðu
carry-tradi. Vinkona Sigríðar sem er
hjúkrunarfræðingur í Mosfellsbæn-
um hringdi í hana og sagði henni frá
lánatilboði í erlendri mynt. „Ég sagði
við hana, bíddu ég man ekki alveg
hvernig það er en hvað færð þú aftur
mikið útborgað í erlendri mynt? Það
er ekki góð ráðlegging að taka lán í
svissneskum frönkum og japönsku
yeni þegar tekjur þínar eru í íslensk-
um krónum. Og þetta kom frá fjár-
málastofnunum. Ég dreg þær álykt-
anir í skýrslunni að tekjur Íslendinga
hafi ekki aukist svo mikið í þessum
myntum.“
Lesið yfir hausamótunum á
Davíð
Enda töluðu seðlabankastjórar ann-
arra landa yfir hausamótunum á
þeim íslensku. „Við áttum að breyta
reglum Íbúðalánasjóðs og passa að
launasamningar væru ekki vísitölu-
tengdir. Það þarf mjög mikið til þess
að seðlabankastjórar annarra landa
skipti sér af. Mér finnst það sýna hvað
þeir álitu um okkur.“
Íslendingar hefðu líka gert allt
brjálað vegna veðlána í Evrópu sem
jukust um 2,5 milljarða evra frá upp-
hafi febrúar 2008 til loka febrúar 2008.
Í kjölfarið hefði Jean Claude Trichet
seðlabankastjóri Evrópu hringt brjál-
aður í Davíð. „Hann kom meira að
segja hingað í apríl 2008 til þess að
tala yfir hausamótunum á honum.
Yves Mersch, seðlabankastjóri Lúx-
emborgar, kom einnig hingað til lands
sumarið 2008. Þetta hljómar eins og
reifari. Utanaðkomandi fólk að rífast
við okkur af því að það eru meirihátt-
ar óskundar í gangi. Það var alveg ljóst
að við vorum orðin verulega einangr-
uð á alþjóðavettvangi.“
Á kvennaráðstefnu á Bifröst fjallaði Sigríður Benediktsdóttir, einn höfunda rannsóknarskýrslunnar, um
skort stjórnvalda og eftirlitsaðila á hugrekki til að takast á við vandann sem blasti við allt frá árinu 2006, ef
ekki fyrr. Hún segir einnig frá heimskulegri efnahagsstjórn, bankamanni sem líkti kúlulánum við byssukúl-
ur og starfsmanni Fjármálaeftirlitsins sem lét af störfum eftir rannsókn á tengslum Baugsfyrirtækja.
HUGLEYSI EFTIRLITSAÐILA
INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Þetta er gert í lok dags þegar
krónan er í sínu mesta
falli í áraraðir. Við biðj-
um um hjálp þegar það
er orðin neyð.
Sigríður Benedikts-
dóttir „Ég tel að
fjármálamarkaðir þróist
það hratt að það sé
ekki hægt að skrifa allt í
stein. En við þurfum að
vinna okkur inn traust
og gerum það ekki án
góðra eftirlitsstofnana.“