Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 4. júní 2010 FRÉTTIR
Hitabeltisstormurinn Agatha sem
gekk yfir Mið-Ameríku um helgina
og í byrjun vikunnar, með tilheyrandi
úrkomu, kostaði um 100 manns lífið.
Stormurinn tók ekki bara líf heldur
skyldi úrkoman sem fylgdi storm-
inum eftir sig risastóra holu í miðju
millistéttarhverfinu Ciudad Nu-
eva í höfuðborg Gvatemala, Guate-
mala City. Holan sem eru um 30
metrar að þvermáli og rúmlega 60
metra djúp gleypti heilt þriggja hæða
hús. Einn lést þegar húsið sökk ofan
í jörðina. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem jörðin opnast í Gvatemala, en
það gerðist síðast árið 2007 og þá
kostaði það þrjá lífið.
Haft er eftir Karla Maldonado,
íbúa á svæðinu, í gvatemalska blað-
inu El Periodico, að hún hafi fund-
ið fyrir einhverskonar bylgju sem
hafi hrist allt húsið sem hún býr í.
Hún segir líka í samtali við blað-
ið: „Einhverjir af nágrönnum mín-
un sem búa nær holunni segja að
það hafi verið eins og jarðskjálfti.“
Sumir íbúanna á svæðinu ganga svo
langt að segja að stjórnvöld í borg-
inni hafi rangt fyrir sér og að holan
sé ekki af völdum hitabeltisstorms-
ins, heldur hafi jörðin undir borg-
inni verið á hreyfingu í mörg ár,
segir á vef The Daily Beast sem fjall-
ar ítarlega um holuna. Borgaryfir-
völd útskýra þetta sem afleiðingu af
því þegar rigningarvatn brýtur upp
steintegundir á borð við kalkstein og
skilur eftir sig hella sem eiga það svo
til að falla saman.
30 metra breið hola myndaðist í Gvatemala í kjölfar hitabeltisstorms:
Jörðin gleypti þriggja hæða hús
Kínverskir bankar standa núna
frammi fyrir sömu stöðu og bank-
ar á Wall Street gerðu fyrir 2 árum.
Fasteignamarkaðurinn riðar til
falls og bankarnir skjálfa vegna
þessa. Vaxandi ótta hefur gætt á
Vesturlöndum við hugsanlega fjár-
málakreppu í Kína en kínversk
stjórnvöld hafa hingað til hald-
ið efnahag landsins uppi með öfl-
ugum fjárfestingum og reynt að
tryggja sífelldan vöxt fasteigna-
markaðarins í landinu. En eft-
ir að alþjóðlega fjármálakreppan
reið yfir þurftu kínversk stjórn-
völd að leggja fram mörghundruð
milljarða dollara björgunarpakka.
Kínverska hagkerfið er það þriðja
stærsta í heiminum og myndi
kreppa þar í landi hafa djúp áhrif á
fjármálakerfi heimsins.
Evrópusambandið sem nú
stendur í sínum eigin björgunar-
aðgerðum fyrir aðildarríki mynt-
bandalags Evrópu, þyrfti að leita
nýrra leiða til að koma til móts við
þær þjóðir sem standa illa inn-
an bandalagsins. Kínversk kreppa
gæti haft mikil og djúp áhrif á upp-
byggingu Evrópusambandsins.
Gæti þýtt tvöfalt
Evrópusamband
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræð-
ingur segir að áhrif fjármálakreppu í
Kína myndi hafa áhrif á Evrópusam-
bandið rétt eins og önnur ríki. Eirík-
ur segir það hins vegar „svo gott sem
útilokað að evran liðist í sundur,“ en
hins vegar sé spurning um hvern-
ig Evrópusambandið myndi taka á
stöðu einstakra Evrópuríkja. „Dram-
atískasta staðan sem við gætum séð
er að Evrópuþjóðum væri sparkað út
úr evrusamstarfinu,“ segir Eiríkur.
„Önnur afleiðing sem við gætum
séð, er að það verði til tveggja laga
Evrópusamband. Það væri annars-
vegar innri kjarni Evrópuríkja með
samráð um ríkisfjármál. Svo hins
vegar væri ytra lag Evrópuríkja sem
ekki væri með jafnnáið samráð.“
Evran og Ísland
Ólíklegt væri þá að Ísland fengi að
taka þátt í myntbandalagi Evrópu-
sambandsins á komandi árum, þrátt
fyrir að Íslendingar myndu sam-
þykkja aðild að sambandinu í þjóð-
Afleiðing sem við gætum séð, er
að það verði til tveggja
laga evrópusamband.
KREPPA Í KÍNA ÓGNAR EVRÓPU
Kínversk stjórnvöld hafa dælt peningum inn í kínverska hagkerfið undanfarið í þeirri
von um að alþjóðlega fjármálakreppan nái ekki til landsins. Þrátt fyrir þetta sjá Kín-
verjar fram á fasteignakreppu og stærstu bankar landsins standa höllum fæti. Eiríkur
Bergmann segir að vandamál í Kína gætu haft mikil áhrif á Evrópusambandið og
hugsanlegt sé að til verði tvöfalt Evrópusamband í kjölfar fjármálakreppu í Kína.
AÐALSTEINN KJARTANSSON
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
Kreppa Kínversk stjórnvöld reyna allt
sem þau geta til að koma í veg fyrir
fjármálakreppu í landinu.
New York viður-
kennir fóstrur
New York-fylki gæti orðið fyrsta fylk-
ið til að viðurkenna starf barnfóstra
sem starf með réttindum. Þing New
York-fylkis samþykkti nýverið tillögu
þess efnis að barnfóstrur og aðrir
starfsmenn inni á heimilum hefðu
réttindi á við aðrar starfsgreinar.
Stefnir því í að barnfóstrur fái lög-
bundinn frídag einu sinni í viku og
rétt á greiddum veikindadögum.
Repúblikanar gagnrýndu frum-
varpið og sögðust ekki geta stutt
frumvarp sem tryggir ólöglegum
innflytjendum lögbundin réttindi.
Þingmaður demókrata svaraði þeirri
gagnrýnni og sagðist ekki þurfa að
sjá landvistarleyfi fólks til að geta
farið með það eins og manneskjur.
Lokaðir inni í til-
raunaskyni
Sex menn frá fjórum löndum hafa
verið lokaðir inni og munu þeir vera
innilokaðir næstu 520 daga. Tilraun-
in er framkvæmd í Moskvu og er ætl-
unin með henni að rannsaka hvern-
ig hugsanlegt ferðalag til Mars hefði
áhrif á einstaklinga. Vísindamenn-
irnir sem framkvæma tilraunina
koma til með að fylgjast með hvaða
áhrif innilokunin hefur á stressvið-
brögð einstaklinganna og hvernig
þeir takast á við einveruna. Rýmið
sem mennirnir sex eru lokaðir inni
í er sambærilegt því rými sem þeir
hefðu í ferðalagi til Mars.
Michael
Jackson-safn
Rudy Clay, borgarstjóri Gary í Indi-
ana-fylki í Bandaríkjunum, heima-
bæ Michaels Jackson, tilkynnti í
vikunni um fyrirhugað Michaels
Jackson-safn. Bæjarstjórinn sagði að
fyrirhugað væri að leggja 300 millj-
ónir bandaríkjadala í uppbyggingu á
safninu. Joe Jackson, faðir Michaels
Jackson, var við hlið Clays þegar til-
kynnt var um safnið. Dánarbú popp-
kóngsins sendi samt sem áður frá
sér tilkynningu stuttu eftir til borg-
arstjórans þar sem athygli er vakin
á því að dánarbúið væri ekki búið
að gefa leyfi fyrir notkun nafns eða
mynda af Jackson fyrir safnið. Einnig
sagði í tilkynningunni að dánarbúið
hygðist sjálft ætla að opna safn.
Crocks bjargaði
barni frá dauða
Það má vera að Crocks-skórnir séu
litnir hornauga í tískuheiminum, en
það verður sagt um fáa aðra skó að
þeir bókstafega bjargi mannslífum.
Crocks-skórnir björguðu lífi þriggja
ára bresks drengs þegar hann tók
upp bilaða hárþurrku í sundlaugar-
klefa. Straumurinn af hárþurrkunni
var svo mikill að hefði drengurinn
ekki verið í Crocks-skónum, sem
virkuðu eins og einangrun frá gólf-
inu, hefði hann að öllum líkindum
dáið. Þetta er haft eftir sjúkraliðum
sem sáu um að hlúa að drengnum
eftir slysið á vef Telegraph.
Holan Jörðin gleypti 3
hæða hús í höfuðborg
Gvatemala