Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Page 23
aratkvæðagreiðslu.
Ísland stendur nú þegar ekki und-
ir þeim skilyrðum sem eru fyrir upp-
töku evru, og ef kínverskir fjármála-
markaðir tækju dýfu með tilheyrandi
áhrifum á alþjóðlega fjármálamark-
aði væri Ísland líklega enn fjær þess-
um skilyrðum.
Milljarðar í neyðaraðstoð
Þrátt fyrir að kínverskir bankar hafi
náð að endurfjármagna sig fyrir tugi
milljarða bandaríkjadala, þyrftu þeir
að safna mörgum milljörðum í við-
bót ef fasteignamarkaðurinn myndi
taka frekari dýfu.
Kínverskir bankar hafa lánað stór-
ar fjárhæðir til stórra framkvæmda í
landinu frá því stjórnvöld í Peking
komu af stað aðgerðarpakka að and-
virði 586 milljarða bandaríkjadala.
Meðal þeirra fjárfestinga sem ráðist
hefur verið í eru bygging flugvalla og
lagning lestakerfis. Aðgerðarpakkinn
átti að tryggja áframhaldandi fjár-
festingar í landinu og átti að koma í
veg fyrir að áhrif alþjóðlegu fjármála-
kreppunnar myndu finnast í Kína.
Fjárfestingarnar og framkvæmdirnar
sem voru kostuð með þessum lánum
standa ekki undir sér og stefna marg-
ar framkvæmdirnar hratt í þrot.
Glórulausar fjárfestingar
Draugabærinn Ordos í norðurhluta
Kína er dæmi um framkvæmdir sem
gerðar voru í þeim eina tilgangi til
að halda uppi framkvæmdum og
tryggja atvinnu. Borgin hefur ekki
nema 17,8 íbúa á ferkílómetra en til
samanburðar búa um 430 íbúar á
ferkílómetra í Reykjavík. Fjárfesting-
ar eins og framkvæmdirnar við bæ-
inn Ordos standa ekki undir sér og
gætu slíkar fjárfestingar vegið þungt
á móti aðgerðarpakka stjórnvalda.
Eins hafa bankar í Kína fjármagn-
að tilraunir Jiamusi, lítillar borgar í
Heilongjiang héraði nyrst í Kína, til
að byggja segulhraðlest, þrátt fyrir
að fjárfestingar í Sjanghæ með sams
konar lestar hafi ekki staðið undir
sér.
fréttir 4. júní 2010 föstudagur 23
Hópur vísindamanna frá háskól-
anum í Suður-Flórída hefur fund-
ið olíu í Golfstraumnum. Ekki ligg-
ur ljóst fyrir hvaða áhrif þetta gæti
haft á Ísland eða önnur lönd en olí-
an gæti þó haft mikil áhrif á sjávarlíf
allt í kringum Golfstrauminn. Olían
á uppruna sinn í olíuborholu í Mex-
íkóflóa sem hefur staðið opin eftir
sprengingu á olíuborpalli fyrir tæp-
um tveimur mánuðum.
Vísindamennirnir segja í tilkynn-
ingu á vefsíðu háskólans að fundur-
inn sé merkilegur fyrir þær sakir að
um sé að ræða agnir sem ekki sjást
með berum augum og olían sé lag-
skipt til móts við ómengaðan sjó.
Bandarískir vísindamenn hjá Nátt-
úrufræðistofnun Bandaríkjanna
hafa einnig varað við því að olíu úr
borholunni gæti farið að gæta við
strendur Flórída. Þegar hefur orð-
ið vart við olíu á yfir 200 kílómetra
svæði við strendur Louisiana og
tjöruboltum hefur skolað á strend-
ur Alabama og Mississippi.
Tilraunir BP til að stoppa lek-
ann úr borholunni hafa ekki borið
árangur. Fólk um allan heim hef-
ur sniðgengið bensínstöðvar BP og
hefur mikil reiði ríkt meðal almenn-
ings vegna seinagangs fyrirtækisins
við að leysa málið.
Yfirmenn bensínstöðvanna segja
mótmælin hafa lítil áhrif og sagði yf-
irmaður bensínstöðvar félagsins í
Flórída: „Fólki er alveg sama,“ í sam-
tali við New York Times en tekjur af
sölu á bensíni eru aðeins lítið brot af
tekjum fyrirtækisins. Kostnaður fyr-
irtækisins af því að stoppa lekann er
metinn á um 1 milljarð dollara.
KREPPA Í KÍNA ÓGNAR EVRÓPU
Eiríkur Bergmann Eiríkur segir að kreppa í Kína gæti valdið því að til verði tvöfalt
Evrópusamband.
Vísindamenn í Bandaríkjunum átta sig á meinlegri afleiðingu olíulekans í Mexíkó:
Olíuagnir finnast í Golfstraumnum
Olía Ekki hefur tekist að stoppa
lekann og er olían farin að berast
út í Golfstrauminn.
Viðurkenndar
stuðningshlífar
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Úrval af stuðningshlífum
og spelkum fyrir ökkla.
Góðar lausnir fyrir þá sem
hafa tognað eða eru með
óstöðugan ökkla.
• Veita einstakan stuðning
• Góð öndun
• Henta vel til íþróttaiðkunar