Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 36
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Sigurður Rúnar
Friðjónsson
mjólkursamlagsstjóri ms á akureyri
Sigurður Rúnar fæddist í Reykjavík
og ólst upp í Reykjavík, Búðardal
og í Stykkishólmi. Hann var einn
vetur í Skógaskóla, varð gagnfræð-
ingur í Stykkishólmi, var tvo vetur í
Iðnskóla Stykkishólms og stundaði
mjólkurfræðinám i Dalum Mejeri-
skole í Óðinsvéum í Danmörku.
Sigurður Rúnar var mjólkur-
fræðingur í Mjólkursamsölunni í
Reykjavík 1971–77, mjólkursam-
lagsstjóri Mjólkursamlags Dala-
manna 1977–2007 og hefur verið
mjólkursamlagsstjóri MS á Akur-
eyri frá ársbyrjun 2007.
Sigurður sat í stjórn Mjólkur-
fræðingafélags Íslands um skeið,
sat í hreppsnefnd Laxárdals-
hrepps, síðar Dalabyggðar, 1978–
2006, var oddviti þar 1986–98, hef-
ur setið í fjölmörgum nefndum
og ráðum á vegum sveitarfélags-
ins og í mjólkuriðnaði, sat í kjör-
dæmisráði Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi og var fjórði maður á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
á Vesturlandi til alþingiskosning-
anna 1990. Þá var hann umdæm-
isstjóri Lions á Vestur- og Norður-
landi (109B) 1985–86.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 4.1. 1969 Guð-
borgu Tryggvadóttur, f. 11. 4. 1948,
stuðningsfulltrúa og bókaverði.
Foreldrar Guðborgar: Tryggvi
Gunnarsson, f. 12.12. 1894, d. 16.8.
1954, bóndi í Arnarbæli á Fells-
strönd, og eftirlifandi k.h., Elísabet
Þórólfsdóttir, f. 20.11. 1917, en hún
dvelur á Dvalarheimilinu Silfur-
túni í Búðardal.
Börn Sigurðar og Guðborgar
eru Friðjón Rúnar, f. 7.8. 1968, við-
skiptafræðingur og framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Ísól
Fanneyju Ómarsdóttur rekstrar-
fræðingi og eru börn þeirra Anna
Borg, f. 14.10. 1994, Sigurður Rún-
ar, f. 28.3. 2002, og Kristín Heba, f.
29.6. 2006; Kristín, f. 7.3. 1973, fata-
hönnuður í Reykjavík, og eru börn
hennar Alexandra Sigrún, f. 29.10.
1992, og Ármann Rúnar, f. 21.10.
2000; Ármann Rúnar, f. 25.5. 1980,
húsasmiður, en sambýliskona
hans er Sigrún Hanna Sigurðar-
dóttir leiðbeinandi og er sonur Ár-
manns Daníel Rúnar, f. 13.5. 2004
en sonur Ármanns og Sigrúnar er
Björgvin Rúnar, f. 17.11. 2007.
Systkini Sigurðar eru Þórður, f.
2.1. 1952, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar; Helgi Þorgils, f. 7.3. 1953,
myndlistarmaður í Reykjavík; Lýð-
ur Árni, f. 24.3. 1956, framkvæmda-
stjóri í Lettlandi; Steinunn Kristín,
f. 27.4.1960, húsmóðir í Hafnar-
firði.
Foreldrar Sigurðar voru Friðjón
Þórðarson, f. 5.2. 1923, d. 14.12.
2009, alþm., dómsmálaráðherra
og sýslumaður, og f.k.h., Krist-
ín Sigurðardóttir, f. 30.12. 1928, d.
19.5. 1989, húsmóðir.
Seinni kona Friðjóns er Guð-
laug Guðmundsdóttir, f. 14.8. 1936,
fyrrv. ritari.
Ætt
Systir Friðjóns er Guðbjörg, móðir
Þorgeirs Ástvaldssonar dagskrár-
gerðarmanns. Faðir Friðjóns var
Þórður, b. á Breiðabólstað á Fells-
strönd Kristjánsson, bróðir Sal-
óme, ömmu Svavars Gestssonar
sendiherra.
Móðir Friðjóns var Steinunn,
systir Þórhalls, föður Ólafs Gauks
hljómlistarmanns. Steinunn var
dóttir Þorgils, b. og kennara í
Knarrarhöfn í Hvammssveit Frið-
rikssonar, og Halldóru Sigmunds-
dóttur.
Kristín var dóttir Sigurðar, b. á
Selsundi á Rangárvöllum Lýðsson-
ar, b. á Hjallanesi á Landi, bróður
Páls, föður Páls Kr., organleikara
í Hafnarfirði og afa Júlíusar Sól-
nes, fyrrv. ráðherra. Lýður var son-
ur Árna, b. í Tungu, bróður Jóns
á Skarði. Jón var sonur Árna, b. á
Galtalæk á Landi Finnbogasonar,
bróður Jóns, langafa Þóru, móð-
ur rithöfundanna Svövu Jakobs-
dóttur og Jökuls Jakobssonar, föð-
ur rithöfundanna Illuga og Hrafns
og Elísabetar skáldkonu. Móðir
Árna í Tungu var Ingiríður, systir
Jóns, afa Jóns Helgasonar, prófess-
ors og skálds í Kaupmannahöfn.
Ingiríður var dóttir Guðmundar, b.
á Keldum, bróður Stefáns, langafa
Magneu, langömmu Ólafs Ísleifs-
sonar hagfræðings. Guðmund-
ur var sonur Brynjólfs, b. í Vestri-
Kirkjubæ Stefánssonar, b. á Árbæ
Bjarnasonar, b. á Víkingslæk Hall-
dórssonar, ættföður Víkingslækj-
arættar. Móðir Sigurðar var Sig-
ríður Sigurðardóttir, b. í Saurbæ í
Holtum Sigurðssonar, pr. í Gutt-
ormshaga Sigurðssonar. Móðir
Sigurðar í Guttormshaga var Sig-
ríður Jónsdóttir „eldprests“ Stein-
grímssonar. Móðir Sigurðar í Saur-
bæ var Sigríður Jónsdóttir, systir
Steingríms biskups. Móðir Sigríð-
ar, langömmu Sigurðar, var Krist-
ín, systir Guðríðar, langömmu Jóns
Helgasonar alþm. Kristín var dóttir
Magnúsar í Mörk á Síðu Jónsson-
ar, bróður Þórunnar, ömmu Jó-
hannesar Kjarval. Móðir Kristínar,
móður Sigurðar, var Guðrún Bárð-
ardóttir, b. í Norður-Móeiðarhvols-
hjálegu í Hvolhreppi Eyjólfsson-
ar, bróður Guðfinnu, langömmu
Hauks Helgasonar, hagfræðings og
aðstoðarritstjóra. Móðir Guðrúnar
var Guðbjörg Jónsdóttir, b. á Stóra-
hofi Árnasonar og Kristínar Ein-
arsdóttur, systur Guðmundar, afa
Ingólfs Jónssonar ráðherra. Móðir
Kristínar á Stórahofi var Guðbjörg
Þorsteinsdóttir.
Sigurður Rúnar verður að heim-
an á afmælisdaginn.
60 ára á laugardag 80 ára á sunnudag
Sigurður Hólm
Þorsteinsson
fyrrv. skólastjóri
Sigurður fæddist á Hellu á Rangár-
völlum. Hann lauk námi í innan-
hússarkitektúr í Interiör Akademiet
í Kaupmannahöfn 1954, kennara-
prófi frá KÍ 1966, þriðja stigs prófi í
uppeldis- og sálarfræði í Óslóarhá-
skóla 1981 og fjórða stigs 1983, prófi
í norsku fyrir útlendinga 1983, prófi
í norrænni filologiu 1983, doktors-
prófi í kennslufræði við háskólann
í Missouri 1988 og stundaði nám
fyrir skólastjórnendur 1990. Sig-
urður starfaði við Landsbanka Ís-
lands 1953-62, var blaðamaður við-
Alþýðublaðið 1954-59, kenndi hjá
Æskulýðsráði Reykjavíkur 1957-66,
Æskulýðsráði Kópavogs 1958-75,
Æskulýðsráði Hafnarfjarðar 1966-
75, Gagnfræðaskóla Kópavogs 1966-
75, Málaskólann Mími 1968-71,
við Flensborg 1971-72, var skóla-
stjóri Grunnskólans á Hvamms-
tanga 1975-81, Þjálfunarskóla rík-
isins 1982-84, Klúkuskóla 1985-95
Grunnskólans í Hrísey 1995-96, og
var ráðgjafi og sérkennari við Grunn-
skóla Norðurlands vestra 1981-82.
Þá rak hann Kvöldskóla Hafnarfjarð-
ar 1967-70 og Kvöldskóla Hvamms-
tanga 1976-77 og hefur staðið fyrir
námskeiðum í frímerkjasöfnun.
Sigurður var framkvæmdastjóri
hjá Ferðaskrifstofu Úlfars Jakobsen
1958-60, Ferðaskrifstofunni Sunnu
1981, hjá Rafgeislahitun hf. 1962-65,
fararstjóri ferðamannahópa 1949-
86, rak eigin auglýsingastofu 1984-
85 og var meðeigandi fjölritunar-
stofunnar Grettis 1976-83. Hann
stundaði blaðamennsku og var
fréttaritari allt frá 1954. Sat í sam-
bandsráði SUJ 1958-62, í kjördæm-
isráði Reykjaneskjördæmis 1960-62,
í miðstjórn Alþýðuflokksins sama
tíma, formaður barnaverndarnefnd-
ar Blönduóshrepps 1982-86, ritari
Félags frímerkjasafnara í Reykja-
vík frá stofnun til 1960, stofnandi
og forseti Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara 1967-78, heiðurs-
forseti þess, alþjóðlegur frímerkja-
dómari með réttindum FIP frá 1960,
var alþjóðlegur ritari Bandalags ís-
lenskra skáta 1964, formaður út-
gáfuráðs BÍS 1983-84, ylfingaforingi
Hraunbúa 1963-69, félagsforingi
Húna á Hvammstanga 1976-79, var
í stjórn Lionsklúbbs Hafnarfjarð-
ar 1983-86 og Lionsklúbbs Hólma-
víkur 1987-90 og hefur fengið fjölda
gull-, silfur- og bronsverðlauna á frí-
merkjasýningum frá 1958 og var for-
maður safnaðarnefndar St. Jósef-
skirkju í Hafnarfirði 1996-2000.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 13.11. 1948 Torf-
hildi Steingrímsdóttur, f. 30.12. 1928,
fyrrv. leiðbeinanda og húsmóður.
Foreldrar Torfhildar voru Steingrím-
ur Torfason, kaupmaður í Hafnar-
firði, og k.h., Ólafía Hallgrímsdóttir
húsmóðir.
Börn Sigurðar og Torfhild-
ar eru Guðrún Unnur f. 9.12.1949,
spænskukennari í Flórída í Banda-
ríkjunum, gift Donald William Mar-
tyny, og eiga þau fjögur börn; Ólaf-
ur, f. 30.8. 1953, matvælafræðingur
í Hafnarfirði, kvæntur Önnu Berg-
steinsdóttur, og eiga þau tvær dætur;
Pétur Már, f. 4.5. 1955, fasteignasali
í Flórída í Bandaríkjunum, kvænt-
ur Stefaníu Úlfarsdóttur, og eiga þau
tvær dætur; María, f. 19.5. 1957, veit-
ingamaður á Hvammstanga, gift Erni
Gíslasyni, og eiga þau fjögur börn.
Alsystkini Sigurðar: Jónína Krist-
ín, nú látin, hjúkrunarfræðingur;
Sigríður, búsett í Kópavogi.
Systkini Sigurðar, samfeðra:
Helga, lengst af búsett á Bessastöð-
um í Miðfirði; Högni, lést ungur;
Gyðríður, búsett í Hafnarfirði; Björn,
nú látinn, sagnfræðiprófessor.
Foreldrar Sigurðar voru Þor-
steinn Björnsson, f. 10.12. 1886, d.
27.5. 1973, frumbýlingur, bóndi og
kaupmaður á Hellu á Rangárvöllum,
og s.h.k., Ólöf Kristjánsdóttir, f. 4.6.
1892, d. 9.10. 1981, húsfreyja.
Ætt
Þorsteinn var sonur Björns, b. í
Grímstungu Eysteinssonar, og Helgu
Sigurgeirsdóttur, b. í Svartárkoti
Pálssonar. Móðir Helgu var Vigdís
Halldórsdóttir, b. á Bjarnarstöðum
í Bárðardal, Þorgrímssonar. Móðir
Halldórs var Vigdís Hallgrímsdóttir,
ættföður Hraunkotsættar Helgason-
ar.
Ólöf var dóttir Kristjáns, b. í Út-
hlíð í Biskupstungum Kristjánsson-
ar, b. á Sperðli í Landeyjum Guð-
laugssonar, b. á Króki Bergþórssonar.
Sigurður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Hallbjörn er fæddur á Blönduósi en
ólst upp á Skagaströnd. Hann lærði
píanóleik í Tónlistarskólanum í
Reykjavík í tvö ár.
Hallbjörn hefur m.a. unnið við
fiskvinnslu og verslun en hann rak
nýlenduvöruverslunina Vík um
tíma og var í mörg ár verslunar-
stjóri hjá Kaupfélagi Húnvetninga á
Skagaströnd.
Hallbjörn, sem hefur verið í
mörgum hljómsveitum, hefur ver-
ið kvikmyndasýningarstjóri hjá
Skagastrandarbíói og er einn eig-
enda þess. Hann stofnaði Útvarp
Kántrýbæ og hóf útsendingar 1992.
Hallbjörn, sem söng með Kirkju-
kór Hólaneskirkju og var þar með-
hjálpari, hefur gefið út margar
hljómplötur. Hann byggði upp veit-
ingastaðinn Kántrýbæ og stóð fyrir
tveimur kántrý-hátíðum. Hallbjörn,
sem hefur starfað með Leikklúbbi
Skagastrandar, var kjörinn í fyrsta
ferðamálaráð A-Hún.
Fjölskylda
Hallbjörn kvæntist 25.5. 1958 Amy
Evu Eymundsdóttur (áður Amy
Evarda Hentze), f. 5.2. 1939, fisk-
vinnslukonu og veitingamanni.
Foreldrar hennar: Edmund Frits
Leander Hentze (síðar Eymundur
Eðvarðsson), f. 11.4. 1913 í Froba
á Suðurey, d. 7.10. 1970, og Rakel
Sevilda Hentze, f. 24.2. 1918 í Skála-
vík á Sandey, d. 1995.
Börn Hallbjörns og Amy Evu:
óskírður drengur, f. 21.10. 1957, d.
21.10. 1957; Grétar Smári, f. 30.9.
1960, sjómaður á Skagaströnd, en
kona hans er Conny frá Filippseyj-
um og eiga þau tvo syni auk þess
sem Grétar á eina dóttur; Kenný
Aðalheiður, f. 8.11. 1963, húsmóð-
ir á Skagaströnd, en maður henn-
ar er Ómar Sig-
urbjörnsson og
eiga þau fjögur
börn; Svenný
Helena, f. 30.1.
1967, veitinga-
maður á Skaga-
strönd, en mað-
ur hennar er
Gunnar Sveinn
Halldórsson veitingamaður og eiga
þau þrjú börn auk þess sem hún á
dóttur frá því áður.
Hallbjörn átti fimmtán systkini
en tólf þeirra komust á legg. Hann
á nú þrjú systkini á lífi.
Foreldrar Hallbjörns: Hjörtur
Jónas Klemensson, f. 15.2. 1887,
d. 6.2. 1965, sjómaður og for-
maður í Vík á Skagaströnd, og
Ásta Þórunn Sveinsdóttir, f. 21.7.
1891, d. 30.12. 1960. Þau bjuggu á
Skagaströnd.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is.
75 ára á laugardag
Hallbjörn Hjartarson
útvarpsmaður og fyrrv. veitingamaður á skagaströnd
36 föstudagur 4. júní 2010