Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 40
40 föstudagur 4. júní 2010 skrýtið
El Negro of Banyoles (ísl. Svertinginn frá Banyoles)“ var uppstoppað lík af afrískum manni sem var til sýningar á náttúrugripasafni Francesc Darder í
spænska bænum Banyoles í Katalóníu á árunum
1916 til 1997. Það var fjarlægt eftir hávær mótmæli
Afríkumanna og Spánverja af afrískum uppruna,
sem hófust um og eftir Ólympíuleikana í Barce-
lona árið 1992. Líkið var á endanum sent aftur til
Afríku og grafið í Gaborone, höfuðborg Botswana í
október árið 2000.
Líkinu stolið
Við vitum ekki hvað hann hét. En hann var líklega
meðlimur Batlhaping-ættbálksins sem bjó forðum
þar sem fljótin Vaal og Orange mætast, þar sem nú
eru landamæri Suður-Afríku og Botswana. Hann
var ungur maður, aðeins 27 ára. Hann náði líklega
um 135 cm hæð, enda af ætt Búskmanna. Hann
lést líklega úr lungnasjúkdómi sem kominn var til
vegna sníkjudýra. Dánarárið var 1830.
Þegar maðurinn lést stálu hinir frönsku Verr-
eaux-bræður, sem voru á ferðalagi um suðurhluta
Afríku, líkinu af honum. Þeir voru víðfrægir upp-
stopparar og komu heim til Frakklands seinna
sama ár með ýmis afrísk uppstoppuð dýr á borð
við gíraffa, apa, fugla og fiska. Ekkert vakti þó jafn
mikla athygli og hið uppstoppaða lík af Búsk-
manninum, sem vakti mikla hrifningu og óhug
Parísarbúa.
Sýndir líkt og sirkusdýr
Á þessum tíma var nýlendustefnan í algleymi.
Stórþjóðir Evrópu stunduðu kerfisbundna rán-
yrkju á náttúrugæðum Afríku og komu skelfilega
fram við Afríkumenn. Afrískir þrælar voru seld-
ir víða um heim en árið 1830 voru tvær milljónir
svartra þræla við störf í Bandaríkjunum.
Evrópumenn töldu svarta menn óæðri hvítum
en lærðir menn skrifuðu fræðigreinar um meinta
heimsku þeirra og villimennsku. Menn af kynþátt-
um á borð við hina lágvöxnu Búskmenn voru flutt-
ir til Evrópu og sýndir líkt og sirkusdýr á furðusýn-
ingum.
Hið uppstoppaða lík var sýnt á ýmsum sýning-
um í Frakklandi á nítjándu öld. Árið 1887 keypti
UppstoppaðUr
maður á safni
Búskmaðurinn lést árið 1830 við Orange-fljótið í Suður-Afríku. Líkinu var stolið, það
stoppað upp og sýnt á ýmsum stöðum í Frakklandi og á Spáni í 170 ár áður en þrýsting-
ur frá Kofi Annan og Sameinuðu þjóðunum varð til þess að maðurinn uppstopp-
aði fékk loksins greftrun í afrískri jörð árið 2000.
Þegar Kofi Annan varð að-alritari Sameinuðu þjóð-
anna, árið 1997, hitti hann bæjar-
stjórann í Banyoles og bað hann
um að líkið yrði fjarlægt.
SýningArgripur Búsk-
maðurinn var stoppaður upp
og notaður sem sýning-
argripur í 170 ár. Hér er
hann á Dardersafninu
í Banyoles á Spáni.
Myndin er frá 1977.
MYnD F.X. ButinYà
KoFi AnnAn Aðalritari Sameinuðu þjóðanna hitti bæjarstjórann í Banyoles og bað hann um að fjarlægja líkið
uppstoppaða af safninu. MYnD gettY
katalónski náttúrufræðingurinn
Francesc Darder líkið og flutti til
Spánar. Þar var líkið til sýning-
ar á heimssýningunni í Barce-
lona árið 1888. Því næst, árið
1916, fór líkið uppstoppaða,
ásamt ýmsum uppstoppuðum
dýrum, á safn sem kennt var
við Darder og stofnað var til
minningar um náttúrufræð-
inginn í þorpinu Banyoles.
gleymdur í 75 á
Þar hlaut líkið nafnið „El
Negro“ sem festist síðan
við það. Löngu síðar varð
líkið tákn, í augum margra
safngesta, fyrir rányrkju
Spánverja á nýlendutím-
anum og þrælahald þeirra á
afrísku fólki. Mörgum fannst
siðlaust að stilla líki af manni upp sem
sýningargrip.
Þessar vangaveltur komu þó ekki til
fyrr en á tíunda áratug tuttugustu ald-
ar en þá hafði El Negro verið til sýn-
ingar á safninu í Banyoles í um 75 ár
án nokkurra athugasemda og deilna.
Sameinuðu þjóðirnar í málið
Árið 1991 skrifaði hins vegar
Alphonse Arcelin, spænskur læknir
sem á ættir að rekja til Haítí, bæj-
arstjóra Banyoles bréf og bað hann
um að fjarlægja líkið uppstoppaða
umsvifalaust af Darder-safninu.
Fjölmiðlar fjölluðu um bréf Arce-
lins sem hlaut gífurlega athygli.
Yfirmaður UNESCO (Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna), Federico Mayor Zaragoza,
blandaði sér inn í málið og studdi
málstað læknisins. Þegar Kofi Ann-
an varð aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, árið 1997, hitti hann bæjar-
stjórann í Banyoles og bað hann um
að líkið yrði fjarlægt. Þá höfðu margar
ríkisstjórnir í Afríku lýst miklum stuðn-
ingi við baráttu Arcelins og málið fór að
líkjast milliríkjadeilu.
grafinn í Botswana
Eftir töluverðan þrýsting frá Sameinuðu
þjóðunum og Einingarsamtökum Afr-
íku, var líkið af búskmanninum fjarlægt af
safninu í Banyoles og loksins flutt aftur til
Afríku árið 2000, eftir að hafa verið sýn-
ingargripur í 170 ár. Þar var það grafið
í Tsolofelo-þjóðgarðinum í nágrenni
Gaborone í Botswana.
helgihrafn@dv.is
Japanir stunduðu mikinn hernað í Kóreu seint á
sextándu öld og börðust þar með mikilli heift. Jap-
anskir stríðsmenn, samúræjar, stunduðu þá hefð
að taka með sér minjagripi af orrustuvellinum –
og þeir voru ekki af geðslegri endanum. Samú-
ræjarnir tóku með sér nef og aðra líkamsparta af
látnum Kóreumönnum heim til Japan.
Í Japan var nefjunum svo staflað saman í sér-
stökum hofum. Hof af þeirri gerð fannst árið 1983
í fornleifauppgreftri í Okayama nálægt Osaka. Í
hofinu voru nef af tuttugu þúsund Kóreumönn-
um. Þau voru flutt aftur til Kóreu árið 1992 þar
sem þeim var gerð bálför. Svipað hof er að finna í
Kyoto sem ber nafnið Mimizuka (ísl. Eyrnahóll).
Sagan af líkamspörtunum sem Japanir fluttu yfir
hafið hefur oft verið notuð sem tákn um grimmd
Japana í Kóreu.
JApAnir réðuSt á KóreuSKAgA á 16. ölD:
Tuttugu þúsund mannanef í hofi
Líkamspartar í hofum eyrnahofið Mimizuka (ísl.
eyrnahóll) í Kyoto.