Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Síða 6
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrr- verandi borgarstjóri Reykjavíkur, fær 93 þúsund krónur í mánaðar- laun fyrir stjórnarformennsku í Malbikunarstöðinni Höfða. Borg- arsjóður Reykjavíkur fer með 99 prósent hlutafjár í fyrirtækinu. Vil- hjálmur hefur verið stjórnarfor- maður síðan árið 2008 og var end- urkjörinn til eins árs á aðalfundi fyrirtækisins í apríl, skömmu áður en hann hætti sem borgarfulltrúi í Reykjavík. Halldór Torfason, framkvæmda- stjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða, segir í samtali við DV að stjórn fyrirtækisins komi saman að jafnaði 11–14 sinnum á ári. Fast- ir fundir séu einu sinni í mánuði. Stjórn Malbikunarstöðvarinnar er pólitískt kjörin. Auk Vilhjálms sitja Guðlaugur Sverrisson og Margrét S. Björnsdóttir í stjórninni. Guð- laugur er fyrrverandi stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur og samstarfsmaður Óskars Bergsson- ar, fyrrverandi oddvita Framsókn- arflokksins í borgarstjórn. Margrét er formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar Kemur 8–10 sinnum í mánuði Fyrir stjórnarsetu sína í Malbik- unarstöðinni fá þau Margrét og Guðlaugur 46.500 krónur í föst mánaðar laun, eða helmingi lægri upphæð en Vilhjálmur stjórnar- formaður fær fyrir sitt starf. Árs- laun Vilhjálms nema því rúmri 1,1 milljón króna. Hann er ekki í ann- ari vinnu nú um stundir. Í samtali við DV segir Vilhjálm- ur að starf stjórnarformannsins sé mun viðameira heldur en einung- is að sitja stjórnarfundi, og undrast að DV sjái ástæðu til að fjalla um starf hans fyrir Malbikunarstöðina. „Ég get látið taka það saman að ég kem þangað í hverjum mánuði, sennilega 8–10 sinnum, til að ræða við forstjórann um reksturinn,“ segir hann. „Þetta snýst um rekst- ur þessa fyrirtækis og öll þau fjöl- mörgu atriði sem þarf að hyggja að varðandi þennan rekstur. Við störf- um þarna samkvæmt stofnsam- þykktum Malbikunarstöðvarinnar þar sem getið er hvert sé hlutverk stjórnar,“ segir hann. Í hópi lægst launuðu Aðspurður um hvert sé hlutverk stjórnarformannsins fyrir utan setu stjórnarfunda, segir hann: „Við ræð- um um gríðarlega mörg atriði, um reksturinn almennt og gerum það mjög ítarlega. Við förum mjög vel yfir fjárhagsáætlanir okkar og end- urskoðum þær mánaðarlega. Við erum að taka á ýmsum málum sem upp koma, fjárfestingum og þess háttar. Aðspurður um launakjör sín segir Vilhjálmur þau fullkomlega eðlileg. „Þetta er í hópi lægst launuðu stjórna fyrirtækja borgarinnar. Launakjör stjórnarinnar eru sambærileg við það sem þau voru í upphafi,“ segir hann og tekur fram að stjórnin hafi tekið á sig 10 prósenta launalækkun þegar ákveðið var að spara í stjórn- kerfi borgarinnar í fyrra. „Fyrirtækið hefur verið rekið með hagnaði síðustu tvö árin og staða þess er mjög sterk.“ 6 | Fréttir 22.–26. desember 2010 Jólablað Fulltrúar Norðlenska tóku við viðurkenningu DV: Viðurkenning fyrir hangikjöt Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 Grensásvegi 8 -108 RVK Sími: 517-2040 Góðir skór á börnin www.xena.is St. 20-27 kr. 6.495.- St. 28-35 kr. 6.995.- St. 20-27 kr. 6.495.- St. 28-35 kr. 6.995.- FÆR 93 ÞÚSUND Í STJÓRNARLAUN „Ég get látið taka það saman að ég kem þangað í hverjum mánuði, sennilega 8–10 sinnum, að ræða við for- stjórann um reksturinn. n Fær 93 þúsund á mánuði fyrir stjórnarformennsku í fyrirtæki borgarinnar n Endurkjörinn í fyrravor n „Kem þangað í hverjum mánuði, sennilega 8–10 sinnum“ „Við erum virkilega ánægðir með allar viðurkenningar sem við fáum, ekki síst þessa sem við höfum nú fengið þrjú ár í röð,“ sagði Ingvar Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, þegar fulltrúar fyrirtækisins veittu móttöku viðurkenningu fyrir besta hangikjötið árið 2010, í árlegri bragð- könnun DV. Norðlenska framleiðir Húsavíkur- hangikjöt sem varð hlutskarpast að þessu sinni, rétt eins og í fyrra og hitt- eðfyrra en þess ber að geta að í fyrra deildi kjötið efsta sætinu með Hóls- fjallahangikjöti Fjallalambs. „Við reynum fyrst og fremst að halda í hefðirnar og vanda vinnu- brögðin. Við erum stærsti hangi- kjötssali landsins og gerum miklar kröfur til okkar við framleiðsluna. Það er vegna þess að við vitum að það skiptir fólk máli hvað það hefur á borðunum um jólin,“ segir Ingvar spurður hver galdurinn sé á bak við gott hangikjöt. Húsavíkurhangikjötið fékk 8 af 10 mögulegum í einkunn í blindri bragðkönnun þar sem fimm mat- gæðingar gæddu sér á og dæmdu allar tegundir hangikjöts sem á boð- stólum eru þetta árið. Þess má geta að Íslandslamb varð í öðru sæti en Hólsfjallahangikjötið hafnaði í þriðja. baldur@dv.is Tóku við viðurkenningu Ingvar Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, Reynir Traustason, ritstjóri DV, og Friðjón Edvardsson, sölustjóri Norðlenska. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Þetta er í hópi lægst launuðu stjórna fyrirtækja borgarinnar. Launakjör stjórn- arinnar eru sambærileg við það sem þau voru í upphafi.“ Malbikun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, er stjórnarfor- maður Malbikunarstöðvarinnar. Gunnar Rúnar: Ósakhæfur en opið þinghald Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem játaði að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana hefur verið met- inn ósakhæfur. Frá þessu var greint við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag. Þeirri kröfu verjanda Gunnars að þinghald yrði lokað var hafnað og verða réttarhöld í málinu því fyrir opnum dyrum. Tveir geðlæknar skiluðu inn svo- kölluðu yfirmati á geðrannsókn sem framkvæmd hafði verið á Gunnari þar sem hann hafði verið metinn ósakhæfur. Yfirmatið komst að sömu niðurstöðu. Aðalmeðferð málsins hefst 7. febrúar næstkomandi. Dómsalurinn var þétt setinn og kom fram við fyrirtökuna að tek- ið yrði tillit til þess við aðalmeð- ferð málsins sem yrði að fara fram í stærri sal. Kristín Helgadóttir talaði fyrir hönd fjölskyldu Hannesar að lokinni fyrirtöku málsins og sagði hún fjöl- skylduna ánægða með að þinghald yrði opið. Enda hefði ekkert annað komið til greina í hennar huga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.