Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 62
62 | Fólkið 22.–26. desember 2010 Jólablað
Platan er uppseld af lager, við fengum þúsund eintök í við-bót á mánudag, sem er ekki
nóg. Platan er að fara í gull, það er
helvíti gott því ef platan mín hefði
ekki selst, þá hefði ég getað hætt að
gefa út plötur,“ segir rapparinn Erp-
ur Eyvindarson, einnig þekktur sem
BlazRoca. Plata hans KópaCabana
hefur runnið út eins og heitar lumm-
ur og Erpur er hæstánægður með
söluna. „Núna erum við að láta búa
til þúsund eintök í viðbót hér á landi.
Þetta er atvinnuskapandi og hagvöxt-
urinn á eftir að aukast. Ég hef svolít-
ið tekið það á mig að redda hagvext-
inum. Mennirnir sem áttu að vera í
þessu hafa drullað á sig,“ segir hann.
Erpur er sannfærður um að
plötusala hans skipti sköpum fyrir
þjóðarbúið: „Maður er mikilvæg-
ur fyrir þjóðina. Ég var að fá fax frá
Seðlabankanum um að krónan sé
að styrkjast vegna þess að platan er
prentuð hér á landi. Ég er líka að gefa
út hjá Geimsteini sem er í Keflavík.
Menn eru farnir að tala um að láta af
þessum stóriðjudraumum þar út af
plötunni. Þetta er ljónhart.“
valgeir@dv.is
Erpur mokar út nýju plötunni sinni:
Plötusala bjargar
hagkerfinu
Ljónharður Erpur er
sáttur við plötusöluna.
L
eiðir okkar lágu saman í þætti Audda og Sveppa um daginn þar sem hann píndi mig til að leika sig
í frægum hrekk. Eftir það ákvað hann að ég ætti að koma með sér að skemmta á aðfangadag,“ segir
grínistinn Ari Eldjárn sem mun eyða hluta af aðfangadegi á Litla-Hrauni með Bubba Morthens en
Bubbi hefur farið á hverju ári á Hraunið að syngja fyrir fangana.
„Bubbi var með alls konar hugmyndir, eins og að ég ætti að sjá um allar kynningar og að hann myndi
syngja. Svo var hann að pæla í hvort við gætum verið með einhvers konar búktal sem ég vil nú ekki. Hon-
um fannst það voðalega sniðugt samt. Hann lofaði alla vega að koma og sækja mig á aðfangadagskvöld
og ég get ekki beðið,“ segir Ari sem fór með uppistandshópnum Mið-Íslandi á Litla-Hraun milli jóla
og nýárs í fyrra að skemmta.
„Það var alveg svakaleg upplifun. Það er svakalega sérstök stemning þarna. Það er rosalega
mikill vetur þarna, voðlega dimmt og afskekkt. Maður fann alveg að það hlýtur að taka virki-
lega á að sitja inni um jólin. Fangarnir tóku samt gríðarlega vel á móti okkur og voru ekk-
ert nema almennilegheitin,“ segir Ari, en er ekki aukin pressa að reyna að fá marga af
hættulegustu mönnum landsins til að hlæja?
„Jú, það er nú aukin pressa. Manni stóð ekkert á sama ef maður var að klúðra. Þeir
hlógu samt allir eins og brjálæðingar og aldrei hlógu þeir meira en þegar gert var grín
að þeim. Það þýddi ekkert að ræða við þá um eitthvað kreppudót. Einhver lúxus-
vandamál eða eldhúsáhöld. Þeim gat ekki staðið meira sama um það,“ segir Ari sem
lét þó vera að gera grín að föngunum.
„Ég þorði því varla, ég er svo penn. Bergur Ebbi [Benediktsson innsk. blm] lét
þó heldur betur vaða og leit á sig eins og Johnny Cash. Hann gerði alveg stólpagrín
að Litla-Hrauni sem vakti mikla kátínu,“ segir Ari Eldjárn sem verður á Hrauninu
um jólin.
n Grínistinn Ari Eldjárn skemmtir með Bubba á
Litla-Hrauni á aðfangadag n Fór í fyrra með Mið-
Íslandi og segir þetta einstaka upplifun n Stend-
ur ekki á sama þegar fangarnir hlæja ekki
Með Bubba á
Litla-Hrauni
Einn fyndnasti maður
Íslands Ari Eldjárn, einn
eftirsóttasti uppistandari
Íslands, verður á Hrauninu
á aðfangadag með Bubba
Morthens. MYND BJÖRN BLÖNDAL
Veit hvað virkar Bubbi
tekur eftirhermum Ara
ekki illa. MYND RAKEL ÓSK
Fríða
frænka
þögul
Forseti Íslands þarf að kaupa gjöf
handa konu sinni um hver jól eins
og allir aðrir. Hann hefur í gegnum
tíðina gefið henni gamla púða, styttur
eftir Guðmund frá Miðdal, gamalt
handverk á borð við blúndur, dúka eða
einhvern útskurð. „Ég reyni að finna
eitthvað sem endurspeglar handverk
og menningu Íslands,“ sagði Ólafur
Ragnar í viðtali við Nýtt Líf í desember
í fyrra. Ólafur hefur oftar en ekki keypt
gjafirnar í antíkversluninni Fríðu frænku
í miðbæ Reykjavíkur en Anna Ringsted,
eigandi búðarinnar, vildi ekkert gefa
upp um hvort Ólafur hefði komið og
valið gjöf þessi jólin. „Ég vil ekkert segja
um það,“ segir Anna en neitaði þó ekki.
„Ólafur er samt oft búinn að kaupa
jólagjöfina hjá mér,“ segir Anna.
Saman
um jólin
Hjónakornin Ásdís Rán Gunnarsdóttir
og Garðar Gunnlaugsson eyða jólunum
saman. Garðari tókst loks að komast til
landsins en flugsamgöngur hafa verið
erfiðar í Evrópu vegna mikils fannfergis.
Segir Garðar frá því á Facebook-síðu
sinni að það hafi tekið hann fjóra tíma að
koma sér með lest út á flugvöll og þegar
hann loksins komst þangað var fjögurra
tíma seinkun á fluginu. Var Garðar að
koma frá München þar sem hann leikur
knattspyrnu með Unterhaching. Garðar
var viðstaddur kynningu á „bjútíboxum“
Ásdísar Ránar sem haldin var á Kaffi
Reykjavík á þriðjudagskvöldið.
MYND BJÖRN BLÖNDAL