Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 47
Útlit | 47Jólablað 22.–26. desember 2010
Dúðaðu
þig í pels
Það eru frosthörkur víða um land yfir
hátíðirnar og það er vonlaust að skjálfa
úr kulda. Mundu eftir því að dúða þig
vel í hlýjar flíkur og helst í hátíðlegan
pels ef þú átt einn slíkan. Tískan í
vetur hefur einkennst af miklum
kvenleika og pelsinn hefur dúkkað upp
í marglitum og frumlegum útgáfum í
vetur. Grái liturinn hefur sjaldan verið
vinsælli, en aðrir tónar sjást líka, svo
sem hvítur, fjólublár, bleikur og gulur.
Þær sem kjósa svart eru vissulega
öruggar um að vera klassískar í útliti en
mega poppa upp klassíkina með því að
velja hrárri flíkur með, fallegt skart og
vera í litríkari fötum en ella.
Gefðu honum
gott í skóinn
Í öllum jólaundirbúningnum má ekki gleyma
að leggja rækt við eldheita ást. Jólin eru
víst sá tími ársins sem pör eiga það til að
rífast sem mest vegna álags og streitu. Ekki
láta það henda þig. Komið hvort öðru á
óvart með því að gefa spennandi smáhluti
í skóinn. Það getur verið lítill miði með
ástarjátningu, teikning eða ljósmynd sem
er ykkur góð minning, miðar í leikhús og bíó
vekja lukku og auðvitað litlir en ljúffengir
sælgætismolar. Stærri gjafir geta svo gefið
fyrirheit um meiriháttar ástaratlot. Falleg
undirföt eða kertavax sem bráðnar í góða
líkamsolíu. Notaðu hugmyndaflugið til að
finna spennandi gjafir sem kitla.
Sykur-lavender
kornamaski
Góðan kornamaska fyrir andlit og lík-
ama má vel laga heima og setja í fallega
krukku. Öll grunnefnin má kaupa í góðu
apóteki eða heilsuvörubúð. Apótekið
í Skipholti 50 selur bæði grunnolíur og
ilmkjarnaolíur. Lavender-ilmkjarnaolían
er róandi mitt í jólastressinu og er góð
til að nota á húð því hún hefur græðandi
eiginleika.
Sykur-kornamaski
1 bolli sykur eða púðursykur
2 msk grunnolía
½ tsk. E-vítamín olía
8 dropar lavender-ilmkjarnaolía
Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum saman.
Berið á andlitið með léttum hringlaga
hreyfingum og hreinsið af með volgu vatni.
Uppskriftin dugir í eina krukku.
Ef þið eruð í vandræðum
með að finna hárgreiðslu
fyrir allar veislurnar næstu
daga getið þið að minnsta
kosti veðjað á eitt. Ef hárið er
mjúkt, glansandi og heilbrigt
þá má komast upp með lát-
lausa, einfalda greiðslu sem
krefst ekki mikillar fyrirhafn-
ar. Nærið því hárið vel með
djúpnæringu nokkrum dög-
um áður.
Blake Lively vakti athygli
fyrir stórar og mjúkar krullur
á dögunum sem einkar auð-
velt er að útbúa með stóru
krullujárni og Mila Kunis
sem slær í gegn í myndinni
The Black Swan þótti fögur
með látlausa greiðslu.
Fallegar hárgreiðslur fyrir veisluhöldin:
Hátíðlegt hár
Mjúkir liðir Blake Lively Þurrkaðu hárið og krullaðu með vel heitu,
stóru krullujárni. Burstaðu í gegnum hárið með bursta og spreyjaðu
glansspreyi á endana. Spreyjaðu hárspreyi á fingurgómana og nuddaðu
í hársvörðinn til að fá lyftingu en farðu annars sparlega með það.
Látlaus greiðsla Milu Kunis Vefðu
hárinu í töluna 8 kringum krullujárnið meðan
þú heldur því láréttu. Settu hárið svo lauslega
í lágan hnút og hafðu lausa lokka við andlitið.
Fléttur Molly Sims Skiptu hárinu
og fléttaðu örsmáa fasta fléttu með
því að nota hárið efst í kollvikunum.
Leyfðu annars hárinu að njóta sín
eins og það er náttúrulega.
Kynþokkafull Eva Mendez Túberaðu
hárið í hnakkagrófinni. Settu svo hárið upp
eins og þú sért að setja það í tagl en togaðu
það ekki að öllu leyti í gegnum teygjuna.
Ekki fara í jólaköttinn. Splæstu heldur í flík fyrir jólin. Fyrir þig sem veist ekki alveg hvað
þú vilt tókum við saman helstu trendin í vetur. Við ætlum kannski fæstar að splæsa í
slíkan munað en myndirnar geta vonandi veitt þér innblástur fyrir jólaklæðnaðinn.
„Ég lifi í drau i“
50‘s snið
Fendi
Dolce & Gabbana
Skósíðir
kjólar
L‘Wren Scott
Bottega Venetta
Stráka-
legur
stíll
Akris
Chanel
Gylltir
tónar
Alexander McQueen
Balmain