Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 46
46 | Útlit 22.–26. desember 2010 Jólablað
Leyfðu húðinni að ljóma
Mundu eftir því að þótt andlitsfarðinn geri
mikið þá situr hann illa ef húðin er þurr og
ójöfn. Notaðu mildan húðskrúbb til að ná
burtu dauðum húð-
flögum og fríska upp
á húðina. Berðu síðan
á húðina rakagefandi
maska og eftir að þú
hefur hreinsað hann
af, skaltu bera á þig
góða andlitsolíu eða
rakakrem.
Mundu eftir hárinu
Ekki gleyma hárinu
því það getur verið
þurrt og óviðráðanlegt
í mesta kuldanum.
Notaðu djúpnæringu í
hárið reyndu að komast
í jólaklippinguna fyrir
hátíðarnar.
Fallegar neglur
Fallega lakkaðar neglur eru sparilegar og
ómissandi yfir jólin. Fáðu þér fallegan lit á
neglurnar sem passar við sparifötin.
Hátíðarglimmer
Minna er meira þegar
kemur að því að strá
yfir sig glimmer. Not-
aðu augnskugga með
gljáa yfir augnlokin
og léttan glitrandi lit
í augnskugga. Þá má
líka fá augnlínupensil
með glimmer í eða
örlitla áherslu efst
við kinnbeinin. Þegar
vel tekst til fangar glimmer ljós og birtu og
gefur fallegar áherslur en þegar of mikið er
komið af því góða er glimmerið ekki til góðs.
Slepptu varablýantinum
Á hátíðarkvöldi með mat og drykk er betra
að sleppa varablýantinum með varalitnum.
Varaliturinn máist af
meðan þú borðar og
drekkur meðan
varablýanturinn verður eftir.
Notaðu endingargóðan
varalit sem helst vel á
vörunum og slepptu
glossinu.
Gefðu kroppnum lit
Lífgaðu rétt aðeins
upp á fölan skandin-
avískan húðlitinn með
sólbrúnkukremi fyrir
allan líkamann. Notaðu
milt krem og mundu að
bera á þig rakakrem áður
svo brúnkukremið setjist
ekki í þurra bletti.
Góð ráð fyrir
hátíðirnar
Það er skemmtilegt hvað skart getur
lífgað upp á útlit og þá gildir einu
hvort þú notar hálsfestar, hárskart,
armbönd eða eyrnalokka.
Stundum getur verið mjög fal-
legt að klæðast einföldum fatnaði
en skreyta hann með skartinu einu
saman. Þetta á t.d. vel við í okk-
ar svartklædda samfélagi sem svo
margir virðast festast í. Af nógu er að
taka þegar kemur að íslensku skarti.
Fallegt skart lífgar upp á annars einfaldan klæðnað:
Glitrandi og skínandi íslenskt skart
Kvenleg nýklassík Mjög fallegt íslenskt
hálsmen. Hönnuðir Stáss eru Árný Þórarinsdótt-
ir og Helga Guðrún Vilmundardóttir arkitektar
og hálsmenið má kaupa á vefsíðunni uma.is.
Fyrir rokkarana
Tvöfalt fléttað rúskinns-
og keðjuarmband með
6 greinum. Hannað af
Jóhönnu Methúsalems-
dóttur, Kría Jewelry.
Jóladýrindi Elín
Hrund Þorgeirsdóttir
hannar fallegar
hálsfestar sem
hún nefnir Dýrindi.
Þær fást til dæmis í
Kisunni á Laugavegi,
Nakta apanum í
Bankastræti, Hraun-
húsi í Mosfellsbæ og
í Epal í Skeifunni.
Umtalað skart Fyrirsætan rússneska Natalia Vodianova festi
kaup á forláta mosa-skarti eftir Hafstein Júlíusson þegar hún var
hér á landi fyrr í vetur. Natalia keypti sér hálsmen en mosaskartið
framleiðir Hafsteinn einnig sem hringa og jafnvel hnúajárn.
Dramatískar
varir um jólin
Sterkir og dökkir varalitir hafa verið vinsælir í ár. Þeir
fríska upp á fölan húðlit og eru hátíðlegir og þannig
tilvaldir í jólaförðunina. Fríða María Harðardóttir
förðunarfræðingur skoðar nokkrar útfærslur af því
hvernig dökkur varalitur fer við mismunandi förðun.
Allar fyrirsæturnar eru farðaðar með farða frá MAC.
Sophia Kokosalaki Á sýningu Sophiu
Kokosalaki mátti sjá sterka tóna. „Sterkur
rauðappelsínugulur varalitur með hágloss og
sindrandi áferð er mjög hressandi og glamúr í
gegn,“ segir Fríða. „Skvísulegur og nútímaleg-
ur. Þessi er alveg tilvalinn í áramótapartíið en
það þarf örugglega að halda honum við allt
kvöldið, en það er þess virði.“
Gegnsær, léttur og hrár „Fyrirsætan
Chanel Iman ber vel þennan dökkbleika,
matta varalit sem fer vel við hennar húðlit
og fylltar varirnar. Varaliturinn er svolítið
gegnsær og verður léttari og hrárri fyrir vikið
sem gerir lúkkið líka meira náttúrulegt og
ferskt þrátt fyrir að liturinn sé sterkur og
slíkir varalitir eru einnig mjög þægilegir upp
á endingu, dofna fallega af í stað þess að
mást af . Mjög frísklegt og fallegt.“
Tenging við gamla tíma Þekjandi mattur
og eldrauður varalitur sem maður tengir við
gamla tíma á fyrirsætu á sýningu fyrir Karen
Walker. Þá sérstaklega áferðin. Klassískur
og hrár í senn. Þarfnast viðhalds allt kvöldið
þar sem slíkir varalitir hafa tilhneigingu til
að eyðast fyrst innst, sem skilur eftir sterka
útlínu, sé maður ekki stanslaust að bæta á.
Til eru þó varalitir sem eru endingarbetri en
aðrir, sumir jafnvel vatnsheldir, en þeir eiga
það þó til að verða óþægilega þurrir. Hér eru
útlínurnar aðeins loðnar, til dæmis er hægt að
renna aðeins yfir þær eftir á með bómullarp-
inna. Það gerir varirnar nútímalegri.
Sá allra hátíðlegasti „Eldrauður
varaliturinn er massívur, ógegnsær og
teiknaður, en borið er létt gloss ofan á til að
fá léttari áferð og meiri glamúr. Þessi er fyrst
og fremst mjög elegant og kvenlegur og gefur
til kynna styrk og ákveðni. Það þarf að hugsa
vel um hann allt kvöldið, halda honum við
og passa að hann smitist ekki á tennurnar.
Þessi á fyrirsætu fyrir Gianfranco Ferrere er
sennilega sá hátíðlegasti af þessum sem við
erum að bera saman hér.“
Á sýningu Dolce Gabbana voru fyrirsæturnar töffaralegar. „Liturinn fer mjög vel við fölu
húðina, er svalur og töffaralegur á sama tíma og hann er hátíðlegur og kvenlegur.“
Mattur rauðappelsínugulur varaliturinn er mjög hressandi og nútímalegur, en mött áferðin
gerir hann meira elegant og klassískari en þann með glossáferðinni. Þessi er samt oft val þeirra
sem þora ekki alveg í eldrauða litinn, getur líka virkað hversdags og til dæmis í kokkteilboðið.