Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 22.–26. desember 2010 Jólablað
„Þetta eru ákveðin tímamót í sögu
meirihlutans á þingi og í lífi ríkis-
stjórnarinnar,“ segir Álfheiður Inga-
dóttir, þingmaður VG, um hjásetu
flokkssystkinanna Atla Gíslasonar,
Lilju Mósesdóttur og Ásmundar Ein-
ars Daðasonar, við afgreiðslu fjárlaga
í síðustu viku. „Menn velja ekkert um
fjárlögin, þau verður að afgreiða. Þeir
þingmenn VG, sem ekki studdu fjár-
lögin, gera væntanlega betur grein
fyrir því þótt síðar verði. Ef það er eitt-
hvað sem Vinstri grænir kunna betur
en aðrir þá er það að ræða hlutina og
ræða þá vel og lengi,“ segir Álfheiður.
Forystan rumskar
Frá því að bera tók á opinni andstöðu
innan þingflokks VG við verklag og
afgreiðslu ýmissa mála á vegum rík-
isstjórnarinnar og þingmeirihlut-
ans hafa stuðningsmenn Steingríms
J. Sigfússonar, formanns VG, hald-
ið sér til hlés. Þar til nú eftir hjásetu
þingmannanna þriggja við afgreiðslu
fjárlaganna. Steingrímur, Björn Val-
ur Gíslason, Árni Þór Sigurðsson og
Katrín Jakobsdóttir og nú Álfheiður
Ingadóttir hafa beitt sér af meira afli
og sýna skærunum minna umburðar-
lyndi en áður.
Ágreiningsefnin eru mismunandi
eftir því hvaða þingmenn eiga í hlut.
Jón Bjarnason er andsnúinn aðildar-
umsókn að ESB rétt eins og Ásmund-
ur Einar Daðason, Atli Gíslason og
Ögmundur Jónasson. Lengst gengur
Ásmundur, sem jafnframt er formað-
ur Heimssýnar, í andstöðu sinni. Ög-
mundur hefur tekið sæti í ríkisstjórn-
inni á ný og styður aðildarferlið. Jón
vill breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu
með róttækari hætti en samráðherrar
hans virðast vilja gera. Hann lagði fram
frumvarp í ríkisstjórn fyrir 3 til 4 vikum
sem meðal annars kveður á um að rík-
ið leigi út allt að 10 þúsund tonn af við-
bótarkvóta í þorski og 5 þúsund tonn
af ýsu. Ætlun Jóns var að afla allt að 2,8
milljörðum króna í ríkissjóð með þess-
um hætti. Þetta frumvarp er í frysti, á
svonefndri biðmálaskrá ríkisstjórnar-
innar. Loks er á það að líta að óvíst er
hversu lengi Jón heldur ráðherrastól
sínum verði væntanlegt frumvarp um
atvinnuvegaráðuneyti að lögum á vor-
þinginu.
Stöðug átök
Lilja Mósesdóttir hefur gert margvís-
legar athugasemdir við niðurskurð.
Hún beinir auk þess reglulega spjót-
um sínum að samstarfinu við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn um endurreisn efna-
hagslífsins.
Atli Gíslason er fylgismaður Jóns
um róttækar breytingar á kvótakerf-
inu og andsnúinn aðild að ESB. Sam-
kvæmt heimildum DV hafði hann í
heitingum vegna ESB-stefnunnar þeg-
ar í odda skarst á flokksstjórnarfundi
VG en hann var haldinn í Hagaskóla
í Reykjavík fyrir einum mánuði. Þar
samþykktu flokksmenn með afger-
andi hætti að fylgja stefnu ríkisstjórn-
arinnar um aðildarumsókn að ESB til
enda. Athyglisvert er að það voru ekki
síst flokksmenn VG í Norðvesturkjör-
dæmi sem sýndu Steingrími J. Sigfús-
syni stuðning í þeim efnum gegn vilja
Ásmundar Einars Daðasonar og Jóns
Bjarnasonar.
Að standa við fyrirheitin
Margir þeirra sem fylkja sér bak for-
manni sínum og forystu flokksins
bundu vonir við að friðlegra yrði í þing-
flokknum með inngöngu Ögmundar
Jónassonar aftur í ríkisstjórnina. Það
varð ekki, eins og hjáseta og harðorð
yfirlýsing Lilju, Ásmundar Einars og
Atla bar með sér við afgreiðslu fjárlag-
anna. Það er ekki síst þessi staðreynd
sem um og eftir síðustu helgi knúði
fylgismenn Steingríms til harðari við-
bragða en áður gegn „órólegu deild-
inni“ í flokknum. Sú hugmynd hefur
einnig verið rædd hvort ekki sé kom-
inn tími til að bjóða þingmönnunum
fimm til sex birginn, jafnvel vísa þeim
úr flokknum.
Ögmundur hefur sjálfur svar-
að þessum bollaleggingum á vefsíðu
sinni. „Ég hélt að þessu tímabili hefði
lokið með falli sovéska kommúnista-
flokksins. Staðreyndin er náttúrlega
sú að alþingsmenn eru kjörnir á þing
undir merkjum stjórnmálaflokka. Það
hefur enginn rétt til að skipa einum
eða neinum fyrir verkum eða reka á
dyr. Hver og einn verður að eiga það
við sjálfan sig hvort hann eða hún er
trúr þeim fyrirheitum sem gefin voru
kjósendum.“
Hvað gerist næst?
Að öllu samanlögðu virðist sem tólf-
unum hafi verið kastað með hjásetu
VG-þingmannanna þriggja við af-
greiðslu fjárlaga fyri jól. Því er spurt
hvaða kostir séu í stöðunni.
Í fyrsta lagi gæti Jóhanna Sigurð-
ardóttir gengið á fund forseta Íslands,
skilað umboði sínu, og óskað eftir
þingrofi. Þar með yrði gengið til kosn-
inga fyrr en síðar. Fullyrða má að lítill
vilji sé til þess innan stjórnmálaflokk-
anna að fara þessa leið nú. Fylgi stjórn-
arflokkanna er lítið og hætt við að ný
framboð – með svipuðu sniði og Besti
flokkurinn – fengju drjúgt fylgi. Þá er
Icesave-málinu ekki fyllilega lokið þótt
margir telji yfirgnæfandi líkur á því nú
að gengið verði frá samningum eftir fá-
einar vikur.
Í öðru lagi getur ríkisstjórnin og
þingmeirilhutinn látið sem ekkert hafi
í skorist og haldið stefnu sinni þrátt
fyrir andóf „órólegu deildarinnar“.
Gamalkunn tilgáta í stjórnmálafræði
fjallar um að hæst heyrist í hagsmuna-
og þrýstihópum þegar völd þeirra og
áhrif þverra. Auk þess sé nær útilok-
að að Atli, Ögmundur, Jón, Lilja, Guð-
fríður Lilja og Ásmundur stuðli að falli
ríkisstjórnarinnar og verði á blöðum
sögunnar talin hafa lyft Sjálfstæðis-
flokknum aftur til valda. Sjálf telja þau,
eins og formaður VG, að þeirra fremsta
verk um þessar mundir sé að endur-
reisa þjóðfélagið eftir hrun sem Sjálf-
stæðisflokkurinn beri mesta ábyrgð á.
Miðjumenn sameinist
Í þriðja lagi er hugsanlegt að leita
frekari stuðnings við ríkisstjórnina
og styrkja þingmeirihlutann á bak
við hana með því að leita til annarra
flokka. Framsóknarflokkurinn er tíðast
nefndur í því sambandi, einkum vegna
stuðnings Guðmundar Steingríms-
sonar, Birkis Jóns Jónssonar og Siv-
jar Friðleifsdóttur við umsóknina um
aðild að ESB og síðar þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Loks væri í fjórða lagi hægt að
hugsa sér frumkvæði miðjumanna á
þingi við að ná málefnalegri samstöðu,
jafnvel um að víkka út þá sameiningu
jafnaðar- og vinstrimanna sem hófst
árið 1999 með stofnun Samfylkingar-
innar. DV hefur leitt líkur að því að á
Alþingi gætu hugsanlega 32 þingmenn
myndað slíka samsteypu um grund-
vallarmálefni. Í þingflokki VG er vafa-
lítið allt að helmingur þingmanna sem
hefði lítið við það að athuga að ganga
í Evrópusambandið, en allir flokkar
nema Samfylkingin eru klofnir í mál-
inu.
Er hún nokkuð veik?
Yfirgnæfandi líkur eru á að ríkisstjórn-
in standi af sér veðrið og reyni með
hægð að koma Icesave-samningnum
í höfn. Þar hefur hún allt að vinna, að
sumu leyti á kostnað stjórnarandstöð-
unnar, sem óspart hefur notað málið
gegn henni í eitt og hálft ár.
Verðugt er að líta til sögunnar þeg-
ar metinn er þingstyrkur ríkisstjórna.
Viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks, sem sat í 12 ár frá lok-
um sjötta áratugar síðustu aldar fram
í byrjun þess áttunda, studdist yfir-
leitt við minnsta mögulega þingmeiri-
hluta eða 32 til 33 þingmenn af 60. Al-
þingi var þá skipt í efri og neðri deild
og þurfti því stuðning 32 þingmanna.
Viðreisnarstjórnin var ekki talin sér-
staklega veik af þessum sökum; allt
eins má ætla að naumur meirihluti
herði ríkisstjórnir og þétti raðir manna
þegar til lengdar lætur.
Séð í þessu ljósi getur ríkisstjórn
leikandi setið fram á vor 2013, eða út
kjörtímabilið.
Gerast góðir hlutir hægt?
Leiða má að því rök að staða Stein-
gríms J. Sigfússonar, formanns VG,
sé styrkari nú en nokkru sinni frá því
hann hófst til valda og hann njóti
meiri virðingar en áður sem leiðtogi.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra og formaður Samfylkingar-
innar, virðist eiga erfiðara uppdráttar.
Engu að síður bera verk hennar við
að koma stjórnlagaþingi á laggirnar
og tilraunir til endurnýjunar stjórn-
kerfisins vott um vilja til lýðræðis-
legra umbóta. Slíkar umbætur skila
sér ekki umbúðalaust í buddu lands-
manna en kunna að reynast mikil-
vægar síðar meir. Eftir því sem næst
verður komist hefur það þegar vak-
ið athygli utan landsteinanna að slíkt
frumkvæði skuli koma frá forsætisráð-
herra. Venjulega er þrýst á um breyt-
ingar utan stjórnkerfanna, oft í kjölfar
hneykslismála.
n „Hjásetan er ákveðin tímamót í lífi ríkisstjórnarinnar“ n Viðreisnarstjórnin hélt velli í 12 ár með mjög
naumum meirihluta n Ólíklegt er talið að „órólega deildin“ í VG vilji stuðla að því að Sjálfstæðisflokk-
urinn nái völdum í bráð n Enginn hefur rétt til að reka menn á dyr, segir Ögmundur Jónasson
Níu líf Jóhönnu
og Steingríms
„Séð í þessu ljósi get-
ur ríkisstjórn leik-
andi setið fram á vor 2013,
eða út kjörtímabilið.
U:\_DV\CMYK_STAFF\Blaða-
menn\DV0199190207 Jóhann
Hauksson 04.jpg
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is