Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 42
S ada Abe fæddist inn í ágætlega efnaða fjölskyldu í Tókýó 1905 og naut þess að móðir hennar örvaði hana í hvívetna til að vera frjáls og óháð. Fimmtán ára lenti Sada í þeirri hörmulegu lífsreynslu að verða nauðgað af kunningja sínum og þrátt fyrir að hún nyti stuðnings fjölskyldunnar í eftir- málum þess bar hún aldrei al- mennilega barr sitt í kjölfarið. Þegar fram liðu stundir gerðist Sada helst til óstýrilát og á end- anum missti faðir hennar þolin- mæðina og seldi hana í geisjuhús í Yokohama, þó síðar væru fjöl- skyldumeðlimir ekki sammála um ástæðu ákvörðunar föður hennar. Sada fullyrti að faðir hennar hefði verið að refsa henni fyrir fjöllyndi, en systir hennar hélt því fram full- um fetum að Sada hefði verið fús til að gerast geisja. Þannig var mál með vexti á þeim tíma að ákveð- in upphefð fylgdi því að vera hátt skrifuð geisja og Sada ku hafa lýst vilja í þá veru oft og tíðum. Hvað sem því leið komst Sada að því að hugmyndir hennar um glæsilíf geisja voru ekki allt- af á rökum reistar og eftir að hún smitaðist af sárasótt af einum við- skiptavina sinna söðlaði hún um og gerðist vændiskona á vændis- húsi í Osaka. Röð elskhuga Löglegri vændisvinnu fylgdu fleiri vandræði en Sada var reiðubúin að glíma við og því fór svo að hún haslaði sér völl í ólöglegu vændi með kostum þess og göllum. Þeg- ar foreldrar hennar dóu varð Sada enn hömlulausari en áður. Eftir að lögreglan réðst inn í vændishúsið þar sem hún vann árið 1934 komst hún í kynni við eiganda þess sem bjó að góðum samfélagslegum tengslum. Við tók röð af elskhugum þegar Sada reyndi að losna úr vændinu fyrir full og fast og í tilraun til að koma lífi sínu á réttan kjöl gerðist hún lærlingur á veitingahúsi og kynnt- ist eigandanum, Kichizo Ishida. Kichizo var ötull kvennaflag- ari og þreyttur á hjónabandi sínu og eiginkonu sem í raun sá um rekstur veitingahússins. Þess var skammt að bíða að hann félli fyr- ir Södu sem, þrátt fyrir að vera í sambandi við annan karlmann á þeim tíma, hikaði ekki eitt and- artak þegar Kichizo gerði sér dælt við hana. „Ég hafði aldrei hitt jafn kynþokkafullan karlmann,“ sagði hún síðar. Hugarvíl og hótanir Ástarleikir þeirra urðu alræmdir og stóðu stundum dögum sam- an og hvað sem áformum Kich- izos leið varð Sada á endanum ástfangin – hugsanlega í fyrsta skiptið á ævinni. Sada var ekki sátt við að vera einungis ástkona hans; hún vildi giftast honum og tilhugsunin um að hann nyti annarra kvenna fyllti hana bræði. Eftir því sem Kichizo fjarlægð- ist hana jókst hugarvíl Södu og hún leitaði huggunar í áfengi. Undir áhrifum af leikriti sem hún hafði séð, þar sem geisja hafði hótað elskhuga sínum með hnífi, keypti Sada stóran eldhúshníf og hótaði Kichizo með honum. Kichizo henti gaman að tilburð- um hennar og tók hana með sér á gistiheimili í rauða hverfinu þar sem næsta kynlífsmaraþon þeirra átti að fara fram. Vitneskj- an um það sem þar átti sér stað byggir að mestu leyti á frásögn Södu sjálfrar. Þegar kynlíf þeirra hafði staðið yfir nánast linnulaust í tvo sólar- hringa tók Sada borðann af kim- ono-sloppi sínum og herti með honum að hálsi Kichizos, sem lík- að vel nýjungin og fór þess á leit við hana að hún gerði þetta við hann þegar hann blundaði. „Sada, Kichi saman“ Þann 18. maí 1936 kyrkti Sada Abe Kichizo. Eftir að hafa hvílt við hlið líksins af honum í nokkrar klukku- stundir brá hún eldhúshnífnum og skar af því kynfærin og vafði inn í tímarit. Blóðið notaði hún til að skrifa „Sada, Kichi sam- an“ á vinstri mjöðm líksins og á lakið. Síðan risti hún nafn sitt á vinstri handlegg þess, klæddi sig í nærfatnað Kichizos og yfirgaf gistihúsið klukkan átta um morg- uninn með þeim fyrirmælum til starfsfólksins að Kichizo skyldi ekki ónáðaður. Lík Ishida Kichiz- os fannst síðar um morguninn og leitin að Södu Abe hófst. Sada kom sér fyrir á gistihúsi í nágrenninu og íhugaði að fremja sjálfsmorð en lögreglan fékk ábendingu um dvalarstað hennar og kom í veg fyrir öll slík áform 20. maí þegar hún bankaði upp á hjá Södu. Hún veitti enga mótspyrnu og viðurkenndi strax verknaðinn. Kynfæri Kichizos fundust í hand- tösku hennar, enn innpökkuð í tímarit. Tíðindin af handtöku Södu fóru eins og eldur í sinu um Jap- an og urðu ágætis tilbreyting frá stjórnmálafréttum þess tíma og almenningur fylgdist grannt með helstu smáatriðum sem fram komu í málinu. Vildi einhvern líkamshluta af Kichizo „Ég elskaði hann svo heitt, ég vildi eiga hann út af fyrir mig. En þar sem við vorum ekki gift gat hann svo lengi sem hann lifði leitað svölunar í örmum annarra kvenna. Ég vissi að ef ég dræpi hann gæti engin kona snert hann framar, svo ég drap hann,“ sagði Sada við yfirheyrslurnar. Sada sagði einnig að hún hefði skorið af Kichizo kynfærin því henni hefði verið ómögulegt að taka höfuð hans eða líkama með sér. Almenningur heillaðist af mál- inu og þegar réttarhöldin hófust, 25. nóvember 1936, safnaðist fólk saman við dómhúsið löngu áður en það var opnað til að berja Södu augum. Fréttamenn birtu eins mikið af vitnisburði hennar og rit- skoðun stjórnvalda leyfði og síðar, segir sagan, viðurkenndi alla vega einn þriggja dómara í málinu að hafa fundið til kynferðislegrar örvunar við vitnaleiðsluna. Vitnisburður Södu var eldfim- ur og kostaði meðal annars mik- ils virtan stjórnmálamann, sem hafði átt í vinfengi við hana, fer- ilinn. Eitt dagblað sagði hrifningu almennings jaðra við „Södu-æði“ og margar ungar konur sem fylgd- ust með málinu fengu nafngiftina „Södu-aðdáendur“. Sex ára dómur En mörgum til mikilla vonbrigða drógust réttarhöldin ekki á lang- inn því að Sada fór ekki í launkofa með sekt sína. Enginn vafi lék á sekt hennar og eftir stóð spurn- ingin um hve langan dóm hún fengi. Flestum til mikillar furðu fékk Sada aðeins sex ára dóm sem dómari réttlætti með skírskotun til þess hlutverks sem Kichizo hafði leikið í aðdraganda morðs- ins. Að auki velti dómarinn fyrir sér andlegu heilbrigði Södu því þrátt fyrir andmæli hennar hélt lögfræðingur hennar því fram að hún hefði verið haldin stundar- brjálæði þegar hún fyrirkom ást- manni sínum. Södu var umbunað fyrir góða hegðun og fékk hún frelsið 1940, en frægð hennar gerði henni erf- itt um vik að fóta sig í samfélag- inu. Sada höfðaði mál gegn rit- höfundi sem gaf út bók byggða á meintum viðtölum við hana og náðist sátt um málið fyrir rétti. Árið 1948 gaf hún út sjálfsævi- sögu sína. Eftir að hafa séð sér farborða með vinnu á krám og veitingastöðum tókst Södu loks- ins að hverfa augum almenn- ings og síðast sást til hennar árið 1970. Um Södu voru gerðar nokkr- ar kvikmyndir, en frægust þeirra er Á valdi tifinninganna sem var gerð árið 1976 og var víða bönnuð vegna kynlífssena og nektar. n Sada Abe varð alræmd í Japan á fjórða áratug síðustu aldar eftir að hún myrti ástmann sinn n Vitnisburður hennar við réttarhöldin var eldfimur og safaríkur, svo mjög að einn dómari fann fyrir kynferðislegri örvun ÁSTFANGNA GEISJAN 42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 22.–26. desember 2010 Jólablað Rauða hverfið í Tókýó 1934 Áhugi almennings á morðinu var takmarkalaus. „Ég vissi að ef ég dræpi hann gæti engin kona snert hann framar, svo ég drap hann. Í haldi lögreglunnar Sada Abe var afar blátt áfram við yfirheyrslurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.