Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 44
44 | Hin hliðin 22.-26. desember 2010 Jólablað
Nafn og aldur?
„Alexander Briem, 20 ára.“
Atvinna?
„Leikari og prófarkalesari.“
Hjúskaparstaða?
„Einhleypur.“
Fjöldi barna?
„Núll.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Ég átti kött og fiska þegar ég var lítill.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Ég söng á sunnudagskvöldið með Retro Stefson á tónleikum á
jólaballi MR, leysti Unnstein af.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Mér þykir mjög vænt um gráa kasmírullarjakkann sem mamma
saumaði á mig fyrir jólin 2008 og hef notað hann mikið síðan. Af því
að hann fer mér vel.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, reyndar hef ég ætlað mér að komast í form eftir Orm en það
hefur gengið hægt. Tökum lauk seinni partinn í nóvember og þá
fór ég í utanlandsferð í tæpan mánuð þar sem við ferðafélagar
klikkuðum á morgunleikfiminni og nú taka jólin við.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Ég hlakka bara til að sjá hvað gerist.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Ég hef verið hrifinn af allavega tónlist og skammast mín fyrir það
eftir á. En ekki í dag.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Lujon eftir Henry Mancini.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Ég hlakka til alls sem fram undan er, fyrir utan viðtölin. Mér finnst
viðtöl óþægileg.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Myndirnar sem ég horfi á aftur og aftur eru eftir leikstjóra sem hafa
mjög persónulegan og ákveðinn stíl, tengja hluti sundur og saman
og eru hugaðir en alltaf samkvæmir sjálfum sér. Þeir gera stílhreinar
myndir en samt sé ég alltaf eitthvað nýtt í þeim og eitthvað nýtt við
þær. Þær eru lagskiptar og maður tengir alltaf inn á eitthvað nýtt og
tekur stöðugt eftir einhverju nýju eftir því sem maður þróast sjálfur
sem manneskja. Þetta eru til dæmis Kubrick, Lynch, Tarantino og
Sofia Coppola.“
Afrek vikunnar?
„Ég lofaði sjálfum mér því að vera búinn að kaupa allar jólagjafir
fyrir Þorláksmessu þetta árið og það lítur út fyrir að ég afreki að
svíkja það loforð.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Það hefur allavega verið óminnisstæður spádómur.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Já. Ég vil ekki krónuna og ekki dollarann og er illa við þjóðernis-
hyggju. Þjóðernishyggja er ein af aðalorsökum styrjalda. Annars
verða alltaf til hópar í heiminum, stórir og smáir, sem munu kljást.
Fer sem fer.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Sátt.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan
og fara á trúnó með?
„Ég hef lítinn áhuga á að fara á skrallið með ráðamönnum, hvað þá
splæsa í þá áfengi. Svo er trúnó leiðinlegur staður.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og
af hverju?
„Ofangreinda eftirlifandi leikstjóra, eðli málsins samkvæmt.“
Hefur þú ort ljóð?
„Hvort ég hef. Ég nýtti tímann aðallega í það þegar ég var andvaka
sem krakki.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Símaat á föstudaginn.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Ég er alltaf að reyna að átta mig á hvern ég minni mig á.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Nei, en mig langar samt í þannig. Gunni leikstjóri kann til dæmis að
lengja á sér höndina, mig langar að kunna það.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Ég er góður.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Þar sem uppáhaldsfólkið mitt er.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Reyni allavega að ná að bursta tennurnar, fara úr fötunum og taka
úr mér linsurnar ef ég er með þær í.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Gagnrýni.“
Langar að kunna að
lengja á sér höndina
Alexander Briem leikari fer með hlutverk Orms Óðinssonar í kvikmynd sem gerð
er eftir Gauragangi Ólafs Hauks Símonarsonar og verður frumsýnd annan
í jólum. Alexander hlakkar til þess sem fram undan er, að undanskildum öllum
viðtölunum sem honum finnast óþægileg. Hann starfar sem prófarkalesari ásamt
því að leika og mun líklega ekki ná að kaupa allar jólagjafirnar fyrir Þorláksmessu.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
KOMDU Í ÁSKRIFT!
512
70 80
dv.is/askrift
100 ára1910–2010