Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 29
ar og upplifa styrk samfélagsins og
mannsandans. Það er á vissan hátt
auðveldara að vera hér úti heldur en
að vera heima og lesa um afdrif fólks
eftir hamfarir og stríð þar sem manni
finnst maður vera svo máttlaus gagn-
vart hörmungunum. Það er þó oft
erfitt að standa frammi fyrir neyðinni
og vita að aldrei sé hægt að gera nóg,“
segir hún.
Heldur jól í íslömsku ríki
Ólöf verður í Islamabad yfir jólin og
segist reglulega þurfa að minna sig á
að það séu að koma jól enda sé ekki
mikið skreytt í hinu íslamska ríki. „Ég
er svo heppin að hér er kona sem
heitir Hrafnhildur sem vinnur fyrir
Rauða krossinn. Við ætlum að fara á
eina jólaskreytta hótelið á aðfanga-
dagskvöld og borða góðan mat og
skiptast á gjöfum. Svo munum við
vinnufélagarnir sem töpuðum hlut-
kestinu um jólafríið hittast saman á
jóladag og gera okkur glaðan dag,“
segir hún.
Ekki fyrstu jólin að heiman
Þegar Ólöf er spurð um hvernig það
sé að vera langt frá fjölskyldu og vin-
um yfir hátíðirnar segir hún fyrst
hafa fundið fyrir heimþrá nú í vik-
unni. „Það kom mér þó frekar mik-
ið á óvart þar sem ég hef alltaf getað
skilið Ísland eftir við flugtak frá Kefla-
vík og verið svo ávallt jafn undurglöð
að sjá það við lendingu, án þess að
þjást af heimþrá í millitíðinni,“ bætir
hún við. Þetta eru þó ekki fyrstu jólin
hennar að heiman því hún hefur eytt
hátíðunum á Filippseyjum, Fidjí-
eyjum, í Bandaríkjunum og á Ítalíu.
Hún segir það sérstakt að fá að upp-
lifa jólin annars staðar en á Íslandi og
að kynnast nýjum hefðum.
Finnur ekki töfrateppi
Ólöf segist vera mikið jólabarn og
þykir fátt skemmtilegra en smáköku-
bakstur, jólagjafakaup á Laugaveg-
inum á Þorláksmessu og að drekka
malt og appelsín í lítravís. „Ég hef
leitað dyrum og dyngjum að töfrat-
eppi á mörkuðunum í Islamabad til
þess að geta komið mér heim í faðm
ammanna minna, fjölskyldu og vina
rétt yfir Þorláksmessu og aðfanga-
dag, en þau virðast vel falin hér í
borg. En þó jólin þýði einna helst
samverustundir með fjölskyldu og
vinum fyrir mér, þá fagna ég því að
fá að kynnast nýju jólaumhverfi, fá
að taka þátt í jólahefðum samstarfs-
félaganna sem koma hvaðanæva að
úr heiminum, Laos, Nýja-Sjálandi og
Eþíópíu svo eitthvað sé nefnt. Það er
eitthvað afskaplega fallegt við það að
eiga jól með hópi „munaðarlausra“ á
fjarlægum stöðum,“ segir hún að lok-
um.
Úttekt | 29Jólablað 22.–26. desember 2010
Upplifa styrk mannsandans
Lóa Magnúsdóttir Starfar á vegum
Íslensku friðargæslunnar á flóðasvæðunum
í Pakistan.
Sveinn Guðmarsson Ásamt jemenskum stúlkum.
Úganda Íslendingar í skötuveislu á Þorláksmessu 2005 í Úganda.
hverfisgata 10
sími 5800 101
101hotel@101hotel.is
www.101hotel.is
101 jól
hátíðarmatseðill undir dönskum áhrifum.
gamalgrónir réttir með nýstárlegum blæ.
alla daga fram að jólum.
borðapantanir í síma 5800 101.
Lilja Dóra (t.h.) Með finnskri vinkonu sinni á aðfangadagskvöld í
Úganda.