Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 18
Mars 1930.
Í fyrrakveld fór það að
berast út um bæinn, að sam-
komulag væri að nást um Ís-
landsbankamálið á Alþingi.
Í gær var það fullyrt og í dag
mun það verða gert opinbert.
Það var fullyrt í gær, að
stjórnin og sá meginhluti
Framsóknarf lokksins, sem til
þessa hafði verið því andvíg-
ur, að bankanum yrði bjarg-
að, hefði á elleftu stundu séð
að sér og ákveðið að fallast
á frumvarp þeirra Ásgeirs,
Bjarna og Lárusar í aðalat-
riðum. Ekki er þó í ráði að
samþykkja það frumvarp,
heldur mun fjármálaráðherr-
ann sjálfur í dag leggja fyrir
þingið nýtt frumvarp um
endurreisn bankans undir
nýju nafni og með enn meira
fjármagni en áður var ráðgert.
Mun allt tryggingarfé bankans
eiga að verða 12 milljónir, en
greiðslufrestun innistæðufjár
falla niður.
Fullyrt er, að ekki aðeins
Framsóknarf lokkurinn, held-
ur einnig hinn stjórnarf lokk-
urinn í þinginu, hafi tekið
þessum sinnaskiftum í mál-
inu.
Stórbruni.
—o—
Efri hæðir Herkastalans
brenna, og allt húsið verður
fyrir miklum skemdum.
—o—
Janúar 1930.
Á elleftu stundu í gærkveldi
varð þess vart, að eldur væri laus
orðinn í gisti - og samkomuhúsi
Hjálpræðishersins í Kirkjustræti
2. Húsið var í smíðum að því
leyti, að byggð hefir verið ofan
á það ein hæð í vetur og var hún
fyrir skömmu komin undir þak.
Þegar slökkviliðinu var
gert aðvart, var loftið að heita
mátti alelda og nokkur eldur
kominn niður á næstu hæð. Var
þegar augljóst, að ekki mundi
nein tiltök, að slökkva eldinn í
byggingunni, enda mun mikið af
þurru timbri, steypumót, o.þ.h.
hafa verið á tveim efstu gólfum
hússins. Hitt þótti reynandi, að
varna eldinum að komast niður
á neðri hæðirnar, enda mun
enginn eldur hafa komst á neðstu
hæðina. En aðaláherslan var að
sjálfsögðu lögð á það, að verja
næstu hús og það tókst fyrir
frábæran dugnað og snarræði
slökkviliðsins.
...fyrir 80 árum
Miðvikudaginn 22. desember 201018 V Í S I R árið 1930
María Markan
söngkona
Júlí 1930.
er nýkomin heim eftir tæpra 3
ára söngnám í Berlín. – Ég hafði
haft spurnir af því, að María
hefði mikla og fagra sópran rödd,
og aðra sönghæfileika að sama
skapi, og spyr hana því, hvernig
söngnámið gangi.
— Ég held mér sé óhætt að
segja að það gangi vel. Kennari
minn, Ella Schmucker, er einhver
besti söngkennari Berlínar. Hefir
hún t.d. „skólað“ raddir þeirra
Marín Basca og Margot Stahl
o.f l. — Nýlega hélt kennari minn
nemenda-konsert (3. júní) og
getið þér hér séð dómana sem ég
fékk:
Ég tók tvo af handahófi, annar
var eftir dr. Welter í Steglitzer
Anzeiger, er segir:
„María Markan hefir háan
dramatískan sópran, sem óefað er
skapaður fyrir óperurnar. Aríurn-
ar eftir Puccini og Cimara voru
hámark þessa listræna kvelds.
Hinn dómurinn er eftir Hans
Pascher í „Signale“, sem er
þekktasta músíkblað í Evrópu, á
þessa leið:
„María Markan hefir dásamlega
dramatíska hæfileika, hún syngur
Santússa aríu með fagurri rödd og
ríkum músíkölskum litbrigðum.“
— Hvenær farið þér aftur? Og
hvenær fáum við Reykvíkingar að
heyra yður?
— Að líkindum fer ég í ágúst, til
framhaldsnáms, og jafnframt er
ég ráðin til að syngja í óperudeild
Berlínar-Radío í haust.
Næstkomandi miðvikudag syng
ég í Nýja Bíó, að öllu forfalla-
lausu.
Svo kveð ég hina íslensku
söngkonu og óska henni alls góðs
í framtíðinni.
Musicus.
Bankamálið á enda kljáð.
—o—
Stjórnin sér sig um hönd og beitir sér fyrir endurreisn
Íslandsbanka.
—o—
Frá Þingvöllum.
Júní 1930.
Í gærkveldi var sífelldur straum-
ur troðfullra bifreiða á ferð til
Þingvalla, og er fréttaritari Vísis
kom þar laust eftir kl. 11 var ein
iðandi mannkös í gjánni, og til að
sjá voru vellirnir að sjá eins og
fiskbreiða eða ullar, því að hvít
tjöld þöktu þá endanna á milli. Lít-
ilf jörleg súld virtist hvorki spilla
umferðinni né gleði manna. Það
þótti helst á bresta, að tjöld Reyk-
víkinga voru meira en 3 km frá
Völlunum og bifreiðaferðir þangað
alldræmar, en um það varð þó ekki
fengist. Gleðskapur var sæmileg-
ur en þó við hóf.
(Frá fréttaritara Vísis á Þingvöllum)
Stórkostleg verðlækkun á nýja H U D S O N.
Til dæmis verður 7 manna „drossia", 8 cyl., nú um kr. 1500 ódýrari en í fyrra, þrátt fyrir alt hlutabréfa-
verðfallið í kauphöllinni í New York.
Nú er Hudson ekki lengur of breiður eins og undanfarin ár og ekki of dýr fyrir þann, sem
fagran, stóran og sterkan bíl ætlar sér að kaupa.
En þeir sem hafa í hyggju að kaupa ódýra 5 manna bíla, ættu ekki að afgera neitt því viðvíkjandi, þar til
þeir hafa séð nýju ESSEX bílana, sem koma hingað um næstu mánaðamót. Þeir eru nú stærri, kraftmeiri,
lengri og fallegri en nokkuru sinni fyr.
Einkasali á Íslandi fyrir Hudson og Essex
Magnús Skaftfjeld.Sími 1395. Sími 1395.Bifreiða viðgerðir
eru ágætar á Grettisgötu 16
& 18. Einnig allar gúmmí-
viðgerðir bæði á dekkum og
slöngum. —
— Reynið viðskiftin. —
EGILL VILHJÁLMSSON.
Alþingi
var sett í gær. – Þingmenn gengu
í kirkju stundu eftir hádegi. Ás-
mundur Guðmundsson dósent steig
í stólinn og mæltist honum sköru-
lega. Að messugerð lokinni söfn-
uðust þingmenn saman í sal neðri
deildar. Las forsætisráðherra upp
boðskap konungs, en þingmenn
hrópuðu nífalt húrra fyrir konungi,
nema jafnaðarmenn; þeir sátu sem
fastast.
P. Petersen,
Eigandi Gamla Bío, bauð nokkr-
um mönnum á fyrstu talmynd sína
á föstudaginn 23. ágúst. Var mynd
þessi bæði tal- og söngmynd og
margbreytileg að formi og efni, t.d.
voru sumir þættirnir með litum.
Samtalið var fremur greinilegt og
hjá mörgum ágætt, og betra en í
mörgum samskonar húsum í út-
löndum, til dæmis í London og Ed-
inborg, því sá sem þetta ritar hefir
hlustað á talmyndir þar. Það er tals -
verður hægðarauki líka fyrir fólk
að fara á þessar myndir, því þótt á
ensku eða þýsku sé talað, er þýðing
á dönsku, og munu því f lestir hafa
gagn af, þó að ekki skilji ensku og
þýsku. – Yfirleitt eiga eigendur
beggja kvikmyndahúsanna þakkir
fyrir að hafa fylgst svona vel með
breytingum sem eru í þessari grein
í útlöndum og hafa þegar hagnýtt
sér þær og komið þeim fyrir hér
heima.
X.
Hjálparbeiðni.
Kærleiksverk, væri að rétta
hjálparhönd einstæðingsstúlku
einni hér í bænum. – Hún er heilsu-
tæp, hefir legið að undanförnu, á
fyrir tveim börnum að sjá, en hefir
alls ekkert fyrir sig að leggja. Vísir
hefir góðfúslega lofað að taka við
samskotum til hennar. Nánari upp-
Gleðilegra jóla
óskar Vísir öllum
lesöndum sínum.
Utan af landi.
Úr Mýrdal.
16. jan. F.B.
Úr Mýrdal er skrifað 16. des.:
Tíðin hefir verið fremur góð, snjó-
aði lítið eitt fyrir fáum dögum,
en er nú tekið upp aftur að mestu
leyti. Heilbrigði fremur góð. –
Bifreiðir ganga enn að Seljalandi,
varð þó ekki fært að austanverðu í
sveitinni vegna snjóa um fáa daga.
Nokkur radio-tæki hafa menn
hér í sveit keypt og sett upp og eru
menn mjög ánægðir yfir að fá nú
daglega veðurfregnir og almennar
fréttir. Líkur eru miklar til, að rad-
io-tækjaeigendum fjölgi hér mikið
með vorinu.
31/12. Tíðin hefir verið mild
og lítil frost, en stundum miklar
rigningar, þó þurrviðrasamara síð-
an um jól. Skepnur hafa litla sem
enga gjöf fengið, hafa lagt allmikið
af vegna rigninganna og því með
rýrara móti eftir því sem vænt er
að vera á þessum árstíma.
Nýlátin er gömul kona, ekkja
Þorbjörg að nafni, á Brekkum hér
í sveit.
Dráttarvél kom hingað í sveitina
í haust, en lítið hefir verið hægt að
vinna með henni vegna klaka. Ann-
ars reyndist hún vel og vænta mun
góðs af henni.
lýsingar geta menn fengið, með því
að snúa sér til afgreiðslunnar.
Kunnugur.
Ófærðin.
Eftir nónbil í gær tókst að komast
héðan í bifreiðum til Hafnarfjarðar,
en var þó illfært, en í dag er verið
að moka veginn. Í morgun var ekki
fært inn úr bænum lengra en að
Tungu og eitthvað inn eftir Laugar-
nesvegi, en komast mátti suður að
Skerjafirði og fram á Seltjarnarnes.
– Fyrir austan fjall komast bifreiðar
frá Ölfusá að Ægissíðu, en ófært
eru um Ölfus, en nú mun verið að
moka þar af veginum. Einnig mun
vera í ráði að moka af veginum milli
Reykjavíkur og Lækjarbotna.
Frá Vestmannaeyjum
er símað hingað í gær: Að undan-
förnu megnasta ótíð. Sjaldan róið til
fiskjar síðasta hálfan mánuð, sökum
gæftaleysis, og afkast mjög lítið, þar
til í gær. Góður af li í dag. Landlega
sökum óveðurs í nótt. (FB.).
Gefins
fær hver sá, sem kaupir 2 Comm-
ander-pakka í vasann, snoturt
vindlingahylki í kaupbæti.
VON .