Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 64
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80
Vítamín-
bætt
skulda-
súpa?
Gengur í hús
n Poppstjarnan Herbert Guðmunds-
son deyr ekki ráðalaus þó að
plötusala hafi ekki verið sérlega mikil
síðustu misserin. Her-
bert er ekki þekktur
fyrir að binda bagga
sína sömu hnútum og
samferðamenn hans.
Hann hefur tekið
upp á því að ganga
í hús til þess að
selja tónlist sína,
sem er nokkuð
sem aðrir tónlist-
armenn hafa gert
minna af. Herbert
var meðal annars á
ferð á Seltjarnarnesi í
síðustu viku þar sem
hann bankaði upp á
og reyndi að freista
fólks. Hann hefur
síðustu mánuði
verið að fylgja eftir
smellinum Time sem
hann gaf út ásamt
Svani syni sínum
undir nafninu
Herbertson.
Tónleikaferð í
Bandaríkjunum
n Klara, Alma og Steinunn í hljóm-
sveitinni The Charlies, sem áður
hét Nylon, eru staddar hér á landi í
jólafríi, en þær fluttu til Los Angeles
fyrr á árinu til þess að láta draum sinn
um heimsfrægð rætast. Stelpurnar
hafa gert samning við plötufyrir-
tækið Hollywood Records, sem er
meðal annars með stórstjörnuna
Miley Cyrus á sínum snærum. Gætu
hjólin farið að snúast á fullu hjá þeim
eftir áramót, því þær eru á leiðinni
í tónleikaferðalag um Bandaríkin.
Heimsfrægðin er hins vegar enn ekki
farin að banka á dyrnar að neinu ráði
hjá The Charlies.
Óla heitt í hamsi
n Þótt góður andi ríki á fréttastofu
Stöðvar 2 og Vísis verður ekki það
sama sagt um loftið. „Loftleysið
á fréttastofunni er gjörsamlega
óþolandi,“ segir í tölvupósti sem
fréttamaðurinn margreyndi Óli
Tynes skrifar til yfirmanna sinna á
fréttastofunni. „Það er margbúið að
biðja um að eitthvað verði gert við
loftræstinguna, en ekkert gerist. Það
er ekki boðlegt að láta fólk vinna í
svona svækju og verður ekki þolað
lengur,“ skrifar hann enn fremur. Óli
er einn af reyndustu fréttamönnum
Stöðvar 2 en snjallar fréttir í sjónvarpi
af innlendum og erlendum málefn-
um sem og eftirtektarverðar netfréttir
hafa verið hans einkennismerki í
gegnum tíðina.
JÓLABLAÐ
22.–26. DESEMBER 2010
148. TBL. 100. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
Mikilfenglegt partí var haldið á
fimmtu hæð Hótel Borgar síðastlið-
inn föstudag í tilefni af nýjum drykk
frá Vífilfelli, Vitaminwater. Öll hæð-
in var lögð undir partíið og greindi
Fréttablaðið frá því á þriðjudag að
greinilega hefði öllu þotuliði lands-
ins verið boðið á opinn bar. Magnús
Árnason hjá Vatíkaninu, skipuleggj-
anda veislunnar, segir að veislan hafi
verið kostuð af Vífilfelli og Coca Cola
Nordic. Í samtali við DV vildi hann
ekki gefa upp kostnaðinn.
Athyglisvert er að skoða tilstandið
þegar horft er til eiganda fyrirtækis-
ins, Þorsteins M. Jónssonar.
Þorsteinn var í vikunni dæmd-
ur til greiðslu á hundrað og fimmtíu
milljóna króna víxilskuld til Lands-
bankans og fyrirtæki hans Runn-
ur ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta.
Tæp tveggja milljarða króna skuld
varð eftir í því félagi, sem væntan-
lega verður aldrei greidd, og eigið fé
neikvætt sem nemur sambærilegri
upphæð. Nýlega var einnig greint frá
skuldauppgjöri Þorsteins við lánar-
drottna sína en með þeim samning-
um náði hann að halda í eina af sín-
um lífvænlegustu eignum, Vífilfell.
Þar á bæ virðast vasarnir vera djúpir
og ekki eru skuldir eigandans að
þvælast fyrir þegar kemur að því að
halda mikilfenglegt partí til að kynna
vítamínbætt vatn.
Meðal þeirra sem létu sjá sig í
partíinu voru Björk Guðmundsdótt-
ir, Ásgeir Kolbeinsson og Jónsi úr Sig-
ur Rós. Auk þeirra voru þar félagarn-
ir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson
sem settu á markað vinsælar prótín-
stangir fyrir skemmstu.
Vífilfell lætur skuldir eiganda ekki stöðva sig:
Djammað á Hótel Borg
Steini í Kók Skuldirnar á bak við Þorstein
stöðva ekki öflugt markaðsstarf Vífilfells.
GEFÐU FRÍ UM JÓLIN
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2010 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. des. 2010 til og með 14. jan. 2011.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 3.000–14.400 Vildarpunkta.
Jólapakkar eru í boði fyrir öll farrými: Economy Class, Economy Comfort og Saga Class.
Jólapakkar Vildarklúbbsins eru í boði á Economy Class og Economy Comfort.
Sérstakt barna- og ungbarnaverð í boði, sjá nánari upplýsingar á www.icelandair.is.
Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 17. apríl 2011 (síðasti ferðadagur).
Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld með Icelandair.
Vildarkort VISA og Icelandair: Vildarkortshafar fá 5.000 Vildarpunkta fyrir kaupin.
+ BÓKAÐU Á WWW.ICELANDAIR.IS
EVRÓPA frá 29.900* kr.
eða 20.000 Vildarpunktar og 19.554* kr.
USA frá 54.900* kr.
eða 40.000 Vildarpunktar og 28.140* kr.
Jólapakkatilboðið gildir til London, Manchester, Glasgow, Kaupmannahafnar,
Stokkhólms, Osló, Amsterdam, Frankfurt og Parísar í Evrópu
og til New York, Boston og Seattle í Bandaríkjunum.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
13
45
1
2/
10