Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Page 13
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is Á ÍSLANDI
NÝTT Á ÍSLANDI
ÓDÝR
OG VÖNDUÐ
GPS TÆKI MEÐ
INNBYGGÐU
GÖTUKORTI
AF ÍSLANDI OG
VESTUR-EVRÓPU
VERÐ 19.990
KYNNINGARTILBOÐ
VERÐ 24.990
KYNNINGARTILBOÐ
VERÐ 39.990
KYNNINGARTILBOÐ
Navigon 20EASY
3,5" snertiskjár
Navigon 40EASY
4,3" snertiskjár og Sightseeing möguleiki
Navigon 70PLUS
5,0" snertiskjár og hreyfiskynjari fyrir valmyndir
MyRoutes
Snertiskjár og raddleiðsögn.
Götukort af Íslandi og Vestur-Evrópu.
MyRoutes möguleikinn gefur þér þrjár
mismunandi leiðir til að komast á
áfangastað og muninn á þeim.
Active Lane
Tækið sýnir nákvæmlega
á hvaða akrein þú skalt
vera þegar ekið er.
Point Of Interest
Sýnir þér áhugaverða staði.
TMC
Tækið lætur vita hvar vega-
framkvæmdir eru og velur
betri leiðir eftir því (virkar
ekki á Íslandi). Tækið tilbúið til
notkunar með kortum og öllu.
32
1
Fréttir | 13Jólablað 22.–26. desember 2010
Besti hamborg-
arhryggurinn
SORPA BORGAR
6 MILLJÓNA BENZ
„Það er alveg augljóst, finnst mér, með
fólk, sem hefur sætt sig við lægri laun
en ella, að ef ég tek af því bílahlunn-
indi þarf það að fá einhverja uppbót
í staðinn. Þetta er bara hluti af laun-
um,“ segir Björn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu, spurður um
hvort endurskoða ætti kjör starfs-
manna Sorpu. Sorpa, sem er B-fyrir-
tæki í eigu sveitarfélaganna, fjárfesti
á árinu í tveimur nýjum Volkswagen
Passat-metanbílum fyrir tvo deildar-
stjóra fyrirtækisins sem hvor um sig
kostar rúmlega þrjár milljónir króna.
Benz í boði fyrirtækisins
Sjálfur keyrir Björn um á tæplega sex
milljóna Mercedes Benz E299 í eigu
Sorpu. „Þessir bílar eru starfsmönn-
um til afnota og þeir borga af þeim
hlunnindaskatt eins og lög segja til
um. Hins vegar er búið að segja upp
öllu slíku hjá fyrirtækinu og það er í
skoðun hjá okkur hvernig þetta verð-
ur leyst.“
Svo þessi hlunnindi eru ekki leng-
ur við lýði? „Það er búið að segja
hlunnindunum upp, en þar gildir
náttúrulega sama uppsagnartími og í
ráðningarsamningum, þar sem þetta
er hluti af ráðningarkjörum. Það er
misjafnt hvort það eru þrír eða sex
mánuðir, hvenær það gengur í gildi,
en á tímabilinu sem uppsagnarfrest-
urinn er munum við fara í gegnum
hvernig við leysum bílamálin innan
fyrirtækisins.“
Verða að geta komist á milli staða
Björn bendir á að Sorpa sé með starfs-
stöðvar á tíu stöðum á höfuðborgar-
svæðinu, allt frá Kjalarnesi og suður í
Hafnarfjörð, og starfsmenn Sorpu séu
hvattir til þess að fara á milli og fylgj-
ast með starfsstöðvum sínum. „Þess
vegna er þetta nú tilkomið, að þau eru
á þessum ökutækjum,“ segir Björn.
Alls eru fimm deildarstjórar að
störfum hjá fyrirtækinu og hefur hver
um sig fyrirtækjabíl til einkanota.
Laun deildarstjóranna, sem Björn vill
meina að séu lægri en hjá öðrum í
samsvarandi störfum, eru á milli 500–
700.000 krónur á mánuði. „Á tímum
þar sem erfitt var að fá fólk í vinnu, þá
lokkaði það að geta boðið metanbíl,
það er umhverfisvænan bíl. Þetta var
notað í þeim tilgangi.“
Björn vill meina að þessi kaup hafi
verið mjög hagstæð þar sem bílarn-
ir séu knúnir metangasi, samræmist
umhverfisstefnu fyrirtækisins og geti
nýtt sér vistvænt eldsneyti sem fyrir-
tækið framleiðir sjálft.
n Framkvæmdastjóri Sorpu er á 6 milljóna Benz í boði fyrirtækisins
n Búið að segja hlunnindunum upp n Tveir bílar keyptir á þessu ári
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Það er búið að
segja hlunnind-
unum upp en þar gildir
náttúrulega sami upp-
sagnartími og í ráðning-
arsamningum.
Lokkar að geta boðið metanbíl Bíla-
hlunnindi starfsmanna Sorpu eru hugsuð til
að vega upp á móti launakjörum, segir Björn
Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu.
„Það skiptir miklu máli að hafa gott
hráefni og góðan framleiðanda,“
segir Gísli Sigurbergsson, eigandi
Fjarðarkaupa. Hamborgar hryggur
Fjarðarkaupa varð hlutskarpastur
í árlegri bragðkönnun DV á ham-
borgarhryggjum og hlaut fyrir vik-
ið viðurkenningu DV sem besti
hamborgarhryggurinn árið 2010.
Hvorki fleiri né færri en 14 ham-
borgarhryggir voru smakkaðir í
ár en dómnefndin var að mestu
samansafn þaulreyndra matgæð-
inga.
Hryggurinn frá Fjarðarkaup-
um hlaut meðaleinkunnina 8 (af
10 mögulegum) en þrír af fimm
dómurum gáfu honum sína hæstu
einkunn. Í öðru sæti var Nóatúns-
hamborgarhryggurinn en í þriðja
sæti hafnaði Bónushryggurinn,
sem hafnaði í öðru sæti í fyrra. Al-
mennt þóttu hryggirnir í ár betri
en í fyrra, en tveir dómnefndar-
meðlimir tóku einnig þátt í fyrra.
Gísli segir að salan á hamborg-
arhryggjum hafi tekið mikinn kipp
eftir að könnunin var birt um síð-
ustu helgi. Raunar hafi hryggirn-
ir klárast um helgina en nálægðin
við Ali, framleiðanda hryggjanna,
hinum megin götunnar, hafi orð-
ið til þess að hægt var að bregðast
hratt við.
Aðspurður hvað geri Fjarðar-
kaupahrygginn góðan nefnir Gísli
áðurnefnda þætti en bætir við að
um leyniuppskrift Fjarðarkaupa
sé að ræða. „Við skiptum okkur
aðeins að því hvernig þeir fram-
leiða hrygginn fyrir okkur en upp-
skriftin verður ekki gefin upp,“
segir hann á léttum nótum.
baldur@dv.is
Gísli Sigurbergsson í Fjarðarkaupum:
Salan tók kipp
Gísli hjá Fjarðar-
kaupum segir að
miklu skipti að hafa
gott hráefni og góð-
an framleiðanda.
MYND SIGTRYGGUR ARI