Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Side 15
Erlent | 15Jólablað 22.–26. desember 2010
Alexander Lukasjenkó ætlar sér að berjast gegn „heimskulegu lýðræði“:
Stjórnar með harðri hendi
Á sunnudag voru haldnar forseta-
kosningar í Hvíta-Rússlandi og
komu úrslitin úr þeim ekki á óvart.
Alexander Lukasjenkó, sem hefur
verið forseti síðan árið 1994, hlaut
80 prósent atkvæða og verður því
forseti Hvíta-Rússlands fjórða kjör-
tímabilið í röð. Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu hafði kosn-
ingaeftirlitsmenn í Hvíta-Rússlandi
og sögðu þeir að ekki hafi heiðar-
lega verið staðið að kosningunum.
Philip Crowley, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
í yfirlýsingu á mánudag að ríkis-
stjórn Bandaríkjanna tæki undir
með Öryggis-og samvinnustofnun-
inni. „Það er ekki hægt að líta svo
á, að úrslitin úr kosningunum séu
lögmæt.“
Í kjölfar kosninganna á sunnu-
dag brutust út fjölmenn mótmæli
í miðborg Minsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands, en þau voru barin niður
jafn harðan. Lögreglan handtók 600
mótmælendur og lamdi einnig Vla-
dimir Neklæjev, einn keppinauta
Lukasjenkós, til óbóta. Hann var
síðan handtekinn, eins og sex aðr-
ir frambjóðendur en alls voru níu
manns í framboði. Í sjónvarpsvið-
tali á sunnudag sagði Lukasjenkó
að það yrði ekki gerð nein bylting
og að mótmælin sem áttu sér stað
í miðborg Minsk á sunnudag hafi
verið „stigamennska“.
Lukasjenkó hefur oftar en ekki
verið kallaður „síðasti evrópski ein-
ræðisherrann“. Hann hefur heitið því
að berjast gegn því sem hann kallar
„heimskulegt lýðræði“. Þrátt fyrir for-
dæmingu Evrópuríkja og Bandaríkj-
anna á stjórnarháttum Lukasjenkós
nýtur hann stuðnings frá rússnesk-
um stjórnvöldum. Dimitrí Medvéd-
ev, forseti Rússlands, sagði að mót-
mælin og lögregluofbeldið í Minsk
væri innanríkismál Hvíta-Rússlands.
Mótmælin barin á bak aftur Lögreglan
ræðst hér að mótmælendum vopnuð kylfum.
Birnir gætu
blandast
Vísindamenn hafa fundið enn eina
ástæðuna til að óttast hlýnun jarðar
og minnkun ísbreiðunnar á norð-
urpólnum í kjölfarið. Nú er talið
að ísbjarnastofninn sé í hættu, þar
sem þeir eru í auknum mæli farnir
að nema land í Norður-Ameríku en
þangað koma þeir með hafísnum.
Vísindamenn óttast því ekki að ís-
björninn sé í útrýmingarhættu. Þeir
óttast hins vegar að á fasta landinu
muni hann hitta fyrir ættingja sinn,
grábjörninn. Þetta gæti leitt til þess
að bjarnartegundirnar fari að maka
sig og eignast blönduð afkvæmi,
sem stofnað gæti hinum hreina
stofni ísbjarna í hættu. Greinilegt
er að birnir gera ekki greinarmun á
kynþáttum, en annað virðist gilda
um vísindamennina.
ESB sendir flug-
völlum tóninn
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lýst yfir vonbrigðum
sínum með frammistöðu stærstu
flugvalla í vesturhluta Evrópu und-
anfarna daga. Vegna mikillar snjó-
komu hefur fjölda flugferða verið
aflýst, tafir hafa verið miklar og sums
staðar hefur þurft að loka flugvöll-
um alveg. Siim Kallas, framkvæmda-
stjóri samgöngumála í ESB, sagði að
„flugvellir verði að fara að undirbúa
sig af alvöru.“ Hann sagði óásættan-
legt að slíkar tafir yrðu ár eftir ár, þar
sem ljóst væri að snjókomur væru
tíðar í Vestur-Evrópu á þessum árs-
tíma. Ættu flugvellirnir því að taka
sér flugvelli á Norðurlöndunum til
fyrirmyndar, en þar virðist snjórinn
ekki hafa jafn mikil áhrif.
Banvænn árstími
Ný bandarísk rannsókn hefur leitt
í ljós að dánartíðni er mun hærri
þær tvær vikur sem jólin standa yfir.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru
birtar í Social Science & Medicine
Journal. David Philips, prófessor
við Kaliforníuháskóla stýrði rann-
sókninni, en tekin voru til skoðunar
dánarvottorð á tímabilinu 1979 til
2004. Philips taldi líklegt að andlegu
álagi væri líklega um að kenna, en
ekki væri um að villast – um hátíð-
arnar deyja fleiri en venjulega daga,
sérstaklega á jóladaginn sjálfan og á
nýársdag.