Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 20
20 | Jólin 22.–26. desember 2010 Jólablað Á Barnaspítala Hringsins eru jóla- sveinarnir í heimsókn. Þetta eru þeir Stekkjastaur og Gluggagæg- ir. Gluggagægir hefur komið við á barnaspítalanum síðustu átta árin. „Það er gott að geta gefið gleði og von,“ segir hann en bætir því við að það sé líka erfitt að hitta mjög veik börn. „En gefandi þegar ég sé þau braggast,“ segir hann og bros- ir. Hann finnur að koma hans skipt- ir börnin máli. „Ég finn að það hef- ur áhrif. Börnin hafa gaman af því að sjá okkur. Við tökum þátt í dag- skránni niðri í leikherberginu en það eru alltaf einhver börn sem komast ekki þangað. Þá komum við hingað upp á deild og kíkjum á krakkana eins og hjúkrunarfræð- ingarnir leyfa. Það geta ekki allir tekið á móti okkur.“ Handtaskan hans Stekkja- staurs Auk hefðbundinna strigapoka er Stekkjastaur með bleika handtösku. Aðspurður segist hann hafa þá getu að þegar hann fer ofan í pokann sinn geti hann seilst eftir hverju sem er hvar sem er. „Ég fann þessa tösku í herberginu hjá Loga Geirs. Hún er full af hárgeli frá honum, sem ég er að gefa.“ Hjúkrunarfræðingur kem- ur aðvífandi og biður um hárgel fyrir tvítugan strák. „Það er spurn- ing hvaða hártegund hann er með,“ segir Stekkjastaur. „„Xtreme hold“ er fyrir þá sem vilja hár eins og Logi en markmaðurinn er með þetta hér,“ segir hann og réttir aðra dós fram. „Við verðum að gefa þér eitthvað gott“ Allt í einu lifnar yfir hjúkrunar- fræðingnum þegar hún sér konu með lítinn strák í fanginu koma að. „Kemur hann! Flottastur,“ segir hún brosandi og tekur á móti barninu. Hann á eftir að fá gjöf frá sveinka, sem bætir hratt úr því. „Við verð- um að gefa honum nammi,“ segir Gluggagægir og réttir honum poka. Stekkjastaur réttir honum síðan svitaband og sýnir honum hvern- ig hægt er að nota það til að strjúka svitann af enninu. Síðan réttir hann honum Ken. „Viltu þennan líka? Þú passar hann fyrir mig. Þú ert búinn að vera svo duglegur á spítalanum að við verðum að gefa þér eitthvað gott.“ Strákurinn sem er ekki orðinn tveggja ára gamall tekur feiminn á móti gjöfunum. „Hann er alveg dol- fallinn,“ segir móðir hans þakklát. Jólasveinarnir láta ekki þar við sitja heldur gefa honum einnig hárgel frá Loga Geirs sem hann getur gefið pabba sínum áður en þeir syngja Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Hjúkr- unarfræðingurinn fylgist brosandi með drengnum og segir þetta ein- staklega ánægjulegt, ekki síst þar sem hann sé nýbúinn að tárast svo- lítið. Áður en jólasveinarnir kveðja þá stilla þeir sér upp með stráknum og hjúkrunarfræðingnum en verða svo halda á næstu deild. „Gleði- leg jól!“ hrópa þeir um leið og þeir ganga út með tilheyrandi „hohoho“ og hlátrasköllum. Senda börn heim í sjúkrabíl Við setjumst aftur á móti niður með hjúkrunarfræðingnum Guð- laugu Erlu Vilhjálmsdóttur sem er öllu vön þegar kemur að vinnu yfir hátíðarnar og spyrjum hana út í stemninguna á spítalanum. „Það er bara hátíðlegt. Mjög fínt. Á aðfanga- dag er oft mikið að gera fyrripart dags því þá er verið að koma öllum heim sem geta farið heim. Sumir fá leyfi en þurfa kannski að fara heim í sjúkrabíl og koma svo aftur seinna um kvöldið. Um fjögurleytið fer síð- an að róast og þá eru þeir eftir sem eyða kvöldinu með okkur. Oftast koma foreldrar og systkini og jafnvel afar og ömmur. Fjölskyld- an borðar saman inni á herbergi, flestir vilja bara vera saman og halda sín jól eins og hægt er. Sum- ir koma með eigið skraut og jafnvel lítið jólatré. Við starfsfólkið borðum svo saman og reynum að hafa það hátíðlegt á milli þess sem við hlaup- um til og sinnum okkar verkefnum. Þeir sem eru að vinna fá líka lítinn pakka frá deildinni.“ Vont að vera frá fjölskyldunni Á þessari deild liggja öll börn yngri en átján ára sem eru ekki svo veik að þau þurfi að vera á gjörgæslu. Núna liggja þar fimmtán börn en það get- ur breyst mikið á fjórum dögum. Yf- irleitt eru um tíu börn á deildinni á aðfangadagskvöld. Sjálf á Guðlaug mann og tvö börn. „Ég hef ekki unn- ið á aðfangadagskvöld síðan börnin fæddust, þau eru svo lítil. En ég hef unnið aðra hátíðisdaga og þau taka ekki mikið eftir því. Ég fer í vinn- una alla daga, líka þegar þau eru í fríi. Þau hafa pabba sinn og þeim finnst það fínt. Mér finnst alls ekkert slæmt að vinna á aðfangadagskvöld en mér þykir auðvitað vont að vera frá börnunum og fjölskyldunni.“ Ágætishvíld frá jólastressinu Á næsta borði situr fimmtán ára gamall drengur sem var einnig á spjalli með jólasveinunum áðan. Það er Róbert Hreiðar Pálson sem var með aðskotahlut í maga og þurfti því að fara í aðgerð. Síðustu dögum hefur hann því varið fastandi á spít- alanum. „Það er ekkert að því,“ seg- ir hann æðrulaus. „Ég býst við því að fara út á næstu dögum. En þetta hef- ur verið ágætishvíld frá jólastress- inu. Það er fínt.“ Nú er hann allur að hressast og er meira að segja far- inn að borða, er að borða fiskiboll- ur. Ekki nóg með það þá er hann með hátíðarkonfektið hjá sér, sörur í dunk skreyttum sætri jólasveina- mynd. Móðir hans, Elfa Dröfn Ing- ólfsdóttir, var að baka. „Ég bakaði í gær með dóttur minni. Við bökuð- um sexfalda uppskrift,“ segir hún og útskýrir að hún hafi viljað að Róbert gæti boðið starfsfólkinu upp á gott- erí. Hefði þurft að hafa hann heima að þrífa Hún er sjálf að vinna á Reykjalundi og býr í Mosfellsbæ en reynir að heimsækja son sinn daglega. „Mér líður vel að vita af honum hér. Það er svo vel hugsað um hann. En það verður gott að fá hann heim aftur. Kannski verðum við svolítið fast- ari fyrir því mér finnst við ekki geta skilið hann eftir einan heima,“ segir hún en tekur það fram að það komi ekki að sök þar sem hún sé að mestu búin með jólaundirbúninginn. „Ég Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Jólaandi á Barnaspítala Hringsins n Jól og jólaundirbúningur foreldra n Ársgamall drengur í lyfjameðferð n Stressa sig ekki yfir jólunum: „Jólin koma bara“ n Besta gjöfin að komast heim fyrir jólin n Fimmtán ára með aðskotahlut í maga n Spítalavistin fín hvíld frá jólaamstrinu Hetja Björn Elís verður tveggja ára í janúar. Hann greindist með æxli í nýra í október. Hér styttir hann sér stundirnar í leikherberginu. Jólasveinar í heimsókn Stekkjastaur og Glugga- gægir færðu Birni Elís gjafir, nammipoka, svitaband, Ken-dúkku og hárgel frá Loga Geirs fyrir pabba.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.