Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Side 21
Jólin | 21Jólablað 22.–26. desember 2010 hefði þurft að hafa hann heima til að hjálpa mér að þrífa,“ segir hún á gamansömum nótum. „Nei, en það var auðvitað leiðinlegt að missa hann alveg út á aðventunni. En hann kemur heim fyrir jól. Það er gott. Þá getum við gert okkar piparmyntu- konfekt sem við gerum alltaf fyrir hver jól.“ Greindist með æxli í nýra Við heyrum litla drenginn gráta. Það er verið að stinga hann. Við leyfum honum að jafna sig en tyllum okk- ur síðan með þeim mæðginunum. Þetta eru þau Jakobína Björnsdótt- ir og Björn Elís Þorgeirsson, sem verður tveggja ára í janúar. Þau eru frá Fáskrúðsfirði og komu í morg- un í lyfjameðferð fyrir Björn Elís. Í október tóku foreldrar hans eftir æxli við nýrað. Þau fóru til læknis á fimmtudegi, flugu suður á laugar- degi og hann var myndaður á mánu- degi. Þá komu niðurstöðurnar strax í ljós og þau voru inni á spítala næstu tvo mánuði. „Þetta gerðist bara einn tveir og tíu. Hann var með æxli í nýra og það var tekið fyrir svona tveim- ur vikum. Næstu sex mánuði verður hann í fyrirbyggjandi meðferð til að gulltryggja að ekkert hafi lekið.“ Langar að halda áfram með lífið Fyrir viku fóru þau heim og flugu suður í morgun til að koma í lyfja- gjöf. „Vonandi verður það þannig að við getum bara flogið á milli. En hann þarf alltaf að fara í gjöf vikulega þannig við verðum líklega alltaf hér á mánudögum. Núna var stefnt á að við gætum komið og farið aftur heim fyrir jól. En svo vitum við ekki hvern- ig lyfin fara í hann. En ég er búin að tala svo mikið um veikindi hans síð- ustu mánuði að ég nenni því eigin- lega ekki núna. Auðvitað hefur það hjálpað að tala um þetta en ég er allt- af að tala um þetta. Núna langar mig til að fara að halda áfram. Við erum náttúrulega ekki heima hjá okkur, en það er fínt að vera hér. Starfsfólkið hefur reynst okkur vel og það er allt gert fyrir okkur.“ Ekkert stress fyrir jólin Heima nýttu þau tímann vel þessa viku sem þau höfðu. „Við höfðum alveg viku saman heima. Ég er búin að kaupa allar gjafirnar og gera allt sem ég get gert fyrir jólin en er ekkert að stressa mig yfir því. Jólin koma. Ég ætla ekki að þrífa hátt og lágt. En ég hef fengið mikla hjálp. Þegar aðstæðurnar eru svona vilja allir vera með okkur og hjálpa okk- ur.“ Eldri börnin hafa til dæmis ver- ið hjá móður hennar á meðan þau hafa verið á spítalanum. Þar hafa þau geta haldið sinni rútínu gang- andi. „Þau eru í leikskóla og í skóla. Elsta dóttir mín byrjaði í skóla í haust. Ég er búin að missa aðeins af því. En þau eru alveg róleg yfir þessu og það hjálpar mér mikið að vita að þeim líður vel.“ Góð gjöf að komast heim Björn dormar í fanginu á móð- ur sinni sem spyr hvort hann sé sofnaður. Hann fær extra góða gjöf þessi jólin. „Auðvitað,“ segir hún og brosir blítt. „Hann er þreyttur. Sólarhringurinn hefur farið í rugl við þetta og það á eftir að núllstilla hann aftur. En það borgar sig ekki fyrir jól.“ Jakobína segist ekki láta það á sig fá að Björn Elís sé að kljást við erfið veikindi yfir hátíðarnar. „Það skiptir engu máli. Ég þarf bara að takast á við þetta, þetta er bara vinna sem ég þarf að sinna og ég er bara fegin að hann fái hjálp. En það er auðvitað rosalega góð gjöf að komast heim fyrir jólin.“ Heima bíður faðir hans með tveimur eldri systkinum hans, fjögurra og sex ára. „Þau eru mjög spennt fyrir jólunum. Auðvitað. Þau hlakka til að opna pakkana.“ Jakobína segir líka að hennar uppá- haldsstund yfir hátíðarnar sé þeg- ar pakkarnir eru opnaðir. „Ég verð alltaf eins og ég sé tveggja ára,“ seg- ir hún hlæjandi. „Ég hef alltaf gam- an af því. En besta gjöfin er sú að við fáum að vera heima.“ Jólaandi á Barnaspítala Hringsins Anna Sigríður Vernharðsdóttir ljós- móðir starfar á fæðingardeild Land- spítalans. Hún var að vinna á að- fangadagskvöld í fyrra og segir að það hafi bara verið gaman. „Auðvit- að finnur maður fyrir því að það sé aðfangadagskvöld. Það eru jól alls staðar. Sama hvar maður er. Maður er með jól í hjarta þótt að vinnan sé kannski bara eins og alla aðra daga. Maður er í jólaskapi. Og það eru jól hjá öllum sem hingað koma þannig að það eru allir í jólaskapi. Það er náttúrulega kraftaverk í hvert einasta skipti sem barn fæðist, sama hvaða dagur það er, en það hlýtur að vera enn skemmtilegra á jólunum. Það er alla vega enn skemmtilegra að fá að taka á móti barni. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að ég taki á móti barni þegar ég er á vakt, og sérstaklega ekki þegar ég er á svona stuttri vakt.“ Jólahefðirnar breytast Anna Sigríður á mann og hafa þau hjónin alla jafna haldið jólin hátíð- leg heima og boðið foreldrum henn- ar til sín. Nema í fyrra. „Jólahefðirn- ar breytast náttúrulega. Þá vorum við bara hjá mömmu þannig að ég þurfti ég ekkert að sjá um matinn. Ég var líka að vinna aðfaranótt að- fangadags.“ Á Þorláksmessukvöld mætti hún nefnilega í vinnu klukkan ellefu þegar hún hafði gert allt sem hún er vön að gera á Þorláksmessu. „Ég fer alltaf í fjölskylduboð þar sem við borðum saman hangikjöt, en ekki skötu. Það er mjög huggulegt. Oft- ast er jólaundirbúningurinn minn uppáhaldstími. Þegar ég stend í eld- húsinu og elda matinn. Mér finnst það dásamlegt. En ég missti af því í fyrra.“ Erfiðara fyrir fjölskylduna Á aðfangadagskvöld skipta ljósmæð- urnar á fæðingardeildinni vaktinni á milli sín þannig að hver þarf aðeins að standa sína pligt í fjóra tíma. „Þá verður þetta yfirstíganlegra, því það er pínu erfitt að vera ekki með fjöl- skyldunni. Fyrst við gerum þetta svona getum við borðað með fjöl- skyldunni áður en við mætum eða farið heim um áttaleytið. Í fyrra var ég á seinni vaktinni og mætti ekki fyrr en ég var búin að borða. Vaktinni lauk síðan klukkan hálftólf og þá fór ég aftur heim til mömmu og pabba og við teygðum jólin inn í nóttina. Þau biðu með að opna pakkana, enda þroskað og fullorðið fólk sem gat vel beðið. Annars held ég að við sem erum að vinna á jólunum eig- um oft auðveldara með það en fjöl- skyldan. Ég fer bara í vinnuna og get gleymt mér í henni en heima finnur fólkið mitt fyrir því að ég sé ekki með þeim. Þau sakna mín. Kannski er ég að oftúlka eitthvað en ég vorkenni þeim frekar en mér, því að ég er ekki hjá þeim.“ Hátíðarstemning á fæðingar- deildinni Hún reynir því að komast hjá því að vinna á aðfangadag. „Ég vil frekar vera heima. En ef ég þarf að vinna þá tek ég því auðvitað. Við þurfum yfir- leitt að vinna annaðhvort um jól eða áramót. Mér finnst erfiðast að vinna á aðfangadagskvöld, því þá er mesta hátíðarstemningin. En við reynum að hafa það huggulegt hér. Á annan í jólum kem- ur kór Menntaskólans í Hamrahlíð og syngur fyrir starfsfólk og gesti á fæðingardeildinni. Ég hef ekki upp- lifað það sjálf en þær segja að það sé dásamlegt. Ómurinn berst hingað eftir göngunum þar til kórinn birtist allt í einu inni á deild. Mér er sagt að þetta sé einstakt. Á nýársnótt er líka alveg sérstök stemning hér því þá ríkir svo mikil eftirvænting eftir fyrsta barni ársins. Það er svo gaman þegar það fæðist. En það fæðist ekki alltaf hér hjá okk- ur, stundum fæðist það úti á landi eða í Hreiðrinu.“ ingibjorg@dv.is Með jól í hjarta á fæðingardeildinni n Vann síðasta aðfangadagskvöld n Jólahefðirnar breytast n Sérstakt að taka á móti jólabarni n Eftirvænting á nýársnótt eftir fyrsta barninu Besta jólagjöfin Eftir spjallið leiðir Anna Sigríður okkur inn á Hreiðrið, gang þar sem foreldrar og nýfædd börn þeirra geta hvílst áður en þau leggja af stað heim á leið. Þar hittum við fyrir þau Ingibjörgu Helgu Skúla- dóttur og Hörð Garðarsson sem eignuðust lítið stúlkubarn fyrr um morguninn. Fæðingin gekk vel og tók aðeins þrjá tíma. Þegar blaða- mann bar að garði lá stúlkan við brjóst móður sinnar og svolgraði í sig móðurmjólkina. „Ég hef ekki tímt að sofa,“ sagði Ingibjörg. „En hann hefur sofið ágætlega,“ sagði hún og benti á Hörð sem játti því og brosti. Dóttir þeirra fædd- ist klukkan fimm að morgni 20. desember, 16 merkur og 53 senti- metrar, dökkhærð snáta. „Ég gekk viku fram yfir þannig að hún er bara búin að vera að safna fitu og hári,“ segir Ingibjörg og strýkur dóttur sinni ástúðlega um kollinn. Þau eru búin að ákveða nafnið. Hún heitir Steinunn. Heima um jólin Fyrir eiga þau soninn Pétur sem er tveggja og hálfs árs. Hann bíð- ur þeirra heima en þau ætla heim seinna í dag, mánudag. „Í fyrsta sinn ætlum við að vera heima hjá okkur á jólunum,“ segir Ingibjörg. „Við höfum alltaf verið heima hjá foreldrum okkar. En núna ætlum við að elda hamborgarhrygg og halda lítil og róleg jól. Það verða bara við fjögur og ein amma sem ætlar að létta undir með okkur,“ segir hún og Hörður bætir því við að sonur þeirra sé á þeim aldri að hann sé ansi fjörugur. „Annars ætla ég að vera heima næsta mánuðinn. Svo tek ég eitthvað fæðingarorlof í sumar,“ segir hann. Ingibjörg er aftur á móti búin að vera heima í nokkrar vikur og hef- ur því dúllast í jólaundirbúningn- um. „Ég er nánast búin að öllu. Ég er bara fegin að ég átti hana ekki um jólin. Það var farið að stefna í það, eða ég hafði alla vega smá áhyggjur af því. En mér finnst rosagott að geta verið heima um jólin. Þetta er besta jólagjöfin.“ ingibjorg@dv.is Ingibjörg Helga Skúladóttir og Hörður Garðarsson eignuðust litla stúlku: Gladdist yfir smákökunum Róbert Hreiðar Pálsson gladdist mjög þegar hann mátti gæða sér á sörum frá mömmu. Jólasveinar bregða á leik Stekkjastaur og Gluggagægir stilla sér upp með Birni Elís. Bleika taskan kemur frá Loga Geirs. Besta jólagjöfin Ingibjörg Helga Skúladóttir og Hörður Garðarsson eignuðust stelpu rétt áður en blaðamann bar að garði. Þau ætluðu heim samdægurs og halda jólin hátíðleg heima í fyrsta sinn. Jólabörnin gleðja Anna Sigríður Vernharðs- dóttir ljósmóðir segir það skemmtilegt að taka á móti jólabarni. Mesta stemningin er þó á nýársnótt þegar beðið er eftir fyrsta barni ársins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.