Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 28
Það hlýtur að krefjast töluverðra fórna að taka að sér starf í fjarlægu landi og vinna við miserfiðar og mis- krefjandi aðstæður, fjarri fjölskyldu og vinum. Samt sem áður er stór hópur Íslendinga sem ákveður að rífa sig upp frá hinu örugga Íslandi og dvelja til skemmri eða lengri tíma við hjálpar- og þróunarstörf. Hvað ætli drífi þau áfram í þessari ákvörð- un sinni? Sveinn Guðmarsson, Lilja Dóra Kolbeinsdóttir og Lóa Magnús- dóttir hafa starfað á vegum Íslensku friðargæslunnar, Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands og annarra hjálp- arstofnana og hafa störf þeirra ver- ið ólík, allt frá kennslu til verkefna á sviði félagsmála og til starfa á neyð- arsvæðum. Gunnhildur Steinars- dóttir spurði þau út í störfin og upp- lifun þeirra af öðrum þjóðum. Einnig var rætt um jólaundirbúning og jóla- hald á framandi slóðum. Sjö mánuðir í Jemen Sveinn Guðmarsson starfar sem upplýsingafulltrúi hjá UNICEF í Jem- en á vegum Íslensku friðargæslunnar og hefur verði þar í tæpa sjö mánuði en hann segir þennan tíma hafa liðið eins og hendi væri veifað. Hann mun koma heim í stutt jólafrí en halda svo utan aftur og mun dvelja í Jemen fram í febrúar. Misskipting og þjáning Þetta er í fyrsta skipti sem Sveinn starfar við þróunar- eða hjálparstörf en hann segist hafa komið inn í geir- ann í gegnum störf sín í fjölmiðlum, einkum á sviði erlendra frétta. „Ég á bágt með að ímynda mér að nokk- ur sem á annað borð fylgist með því sem er að gerast í heiminum taki ekki misskiptinguna og þjáninguna sem við sjáum svo oft í fréttunum að ein- hverju leyti inn á sig. Í það minnsta langaði mig til að reyna að leggja eitthvað meira af mörkum en bara að segja fréttir af þessum málum,“ útskýrir hann en bætir við að inn í þetta blandist ævintýraþrá og áhugi á að dvelja á öðru menningarsvæði. Mikil fátækt í Jemen Á síðasta ári sótti hann námskeið hjá UNICEF fyrir fjölmiðlafólk sem gæti hugsað sér að starfa á neyðarsvæð- um og í kjölfarið var haft samband við hann frá utanríkisráðuneytinu og honum boðið að fara til Jemen. Hann segir starfið krefjandi en geysi- lega gefandi. Eins heldur hann að fæstir Íslendingar átti sig á því hversu mikil fátækt sé í Jemen og nefnir sem dæmi að vannæring barna sé óvíða meiri en þar. Hagur kvenna sé einn- ig sérstakleg bágborinn og einung- is tvær af hverjum þremur stúlkna á grunnskólaaldri gangi í skóla. Afleiðingar stríðsins hræðilegar „Til að bæta gráu ofan á svart hef- ur hálfgerð borgarastyrjöld geisað í norðurhluta landsins sem hefur haft þær afleiðingar að yfir 300.000 manns hafa hrakist af heimilum sín- um. Afleiðingar stríðsins eru væg- ast sagt hræðilegar, ég hef hitt börn sem hafa stórslasast af völdum jarð- sprengja og önnur sem bera djúp ör á sálinni. Þjáningarnar sem þessi börn líða eru auðvitað hræðilegar en það er ekki annað að gera en að líta á þetta út frá þeim sjónarhóli að UN- ICEF sé að hjálpa þeim og bæta hag þeirra,“ segir hann. Dagleg samskipti við fólkið sitt Aðspurður um heimþrá segir að Sveinn að í upphafi hafi það reynst honum erfitt að vera fjarri fjölskyldu og vinum. Eftir því sem hann komst betur inn í starfið og eignaðist vini þar ytra minnkaði heimþráin. Eins gerir netið fjarlægðirnar styttri þar sem hann getur verið í daglegum samskiptum við fólkið sitt á Íslandi. Hann segist þó hafa virkilega lang- að heim í október þegar systir hans eignaðist sitt fyrsta barn en hann fái að sjá snáðann um jólin og hlakki mikið til. Fjölskylduhátíð Sveinn segir að það hafi ekki kom- ið annað til greina en að koma heim um jólin. „Ég gat eiginlega ekki hugs- að mér að verja þeim einn í landi þar sem ekki eru einu sinni haldin jól. Heimþráin er líklega sterkust hjá flestum um þetta leyti enda er þessi hátíð fyrst og fremst fjölskylduhá- tíð,“ bætir hann við. Þar sem Jemen er íslamskt ríki segir hann að það sé fátt sem komi manni í jólaskap þar, ekki síst þegar hitastigið á daginn sé í kringum tuttugu gráður og sólin skíni glatt. Hlustar á Baggalút „Ég reyndi að koma mér í jólaskap í vinnunni í gær með því að hlusta á Baggalútsplötuna Jól og blíðu en það var eiginlega alveg fáránlegt. Í það minnsta hristust slæðurnar á höfð- um samstarfskvenna minna af hlátri þegar Baggalútsmenn hófu upp raust sína.“ Sveinn er væntanlegur til landsins á miðvikudagskvöld. „Ef veðurguðirnir verða mér ekki þeim mun óvinveittari, insjallah eða ef Guð lofar, eins og þeir segja hérna Jemenarnir,“ segir Sveinn að lokum. Dvaldi rúm tíu ár í Afríku Lilja Dóra Kolbeinsdóttir hefur kom- ið víða við en hún hefur starfað í An- góla, Úganda og Mósambík og allt í allt hefur hún dvalið rúm tíu ár í Afr- íku. Þar fyrir utan hefur hún verið við nám í Danmörku og Bretlandi um árabil en er nú stödd á Íslandi. Hún dvaldi Í Angóla á árunum 1996 til 2001. Þar starfaði hún sem kennari og síðar sem verkefnastjóri við upp- byggingu á kennaranámi í Huam- bo- og Benguela-héraði á vegum an- gólska menntamálaráðuneytisins og innlendra frjálsra félagasamtaka. Fjölbreytt starf Síðar starfaði hún á vegum Þróun- arsamvinnustofnunar Íslands í Úg- anda og dvaldi þar í fimm ár. „Starf- ið var mjög fjölbreytilegt, þar sem ég hafði umsjón með daglegum rekstri og framkvæmd verkefna á sviði fé- lagsmála, undirbúningi nýrra verk- efna, umsjón þarfagreininga og ann- arra rannsókna og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana. Ég starfaði náið með deild jafnréttismála og samfé- lagsþróunar innan úgandska félags- málaráðuneytisins við stefnumótun og framkvæmd fullorðinsfræðsluá- ætlunar landsins. Auk þess sat ég í vinnuhópum gjafaríkja og alþjóða- stofnana um málefni tví- og marg- hliða þróunarsamvinnu í Úganda,“ segir hún. Erfitt en gefandi Hún segir að störf við þróunarsam- vinnu geti verið jafnerfið og þau eru gefandi, eins og við á um svo mörg önnur störf. Þessi störf séu þó mjög vandmeðfarin því verkefnin séu óteljandi í þróunarlöndunum. „Mað- ur tekur oft eitt skref áfram og tvö aft- ur á bak, og þarf í flestum tilfellum að hafa plan A, B og C og svo er það stundum plan D sem verður fram- kvæmt. Rennandi vatn og rafmagn eru alls ekki sjálfsagðir hlutir og geta því einföldustu verk orðið afar flók- in,“ útskýrir hún. Jákvætt að koma að breytingu í lífi fólks Fyrst og fremst hefur Lilju Dóru þó fundist þau störf sem hún hefur sinnt spennandi og segist hún vera afar þákklát fyrir að hafa tekið þátt í jákvæðri breytingu á lífi fjölda fólks í gegnum menntun og fræðslu. „Það voru ýmsar tilviljanir sem leiddu mig á þessa braut og ævintýraþrá- in einna helst. En síðar menntaði ég mig í þróunarfræðum og hef því lagt þennan málaflokk fyrir mig frá fag- legu sjónarmiði,“ segir hún aðspurð um ástæður fyrir starfsvali. Leið vel í Afríku Hún segir það geta verið erfitt að vera langt í burtu frá vinum og fjölskyldu. Þeir sem hafi upplifað að vera út- lendingur eða innflytjandi upplifi líklega svipaða tilfinningu, að þurfa að læra inn á nýja menningu og siði í því landi sem maður dvelur í. „Fólk er þó yfirleitt mjög jákvætt og hjálp- samt og á ég marga að mínum bestu vinum í Angóla, Úganda og víðar. Maður á auðvitað heima þar sem manni líður vel og mér leið alltaf vel í Afríku,“ bætir hún við. Jól að kaþólskum sið Lilja Dóra hefur haldið jól í ótal löndum en aðspurð um jólahald nefnir hún að Angóla sé gömul portúgölsk nýlenda og því séu jól- in þar að kaþólskum sið. Hún segir að kirkjusóknin þar sé mikil og hef- bundnar veislur haldnar þar sem vinir og ættingar koma saman til að borða góðan mat og skiptast á gjöf- um. Í Úganda upplifði hún bæði kristnar hátíðir eins og jólin en einnig Eid Mubarak sem er hátíð múslima. Undirbúningurinn þar er ekki jafn langur og hér á Íslandi enda ekki eins mikið neyslusamfé- lag. Hún segir flesta fara í kirkju á jólunum, og halda svo góðar veisl- ur með vinum og vandamönnum þar sem heil geit eða grís er settur á grillið. „Að mínu mati er fólk mun meðvitaðara um kristilega jóla- boðskapinn og þá hátíð sem verið er að halda upp á en hér á Íslandi. Allt er mun einfaldara,“ segir Lilja Dóra. Jólin eru menningararfur Aðspurt um jólin og hvað þau standi fyrir gagnvart henni svarar hún: „Jól- in fyrir mér eru hátíð ljóss og friðar. Þau eru minn menningararfur þar sem ég er alin upp í kristnu samfélagi hér á Íslandi. Þau eru þó persónu- lega ekki sérstaklega trúarleg held- ur meira hefð. Til að halda í hefð- irnar hef ég fengið sent hangikjöt út um allan heim. Þegar foreldrar mín- ir komu til mín í heimsókn til Úg- anda ein jólin komu þau með skötu og saltfisk þar sem Þorláksmessa er alltaf mikil hátíð hjá þeim. Þau ár sem ég var í Úganda söfnuðust þeir Íslendingar sem þar bjuggu saman og borðuðu hangikjöt og skemmtu sér saman. Má þá segja að líkur sæki líkan heim þegar haldin eru jól,“ seg- ir Lilja Dóra. Lærir af þrautseigju annarra Ólöf Magnúsdóttir er í Islamabad í Pakistan en þar vinnur hún fyrir UN- ICEF að hjálparstarfi á flóðasvæðun- um á vegum Íslensku friðargæslunn- ar. Hún hefur dvalið þar í tvo mánuði en áður hefur hún starfað við þróun- ar- og hjálparstörf á Filippseyjum, Fidjí-eyjum, Síerra Leóne, Georgíu, Palestínu og Srí Lanka. Aðspurð um starfið segir hún að það gefi manni tækifæri til að veita hjálparhönd en einnig að læra af þrausteigju fólks sem hefur lent í hörmungum. Auk þess veitir það manni tækifæri til að kynnast fólki og stöðum sem maður hefði annars ekki fengið að kynnast. Upplifir styrk mannsandans „Starfið er mjög gefandi og mér finnst ég heppin að fá að vera á vett- vangi og meðal fólks sem er að reyna að endurbyggja líf sitt eftir hörmung- 28 | Úttekt 22.–26. desember 2010 Jólablað „Maður tekur oft eitt skref áfram og tvö aftur á bak, og þarf í flestum tilfellum að hafa plan A, B og C og svo er það stund- um plan D sem verður framkvæmt. „Starfið er mjög gefandi og mér finnst ég heppin að fá að vera á vettvangi og með- al fólks sem er að reyna að endurbyggja líf sitt eftir hörmungar og upplifa styrk samfélagsins og mannsandans. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Upplifa styrk mannsandans n Íslendingar starfa víða um heim við þróunar- og hjálparstörf n Starfsins vegna dvelja þeir langt frá heimaslóðum n Upplifa misskiptingu og þjáningu n Krefjandi en gefandi starf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.