Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Side 38
Júlíus Thorarensen fyrrv. sölumaður í Reykjavík Júlíus fæddist á Akureyri og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lærði loð- bandsvinnslu í þrjú ár hjá Stephanus Offermann. Júlíus hóf störf hjá ullarverksmiðj- unni Gefjun á Akureyri aðeins fjórtán ára og starfaði þar samfellt til ársins 1985 eða í þrjátíu og tvö ár, fyrst við öll almenn störf en varð verkstjóri í loð- bandsdeild 1971 þar sem hann m.a. sá um allt viðhald og tækjakost deild- arinnar. Júlíus flutti til Reykjavíkur 1986 og hóf þá störf hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn þar sem hann var fyrst sölumað- ur en síðan verslunarstjóri. Júlíus starfar mikið að félagsmál- um. Hann hefur sótt mörg námskeið á vegum Samvinnuskólans í stjórnun- ar- og félagsmálum. Hann sat í stjórn Starfsmannafélags verksmiðja Sam- bandsins frá 1978–85 og var formaður þess frá 1980–85. Þá sat hann í stjórn Landssambands samvinnustarfs- manna frá 1983–84. Hann var formað- ur Bridgefélags Akureyrar frá 1983–84 og hefur starfað með Oddfellow-regl- unni. Þá söng hann lengi með söng- hópnum Norðurljós og syngur nú með Kirkjukór Breiðholtskirkju. Fjölskylda Júlíus kvæntist 1959 Margréti Emils- dóttur frá Siglufirði, nú látin. Júlíus og Margrét slitu samvistir. Börn Júlíusar og Margrétar eru Kol- brún, f. 12.12. 1958, húsmóðir á Akur- eyri, var gift Agli Stefánssyni múrara- meistara sem er látinn og eignuðust þau þrjú börn, Lindu, Önnu, og Ein- ar Inga; Hallgrímur, f. 4.3. 1961, mat- reiðslumaður og sölumaður, bú- settur í Kópavogi, en kona hans er Þrúður Gísladóttir og eru dætur þeirra Tinna og Lára; Valdimar Lárus, f. 2.12. 1962, ráðgjafi í Kópavogi, og á hann tvö börn, Bryngeir og Ingólf Sigurð; Magna Ósk, f. 23.8. 1973, þjónustufull- trúi hjá VÍS en maður hennar er Elmar Þorbergsson og eru börn þeirra Mar- grét og Arnar. Júlíus kvæntist 24.8. 1985 seinni konu sinni, Ástríði Sigvaldadóttur, f. 3.6. 1951, ráðningarfulltrúa. Þau slitu samvistir. Hún er dóttir Sigvalda Búa Bessasonar sem er látinn, og Ásdísar Erlu Gunnarsdóttur Kaaber í Reykja- vík. Júlíus á níu systkini. Þau eru Jakob, f. 21.7. 1937, búsettur á Akureyri, var kvæntur Margréti Sigurvinsdóttur sem er látin; Guðrún Ólína, f. 17.9. 1938, búsett á Akureyri, var gift Hólmsteini Aðalgeirssyni sem er látinn; Soffía, f. 26.8. 1942, d. 2.4. 2008, var búsett í Reykjavík og gift Kjartani Tómassyni; Valdimar, f. 12.8. 1944, búsettur á Ak- ureyri, kvæntur Hrafnhildi Eiríksdótt- ur; Leifur, f. 14.12. 1945, búsettur í Keflavík; Miriam, f. 11.5. 1950, búsett á Akureyri; Lára, f. 2.2. 1952, búsett á Flateyri, gift Þórði Jónssyni; Margrét, f. 20.9. 1953, búsett í Þorlákshöfn, gift Ægi Hafberg; Halla, f. 26.6. 1958, bú- sett í Hveragerði, gift Sævari Í. Péturs- syni. Foreldrar Júlíusar voru Valdimar Thorarensen, f. 26.9. 1910, d. 9.10. 1974, verkamaður á Akureyri, og k.h., Lára Hallgrímsdóttir, f. 28.12. 1917, d. 20.1. 1973, húsmóðir. Ætt Valdimar var sonur Valdimars Thor- arensen, málafærslumanns á Akur- eyri, bróður Jakobs Jens í Gjögri, föður Jakobs Thorarensen skálds. Valdimar málafærslumaður var sonur Jakobs Thorarensen, kaupmanns á Reykj- arfirði Þórarinssonar Thorarensen, verslunarstjóra á Reykjarfirði Stef- ánssonar, amtmanns á Möðruvöllum í Hörgárdal, bróður Vigfúsar, sýslu- manns á Hlíðarenda, föður Bjarna Thorarensen, skálds og amtmanns á Möðruvöllum. Stefán var sonur Þórar- ins, sýslumanns á Grund í Eyjafirði og ættföður Thorarensenættar Jónsson- ar, og Sigríðar Stefánsdóttur, pr. á Hös- kuldsstöðum Ólafssonar. Móðir Þór- arins verslunarstjóra var Ragnheiður Vigfúsdóttir, sýslumanns Schevings á Víðivöllum. Móðir Jakobs kaup- manns var Katrín, systir Péturs amt- manns, föður Hannesar Hafsteins, skálds og ráðherra, afa Hannesar Hafsteins sendiherra, og langafa Pét- urs Hafsteins, fyrrv. hæstaréttardóm- ara og Ragnheiðar Erlu Bjarnadóttur, prests, leiðsögumanns og fornleifa- líffræðings. Katrín var dóttir Jakobs Havsteen, kaupmanns á Hofsósi Ní- elssonar, timbursmiðs við Hólminn í Kaupmannahöfn Jakobssonar. Móð- ir Katrínar var Maren Jóhannsdóttir Birch, beykis á Akureyri. Móðir Valdimars málafærslu- manns var Guðrún Óladóttir Viborg, b. í Ófeigsfirði, Jenssonar Olesen Vi- borg, beykis á Reykjarfirði frá Viborg á Jótlandi. Móðir Guðrúnar var Elísabet Guðmundsdóttir, b. á Hafnarhólmi, Guðmundssonar, og Elísabetar Magn- úsdóttur, systur Guðrúnar, langömmu Guðmundar, afa Alfreds Jolsons bisk- ups. Guðrún var einnig móðir Jó- hönnu, langömmu Sólveigar, móður Jóns Baldvins Hannibalssonar sendi- herra og Arnórs heimspekings. Móðir Valdimars verkamanns var Sofía Thorarensen, f. Jensen, dóttir J. Chr. Jensen, verslunarmanns á Akur- eyri. Lára var dóttir Hallgríms Júlí- ussonar, b. á Einarsstöðum í landi Munkaþverár, og Sigurrósar Þorleifs- dóttur. 70 ára á Þorláksmessu 50 ára á miðvikudag 38 | Ættfræði 22.–26. desember 2010 Jólablað Guðlaugur fæddist í Reykjavík, ólst upp á Hellissandi en flutti til Grund- arfjarðar 1987 og var þar búsettur til 2005. Þá flutti hann til Tálknafjarðar þar sem hann er enn búsettur. Hann lauk grunnskólaprófum frá Grunn- skóla Hellissands. Guðlaugur vann við fiskvinnslu- störf hjá Hraðfrystihúsi Hellissands í nokkur ár á unglingsárunum. Hann hóf ungur sjómennsku, réri fyrst þrettán ára með föður sínum frá Rifi á Snæfellsnesi, var síðan togarasjó- maður í Grundarfirði á togurunum Krossnesi, Klakknum og á Hringn- um. Hann var síðan á Eldborginni um skeið og öðrum togara en hefur starfað við fiskeldi á Tálknafirði frá 2005. Guðlaugur hefur verið áhuga- ljósmyndari um árabil og tekið fjölda ljósmynda, einkum af skip- um og bátum en einnig af mannlíf- inu. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar í Grundarfirði og á Tálknafirði. Fjölskylda Börn Guð- laugs frá fyrra hjónabandi eru Margrét Dagbjört Guðlaugsdóttir, f. 10.4. 1986, húsmóðir í Reykjavík og er sonur hennar Alexander Leví; Al- bert Þórir Guðlaugsson, f. 19.2. 1990, starfar við Eldsmiðjuna í Reykjavík; Bjarki Snær Guðlaugsson, f. 17.9. 1997, grunnskólanemi. Sambýliskona Guðlaugs er Mar- grét Magnúsdóttir, f. 6.7. 1965, bók- ari hjá Odda á Patreksfirði. For- eldrar Margrétar eru Magnús Kr. Guðmundsson, f. 17.3. 1930, útgerð- armaður á Tálknafirði sem nú starfar við fiskeldi, og Jóna Sigurðardóttir, f. 4.11. 1931, húsmóðir á Tálknafirði. Dóttir Guðlaugs og Margrétar er Jóna Stefanía Guðlaugsdóttir, f. 13.12. 2006. Systkini Guðlaugs eru Lára Kar- ólína Albertsdóttir, f. 21.9. 1963, húsmóðir, búsett í Bandaríkjunum og á hún þrjá syni; Þröstur Alberts- son, f. 27.7. 1967, sjómaður, búsett- ur í Ólafsvík en kona hans er Sóley Jónsdóttir kennari og eiga þau tvö börn. Hálfbróðir Guðlaugs, sammæðra, er Hinrik Benedikt Karlsson, f. 21.2. 1951, verktaki, búsettur á Akureyri en kona hans er Ingunn Aradóttir verk- taki og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Guðlaugs: Albert Guð- laugur Guðlaugsson, f. 9.3. 1931, sjó- maður á Hellissandi, og Stefanía Elín Hinriksdóttir, f. 25.10. 1925, d. 30.11. 2000, húsmóðir. Guðlaugur Jakob Albertsson starfsmaður fiskeldis á Tálknafirði Til hamingju með daginn! AFMÆLI 25. – 26. DESEMBER Á JÓLADAG 30 ára „„ Jessie Matugas Maribojo Karlsrauðatorgi 26b, Dalvík „„ Helgi Jóhann Þorvaldsson Hrafnakletti 4, Borgarnesi „„ Hjörtur Gunnar Jóhannesson Bragagötu 26, Reykjavík „„ Dagný Skúladóttir Grænuhlíð 10, Reykjavík „„ Guðný Björk Atladóttir Þórðarsveig 16, Reykjavík 40 ára „„ Anna Mikerová Bergþórugötu 11a, Reykjavík „„ Stefán Hallur Jónsson Seiðakvísl 16, Reykjavík „„ Steingrímur Ólason Kvistalandi 7, Reykjavík „„ Anna Sigríður Blöndal Seiðakvísl 22, Reykjavík „„ Ágúst Pétursson Fálkahöfða 3, Mosfellsbæ „„ Sigurður Gíslason Dalsbyggð 7, Garðabæ „„ Guðbjörg Ágústa Gylfadóttir Ögurási 5, Garðabæ „„ Guðmundur G. Valgeirsson Háholti 30, Akranesi 50 ára „„ Hédi Maróti Sóltúni 23, Selfossi „„ Rohan Stefan Nandkisore Víkurbakka 4, Reykjavík „„ Sigríður Steinbjörnsdóttir Bjarmastíg 13, Akureyri „„ Ævar Sigmar Hjartarson Engjaseli 85, Reykjavík „„ Sverrir Egill Bergmann Vallarbraut 22, Seltjarn- arnesi „„ Ólafía Guðrún Eggertsdóttir Austurtúni 3, Hólmavík „„ Sigurður Jóhann Tyrfingsson Nýhöfn 3, Garðabæ „„ Ingigerður Arnarsdóttir Blöndubakka 10, Reykjavík „„ Valbjörn Jón Jónsson Hábæ 31, Reykjavík „„ Martha E. Kristín Lund Einigrund 7, Akranesi 60 ára „„ Hreiðar Karlsson Leirum, Reykjavík „„ Erlendur Erlendsson Marteinslaug 7, Reykjavík „„ Sigurbjörg Einarsdóttir Þinghólsbraut 1, Kópavogi „„ Óli Sævar Ólafsson Heiðvangi 50, Hafnarfirði „„ Laufey Björnsdóttir Bakkastöðum 101, Reykjavík „„ Gestur Már Gunnarsson Höfðagötu 25, Stykk- ishólmi „„ Erla Kristinsdóttir Burknabergi 6, Hafnarfirði „„ Hjalti Þórisson Laugateigi 37, Reykjavík „„ Erla S. Sigursveinsdóttir Holtsgötu 13, Sandgerði „„ Dagmar G. Jónsdóttir Vegghömrum 37, Reykjavík 70 ára „„ Sveinn Magnússon Bylgjubyggð 25, Ólafsfirði 75 ára „„ Jón Óli Ólafsson Seiðakvísl 14, Reykjavík „„ Björk Guðlaugsdóttir Hrannarstíg 12, Grundarfirði „„ Birgir Hallgrímsson Skólastíg 14a, Stykkishólmi „„ Nanna Þorláksdóttir Hávallagötu 1, Reykjavík 85 ára „„ Jón Ólafsson Ólafsvegi 2, Ólafsfirði „„ Ingibjörg S. Sigurðardóttir Sléttahrauni 34, Hafnarfirði 100 ára „„ Vivan Svavarsson Grettisgötu 98, Reykjavík Á ANNAN Í JÓLUM 30 ára „„ Rakel Fjeldsted Jóhannesdóttir Heiðarhjalla 30, Kópavogi „„ Elín Björk Jónasdóttir Þjórsárgötu 6, Reykjavík „„ Jóhann Ólafur Schröder Álfkonuhvarfi 49, Kópavogi 40 ára „„ Karim Adam Hellal Laugarnesvegi 47, Reykjavík „„ Dionisio P. Humarang Ránargötu 28, Reykjavík „„ Sigríður Hinriksdóttir Laugavöllum 17, Egils- stöðum „„ Sigríður Jóhannesdóttir Vallholti 4, Vopnafirði „„ Kjartan Hallur Grétarsson Safamýri 38, Reykjavík „„ Ágúst Már Guðmundsson Laugateigi 9, Reykjavík „„ Anna Guðrún Auðunsdóttir Byggðarholti 31, Mosfellsbæ „„ Aðalheiður Hilmarsdóttir Hlíðarvegi 3, Reykja- nesbæ „„ Guðrún Lárusdóttir Holtagerði 42, Kópavogi „„ Zilvinas Savickis Fífumóa 5c, Reykjanesbæ „„ Guðmundur Ögmundsson Skaftafelli 1a, Öræfum „„ Ingveldur Bjarnarson Reykjavegi 76, Mosfellsbæ „„ Tómas Njáll Möller Krossalind 15, Kópavogi 50 ára „„ Þórdís Mjöll Reynisdóttir Skallagrímsgötu 5, Borgarnesi „„ Ásta Jenny Magnúsdóttir Kalastöðum 1, Akranesi „„ Margrét Jóhannsdóttir Heiðnabergi 16, Reykjavík „„ Guðjón Benediktsson Flatey 2, Höfn í Hornafirði „„ Guðmundur Kristjánsson Fögrusíðu 7c, Akureyri „„ Stefán Jónasson Héðinshöfða 2b, Húsavík „„ Birgir Sigurðsson Þúfubarði 17, Hafnarfirði „„ Vilmundur Ægir Eðvarðsson Hvanneyrarbraut 46, Siglufirði „„ Guðrún Oddný Guðjónsdóttir Fellahvarfi 21, Kópavogi „„ Siggerður L. Sigurbergsdóttir Löngubrekku 17, Kópavogi „„ Sigríður Ragnarsdóttir Móaflöt 18, Garðabæ 60 ára „„ Vignir Þór Einarsson Asparfelli 12, Reykjavík „„ Tryggvi Sigurðsson Laugateigi 35, Reykjavík „„ Ester Lind Theódórsdóttir Garðabraut 24, Akranesi „„ Ragnheiður A. Þengilsdóttir Hábergi 28, Reykjavík „„ Guðný Sigurhansdóttir Holtateigi 21, Akureyri „„ Aðalbjörg Þórðardóttir Norðurtúni 5, Siglufirði „„ Bragi Sigurgeir Árnason Silfurtúni 11, Garði „„ Guðlaugur Hermannsson Rjúpufelli 44, Reykjavík „„ Hannes Garðarsson Tjarnarbóli 4, Seltjarnarnesi „„ Eymar Einarsson Jaðarsbraut 23, Akranesi 70 ára „„ Fjölnir Björnsson Bárugötu 33, Reykjavík „„ Halldór Karelsson Furubyggð 3, Mosfellsbæ „„ Jóhann Angantýsson Nýjabæjarbraut 3, Vest- mannaeyjum „„ Benedikt Brynjólfsson Þórðarsveig 5, Reykjavík „„ Baldur Óskarsson Laugavegi 105, Reykjavík „„ Sigurjón Svavar Yngvason Álfheimum 38, Reykjavík „„ Þorgerður K. Jónsdóttir Teigi, Akureyri 75 ára „„ Friðdóra Tryggvadóttir Hamrahlíð 30, Vopnafirði „„ Freysteinn Þórarinsson Bakkabakka 13, Nes- kaupsta𠄄 Karl Karlsson Dunhaga 21, Reykjavík 80 ára „„ Kristinn Antonsson Glæsistöðum, Hvolsvelli „„ Sveinbjörn Gunnlaugsson Baughóli 42, Húsavík 85 ára „„ Guðrún Björnsdóttir Tjarnarlöndum 20, Egils- stöðum 90 ára „„ Ragnar Leósson Tindaflöt 4, Akranesi „„ Guðni Magnússon Skúlagötu 20, Reykjavík m.dv.is Lestu fréttir DV í farsíman um þínum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.