Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Blaðsíða 39
Minning | 39Jólablað 22.–26. desember 2010 Sólveig Guðmundsdóttir lögfræðingur og deildarstjóri í Reykjavík – f. 18.11. 1948, d. 12.12. 2010 MERKIR ÍSLENDINGAR Árni Guðmundur Friðriksson fædd- ist að Króki í Ketildalahreppi í Barða- strandasýslu. Hann var son- ur Friðriks Sveinssonar, bónda á Króki, og k.h., Sigríðar Maríu Árna- dóttur húsfreyju. Árni og Bjarni Sæmunds- son voru helstu frumkvöðlar fiski- fræðinnar hér á landi og unnu ómetanlegt braut- ryðjendastarf í þágu hinnar ungu fræðigreinar, enda hafa fiskirannsókn- arskip Hafrann- sóknastofnunar borið nöfn þeirra um árabil. Ævistarf þessara merku frumkvöðla verður ekki síður mikilvægt í ljósi þeirrar staðreyndar að fiskverndunarstefna Íslendinga er nú æ oftar höfð til hlið- sjónar og að leiðarljósi annarra ríkja á meðan mikilvægir fiskistofnar hafa orðið fyrir alvarlegum skakkaföllum við Kanada, Rússland og hjá Evrópu- sambandinu. Árni lauk stúdentsprófl í Reykjavík 1923, stundaði nám í Kaupmannahöfn og lauk magisters- prófi í dýrafræði við Kaupmanna- hafnarháskóla 1929. Hann var aðstoðarmaður hjá prófess- or Schmidt við Carlsberg Laboratorium 1929–30, var ráðunautur Fiski- félags Íslands 1931– 37, forstöðumaður Fiskideildarinnar í Atvinnudeild Há- skóla Íslands frá 1937–53, og var síðan skipaður framkvæmdastjóri Alþjóðahafrann- sóknarráðsins 1954 en því starfi gegndi hann til 1965. Árni stundaði eink- um fiskirannsóknir á síld og þorski hér við land. Hann beitti sér m.a. fyrir notkun bergmálsmælis við fiskileit en slíkar fisksjár hafa síðan valdið straum- hvörfum við veiðar og rannsóknir. Eftir Árna liggja töluverð skrif um fiskirannsóknir, bækur, greinar og erindi í íslensk og erlend fræði- rit. Þekktustu bækur hans eru Áta íslenzkrar síldar, útg. 1930 og Alda- hvörf í dýraríkinu, útg. 1932. Árni Friðriksson fiskifræðingur – f. 22.12. 1898, d. 16.10. 1966 Merkir Íslendingar Merkir Íslendingar Þorsteinn fæddist að Hurðar- baki í Kjós en ólst upp að Hólabrekku við Skerja- fjörð. Foreldrar hans voru Ögmundur Hansson Stephen- sen og Ingibjörg Þor- steinsdóttir. Þor- steinn var bróðir Guðrúnar, móður Ögmundar Jónas- sonar, dómsmála- og samgönguráð- herra. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1925 og stund- aði nám við Konunglega leik- húsið í Kaupmannahöfn 1934–35. Eftir heimkomuna frá Danmörku varð Þorsteinn þulur við ríkisútvarp- ið, og leikari og leikstjóri við Ríkis- útvarpið. Þá sá hann um barnatíma þess um skeið – tvívegis. Hann hætti þularstarfinu 1946 og var eftir það leiklistarstjóri Ríkisútvarpsins þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir 1975. Þorsteinn var í hópi ástsælustu leikara þjóðarinnar um árabil og lék mikinn fjölda ólíkra hlutverka hjá Ríkisútvarpinu, Leikfé- lagi Reykjavíkur og nokk- ur hlutverk sem gest- ur Þjóðleikhússins. Af fjölda hlutverka hans hjá Leikfélagi Reykja- víkur má nefna hlut- verk hans í Brown- ingþýðingunni og síðar pressarann í Dúfnaveislunni en fyrir bæði þessi hlutverk hlaut hann Silfurlampann. Þá lék hann í sjónvarps- leikritum, s.s. Romm handa Rósalind. Hann var af kjörinn af Alþingi í heiðurslaunaflokk lista- manna árið 1988. Þorsteinn hélt sögufrægt útvarps- erindi árið 1973, gegn seðlabanka- byggingu á Arnarhóli. Skoraði hann á alla flytjendur útvarpserinda að enda mál sitt með kröfu um friðlýsingu Arnarhóls með því að segja: „Megi sú hönd visna sem skerðir þann stað.“ Í kjölfarið fóru fram fjömenn mótmæli á Arnarhólnum og síðan breyting á fyrirhuguðu seðlabankahúsi. En nú hefur Harpan tekið það útsýni sem barist var fyrir 1973. Þorsteinn Ö. Stephensen leikari og leiklistarstjóri Ríkisútvarpsins – f. 21.12. 1904, d. 13.11. 1991 Sólveig fæddist á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1976 og lauk embættis- prófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1981. Sólveig starfaði hjá yfirborgar- fógetanum í Reykjavík 1981–82, varð deildarstjóri innheimtudeildar Gjaldheimtunnar í Reykjavík 1982 og var skrifstofustjóri þar 1983–86. Hún dvaldi með eiginmanni sín- um í Washington DC 1986–88 vegna starfa hans við Alþjóðabankann, var yfirlögfræðingur neytendamála- deildar Verðlagsstofnunar 1988–90 og var deildarstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu frá 1990. Gegndi hún stöðu deildarstjóra og yfirlögfræðings í ráðuneytinu til dánardags. Sólveig kom að samningu fjöl- margra lagafrumvarpa og reglugerða á sviði heilbrigðismála. Hún tók þátt í erlendu samstarfi á vegum ráðu- neytisins og sat sem fulltrúi þess í mörgum nefndum um heilbrigðis- mál. Hún sat í stjórn Velferðarsjóðs barna frá stofnun sjóðsins til ársins 2009. Jafnframt var hún kjörin af Al- þingi sem varamaður í landskjör- stjórn frá árinu 1991. Fjölskylda Sólveig giftist 8.7. 1983, eiginmanni sínum, Birni Líndal, f. 1.11. 1956, lögmanni, en þau hófu sambúð 1978. Foreldrar Björns eru Páll Jak- ob Theodórsson Líndal, f. 9.12. 1924, d. 25.7. 1992, hrl., borgarlögmað- ur, ráðuneytisstjóri og rithöfundur, og Guðrún Eva Úlfarsdóttir, f. 27.12. 1925, fyrrv. deildarstjóri hjá Stofnun Árna Magnússonar. Börn Sólveigar og Björns eru Vigdís Eva, f. 2.11. 1983, lögfræð- ingur hjá Persónuvernd, í sambúð með Þórhalli Axelssyni, f. 12.5. 1980, nema í viðskiptafræði; Guðmundur Páll, f. 27.9. 1986, laganemi, í sam- búð með Kristínu Láru Helgadóttur, f. 10.12. 1986, laganema. Með fyrri eiginmanni sínum, Ei- ríki Óskarssyni, eignaðist Sólveig þrjú börn. Þau eru Sigyn, f. 16.2. 1966, jarðfræðingur og verslunar- eigandi, en maður hennar er Friðrik Dagur Arnarson, f. 8.11. 1956, fram- haldsskólakennari en sonur Sigynar úr fyrri sambúð er Guðmundur Hall- grímsson, f. 6.1. 1987, en synir Sigyn- ar og Friðriks eru Friðrik Aðalsteinn, f. 29.5. 1993, Eiríkur Hákon f. 30.7. 1995, og Örn f. 5.4. 1997; Signý, f. 9.1. 1967, ferðamálafræðingur, í sambúð með Jóni Tryggvasyni, f. 6.3. 1959, framkvæmdastjóra en sonur Signýar úr fyrri sambúð er Reinar Ágúst Fore- man f. 28.7. 1993, en dætur Signýjar og Jóns eru Hekla, f. 16.7. 2004, og Harpa f. 10.3. 2008; Óskar Örn, f. 14.5. 1969, framkvæmdastjóri, í sambúð með Emmu Peirson, f. 18.9. 1978, leikstjóra en börn Óskars frá fyrra hjónbandi eru Emilía Sólveig Gun, f. 1.7. 1997, Amanda Jul ia Liz f. 19.11. 1999, og Júlíus Örn, f. 25.12. 2001. Hálfsystir Sólveigar, sammæðra, er Ólöf Guðrún Magnúsdóttir, f. 25.11. 1944, tækniteiknari í Reykjavík en maður hennar er Örlygur Þórðar- son, f. 19.12. 1944, lögfræðingur og eru börn þeirra Brynja, f. 23.7. 1966, og Þórður, f. 2.10. 1972. Alsystkini Sólveigar: Anna Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 15.9. 1955, hjúkrunarfræðingur og djákni á Sel- fossi en maður hennar er sr. Krist- inn Ágúst Friðfinnsson prestur og eru börn þeirra Friðfinnur Freyr, f. 18.7. 1980, Melkorka Mjöll, f. 22.7. 1981, Magnús Már, f. 29.7. 1986, og Kolbeinn Karl, f. 27.6. 1987; Gunn- ar Örn Guðmundsson, f. 4.11. 1956, rafeindavirki í Reykjavík en kona hans er Helga Margrét Söebech, f. 1.5. 1958, lyfjatæknir og eru syn- ir þeirra Þórður Freyr, f. 5.11. 1985, Guðmundur Örn, f. 5.11. 1993, og Helgi Valur, f. 12.4. 1997, auk þess sem Gunnar Örn á dóttur frá fyrri sambúð, Unu, f. 16.3. 1975; Hrönn, f. 16.9. 1959, hjúkrunarfræðingur í Bandaríkjunum en maður hennar er Frank Sicari, f. 12.8. 1954, kennari og eru börn þeirra Francis Guðmund- ur, f. 15.10. 1983, Anna Sólveig, f. 2.2. 1986, og Richard, f. 6.3. 1987; Hlíf, f. 16.9. 1959. hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri í Reykjavík, en mað- ur hennar er Geir Björnsson, f. 25.2. 1957, tölvunarfræðingur og eru börn þeirra Ýrr, f. 31.5. 1979, Auður, f. 10.2. 1985, Arnar, f. 13.5. 1996, og Björn, f. 13.5. 1996. Foreldrar Sólveigar: Guðmundur Gunnarsson, f. 25.6. 1928, bygginga- verkfræðingur og fyrrv. tækniforstjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, og Anna Júlíusdóttir, f. 12.12. 1923, d. 8.2. 2009, húsmóðir. Ætt Guðmundur er sonur Gunnars, bú- fræðings, kennara, lögregluþjóns og framkvæmdastjóra Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri Jónssonar, b. á Keldhólum í Vallahreppi Eiríkssonar. Móðir Guðmundar er Sólveig Guðmundsdóttir Kjerúlf, b. í Sand- haga og á Hafursá, bróður Jóns Kjerúlf á Melum, langafa Eiríks Jónssonar, fyrrv. ritstjóra, Herdís- ar Þorgeirsdóttur, fyrrv. ritstjóra og Ólínu Þorvarðardóttur alþm. Guð- mundur var sonur Andrésar Kjer- úlf, frá Melum Jörgenssonar Kjerúlf, læknis á Brekku í Fljótsdal sem kom til Íslands 1819, föðurbróður norska tónskáldsins Hálfdánar Kjerúlf. Móðir Guðmundar Kjerúlf var Anna Jónsdóttir, b. á Melum Þorsteinsson- ar, b. á Melum Jónssonar, ættföður Melaættar. Móðir Sólveigar var Vil- borg Jónsdóttir, b. á Kleif í Fljótsdal Magnússonar, og Sigríðar, frá Götu í Fellum Sveinssonar. Anna var systir útgerðarmann- anna Þórðar og Jóhanns Júlíussona er stofnuðu og starfræktu útgerðar- félagið Gunnvöru. Anna var dóttir Júlíusar, b. á Atlastöðum í Fljótavík Geirmundssonar, b. í Fljótavík Guð- mundssonar, b. í Kjaransvík Snorra- sonar, b. í Hælavík Brynjólfssonar. Móðir Guðmundar var Elísabet Hall- varðsdóttir. Móðir Geirmundar var Sigurfljóð Ísleifsdóttir, b. á Hesteyri Ísleifssonar. Móðir Önnu er Guðrún Jóns- dóttir, húsmanns í Steinstúni Guð- mundssonar, b. á Dröngum Ól- afssonar, b. á Eyri í Ingólfsfirði Andréssonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Björnsdóttir. Móðir Jóns var Guðrún Sigurðardóttir, b. á Dröng- um Alexíussonar. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var Elísa Ólafsdóttir, frá Ósi Ólafssonar. Útför Sólveigar fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, miðviku- daginn 22.12. og hefst athöfnin kl. 13.00. Andlát
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.