Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 40
40 | Jólasaga 22.–26. desember 2010 Jólablað Þ etta árið kom haustið í ágústlok og í september var komið frost. Þá var það kaldan laugardag í septemberbyrjun að framan við raðhús við Sogaveginn stóð gamall jeppi og fyrir aftan hann var kerra en í kerrunni var rúmlega tveggja metra hátt grenitré og því fylgdi mikill rótavöndull sem pakkað hafði verið inn í striga. Jónas var að komast á eftirlaunaaldur- inn og jafnvel þótt bakið ætti ekki sjö dag- ana sæla þá stóð hann keikur við kerruna og virtist til í slaginn. Sonur hans, Aðal- steinn, kominn fast að fimmtugu sagði að best væri að koma kerrunni að garðhliðinu, að þar mætti sturta hlassinu ofur varlega inn um hliðið og svo bætti hann því við, að af stéttinni ætti tréð ekki nema stuttan spöl að holunni. – Það er ómögulegt að fara að bakka kerru skrattanum upp allan botnlangann. Og ekki komum við jeppanum nær, sagði Aðalsteinn. Aðstæðurnar voru semsagt þannig að þeir feðgar þurftu að losa kerruna frá jepp- anum, kerrunni þurftu þeir að ýta inn í inn- keyrslu svo takast mætti að snúa jeppanum og koma honum frá garðhliðinu. Og þegar jeppanum hefði verið komið burt þá væri hægt að draga kerruna með handafli að hliðinu þaðan sem þeim feðgum ætti síðan að verða auðvelt að koma trénu á sinn stað. – Mig hefur lengi dreymt um að fá greni- tré hérna í garðinn, sagði Jónas og eftir nokkra umhugsun bætti hann við: – Hún mamma þín heitin hefði svo sannarlega glaðst með okkur. Hún talaði svo oft um að við ættum að gróðursetja alvörujólatré í garðinum. – Það kemur nú kannski til með að skyggja eitthvað á, kannski eftir áratug eða tvo, þegar greinarnar fara að ná í átt að eld- húsglugganum. – Blessaður vertu, það eru margir ára- tugir í það. Þetta tré á einungis eftir að skýla húsinu fyrir norðanáttinni og svo verður skjól af því hérna við innganginn. – Klukkan er að verða tólf. Við ætt- um kannski að borða hádegismat áður en lengra verður haldið, sagði Aðalsteinn. – Já, þetta er umstang, tautaði Jónas. Lát- um þetta bara bíða fram yfir hádegi. Þeir feðgar gengu inn en utan við grind- verkið stóð jeppinn og á kerrunni gnæfði grenitréð yfir lauflausu limgerði, svo þrótt- mikið og tignarlegt. Þeir borðuðu og eftir matinn fóru þeir til stofu og hlustuðu á hádegisfréttir. Aðal- steinn leit í Moggann en Jónas lagðist í sófa og sofnaði. Fréttatímanum lauk og þulurinn skaut- aði yfir fregnir af veðri. Frostið átti víst eftir að haldast – herðast ef eitthvað var. – Okkur er ekki til setunnar boðið, sagði Jónas og teygði úr sér. Aðalsteinn var hugsi, hann leit á föður sinn og sagði: – Það er kannski reynandi að losa kerruna frá, snúa jeppanum, festa kerruna aftur og reyna svo að bakka kerr- unni að hliðinu. – Þú segir nokkuð. – Kannski er hún ekki svo þung. Ef til vill náum við að ýta henni með handafli þá ætti þetta ekki að verða svo mikið mál. – Við ættum að setja eitthvað yfir stétt- ina. Er ekki rúlla af svörtum plastpokum þarna í kústaskápnum? Þeir komu út á stétt og þegar þeir stóðu þar og voru klárir í slaginn sáu þeir að á kerrunni var ekkert tré. Það var einsog það hefði flogið á braut – gufað upp. Ósjálfrátt stökk gamli maðurinn af stað og kíkti til hliðar við jeppann og fyrir aft- an kerruna. Það var einsog að honum hefði hvarflað að tréð hefði fokið af kerrunni og lagst á hliðina. En tréð var horfið. Og svona rétt til að fullvissa sig um að tréð væri virki- lega horfið, hallaði Jónas sér fram og gaut augum undir kerruna. – Trénu hefur verið stolið! hrópaði Jónas. – Það getur ekki verið, svaraði Aðalsteinn og áttaði sig strax á því hversu heimskulegt svarið væri. – Trénu hefur verið stolið. Það hefur ein- hver komið á meðan við borðuðum hádeg- ismat. – Þetta er ótrúlegt. Á kerrunni mátti sjá á ummerkjum að tréð hafði verið dregið til og aftan við kerr- una mátti sjá að nokkuð af mold hafði hrunið úr rótavöndlinum. Í snjónum voru hjólför – líklega eftir stóran, nýlegan jeppa, því hjólförin náðu uppá kantsteininn sem var fjærst lóðarmörkunum. – Við verðum að hringja á lögregluna, sagði Aðalsteinn og gerði sig líklegan til að fara inn og hringja. Útum glugga hússins við hliðina var kallað: – Þeir voru tveir á bláum pallbíl. Kannski var hann svartur. Sú sem átti röddina var Ingveldur, ná- grannakona þeirra feðga. – Sástu þá? spurði Aðalsteinn og sneri á hæli. – Já, þeir voru tveir. Þetta var svona palljeppi og þeir voru jakalegir. Hreinlega krafta jötnar. Svo brunuðu þeir bara burt. – Náðirðu númerinu ... bílnúmerinu? spurði Aðalsteinn. – Hann var ábyggilega dökkblár ... eða svartur. Nei, ég sá ekkert númer og það var ekkert merki á hliðinni eða neitt svoleiðis. Ég sá hvorki framan á hann né aftan á. Ég sá þá bara fara hérna uppeftir og svo næst þeg- ar ég gætti að þá voru þeir að koma trénu fyrir á pallinum. Svo hvarf bíllinn hérna austur Sogaveginn. Aðalsteinn horfði til skiptis á Ingveldi og Jónas. – Verðum við ekki að tilkynna þetta? – Hvað ætli lögreglan reyni svosem að gera. Bílarnir eru margir, sumir bláir og aðr- ir svartir. – Hjólförin. Þetta eru sönnunargögn. – Nei, við sækjum okkur bara annað tré uppí Mosfellsdal. Lítum á þetta sem tapað, sagði Jónas og nuddaði á sér nefið. – Þakka þér fyrir Ingveldur mín. Við ætlum að skoða málið, bætti hann við og vinkaði Ingveldi. Hún lokaði glugganum en var óðara komin í útidyragættina og fjasaði og tuðaði. Feðgarnir leystu kerruna frá jeppanum, ýttu henni inn í innkeyrsluna og síðan var jeppanum bakkað niður botnlangann, snú- ið við og bakkað upp að nýju. Kerran var hengd á krókinn og svo var ekið af stað. Ingveldur stóð á tröppunum framan við húsið sitt og vinkaði. Í fyrstu þögðu þeir feðgar. Jónas sat und- ir stýri en Aðalsteinn starði fram. Þegar þeir óku upp Ártúnsbrekkuna varð Jónas djúpt hugsi og eftir nokkra umhugsun sagði hann: – Ég var meira að segja farinn að sjá fyrir mér tréð í garðinum í snjó á jólum og engil- inn hennar mömmu þinnar svífandi yfir. – Og þá þurfti einhver endilega að stela því frá okkur. Faðirinn nánast táraðist þegar hann sagði: – Og ég hafði hugsað mér að klippa af trénu grein og grein fyrir jólin og leggja á leiðið hennar mömmu þinnar. Sonurinn pírði augun í átt að föðurnum og þagði. Faðirinn starði fram á veginn og var hneykslaður á meðan hann lét dæluna ganga: – Og svo á tréð okkar eftir að vaxa og dafna í öðrum garði. Um jólin mun þjófur- inn skreyta tréð og brosa stoltur. Og svo vor- ar og þá koma fuglarnir, vefa hreiður, leggja egg og ala unga. Svo koma könglar og svo koma jól og svo kemur vor og svo koma jól og jól og jól og jól. Og alltaf á tréð eftir að stækka í garði þess ágæta manns sem stal því frá okkur. Að hugsa sér. Ætli hann verði ekki bara glaður einhver jólin þegar glæp- urinn fyllir garðinn og hundruð ljósapera lýsa upp hið stolna tré. Og þegar ellin fær- ist yfir og hreiðrin á greinunum verða mörg þá ... – Já, kannski mun engillinn hún mamma prýða þetta jólatré, sagði Aðalsteinn með glettni í rómi og gerði gæsalappir með fingrunum um leið og hann sagði „jólatré“. Höfundur: Kristján Hreinsson Jólatré innan gæsalappa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.