Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Qupperneq 52
52 | Sport 22.–26. desember 2010 Jólablað Portúgalski vængmaðurinn Luís Carlos Almeida da Cunha, sem knatt- spyrnuunnendur þekkja betur sem Nani, hefur aldrei leikið betur með Manchester United en á fyrri hluta yfirstandandi tímabils. Hann hefur verið algjör lykilmaður og oft bor- ið ansi þunga byrði á herðum sér en það er vægt til orða tekið að segja Un- ited-menn hafi verið seinir í gang í ár. Nani er á sínu fjórða ári á Old Traff- ord og hefur valdið nokkrum von- brigðum hingað til. Alla vega miðað við þann pening sem hann kostaði. Svo virðist samt vera að ákvörðun hans í fyrra um að vera áfram hjá Manchester United þó hann hafi ver- ið orðinn þreyttur á stjórnarháttum Sir Alex Fergusons hafi borgað sig. Slóst við liðsfélaga sinn ungur að árum Nani er fæddur í Praia á Grænhöfða- eyjum sem er gömul portúgölsk ný- lenda. Hann fluttist með foreldrum sínum til Portúgal ungur að árum og var að mestu leyti alinn upp af frænku sinni, Antioniu, sem bjó í úthverfi Lissabon. Besti vinur hans í hverfinu var Manuel Fernandes, núverandi leikmaður Valencia á Spáni, en hann er einnig ættaður frá Grænhöfðaeyj- um. Eyddu þeir öllum stundum sam- an í fótbolta á götum Lissabon. Nani ólst upp sem stuðningsmað- ur Sporting CP, sem margir vilja kalla Sporting Lissabon. Áður en hann komst inn í unglingastarf Sporting lék hann með hverfisliðinu Real Sport Clube. Þar varð hann fljótt vinur Ri- cardo Vaz Tê sem seinna meir átti eft- ir að leika með Bolton í ensku úrvals- deildinni. Sló fljótlega í brýnu með þeim því báðir voru afskaplega taps- árir. Slógust þeir á einni æfingu eft- ir að hafa verið saman í liði og tapað leik. Í refsingarskyni var þeim gert að sitja á bekknum í næsta leik leik. Vaz Tê tók því og mætti á æfingu daginn eftir en Nani mætti ekki fyrr en viku seinna. Sló strax í gegn hjá Sporting Sautján ára gamall komst Nani inn í ungliðaliðið hjá Sporting og var þá leiðin hálfnuð að bernskudraumn- um. Draumurinn varð svo að veru- leika aðeins tveimur árum síðar þeg- ar hann nítján ára gamall fékk að spila sinn fyrsta leik fyrir aðallið Sporting. Nani lék tvö tímabil með Sporting og vann aðeins einn bikar, portúgalska bikarinn tímabilið 2006/2007. Alls lék Nani sjötíu og sex leiki fyrir Sport- ing í öllum keppnum og skoraði tvö mörk á þeim tveimur árum sem hann klæddist hvíta og græna búningnum. Það var fyrir seinna tímabilið hans í Portúgal sem Manchester Un- ited fékk áhuga á honum. Útsendari United í Portúgal, sá hinn sami og fann Cristiano Ronaldo hjá Sport- ing, fylgdist með Nani allt tímabilið og mælti með því að hann yrði keypt- ur. Svo fór að Englandsmeistararnir punguðu út 25.5 milljónum evra fyrir Portúgalann en hann stóðst læknis- skoðun 6. júní 2002 og skrifaði undir fimm mánaða samning í kjölfarið. Til að byrja með bjó Nani hjá Ronaldo en þeir höfðu þekkst áður frá tíma sín- um í Portúgal og með landsliðinu. Fór út á ystu nöf í fyrra Frammistaða Nani á sínum fyrstu þremur árum með Manchester Un- ited var misjöfn. Stundum spilar hann eins og sá sem valdið hefur en öðrum stundum sést hann ekki og liggur meira og minna í grasinu. Á síðasta tímabili átti hann að fylla skarð Cristianos Ronaldos en undir þeim væntingum stóð Nani aldrei. Það var frekar Ekvadorinn Anton- io Valencia sem kom, sá og sigraði á síðasta tímabili sem gerði Nani kannski enn pirraðari. Hann tók mikla áhættu í fyrra þegar hann gagnrýndi stjórnarhætti Sir Alex Fergusons og var þá talið víst að dagar hans væru taldir. Aðspurður af portúgölsku dag- blaði hvort hann væri skammaður meira en aðrir svaraði hann: „Ójá! Hann spyr mig alltaf hvernig ég gat klúðrað þessu færi eða gert hitt. Það er enginn óhultur úti á vellinum. Meira að segja Giggs og Neville fá hárþurrkuna. Hún tekur samt lengri tíma þegar þeir eiga í hlut því þeir búa yfir meiri reynslu. Ferguson er mjög flókinn maður og harður. Ef hlutirnir eru í lagi eru þeir svo hress- ilega í lagi. En ef eitthvað er ekki í lagi þurfum við að passa okkur. Hann getur farið úr því að hrósa þér í það að hundskamma þig á aðeins örfá- um mínútum.“ Nani slapp með þessi orð sem bresku pressunni fannst ótrúlegt. Hann hefur þó svarað kallinu í ár og fengið nóg af hrósi frá gamla kallin- um. „Nani er að þroskast mikið, þess vegna er hann að sýna sínar bestu hliðar núna. Hann hefur verið besti leikmaðurinn í undanförnum leikj- um hjá okkur. Hann er mjög feim- inn strákur þannig kannski styrkist persónuleiki hans við að vera oftar í byrjunarliðinu,“ sagði Ferguson á dögunum en Nani gagnrýndi einmitt líka að vera aldrei í byrjunarliðinu í stóru leikjunum. Dýfurnar hataðar Eins kröftugur leikmaður og Nani er finnst flestum, ef ekki öllum, hann eyða of miklum tíma í grasinu. Það er sama hversu væg brotin eru, alltaf virðist Nani hafa verið skotinn með haglabyssu í fótinn. Til að halda allri sanngirni er Nani oft skotmark varn- armanna sem reyna að taka hann úr sambandi með grófum tæklingum en enginn vafi er þó á að mínúturnar sem hann liggur í grasinu mega vera færri. Sé rennt yfir spjallborðið á stærsta stuðningsmannavef Manchester Un- ited má sjá að gífurlega margir eru ósáttir við dýfur kappans og er það án efa stór hluti þess að hann er ekki orðinn vinsælli á Old Trafford. „Hann er frábær leikmaður, stútfull- ur af hæfileikum en hann verður að hætta henda sér alltaf í grasið. Svona spilum við ekki fótbolta hér á Eng- landi,“ skrifar einn, á meðan annar er öllu harðorðari í garð Nanis. „Hann er algjör aumingi. Hæfileikar hans eru gagnslausir ef hann getur ekki staðið í lappirnar endrum og sinn- um. Hann verður aldrei goðsögn á Old Trafford sama hversu lengi hann spilar eða hversu vel hann gerir á meðan hann hendir sér alltaf í jörð- ina.“ Má fagna með heljarstökki Kennimerki Nanis er að fagna með heljarstökki afturábak, það sem kallast „Mortal“ eða upp á enskuna „Leap of Death“. Þetta hefur áður sést í ensku úrvalsdeildinni frá mönnum á borð við Obafemi Martins og Lom- ana Tresor LuaLua. Mikið var skrifað um það þegar Nani kom til Englands að Sir Alex Ferguson hefði bannað Nani að fagna með slíkum stökkum. Skemmst er að minnast þess þegar Lomana LuaLua meiddist við slíkt stökk í harðri fallbaráttu með Ports- mouth. Nani hefur þó aldrei hætt að stökkva og segist hafa fullt leyfi frá Ferguson. „Það er ekki satt að Fergu- son hafi bannað mér þetta. Hann hefur aldrei talað um þetta við mig og ég mun halda áfram að fagna mörkum á þennan hátt. Við Fergu- son höfum oft talað saman en aldrei um hvernig eigi að fagna mörkum,“ segir Nani. Ferguson vonast væntanlega til að sjá þessi heljarstökk oftar á tíma- bilinu en Nani hefur nú þegar skorað fimm deildarmörk og deildin aðeins hálfnuð. Flest deildarmörk skor- aði hann í fyrra, fjögur. Nani verð- ur væntanlega í eldlínunni á annan í jólum þegar Manchester United mætir Sunderland. Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Loksins að blómstra n Nani einn besti leikmaður Man. United til þessa n Olli nokkrum vonbrigðum og var mikið frá vegna meiðsla n Vildi fara í fyrra en snerist hugur n Stuðningsmenn Man. United hata dýfurnar hans Leikir helgarinnar Annar í jólum 12.00 Fulham – West Ham 15.00 Blackburn – Stoke 15.00 Blackpool – Liverpool 15.00 Bolton – WBA 15.00 Everton – Birmingham 15.00 Man. United – Sunderland 15.00 Newcastle – Man. City 15.00 Úlfarnir – Wigan 17.30 Aston Villa – Tottenham Staðan Lið L U J T M St 1. Man. Utd 16 9 7 0 36:16 34 2. Arsenal 17 10 2 5 34:19 32 3. Man. City 18 9 5 4 25:15 32 4. Chelsea 17 9 4 4 31:12 31 5. Tottenham 17 7 6 4 25:22 27 6. Sunderland 18 6 9 3 21:18 27 7. Bolton 18 6 8 4 30:25 26 8. Newcastle 17 6 4 7 27:26 22 9. Liverpool 17 6 4 7 21:22 22 10. Blackpool 16 6 4 6 24:29 22 11. WBA 17 6 4 7 24:29 22 12. Blackburn 18 6 4 8 23:28 22 13. Stoke City 17 6 3 8 21:22 21 14. Everton 18 4 9 5 20:21 21 15. Aston Villa 17 5 5 7 19:28 20 16. Birmingham 17 3 9 5 17:20 18 17. Fulham 17 2 10 5 16:20 16 18. Wigan 17 3 7 7 13:28 16 19. Wolves 17 4 3 10 18:30 15 20. West Ham 18 2 7 9 16:31 13 Nani Fullt nafn: Luís Carlos Almeida da Cunha Þjóðerni: Portúgalskur Fæddur: 17. nóvember 1986 (24 ára) Leikstaða: Vængmaður Félög: Sporting CP, Manchester United. Landsleikir: 41 (9 mörk) Verið frábær hingað til Nani hefur aldrei leikið betur fyrir Manchester United. MYND REUTERS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.