Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 14
14 | Fréttir 28.–30. janúar 2011 Helgarblað Þór Sigfússon, þáverandi forstjóri tryggingafélagsins Sjóvár, skrifaði upp á þrjár lánveitingar út úr Sjó- vá til dótturfélaga Milestone, eig- anda Sjóvár, á einum degi, 29. febrú- ar 2008, sem námu 15,7 milljörðum króna, eða 67 prósentum af bóta- sjóði félagsins. Þetta kemur fram í yfirheyrsluskjölum frá embætti sér- staks saksóknara sem DV hefur undir höndum. Yfirheyrslan fór fram í lok júlí 2009. Lánveitingarnar voru til eignar- haldsfélagsins Vafnings, Racon Hold- ing og Milestone, eiganda Sjóvár. Megnið af bótasjóði Sjóvár var því lánað út úr félaginu á einum degi. Heildartap vegna lánveitinga Sjóvár til þessara aðila nam rúmum 18 millj- örðum króna árið 2008 og voru eign- ir tryggingafélagsins færðar niður um þessa upphæð í ársreikningum fé- lagsins árið 2009. Í yfirheyrslunni yfir Þór kemur raunar fram að lánin hafi verið afskrifuð úr bókum Sjóvár strax í árslok 2008. Líkt og komið hefur fram í fjöl- miðlum hefur 52 prósenta hlutur ís- lenska ríkisins í Sjóvá verið seldur fyrir 4,9 milljarða til Stefnis, fagfjár- festasjóðs í eigu Arion banka. Þetta þýðir að íslenska ríkið – skattborgar- ar þessa lands – mun að öllum lík- indum tapa á bilinu 3–4 milljörðum króna vegna björgunar hins opinbera á tryggingafélaginu sumarið 2009. Ís- lenska ríkið lagði Sjóvá þá til 12 millj- arða króna og Glitnir og Íslandsbanki lögðu því til samtals fjóra milljarða króna til að bjarga tryggingafélaginu frá þroti. Leggja þurfti þessa fjármuni inn í tryggingafélagið svo að það upp- fyllti lög um gjaldþol tryggingafé- laga en lánveitingarnar út úr félaginu höfðu nánast riðið því að fullu. Þór hélt að Milestone myndi setja eignir inn í Sjóvá Í seinni hluta yfirheyrslunnar yfir Þór spyr starfsmaður sérstaks saksókn- ara hvort hann hafi talið varfærið að lána svo mikið af fjármunum trygg- ingafélagsins á einu bretti: „Nú spyr ég, ef við tökum saman þessar stærð- ir, þó við séum að tala um 15,7 millj- arða í lán, eigið fé upp á 10,6 og vá- tryggingaskuld upp á 23,4 eða svo, það er þá verið að …, eða þessi lán …, finnst þér það nægilega varfærið að lána á einum degi til Milestone og tengdra félaga eina koma fimm sinn- um eigið fé félagsins, eða 67% af vá- tryggingaskuldinni?“ Þór svaraði því þá til að eftir á að hyggja hefði þetta ekki verið skyn- samlegt en að viðræður hefðu stað- ið yfir um að Milestone myndi láta aðrar eignir koma inn í Sjóvá á móti vátryggingaskuldinni. Meðal þess- ara eigna, samkvæmt Þór, voru fjár- festingarbankinn Askar Capital, fjármögnunarfyrirtækið Avant, lyfja- verslanir í Austur-Evrópu og vínekra í Makedóníu. Þessir eignir hefðu því runnið inn í Sjóvá og átt að standa sem veð á móti vátryggingaskuld við viðskiptavini tryggingafélagsins. Af þessu varð þó ekki og umræddar eignir stóðu fyrir utan Sjóvá fram að bankahruni. Taldi stöðu Milestone góða Af svörum Þórs að dæma virðist hann hafa talið að staða Moderna, móðurfélags Milestone á þeim tíma, væri það sterk að félögin ættu ekki í miklum vandræðum með að leggja Sjóvá til fé. Þegar hann varði lánveit- ingarnar í yfirheyrslunni sagði hann meðal annars: „Á móti kemur líka að við erum alltaf að ítreka aftur og aftur …, þegar að við berum fram þessar áhyggjur okkar eða vangaveltur, þá er sagt við okkur, sem rétt er á þeim tíma að Milestone stendur mjög sterkt. Þessi félög standa mjög sterkt, Moderna er móðurfélag okkar, það var mikill akkur okkar að hafa slíkt móðurfélag, þeir voru þá með um 50 milljarða í eigið fé og …“ Þegar Þór var spurður að því hvað hann teldi hafa falist í því að staða Mile stone var sögð vera sterk sagðist hann hafa metið það sem svo að Milestone myndi alltaf beita sér í því að aðstoða tryggingafélagið með því að setja eignir eða fjármuni inn í það. „Já, og þeir stóðu það sterkt að við vissum að þeir áttu langt umfram þörf.“ Sannleikurinn er hins vegar sá, eins og rannsókn endurskoðenda- fyrirtækisins Ernst og Young á bók- haldi Milestone hefur leitt í ljós, að Milestone var orðið ógjaldfært félag þegar lánveitingarnar voru veittar út úr Sjóvá og hafði í reynd leitað log- andi ljósi að fjármögnun hjá erlend- um bönkum þegar Vafningsfléttan var búin til. Eigendur og stjórnendur Milestone veittu Þór hins vegar ekki upplýsingar um þessa slæmu stöðu félagsins og því var hann ekki með- vitaður um hvernig Milestone stóð í raun og veru þegar hann lánaði fé út úr tryggingafélaginu til dótturfélaga Milestone. Milestone fékk enga fjármögn- un annars staðar frá og þess vegna var Vafningsfléttan búin til þar sem Mile stone og tengd félög fengu lán frá Glitni og Sjóvá, einu aðilunum sem hugsanlega hefðu vilja lána fé- lögunum á þessum tíma. Glitnislánið á fyrsta veðrétti Annað atriði sem kemur fram í yfir heyrslunni yfir Þór er að hann vissi ekki að lán Sjóvár til Vafnings hefði verið á öðrum veðrétti í eign- um Vafnings. Lán frá Glitni – sem Bjarni Benediktsson fékk umboð til að ganga frá fyrir hönd ættingja sinna – var á fyrsta veðrétti í eign- um Vafnings, meðal annars íbúða- turni í Makaó og bresku verslunum KCAJ. Þór vissi hins vegar ekki af því fyrr en í árslok 2008 að lánin sem hann hafði skrifað upp á frá Sjóvá til Vafnings voru einungis á öðrum veðrétti. „Þetta hafði ég ekki vitn- eskju um,“ sagði Þór. Forstjórinn var því í reynd að skrifa upp á lán út úr Sjóvá sem afar litlar líkur voru á að fengjust greidd til baka. Ef til veðkalls hefði komið gagnvart Vafningi hefði Glitnir, ekki Sjóvá, því eignast eignir Vafnings. Ástæðan fyrir því að Þór vissi ekki að lánið væri á öðrum veðrétti var sú, líkt og fram hefur komið í DV, að hann las lánasamninginn ekki yfir áður en hann skrifaði undir hann og vissi því ekki um hvað málið snérist eða um eðli lánasamningsins. Ofan á þetta bættist að tæpu einu og hálfu ári eftir að Þór hafði skrif- að upp á þessa samninga vissi hann ekki ennþá hver tilgangurinn með lánveitingunum út úr Sjóvá var og af hverju Vafningur var stofnaður. Þessi staðreynd birtist meðal annars í eft- irfarandi samskiptum sérstaks sak- sóknara og Þórs: „Ég tel Þór, að flestir sem myndu skrifa upp á svona lána- samninga, sem í flestra huga er gríð- arleg fjárhæð, að þeir myndu muna eftir því hver hafi verið aðdragand- innn og hver hafi verið ástæðan fyrir því að þessi samningur var gerður?“ Þór sagðist hins vegar ekki vera með þetta á hreinu: „Já, ég verð að viður- kenna það að ég er með óljósar hug- myndir um þessa samninga eins og aðra, ég tel mig ekki í stakk búinn til þess að fara með það, svo ég fari ekki með rangt mál við þig …“ „Finnst þér það nægilega varfærið að lána á einum degi til Milestone og tengdra félaga eina koma fimm sinnum eigið fé félagsins, eða 67% af vátrygginga- skuldinni? Lánaði 67% af bóta- sjóðnum á einum degi n Vafningslán Sjóvár voru á öðrum veðrétti n Lánið afskrifað í bókum Sjóvár í árslok 2008 n Vissi ekki að Milestone var tæknilega gjaldþrota n Ríkið þarf að afskrifa milljarða króna vegna Sjóvár Taldi Stöðu Milestone sterka Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, taldi stöðu Mile stone vera mjög sterka á þeim tíma sem gengið var á bótasjóð tryggingafé- lagsins. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Tilgangur Vafnings Ein af ástæðunum fyrir stofnun eignarhaldsfélagsins Vafnings í febrúar 2008, og kaup- um þess á eignum dótturfélaga Sjóvár, var sú að eignarhaldsfélagið Þáttur International fékk veðkall vegna láns frá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þáttur tók lánið frá Morgan Stanley á fyrri hluta árs 2007 til að fjármagna kaupin á hlutabréfum í Glitni og var félagið í raun stofnað gagngert til þess, samkvæmt heim- ildum DV. Veðið fyrir láninu frá Morgan Stanley var í bréfum félagsins í Glitni. Eigendur Þáttar, þeir Karl og Steingrímur Wernerssynir og Einar og Benedikt Sveinssynir, stóðu þá frammi fyrir því að þurfa að endurgreiða lánið eða missa bréfin sín í Glitni. Til þess að geta fengið lánafyrirgreiðslu frá Glitni til að standa í skilum við Morgan Stanley þurftu eigendur Þáttar International að koma sér upp eignum sem hægt væri að veðsetja fyrir láninu. Í þessu augnamiði var eignarhaldsfélagið Vafningur búið til. Vafn- ingur átti þá bæði fjárfestingarverkefnið í Makaó sem og breska fjárfestingarsjóðinn en gengið var frá þeim viðskiptum sama dag og Bjarni Benediktsson veðsetti hlutabréf félagsins hjá Glitni, þann 8. febrúar 2008. Þetta stemmir við frásögn Bjarna sjálfs sem sagði í viðtali við DV í árslok 2009: „Menn eru að endurfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi.“ Í Vafningsfléttunni voru svo einnig tekin lán hjá Sjóvá til að endurfjármagna lán Milestone hjá Morgan Stanley vegna kaupa á sænska fjármálafyrirtækinu Invik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.