Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 32
Þórhildur fæddist í Reykjavík 28. janúar 1951 og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1971, embættisprófi í lögfræði
frá Háskóla Íslands 1977 og öðlað-
ist hdl.-réttindi 1989.
Þórhildur var fulltrúi hjá Yfir-
borgardómaranum í Reykjavík
frá 1977–85, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu frá 1985–93, sér-
fræðingur í forsætisráðuneytinu
1993–95. Hún var skipuð fyrsti um-
boðsmaður barna hér á landi frá 1.
janúar 1995 og gegndi því embætti
til ársloka 2004, var mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar 2006–
2008 og hefur verið forstöðumað-
ur Rannsóknastofnunar Ármanns
Snævarr um fjölskyldumálefni frá
haustinu 2009.
Þórhildur hefur á undanförnum
árum unnið mikið að mannrétt-
indamálum barna, m.a. sent frá sér
rit um Barnasáttmálann með skír-
skotun til íslensks lagaumhverfis,
og skrifað greinar um efni hans í
ýmis tímarit og dagblöð auk þess
að halda fyrirlestra um þessi mál-
efni. Þá hefur hún átt sæti í ýmsum
nefndum til undirbúnings löggjaf-
ar m.a. á sviði sveitarstjórnar-
mála, barnaverndarmála og skóla-
mála. Hún hefur átt sæti í stjórn
Barnaheilla, fulltrúaráði UNICEF
á Íslandi og í stjórn Vinafélags Ís-
lensku óperunnar. Hún sat í stjórn
Innheimtustofnunar sveitarfélaga
1991–93, í stjórn Félags háskóla-
menntaðra starfsmanna stjórn-
arráðsins 1987–89, og í stjórn
Íslandsdeildar norrænu lögfræð-
ingamótanna 1988–94. Hún er fé-
lagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-
Miðborg og var forseti klúbbsins
2005-2006.
Fjölskylda
Þórhildur giftist 25.8. 1973 Eiríki
Tómassyni, f. 8.6. 1950, hrl. og
prófessor við lagadeild Háskóla
Íslands. Hann er sonur Tómasar
Árnasonar hrl., fyrrv. alþm., ráð-
herra og bankastjóra Seðlabanka
Íslands, og k.h. Þóru Kristínar Ei-
ríksdóttur húsmóður.
Synir Þórhildar og Eiríks eru
Páll, f. 6.5. 1974, lögmaður; kvænt-
ur Díönu Júlíusdóttur BA í ferða-
málafræðum og eiga þau þrjú
börn; Tómas, f. 19.6. 1978, lögmað-
ur, kvæntur Grétu Bentsdóttur við-
skiptafræðingi og eiga þau tvær
dætur; Jóhannes, f. 15.7. 1983, lög-
maður.
Bræður Þórhildar eru Jón Úlfar,
f. 12.7. 1952, búsettur í Reykjavík;
Björn Líndal, f. 1.11. 1956, lögmað-
ur, var kvæntur Sólveigu Guð-
mundsdóttur, lögfræðingi , sem er
nýlátin. Börn þeirra eru Vigdís Eva
og Guðmundur Páll.
Hálfbróðir Þórhildar, samfeðra,
er Páll Jakob, f. 14.12. 1973, dokt-
orsnemi í Svíþjóð en kona hans er
Sigurlaug Guðrún Gunnarsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur og er dóttir
þeirra Guðrún Helga Pálsdóttir.
Foreldrar Þórhildar: Páll Jakob
Líndal, f. 9.12. 1924, d. 25.7. 1992,
hrl., fyrrv. borgarlögmaður, ráðu-
neytisstjóri umhverfisráðuneyt-
isins og rithöfundur, einkum um
sögu Reykjavíkur, og Guðrún Eva
Úlfarsdóttir, f. 27.12. 1925, hús-
móðir og fyrrv. deildarstjóri við
Stofnun Árna Magnússonar.
Ætt
Páll var bróðir Sigurðar Líndal,
lagaprófessors og sagnfræðings,
Bergljótar fyrrv. hjúkrunarfor-
stjóra og Álfheiðar húsmóður.
Páll var sonur Theodórs Líndal,
lagaprófessors, sonar Björns Lín-
dal, yfirdómslögmanns, útgerð-
armanns og bónda á Svalbarði á
Svalbarðsströnd Jóhannessonar á
Sporði í Línakradal. Móðir Theo-
dórs var Sigríður Metúsalemsdótt-
ir, b. á Arnarvatni Magnússonar.
Móðir Páls var Þórhildur, dótt-
ir Páls Briem amtmanns. Páll var
sonur Eggerts Ólafs Briem, sýslu-
manns á Reynisstað Gunnlaugs-
sonar Briem, amtmanns á Grund
og ættföður Briemsættar. Móðir
Páls amtmanns var Ingibjörg Ei-
ríksdóttir, sýslumanns Í Rangár-
vallasýslu Sverrissonar. Móðir Þór-
hildar var Álfheiður dóttir Helga
lektors og forstöðumanns Presta-
skólans í Reykjavík, Hálfdánar-
sonar, og Þórhildar Tómasdóttur,
Fjölnismanns og prófasts á Breiða-
bólstað Sæmundssonar.
Eva er dóttir Úlfars, skósmiðs
og kaupmanns á Seyðisfirði. Úlfar
er sonur Karls Friðriks, verslunar-
manns á Vopnafirði Jónssonar, og
Guðrúnar Eiríksdóttur, frá Neðri-
Brunná. Móðir Guðrúnar var Fel-
dís Felixdóttir, systir Eyþórs, afa
Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrv. forseta
Íslands.
Móðir Evu er Jónína Steindórs-
dóttir, kennara Jóhannessonar,
hins markfróða á Kambsstöðum
Jónssonar. Móðir Steindórs var
Sigurbjörg, dóttir Guðmundar, b.
í Fjósatungu Guðmundssonar og
Helgu Eiríksdóttur.
Kári fæddist á Húsavík en ólst upp á Helgastöðum í Reykjadal. Hann stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík, lauk þaðan
prófi sem tónmenntakennari 1988 og
8. stigi í söng 1989. Þá stundaði hann
framhaldsnám á Ítalíu og hefur sótt
fjölda námskeiða í söng, kórstjórn og
orgelleik. Að undanförnu hefur hann
svo sótt söngtíma hjá David Bartleet.
Kári kenndi tónmennt við Hvassa-
leitisskóla, Breiðholtsskóla og Öldu-
túnsskóla í Hafnarfirði. Hann stjórn-
aði Karlakór slökkviliðsins um sjö ára
skeið og Þingeyingakórnum í sjö ár og
hefur nú stjórnað Gerðubergskórn-
um frá 1994.
Kári hefur oft sungið einsöng
opin berlega, einn eða með kórum, og
flutt söngdagskrár í útvarpi. Nú er að
koma út hljómdiskur með Kára þar
sem hann syngur ítalskar aríu og létt
klassík dægurlög. Þá hefur hann sam-
ið nokkur lög og ljóð sem einkum hafa
verið flutt af kórum en sjá má dæmi
um þessi lög og söng Kára á You-
tube undir nafninu Karifrid. Hann er
söngvari á Víkingakránni í Hafnarfirði
og á Fjörukránni og sinnti um skeið
ýmsum félagsstörfum fyrir einsöngv-
aradeild FÍL.
Fjölskylda
Fyrrv. kona Kára var Áslaug Sigurð-
ardóttir, f. 6.1. 1961, ritari. Þau skildu
1997.
Dóttir Kára og Áslaugar er Heið-
rún G. Káradóttir, f. 19.1. 1988, nemi.
Eiginkona Kára er Helga Björk Sig-
urðardóttir, f. 30.1. 1962, hársnyrti-
meistari og rekur hársnyrtistofuna
Heru í Kópavogi.
Synir Kára og Helgu Bjarkar eru
Kári Snær Kárason, f. 14.6. 2003;
Maríus Baldur Kárason, f. 4.11. 2005.
Systkini Kára eru Jónas Friðriks-
son, f. 10.9. 1962, stýrimaður og rekur
húðflúrstofu á Akureyri; Laufey Þóra
Friðriksdóttir, f. 20.5. 1968, hársnyrtir
á Súðavík; Arngeir Friðriksson, f. 24.4.
1970, bóndi á Helgastöðum í Reykja-
dal.
Foreldrar Kára: Friðrik Jónasson, f.
2.5. 1925, d. 3.11. 1998, bóndi á Helga-
stöðum í Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu, og k.h., Alda Káradóttir, f. 14.4.
1940, húfreyja og bóndi á Helgastöð-
um.
32 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
Herbert fæddist á Akranesi en ólst upp á Blönduósi til 1956. Hann lauk verslunarprófi frá Verzlun-
arskóla Íslands 1961, sótti ýmis nám-
skeið í markaðsfræðum, félagsmálum
og stjórnun, og stóð jafnframt fyrir
slíkum námskeiðum.
Herbert var skrifstofu- og fjár-
málastjóri Trésmiðjunnar Víðis hf.
1961–63, rak eigin heildverslun, Vest-
urá hf., 1964, var sölustjóri dagblaðs-
ins Vísis 1965, ritstjóri Íslendings á
Akureyri 1966–67 og Íslendings-Ísa-
foldar 1968–69, og ritstjóri Frjálsrar
verslunar 1970–71.
Herbert stofnaði fyrirtækið Nestor
1972 og hóf útgáfu tímaritsins Hús og
híbýli, ásamt útgáfu ferðaþjónustu-
rita á ýmsum tungumálum. Hann
var ritstjóri Kópavogstíðinda 1978–
79, blaðamaður hjá Vísi og síðan DV
1979–87, félagsmálastjóri Verslun-
arráðs Íslands 1988–97 og jafnframt
framkvæmdastjóri Amerísk-íslenska
verslunarráðsins.
Herbert starfrækti jafnframt fyrir-
tæki sitt, Nestor, sem frá 1998 sinnti
kynningarverkefnum, ráðstefnuhaldi,
erindrekstri og ritstjórn handbóka.
Hann ritstýrði Nafnabókinni okkar,
árið 2000, um uppruna og merkingu
gildra mannanafna, og Hundabók-
inni okkar, með upplýsingum um all-
ar hundategundir hér á landi, 74 tals-
ins.
Herbert var ritari í stjórn ung-
mennafélagsins Hvatar á Blönduósi
1953–55, sat í stjórn Nemendafélags
Verzlunarskóla Íslands og var rit-
stjóri Viljans og Verzlunarskólablaðs-
ins 1959–61, var formaður Týs, FUS í
Kópavogi, ritari í stjórn Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, vara-
bæjarfulltrúi og sat í ýmsum nefnd-
um Kópavogsbæjar 1962–66, ritstjóri
Voga í Kópavogi á sama tíma og aftur
1970–71, sat í stjórn SUS 1967–71, var
ritstjóri Stefnis, tímarits SUS, 1972–73,
formaður Ferðamálafélags Akureyr-
ar 1969, sat í stjórn ungmennafélags-
ins Breiðabliks í Kópavogi 1962–66,
var formaður handknattleiksdeildar
félagsins 1976–79, formaður Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar 1983–85 og
starfaði um tíma í JC-hreyfingunni,
m.a. sem forseti JC Kópavogs, og í
Kiwanis og Lions.
Fjölskylda
Herbert kvæntist 14.7. 1963 Guðrúnu
M.S. Skúladóttur. Þau skildu 1984.
Börn þeirra eru Edda Björg, f.
16.10. 1963, kerfis- og tölvunarfræð-
ingur HR, hjá Reiknistofu bankanna,
var í sambúð með Hilmari Bergmann
og eru synir þeirra Hilmar Þór, f. 5.4.
1989, Helgi Björn, f. 25.2. 1991, Há-
kon Örn, f. 4.11. 1993, og Hafþór Ingi,
f. 12.12. 1995; Heimir Örn, f. 4.10.
1970, hrl., faglegur framkvæmda-
stjóri Lex lögmanna, kvæntur Björgu
Melsted, grafíker og kennara, og eru
synir þeirra Orri, f. 16.11. 1995, Arn-
ar Már, f. 31.7. 1999 og Einar Björn, f.
9.2. 2003.
Hálfsystir Herberts, samfeðra,
er Hafdís, f. 3.9. 1936, húsmóðir í
Grindavík, var gift Kjartani Kristófers-
syni, sem er látinn.
Foreldrar Herberts: Guðmundur
Sveinbjarnarson, f. 1.4. 1900, d. 12.7.
1977, m.a forstöðumaður bifreiða-
þjónustu Olíuverslunar Íslands hf. í
Tryggvagötu, Reykjavík, og Þorbjörg
Sigurjónsdóttir, f. 2.10. 1912, d. 13.10.
1991, lærð saumakona og bóndi sem
ól Herbert upp með móður sinni,
ömmu hans, á Blönduósi til 1956. Þá
tók við ný sambúð foreldra Herberts í
Kópavogi, en þau höfðu aldrei skilið.
Ætt
Guðmundur var sonur Sveinbjarnar,
b. í Geirshlíðarkoti í Flókadal Sveins-
sonar, b. á Breiðabólsstöðum Björns-
sonar. Móðir Sveinbjarnar var Eirný
Guðmundsdóttir.
Móðir Guðmundar forstöðu-
manns var Guðlaugar Ingimundar-
dóttur, b. í Fossatúni Gíslasonar, b. á
Hóli í Norðurárdal Guðmundsson-
ar, b. á Háafelli í Hvítársíðu Hjálm-
arssonar, ættöður Háafellsætt-
ar Ingimundarsonar, b. í Fossatúni
Gíslasonar. Móðir Ingimundar var
Guðrún Ásmundsdóttir, b. í Elínar-
höfða Jörgenssonar, b. þar Hans-
sonar Klingenbergs, b. á Krossi, ætt-
föður Klingenbergsættar. Móðir
Guðlaugar var Guðríður Snorradótt-
ir, b. á Kjalvararstöðum og á Kletti í
Reykholtsdal Jakobssonar Blom, b.
og smiðs á Húsafelli Snorrasonar, pr.
á Húsafelli og ættföður Húsafellsættar
Björnssonar. Móðir Jakobs var Hild-
ur Jónsdóttir. Móðir Snorra á Kjal-
vararstöðum var Kristín Guðmunds-
dóttir, klæðalitara í Leirvogstungu
Sæmundssonar. Móðir Guðríðar var
Guðlaug Finnsdóttir.
Þorbjörg, móðir Herberts, var syst-
ir Odds, skólastjóra í Kópavogi, föður
Guðmundar, sem var bæjarfulltrúi og
skólastjóri í Þinghólsskóla. Þorbjörg
var dóttir Sigurjóns, bróður Guð-
mundar, forstjóra Alþýðubrauðgerð-
arinnar, og Ástríðar, ömmu Víglund-
ar Þorsteinssonar framkvæmdastjóra.
Önnur systir Sigurjóns var Sigríður,
amma Jónasar rithöfundar og Péturs
Guðmundssonar, fyrrv. flugvallar-
stjóra. Sigurjón var sonur Odds, for-
manns í Reykjavík Jónssonar, útvegsb.
í Reykjavík Eyjólfssonar, b. í Skildinga-
nesi Eilífssonar. Móðir Jóns var Guð-
ríður Ingimundardóttir, b. í Höfðabæ
Ingimundarsonar, og Sigríður Jörg-
ensdóttur, systur Ásmundar í Elínar-
höfða. Móðir Sigurjóns var Guðrún,
systir Þorkels, langafa Páls Jensson-
ar prófessors, Mörtu Guðjónsdóttur,
fyrrv. formanns Varðar, og Helenar
Eyjólfsdóttur söngkonu. Guðrún var
dóttir Árna, b. í Guðnabæ í Selvogi
Guðnasonar, og Steinunnar Þorkels-
dóttur. Móðir Steinunnar var Þórunn
Álfsdóttir, b. í Tungu Arasonar, b. á
Eystri-Loftsstöðum Bergssonar, ætt-
föður Bergsættarinnar Sturlaugsson-
ar.
Móðir Þorbjargar var Ingibjörg
Jósefsdóttir, b. á Hamri á Bakásum
Jósefssonar, b. í Hlíð í Norðurárdal
Helgasonar, b. á Helgavatni Jónsson-
ar. Móðir Ingibjargar var Guðbjörg
Jónasdóttir, b. á Grófargili Sigfús-
sonar. Móðir Jónasar var Björg Jón-
asdóttir, b. á Gili í Svartárdal Jóns-
sonar, og Ingibjargar Jónsdóttir,
ættföður Skeggsstaðaættar Jónssonar.
Móðir Margrétar var Margrét Ólafs-
dóttir, ættföður Valadalsættar Andr-
éssonar.
Herbert Guðmundsson
fyrrv. framkvæmdastjóri og ritstjóri
85
ára
85
ára
Þórhildur Líndal
forstöðumaður Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr
Kári Friðriksson
kórstjóri, tónmenntakennari og tenórsöngvari
70 ára á föstudag
60 ára á föstudag
50 ára á föstudag
m
y
n
d
G
u
n
n
a
r
V
. a
n
d
r
és
s
o
n