Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 39
Fókus | 39Helgarblað 28.–30. janúar 2011 Hvað er að gerast? n Villidýr / Pólitík á Akureyri Þeir félagar Davíð Þór og Steinn Ármann verða með síðustu sýningarnar af Villidýro / Pólitík á Akureyri um helgina. Sýningarnar verða í Samkomuhúsinu á föstudag og laugardag klukkan 20. Á sýning- unni fara þeir Davíð og Steinn með texta breska grínistans Rickys Gervais en uppistand kappans hefur farið sigurför um heiminn. Miðaverð er 3.200 krónur. 28 jan Föstudagur 29 jan Laugardagur n MoMS í Kling & Bang –3 brjálaðir snillingar MoMS samanstendur af Munda, Morra og Ragnari Fjalar og hafa þeir notað Kling & Bang á Hverfisgötu 42 sem vinnustofu und- anfarnar svefnlausar vikur og verður afrakstur þeirrar vinnu til sýnis í galleríinu. MoMS hefur sýnt víða og tekið þátt í mörgum verkefnum. Nýlega kallaði spænskur listgagnrýnandi MoMS „Tres genios locos“, eða þrír brjálaðir snillingar. n Nýjar sýningar Tvær nýjar sýningar verða opnaðar á laugardag í Þjóðminjasafni Íslands. Klukkan 15 verður sýningin Ljósmyndari Mývetninga – mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar opnuð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands. Á sama tíma verður sýningin Stoppað í fat opnuð í Horni á 2. hæð. n Aukatónleikar Kristins og Jónasar Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson halda aukatónleika í Salnum í Kópavogi laugardag klukkan 16 vegna fjölda áskorana. Á efnisskrá tónleikanna er blanda af íslenskum og erlendum söngvum og óperuaríum. Nánari upplýsingar má sjá á vefsíðu Salarins. Á tónleik- unum eru flutt lög eftir Jónas Ingimundarson sem finna má í nýútkominni bók hans Tíu söngvar og tveimur betur. 30 jan Sunnudagur n Ljóðahátíð á Gljúfrasteini Haldin verður ljóðahátíð á Gljúfrasteini á sunnudag. Hátíðin hefst klukkan 16.00 og munu fimm nemendur í ritlist við Háskóla Íslands lesa upp frumsamin ljóð í stofunni á Gljúfrasteini. Þau ungskáld sem lesa upp að þessu sinni eru Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Hekla Helgadóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Bragi Páll Sigurðarson og Hertha Úlfarsdóttir. n Leiðsögn um Listasafn Rakel Péturs- dóttir safnafræðingur verður með leiðsögn um sýningar Listasafns Íslands, Áfanga og Karl Kvaran, á sunnudag klukkan 14. Rakel mun fjalla um sýningarnar út frá þróun abstrakt myndlistar á Íslandi. Fjallað verður sérstaklega um einstök verk á sýningunum. sitt sem Belcore í Ástardrykknum eftir Donizetti hjá Íslensku óper- unni árið 2009. Fimm vikna undirbúningur Sýningin er unnin á fimm vikum yfir það heila en Kennet var aðeins á landinu í þrjár vikur. „ Kennet kom með mjög ákveðnar hugmynd- ir um uppfærsluna og sendi okkur eins konar handrit til undirbún- ings, löngu áður en hann kom til landsins,“ segir Lára. Hver söngur lifir sínu einstaka lífi og er túlkað- ur samkvæmt því. Að undanskild- um flyglinum er engin sviðsmynd á sviðinu. Þar af leiðandi spila bún- ingar og lýsing stærra hlutverk í sviðsetningunni. Búningar eru í höndum eins fremsta búninga- hönnuðar landsins, Filippíu I. Elís- dóttur, sem hefur margoft hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín í leikhúsi. Lýsingin er hins vegar í höndum Magnúsar Arnar Sigurðarsonar. Öðruvísi dansverk Lára hefur á undanförnum árum farið ótroðnar slóðir við uppsetn- ingu sína á dansverkum og hefur margsinnis verið boðið á alþjóð- legar sviðslistahátíðir erlendis með verk sín. Hún hefur sett upp vönduð og framsækin dansverk og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Lára hefur sett upp danssýningar og verið danshöfundur í leiksýn- ingum í flestum atvinnuleikhúsum landsins. Má nefna að dansverk- ið Luna fékk tvenn Grímuverð- laun árið 2004. Sviðsverkin Systur og Bræður hafa notið mikilla vin- sælda og verða tekin aftur til sýn- inga í Þjóðleikhúsinu í apríl. Pars Pro Toto, sem er sjálfstætt starf- andi dansflokkur undir stjórn Láru, hefur gert margar forvitnilegar til- raunir með ný form sviðslistar. Þó að dansinn sé í forgrunni verkefna Pars Pro Toto leitar sköpunin í sam- runa ólíkra listgreina; dans, tón- listar, myndlistar, leiklistar, kvik- mynda, ritlistar og fleira. Vill taka dansinn lengra „Það sem hefur kannski örlað fyr- ir í dansheiminum undanfarin ár er ákveðin hræðsla við að dansinn hafi of mikla merkingu, sögu, og sýni of augljósar tilfinningar,“ seg- ir Lára, sem heldur samt að það sé að breytast. „Harðir tímar kalla á ákveðnar breytingar eins og til að mynda meiri mýkt og rómantík. Allt fer í hringi og ekkert er nýtt undir sólinni. Ég vil trúa því sem ég sé. Sérhver hreyfing verður að hafa þýðingu, hvort sem hún á að vera abstrakt, hlutlaus, eða túlka eitt- hvað. Hver danshreyfing, eins sama hreyfingin, getur haft óendanlega margar túlkanir bara eftir því hvaða orku og hugsun gerandinn setur í hreyfinguna,“ segir hún. Við uppsetningu Svanasöngs- ins eru hreyfingarnar hugsaðar út frá innihaldi söngvanna og tónlist- arinnar en Lára segir að það þurfi ekki endilega alltaf að vera þannig. Það sé alveg eins hægt að gera hreyf- ingar út frá innihaldinu og svo komi tónlistin eftir á. „Það fer bara eftir því hvers eðlis verkið er,“ segir hún. „Kennet er mjög trúr tónlistinni í sinni sköpun og ég skil það því eins og hann segir réttilega er Svansöng- ur Schuberts þvílík snilld að það er ekki annað hægt en að vera full- komlega trúr honum og þjóna hon- um. Dansinn og tónlistin verða eitt.“ adalsteinn@dv.is Lára Stefánsdóttir er mörgum Ís- lendingum kunn en hún hefur verið einn fremsti dansari og danshöfundur okkar um margra ára skeið. Lára vinnur þessa dagana að sviðsetningu Svanasöngsins eftir Franz Schubert ásamt Kennet Oberly, bandarískum danshöfundi. Ásamt Láru og Kennet taka þeir Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuil þátt í sviðsetningunni. Þessi uppsetning er samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Pars Pro Toto. listforma Samspil ólíkra Samspil listforma Það er vandmeðfarið að setja upp sýningu sem þessa og halda jafnvægi á milli dansins og tónlistarinnar. „Því meira sem maður hlustar á söngvana og vinnur með þá því meira tengist maður þeim. Dagana 27.–31. janúar verður hald- in vegleg kvikmyndahátíð í Bíó Par- adís í miðborg Reykjavíkur. Þar verða á dagskrá 40 stuttmyndir, heimilda- og teiknimyndir. Á hátíðinni er sjón- um sérstaklega beint að Norðurlönd- unum og sýnd brot af því besta sem einkenndi senu norrænna heimilda- mynda síðasta árs. Hrafnhildur Gunnarsdóttir sér um hátíðina og er spenntust fyrir tveimur heimildamyndum. „Ein þeirra er Eft- irsjá og er sýnd á sunnudaginn. Hún fjallar um tvo sænska karlmenn sem gengust undir skurðaðgerð til þess að leiðrétta kyn sitt. Þeir komast svo að því eftir fjölmörg ár að aðgerðin reyndist mistök og gangast báðir und- ir aðra aðgerð til að láta breyta sér í karlmenn aftur. Á eftir sýningu þeirrar myndar verður efnt til pallborðsum- ræðna og þar ræða Óttar Guðmunds- son, Anna Jóna, hjá Trans-Ísland, og Rannveig Traustadóttir, prófessor í Háskóla Íslands, um málefni tengd myndinni.“ Hin myndin sem Hrafnhildur nefnir er á dagskrá á laugardaginn og kallast Blóðgemsar. „Danski leikstjór- inn Frank Poulsen er hlédrægur mað- ur sem vann það þrekvirki að leik- stýra þeirri mynd,“ segir Hrafnhildur. „Myndin fjallar um málma frá Kongó sem notaðir eru í framleiðslu á far- símum. Á síðustu 15 árum hafa fimm milljónir manns látist í borgarastyrj- öld í landinu og Sameinuðu þjóðirn- ar hafa staðfest að tengsl séu á milli styrjaldarinnar og málmiðnaðarins. Frank spyr símarisann Nokia áleit- inna spurninga og það er ekkert gef- ið að sleppa lifandi úr kvikmyndagerð sem þessarri.“ kristjana@dv.is Heimilda- og stuttmyndahátíðin Shorts and Docs í Bíó Paradís um helgina: Sjónum beint að Norðurlöndunum Gróska í kreppunni Hrafnhildur Gunnars- dóttir er formaður Félags kvikmyndagerðar- manna og sér um hátíðina í ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.