Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Qupperneq 54
54 | Fólkið 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
S
öngfuglinn Ingólfur Þórar-
insson, best þekkur sem Ingó
veðurguð, er ljómandi fínn
knattspyrnumaður eins og
margir vita. Hann er uppalinn á Sel-
fossi og lék með liðinu í Pepsi-deild-
inni í sumar. Hann er nú búinn að
skipta um lið og ætlar að stunda sinn
bolta með Reykjavíkurliðinu Víkingi
úr Fossvoginum. Víkingar ætla sér
stóra hluti á meðal þeirra bestu í ár
en mun það bitna á tónlistinni hjá
Ingó?
„Þetta verður bara eins og í fyrra
og síðastliðin ár. Tónlistin verður til
hliðar vegna boltans en það gefst
alltaf einhver tími til að spila. Maður
er bara ekkert að því þegar það eru
leikir og eða æfingar. Maður fórnar
alveg slatta af giggum fyrir boltann.
Þegar ég var í Fram á sínum tíma var
hugurinn meira við tónlistina skal
viðurkennast en nú er það boltinn
alla leið,“ segir Ingó.
Ingó lék lítið með Selfossliðinu í
fyrrasumar og héldu margir að það
væri vegna tónlistarinnar. „Nei, það
var ekki málið. Ég byrjaði alveg á
fullu en var alltaf að spila hálfmeidd-
ur í löppinni. Á endanum var þetta
bara of mikið þannig að ég þurfti að
taka mér pásu. Pásan var þarna akk-
úrat um Verslunarmannahelgina og
ég spila úti um allt þannig að þetta
leit út eins og maður væri að slaufa
boltanum í bili. Það var samt aldrei
pælingin. Þetta bara hitti svona á,“
segir hann.
Bróðir Ingós, Guðmundur Þórar-
insson, sem einnig er frábær söngv-
ari og gítarleikari, er eins og bróðir
sinn afar kræfur knattspyrnumaður
og rúmlega það. Eftir síðasta tíma-
bil samdi hann við ÍBV sem endaði í
þriðja sæti efstu deildar í fyrrasumar.
Því gæti farið svo að bræðurnir eld-
hressu mættust á vellinum í sumar.
„Mjög líklega mætumst við,“ segir
Ingó en báðir bræðurnir eru miðju-
menn. „Ég veit reyndar ekkert hvar
ég mun spila hjá Víkingi og hann
ekki hjá ÍBV. Það er samt alveg lík-
legt að við mætumst inni á vellin-
um,“ segir hann, en mun hann tækla
bróður sinn duglega verði þeir að
berjast um boltann? „Þetta verð-
ur bara eins og á ganginum heima
í gamla daga. Það verður sko tekið á
því,“ segir Ingó.
Aðdáendur Ingós mega búast við
efni frá honum með hækkandi sól en
þá tónlist ætlar hann að gera einn,
án Veðurguðanna. „Ég hef svona
verið að plana sjálfur það sem fram-
undan er. Ég er að semja einhverja
hressa slagara þessa dagana og ætli
þeir fari ekki að heyrast þegar birta
tekur. Ég er bara sjálfur í því en svo
koma Veðurguðirnir eflaust inn í það
með mér. Þetta er samt svona smá
sóló-ferill,“ segir Ingólfur Þórarins-
son veðurguð. tomas@dv.is
n Ingó veðurguð skiptir um knattspyrnulið n Gæti mætt bróður sínum á
vellinum í sumar n Hikar ekki við að tækla hann n Planar smá sóló-feril
mætast í leik
Söngelskir bræður
Bræður munu berjast Ingólfur
og Guðmundur eru bestu vinir
utan vallar. MYND KJARTAN BJÖRNSSON
Ekki boðið
í afmælið
Egill Einarsson er í forsíðuviðtali
í nýjustu útgáfu Monitors en þar
talar hann meðal annars um „stóra
símaskráarmálið“. Það vakti blendin
viðbrögð þegar Egill var ráðinn sem
hönnuður símaskrárinnar. „Það skráðu
sig einhverjir 700 manns á lista og það
var gott að sjá hverjir eru ekki vinir
manns. Þessum 700 verður ekki boðið
í afmælið mitt. Þetta voru einhverjir
pappakassar eins og Högni í Hjaltalín
sem er með rass í staðinn fyrir andlit,“
segir Egill um Högna Egilsson en Egill
bætir því við Högni eigi eftir að líða
frekar fyrir það í framtíðinni að hafa
skráð sig á listann.
Tökum að ljúka á annarri þáttaröð af Steindanum okkar:
Fer á kostum með Steinda
„Það var frábært að vinna með Krist-
björgu. Hún fer algjörlega á kostum
í sínu hlutverki,“ segir Steinþór H.
Steinþórsson um samstarf sitt og
Kristbjargar Keld leikkonu í kom-
andi þáttaröð af Steindanum okkar,
en sýningar hefjast 25. mars á Stöð
2. „Það sem hefur aðallega breyst frá
því síðast er að við erum orðnir betri
í því sem gerum, handritið er þétt-
ara og útlitið orðið flottara, og ég er
fyndnari,“ segir Steindi og hlær.
„Við vorum mjög ánægðir með
fyrstu þáttaröð en þetta er allt tölu-
vert vandaðra núna. Metnaðurinn
er líka gífurlegur. Margir grínþættir
eru oft bara tveir gaurar á skrifstofu
með orðagrín en við förum með
þetta alla leið. Í hverjum skets eru
tíu statistar, í stað þess að taka upp
niðri á höfn þá förum við út á sjó og
þar fram eftir götunum.“
Það sem vakti hvað mesta lukku
við síðustu Steindan okkar var þátt-
taka þjóðþekktra einstaklinga. „Það
verða sennilega fleiri gestir með
okkur núna. Nokkrir sem snúa aft-
ur og fjölmargir sem bætast við,“
segir Steindi og nefnir sem dæmi
Loga Geirsson, Gunnar Hansson,
Örn Árnason, Ólafíu Hrönn, Ómar
Ragnarsson, Stein Ármann og Gísla
Martein, Hjörvar Hafliðason, Vík-
ing Kristjánsson og Ólaf Darra Ól-
afsson.
Tökur hafa nú staðið yfir í eina
þrjá mánuði og eru um tvær vik-
ur eftir. „Við höfum samt haldið
innsta kjarnanum mjög litlum líkt
og síðast og þannig viljum við hafa
þetta. Þessi sería er ekki síður per-
sónuleg en sú fyrri. Við erum ekki
með neinn tökumann eða sérstaka
tæknimenn. Sá sem er næst ljósinu
færir það.“
Í síðustu þáttaröð slógu tónlist-
aratriðin í lok þáttanna í gegn og
var eitt laganna, Geðveikt fínn gaur,
á meðal vinsælustu laga landsins
um tíma. „Tónlistin leikur áfram
stórt hlutverk. Og þar sem ég er al-
gjörlega laglaus og afleitur söngv-
ari eyðum við ómældum tíma í að
fá þetta til að hljóma vel. En þetta er
fyrst og fremst grín enda er ég grín-
isti en ekki tónlistarmaður.“
asgeir@dv.is
Er fyrir
fegurðar-
drottningar
Knattspyrnuhetjan Gylfi Þór
Sigurðsson er að slá sér upp með
fegurðardrottningunni Alexöndru
Helgu Ívarsdóttur sem var valin ungfrú
Ísland árið 2008. Þetta er ekki fyrsta
fegurðardrottningin sem Gylfi á vingott
við en hann var einnig í sambandi
með Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur sem
tók einmitt við titlinum af Alexöndru
árið 2009. Gylfi hefur gert það gott á
yfirstandandi knattspyrnutímabili með
þýska úrvalsdeildarliðinu Hoffenheim.
Þá var hann eftirminnilega hetja U-21
landsliðsins sem tryggði sér sæti á
Evrópumeistaramótinu sem fer fram í
Danmörku í sumar.
Kristbjörg Keld Í hlutverki
sínu í væntanlegum þáttum af
Steindanum okkar.