Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 56
Syngur
hann
aldrei
fjárlögin?
Alexander
einmana
n Íslenska landsliðið í handbolta leik-
ur sinn síðasta leik á heimsmeistara-
mótinu í handbolta í kvöld, föstudag,
gegn Króatíu. Strákarnir okkar eru
nú komnir til Malmö en áður hafa
þeir gist í Linköping og Jönköping.
Alla hóteldvölina hefur íþróttamaður
ársins, Alexander Petersson, verið
einn í herbergi. Það er þó ekki vegna
þess að hann sé svo leiðinlegur. Guð-
mundur Guðmundsson þjálfari ákvað
að taka sautján leikmenn með og
fann Alexander sér ekki herbergisfé-
laga. Í viðtali á stuðningsmannasíðu
ís- lenska landsliðsins segir
Alexander að það sé
oft fínt að vera einn,
sérstaklega þegar
hann sé að hvíla lúin
bein en bætir þó við:
„Þetta er samt orðið
gott. Maður
verður
stundum
svolítið
ein-
mana.“
Gillz og Gerpla
sameinast
n Egill Gillz Einarsson, meðhöfundur
símaskrárinnar 2011, hefur fengið
Evrópumeistara Gerplu í hópfimleik-
um kvenna til að sitja fyrir með sér
í Símaskránni sem kemur út í maí.
„Þótt það hefði vissulega komið vel
út að vera einn á öllum myndunum
þá er ég mikil félagsvera og vildi því fá
fleiri til að taka þátt í framsetningu á
því efni sem ég ætla að
hafa Símaskránni.
Ég vil bara fá
toppfólk með
mér og ef það
væri flokkur fyrir
„Meistara“ á Gulu
síðunum í Síma-
skránni 2011 þá yrðu
þessar stelpur efstar
á blaði þar,“ segir Gillz í
tilkynningu um málið.
Mun þetta án efa auka
eftirvæntingu eftir
þessari útbreidd-
ustu bók landsins.
Skarphéðinn í Feng
n Útrásarmennirnir íslensku halda
þétt hópinn ef marka má nýjasta
ársreikning eignarhaldsfélags Pálma
Haraldssonar, Fengs. Samkvæmt
honum er Skarphéðinn Berg
Steinarsson, fyrrverandi forstjóri
Baugsfyrirtækisins Landic Property
og stjórnarformaður FL Group,
orðinn framkvæmdastjóri Fengs en
félagið á meðal annars flugfélagið
Iceland Express. Saga Skarphéðins
síðastliðin ár er nokkuð áhugaverð.
Hann var starfsmaður einkavæð-
ingarnefndar þegar
bankarnir voru
seldir 2002–2003,
fór svo til Baugs
og tengdra
félaga en er
nú kominn til
starfa hjá Pálma
Haraldssyni.
„Já, það er smáfiðringur. Ég hef aldrei
gert þetta áður,“ sagði Björn Valur
Gíslason, þingmaður Vinstri grænna,
á fimmtudagskvöld. Björn Valur var
þá á fullu að undirbúa frumsýningu
heimildamyndar um sjómanna-
hljómsveitina Roðlaust og beinlaust.
Björn Valur er sem kunnugt er með-
limur hljómsveitarinnar en hana
skipa, auk Björns, áhöfnin á frystitog-
aranum Kleifabergi ÓF-2.
Það var kvikmyndamaðurinn Ingv-
ar Ágúst Þórisson sem fylgdi hljóm-
sveitinni eftir í um þrjú ár, hér inn-
anlands og erlendis og skrásetti hann
daglegt líf hljómsveitarmeðlima um
borð í togaranum. Myndin var frum-
sýnd á fimmtudagskvöld í Bíó Paradís
og verður sýnd þar alla helgina.
Björn Valur, sem kjörinn var á
þing árið 2009, segir að erfiðlega hafi
gengið að tvinna saman tónlistina
og þingstörfin. „Við höfum eiginlega
ekki komið saman síðan þau ósköp
gerðust. Því miður, en það stendur
til bóta,“ segir Björn Valur. Aðspurð-
ur hvort hann muni þá minnka við-
veruna á þinginu til að sinna sveit-
inni betur þvertekur hann fyrir það.
„Nei, nei, nei, nei. Við ætlum okkur
að koma nýjum lögum á disk og reyna
að troða upp,“ segir hann í léttum tón.
Hljómsveitin Roðlaust og beinlaust
hefur verið starfandi undanfarin tíu
ár og þegar sent frá sér fjórar plöt-
ur. Í umsögn um myndina á heima-
síðu Bíós Paradís segir meðal annars:
„Lífið á sjónum er ekki bara puð, það
rokkar líka.“
einar@dv.is
Heimildarmynd um hljómsveit Björns Vals Gíslasonar frumsýnd:
Þingmaður með fiðring
Alla mánudaga í janúar fylgir ókeypis Fabrikku
DVD diskur* með barnaefni með hverri seldri
máltíð á meðan birgðir endast.
Latibær ® & © 2010 Latibær ehf.
Öll réttindi áskilin.
Latibær er kominn
í DVD tækin fyrir börnin
Heiðar er ómóstæðilegur gæsaborgari.
Alíslensk heiðagæs með sætum perum, villibláberjasultu og rjómaosti.
Borinn fram með heimagerðum, sætum, frönskum kartöflum.
Heiðar er engum líkur og aðeins í boði á Þorranum
– á meðan birgðir endast.
HEIÐAR
E R L E N T U R Á H A M B O R G A R A F A B R I K K U N N I
Í síma 575 7575
og á fabrikkan@fabrikkan.is
BORÐAPANTANIR
Alla mánudaga í febrúar fylgir ókeypis Fabrikku
DVD diskur* með barnaefni með hverri seldri
máltíð á meðan birgðir endast.
* Athugið ekki Latabæjar diskur.
Meðalbiðtími eftir mat á
Fabrikkunni er aðeins 8 mínútur
frá því að pöntun er tekin
ÓKEYPIS DVD Á MÁNUDÖGUM FLJÓTLEGT Í HÁDEGINU
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelGArblAÐ 28.–30. jAnúAr 2011 12. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Margt til lista lagt Björn Valur er í hljómsveit-
inni Roðlaust og beinlaust. Mynd um hljómsveit-
ina var frumsýnd á fimmtudagskvöld.