Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Page 4
Eignarhaldsfélagið Milestone eyddi
rúmlega 114 milljónum króna, rúm-
lega 1,2 milljónum evra, í leigu á
einkaþotum frá því í maí 2005 og þar
til í apríl 2006. Um var að ræða við-
skipti við bresku einkaþotuleiguna
Netjets. Þetta kemur fram í reikningi
frá einkaþotuleigunni sem dagsettur
er þann 16. júní 2006 sem DV hefur
undir höndum. Milestone var í eigu
systkinanna Karls, Steingríms og
Ingunnar Wernersbarna.
DV hefur áður greint frá því að
Milestone hafi eytt tæpum 600 millj-
ónum króna í að leigja einkaþotur frá
Netjets og Closeair á árunum 2007 og
2008. Þetta kom fram í skýrslu end-
urskoðendaskrifstofurnar Ernst &
Young um starfsemi Milestone sem
DV greindi frá í september 2009.
Skýrslan var unnin fyrir þrotabú
Milestone. Umræddar 114 milljónir
króna bætast því við þessa upphæð
og heildarkostnaður félagsins vegna
einkaþotna því kominn upp í rúm-
lega 700 milljónir á þessum þremur
árum.
Um eitt prósent fæst upp í
kröfur
Milestone átti miklar eignir á Íslandi,
meðal annars tryggingafélagið Sjóvá
að fullu og fjárfestingabankann Askar
Capital. Eignir Milestone voru fluttar
yfir í sænska félagið Moderna Fin-
ance AB í ársbyrjun 2008 og hafa við-
skiptin verið tortryggð mjög í opin-
berri umræðu á Íslandi. Steingrímur
og Karl eru með réttarstöðu grun-
aðra í rannsókn sérstaks saksóknara
á viðskiptum tengdum bræðrunum
og Milestone, meðal annars viðskipt-
um með bótasjóð Sjóvár. Milestone
varð gjaldþrota árið 2009.
Verið er að ganga frá skiptum á
þrotabúi Milestone en kröfuhafar fá
greitt um það bil 1 prósent upp í lýst-
ar almennar kröfur samkvæmt heim-
ildum DV. Kröfur í bú félagsins nema
um 80 milljörðum króna og verða
endurheimturnar úr búinu því ekki
miklar.
Tíminn kostaði 7 þúsund evrur
Í reikningnum frá Netjets kemur
fram að klukkustundarlöng leiga á
einkaþotum fyrirtækisins hafi kost-
að tæplega sjö þúsund evrur á þess-
um tíma, eða nærri sjöhundruð þús-
und íslenskar krónur. Á þessum tíma
leigði Milestone þotu Netjets í sam-
tals tæpa 164 klukkutíma. Þar kemur
einnig fram að Milestone hafi verið
með samning við Netjets um leigu
á svokallaðri Hawker 800XP-einka-
þotu.
Á reikningnum koma fram nöfn
þeirra fjögurra aðila sem notuðu
einkaþotuna frá Netjets en þetta
voru eigendur Milestone, Karl, Stein-
grímur og Ingunn Wernersbörn auk
Guðmundar Ólasonar, forstjóra
Milestone.
Karl notaði þotuna mest
Karl notaði Hawker-þotuna lang-
mest af fjórmenningunum á þess-
um tíma, eða samtals í rúmlega
125,5 klukkustundir af þessum
tæplega 164 klukkustundum sem
Milestone greiddi fyrir. Guðmund-
ur Ólason notaði þotuna næstmest
eða í ríflega 15,5 klukkustundir sam-
kvæmt reikningnum. Ingunn notaði
hana svo í tæplega 14 klukkustundir
og Steingrímur í tæplega níu.
Einkaþotunotkun Milestone
jókst svo talsvert á næstu árum en
líkt og DV hefur greint frá eyddi
eignarhaldsfélagið 270 milljónum í
leigu á einkaþotum árið 2007 og 300
milljónum króna árið 2008.
4 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
„Karl notaði Haw-
ker-þotuna lang-
mest af fjórmenningun-
um á þessum tíma.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Eignarhaldsfélagið Milestone greiddi rúmar 114 milljónir fyrir
leigu á einkaþotum árin 2005-2006 n Klukkustundin kostaði nærri
sjö þúsund evrur n Karl Wernersson notaði einkaþotu langmest
Borgaði 114
milljónir í
þotuleigu
2005–2006
Karl flaug
mest Karl
Werners-
son,aðaleigandi
Milestone, notaði
einkaþoturnar
mest af þeim
fjórum aðilum
tengdum Mile-
stone sem
nýttu sér þessa
þjónustu.
7.000 evrur á tímann Milestone var með samning um leigu á einkaþotu sem kallaðist
Hawker 800XP. Leigan á slíkri vél hjá Netjets var tæplega 7.000 evrur á tímann.
Teiknari baðst
afsökunar
„Hann hringdi í mig í gærkvöldi og
bað mig persónulega afsökunar,“
segir Siv Friðleifsdóttir, þingkona
Framsóknarflokksins. Hún vildi að
öðru leyti ekki tjá sig frekar um yfir-
lýsingu Helga Sigurðssonar teikn-
ara, þar sem hann biðst afsökunar
á skopmynd sem birtist í Morgun-
blaðinu á laugardag. Á myndinni
er Siv sýnd sem vændiskona sem
býður stuðning sinn til sölu. Fram-
kvæmdastjórn Landssambands
framsóknarkvenna hafði lýst yfir al-
gjörri vanþóknun á skopmyndinni:
„Vændi er grafalvarlegt samfélags-
legt vandamál sem eykst í kreppu
vegna slæmrar stöðu kvenna og er
alls ekkert grín,“ segir í yfirlýsingu
sambandsins.
Ólafur Johnson setur fram nýtt tilboð:
Framtíð Hraðbrautar ráðin
Menntamálaráðuneytið ætlar ekki
að taka tilboði Ólafs H. Johnsons,
skólastjóra og eiganda Menntaskól-
ans Hraðbrautar, um að gerður verði
nýr þjónustusamningur við skólann.
Þetta herma heimildir DV. Tilboð
Ólafs til menntamálaráðuneytisins
er dagsett 18. apríl 2011 og kveður
á um að skólinn taki inn allt að 120
nýja nemendur á næsta skólaári og
fái greiddar tæpar 500 þúsund krón-
ur með hverjum nemanda.
Samkvæmt heimildum DV hefur
ekkert breyst í málefnum Hraðbraut-
ar hvað varðar menntamálaráðu-
neytið og aðkomu þess að skólan-
um frá því að ráðuneytið sendi út
tilkynningu í febrúar þar sem fram
kom að samningurinn yrði ekki end-
urnýjaður. „Þjónustusamningur við
Menntaskólann Hraðbraut verður
ekki endurnýjaður,“ sagði í þeirri til-
kynningu.
Ástæðan fyrir því að samstarfs-
samningur ráðuneytisins og skól-
ans verður ekki endurnýjaður þrátt
fyrir þetta nýja tilboð Ólafs er meðal
annars sú að opinberir aðilar, Ríkis-
endurskoðun og menntamálanefnd,
hafa staðfest upplýsingar um óráðsíu
í fjármálum skólans sem DV greindi
frá síðastliðið sumar. Skólinn er fjár-
magnaður að um 80 prósent leyti
með opinberum fjárveitingum. 20
prósent af rekstrartekjum skólans
koma svo frá nemendum í formi
skólagjalda.
DV hafði meðal annars greint frá
því að Ólafur Johnson, eigandi og
skólastjóri Hraðbrautar, hefði tekið
sér fleiri tugi milljóna króna í arð
út úr rekstrarfélagi skólans sem og
fasteignafélaginu sem leigir skólan-
um húsnæði í Faxafeni. Ólafur hafði
einnig lánað fjármuni til fasteigna-
verkefnis í Skotlandi. Á sama tíma
höfðu einungis um 40 prósent af
rekstrartekjum skólans farið í launa-
greiðslur til kennara skólans í sam-
anburði við um 80 prósent í öðrum
skólum. Kennarar skólans fengu því
miklu lægri laun en þeir hefðu átt að
fá enda hafði Ólafur staðið í vegi fyrir
því að þeir gengju í Kennarasam-
band Íslands. Miklar deilur höfðu
verið í skólanum út af þessum mál-
um sem og öðrum.
Framtíð skóla Ólafs virðist því
vera ráðin og verður ekki gerður við
hann nýr samningur vegna meðferð-
ar hans á fjármunum skólans síðast-
liðin ár.
ingi@dv.is
Tilboði hafnað Tilboði Ólafs verður
hafnað. Ekkert hefur breyst varðandi fram-
tíð Hraðbrautar.
Þriðji stærsti
frá upphafi
Eigendur vinningsmiðans í lottó-
inu á laugardaginn gáfu sig fram
á þriðjudaginn. Um er að ræða
hjón sem höfðu verið í heimsókn
á Siglufirði um helgina, þar sem
miðinn var keyptur. Vinningur-
inn hljóðaði upp á 61.226.870
krónur en hann er sá þriðji
stærsti sem veittur hefur verið af
Íslenskri getspá í ríflega 25 ára
sögu lottósins hér á landi.