Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
„Það er alltaf leiðinlegt þegar svona
einstaka stofnanir eru teknar út,“
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfir
læknir á Vogi, sem fékk á fimmtu
daginn send til umsagnar drög að
þjónustusamningi á milli Reykja
víkurborgar og SÁÁ.
Í samningsdrögunum kemur
fram að fjárframlög borgarinnar til
SÁÁ komi til með að skerðast veru
lega á næsta ári. Framlögin muni
lækka úr 20 milljónum í 14, sem er
um 36 prósenta skerðing ef miðað
er við verðlag í febrúar árið 2011.
Samningurinn á að vera afturvirk
ur og taka gildi 1. janúar á þessu
ári. Þar sem samningar hafa verið
lausir frá áramótum hafa engar
greiðslur borist frá borginni til SÁÁ
á þessu ári. Þórarinn segir yfirvof
andi niðurskurð óvenjulegan. „Ég
held að enginn annar þjónustu
samningur hafi verið skertur svona
mikið.“
Engar greiðslur fyrr en
samningar nást
Göngudeild SÁÁ er í Efstaleiti og
kallast Von. Þar er að sögn Þórarins
gríðarlega mikil starfsemi; forvarn
arstarfsemi, unglingastarfsemi og
fjölskyldumeðferð. „Hluti af þessu
er einnig sálfræðiþjónusta fyrir
börn. Fyrir utan að þar er greining
ardeild fyrir alkóhólista og síðan
eru þeir studdir áfram eftir með
ferð af þessari göngudeild,“ segir
hann. Þrátt fyrir að engar greiðslur
hafi borist frá borginni á þessu ári
þá hefur starfseminni verið hald
ið úti óskertri, en alfarið á kostnað
SÁÁ.
Forsvarsmenn SÁÁ funduðu
með fulltrúum á velferðarsviði
Reykjavíkurborgar á föstudaginn.
Þegar DV náði tali af Þórarni eftir
fundinn sagði hann mikið bera á
milli. „Það ber á milli hvað varðar
kröfurnar sem gerðar eru til okkar
fyrir þessa peninga,“ segir Þórar
inn. Forsvarsmenn SÁÁ sáu sér því
ekki fært að skrifa undir samning
inn, en engar greiðslur munu ber
ast frá borginni fyrr en hann hefur
verið undirritaður.
Óviðunandi óvissuástand
Á áfangaheimilinu Vin, sem býð
ur upp á áframhaldandi lang
tímameðferð fyrir fíkla sem lok
ið hafa viðamikilli meðferð á Vogi
og Staðar felli, ríkir einnig óvissu
ástand. Heimilið hefur verið starf
rækt frá árinu 2008 en samningar á
milli SÁÁ, borgarinnar og velferð
arráðuneytisins renna út um næstu
áramót. Mikil óvissa ríkir því um
framhaldið. Starfsmönnum heim
ilisins finnst sem ákveðin teikn séu
á lofti um að heimilinu kunni að
verða lokað, eins og staðan er í dag.
Á Vin dvelja þeir sem veikastir eru
vegna vímuefnafíknar, eiga jafnvel
tugi meðferða að baki og hafa jafn
vel verið á götunni. Heimilið býð
ur upp á 12 til 18 mánaða meðferð
fyrir þessa einstaklinga sem und
irbýr þá fyrir endurkomu út í líf
ið. Þrátt fyrir að átta mánuðir séu
til áramóta þá hefur þetta óvissu
ástand áhrif á einstaklinga sem þar
dvelja, enda eru þeir viðkvæmir
fyrir og þurfa síst á því að halda að
hafa áhyggjur af því hvort þeir nái
að klára meðferðina eða ekki fyrir
næstu áramót, að sögn Þórarins.
„Við höfum séð þarna menn sem
eru að ná árangri sem þeir hafa
aldrei náð áður og við erum að út
skrifa marga þessa menn frá okk
ur í íbúðir eða húsnæði sem þeir
fá úthlutað á vegum félagsþjón
ustunnar og standa svo á eigin fót
um,“ segir Þórarinn. Honum finnst
óvissan óviðunandi. „Á ég bara að
fara að segja upp öllu starfsfólkinu
mínu sem vinnur við Vin núna?
Þetta er allt svona,“ segir hann og
er langt frá því að vera sáttur.
Fjársvelti ógnar
bata áfengisfíkla
n SÁÁ hefur engar greiðslur fengið frá borginni á þessu ári n Sér sér ekki fært að skrifa
undir þjónustusamning n Óvissuástand hefur neikvæð áhrif á sjúklinga
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Við höfum séð
þarna menn sem
eru að ná árangri sem
þeir hafa aldrei náð áður.
Mikið ber á milli Þórarinn
segir forsvarsmenn SÁÁ ekki
sjá sér fært að skrifa undir
samninginn eins og er.
Ýmis lagaleg álitaefni varðandi nýja þætti mbl.is
„Löggur“ á gráu svæði
„Við höfum ekki fengið þetta til um
fjöllunar og því liggur ekki fyrir form
legt álit á þessu en ég get alla vega
sagt það að þessi framkvæmd vekur
auðvitað upp álitaefni í þessu sam
bandi,“ segir Þórður Sveinsson, lög
fræðingur hjá Persónuvernd, um
nýjasta útspil mbl.is, þáttinn Löggur.
Í fyrsta þættinum sem birtist
á vefnum fylgir myndatökumað
ur lögreglunni eftir í húsleitarras
síu á heimili manns sem grunaður
er um fíkniefnaviðskipti. Þrátt fyrir
að andlit meintra brotamanna séu
gerð óskýr þá er ýmislegt í umhverfi
þeirra og útliti sem getur gert ljóst
um hvern ræðir. Sambærilegir þætt
ir eru þekktir meðal annars í Banda
ríkjunum og hafa notið mikilla vin
sælda.
Þórður bendir á að það gæti reynt
á ýmisleg lagaleg sjónarmið í þátt
unum, meðal annars grundvallar
reglu um friðhelgi einkalífs í stjórn
arskránni og sjónarmið um hvernig
lögreglan eigi að gæta meðalhófs í
störfum sínum. „Samkvæmt þess
ari stjórnarskrárreglu nýtur heimilið
friðhelgi. Það felur í sér að þegar hið
opinbera fer inn á heimili fólks þarf
að hafa viðhlítandi heimildir. Það er
þá almennt samþykki eða dómsúr
skurður. Þegar lögreglan beitir þessu
úrræði sínu á hún að gæta meðal
hófs. Það felur í sér að hlutast ekki
meira til um einkamálefni einstakl
inga frekar en henni er nauðsynlegt
vegna starfa sinna,“ segir Þórður sem
er ekki kunnugt um að leitað hafi
verið álits Persónuverndar áður en
farið var í framleiðslu þáttanna.
„Já, það kæmi mér á óvart ef
menn teldu það andstætt lögum að
bjóða fjölmiðlamönnum að fylgj
ast með störfum lögreglu. Því þetta
er ekkert nýtt í sjálfu sér,“ segir Stef
án Eiríksson, lögreglustjóri á höfuð
borgarsvæðinu. Hann segir fordæmi
fyrir því að lögreglan taki fjölmiðla
með í útköll og vaktir. Líka þegar far
ið er í húsleit inn á heimili fólks.
„Það er alveg klárt að það er brýnt
fyrir fréttamönnum sem með okk
ur koma að ekki eigi að vera hægt
að þekkja þá sem í hlut eiga. Það er
reynt að hylja öll auðkenni, breyta
röddum og fleira til að koma í veg fyr
ir það,“ segir lögreglustjórinn.
mikael@dv.is
Inni á heimili Í þáttunum Löggur eltir
myndatökumaður fíkniefnalögregluna í
húsleit á heimili meints dópsala.
Þúsund fái
tækifæri til náms
Ríkisstjórnin kynnti á þriðjudag
inn aðgerðir til að skapa tækifæri til
náms fyrir eitt þúsund atvinnuleit
endur á næstu þremur árum. Verk
efnið á að draga úr atvinnuleysi en
það á að tryggja öllum undir 25 ára
aldri sem sækja um nám á fram
haldsskólastigi tækifæri til náms. Sjö
milljarðar króna fara í átakið en þá
á einnig að skapa tækifæri til náms
næstu skólaár. Áætluð útgjöld ríkis
sjóðs og Atvinnuleysistryggingasjóðs
vegna verkefnisins eru tæplega sjö
milljarðar króna á árunum 2011 til
2014.
Þá stendur til að meta starfs
reynslu í iðngreinum til eininga
innan framhaldsskólanna. Að sögn
Katrínar Jakobsdóttur menntamála
ráðherra hefur stærsti hluti þeirra
sem eru á atvinnuleysisskrá ekki lok
ið námi á framhaldsskólastigi og að
þetta átak eigi að koma til móts við
þann hóp.
Ákærður fyrir
manndráp af
gáleysi
Bílstjórinn sem ók á Gísla Ólaf Ólafs
son, þar sem hann var að skokka
á Eyjafjarðarbraut, í janúar síðast
liðnum hefur verið ákærður fyrir
manndráp af gáleysi og umferðar
lagabrot. Ökumaðurinn er fæddur
árið 1986 og í þvagi hans fundust
efni sem bentu til kannabisneyslu.
Hann er því ákærður fyrir að aka
undir áhrifum vímugjafa sem og
fyrir manndráp með gáleysislegum
akstri. Gísli Ólafur var 49 ára gamall
og til heimilis á Akureyri. Hann læt
ur eftir sig eiginkonu og fjögur börn
og eitt barnabarn. Gísli Ólafur var
að skokka síðdegis þann 20. janúar á
Eyjafjarðarbraut vestri, skammt suð
ur af Akureyri. Hann var á hlaupum
réttum megin á akbrautinni þegar
atvikið átti sér stað og hljóp í endur
skinsvesti.