Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Síða 24
24 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
„Deilan snýst um að opinbert ríkis-
fyrirtæki er að reyna að koma í veg
fyrir löglega samkeppni í flugstöð
Leifs Eiríkssonar,“ segir Þórir Garðars-
son, sölu- og markaðsstjóri rútufyrir-
tækisins Allrahanda í samtali við DV.
Fyrirtækið hefur staðið í deilum við
stjórnendur Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar og Isavia ohf. í nærri átta mán-
uði. Snýst deilan um það að Allra-
handa vill fá aðstöðu í Leifsstöð til
þess að setja upp söluskrifstofu vegna
áætlunarferða á milli Flugstöðvarinn-
ar og Reykjavíkur. Að auki vill fyrir-
tækið fá bílastæði fyrir utan Leifsstöð
fyrir áætlunarbíla sína.
Þórir telur að forsvarsmenn flug-
stöðvarinnar vilji enn hafa stjórn á því
hverjir komi að farþegaflutningum á
milli Keflavíkurflugvallar og Reykja-
víkur þrátt fyrir að sérleyfi hafi verið
afnumin. „Sérleyfið var fellt úr gildi og
tekið var upp svokallað einkaleyfi sem
á þó einungis við um sveitarfélög á
Reykjanesi. Nú er því frjálst að stunda
farþegaflutninga á milli Keflavíkur-
flugvallar og Reykjavíkur, þar sem að
það er ekki innan sama sveitarfélags-
ins,“ segir hann.
Forsvarsmenn Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar segja að fyrirtækið
Kynnis ferðir sé enn með sérleyfi til að
sjá um farþegaflutninga á þessari leið.
Þórir segir hins vegar að á heima-
síðu Vegagerðarinnar, sem fer með
framkvæmd laga um farþegaflutn-
inga, komi fram að ekkert sérleyfi sé
í gildi. Einungis einkaleyfi sem nái
þó bara yfir farþegaflutninga innan
þeirra sveitarfélaga sem mynda sam-
tök sveitarfélaga á Reykjanesi.
Deilur staðið yfir í átta mánuði
Stjórnendur Allrahanda hafa verið í
ítrekuðum samskiptum við Hlyn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóra Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar síðustu átta
mánuði. „Samskiptin við stjórnendur
flugstöðvarinnar hafa verið með ólík-
indum. Svör við tölvupóstum hafa
verið mjög stopul, áhugaleysi fyrir
verkefninu er áberandi og þar með er
áhugaleysi á að samkeppni komist á í
þjónustu við flugfarþega og viðskipta-
vini,“ segir Þórir.
DV sendi Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar fyrirspurn vegna málsins. Í svari frá
Hjördísi Guðmundsdóttur, upplýs-
inga- og kynningarfulltrúa Isavia, seg-
ir að núverandi sérleyfi sé í höndum
Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesj-
um (SSS), sem sé með samning við
Kynnisferðir ehf. til 31. október 2011.
„Flugstöð Leifs Eiríkssonar (nú
Isavia) hefur í mörg ár haft þá stefnu
að veita þeim aðila sem er með sér-
leyfið á áætlunarferðum á milli höf-
uðborgarsvæðisins og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar samning um söluað-
stöðu inni í flugstöðinni og rútustæði
við flugstöðina. Önnur rútufyrirtæki
[innsk. blm. Kynnisferðir] þurfa að
leggja á almennum rútustæðum,“
segir í svarinu. Ítrekar Hjördís að það
sé mat stjórnenda að með núverandi
fyrirkomulagi sé þjónusta á heilsárs-
og sólarhringsgrunni betur tryggð
fyrir farþega flugstöðvarinnar.
„Vegagerðin er að ljúka við gerð
nýrra samninga til landshlutasamtak-
anna ásamt því að gera lagabreyting-
ar sem taka af allan vafa um sérleyfið.
Þegar það liggur fyrir mun Isavia taka
málið upp á ný. Ef niðurstaðan verður
að gefa þessa sérleið frjálsa með út-
boði mun Isavia einnig setja upp for-
val um þjónustu og aðstöðu í og við
flugstöðina.,“ segir í svari frá Isavia.
Milljóna tjón fyrir Allrahanda
„Við byrjuðum að keyra á milli Kefla-
víkurflugvallar og Reykjavíkur fyrir
tæpum mánuði síðan. Við náum hins
vegar ekki að veita þá þjónustu sem
við viljum í Keflavík þar sem við fáum
ekki þá aðstöðu í Leifsstöð sem við
teljum okkur eiga rétt á eða pláss fyrir
utan flugstöðina fyrir okkar bíla,“ seg-
ir Þórir. Kynnisferðir hafa einkastæði
fyrir utan Leifsstöð fyrir bíla sína sem
og söluskrifstofu inni í flugstöðinni.
„Við viljum fá sambærilega aðstöðu
og að það sé ekki gerður greinarmun-
ur á fyrirtækjum,“ segir hann.
Allrahanda hóf undirbúning að
áætlunarferðum sínum í lok ágúst
árið 2010. Var Vegagerðinni tilkynnt
um þau áform og beiðni lögð inn hjá
Isavia fyrir aðstöðu í Leifsstöð. Hefur
Allrahanda að sögn eytt milljónum
króna í kynningu á þessari þjónustu,
auk þess að fjárfesta í bifreiðum sem
eru sérstaklega ætlaðar í þetta verk-
efni. „Þessi seinagangur kostar okkur
fleiri milljónir króna á mánuði. Við
höfum verið að kynna þessa þjónustu
frá því í ágúst í fyrra og erum búnir að
eyða miklum fjármunum í þá kynn-
ingu,“ segir Þórir.
Ætla að kæra vegna
samkeppnisbrots
„Staðan er þannig að við keyrum all-
ar ferðir sem við auglýsum og reynum
eftir veikum mætti að sinna þeim far-
þegum sem eiga bókað hjá okkur. Við
missum hins vegar af helling af far-
þegum vegna aðstöðuleysis og ætlum
að kæra þetta mál til Samkeppniseft-
irlitsins. Það er verið að brjóta sam-
keppnislög,“ segir Þórir. Vísar hann
til þess að ekkert sérleyfi sé lengur til
staðar líkt og stjórnendur Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar halda fram.
Hjördís Guðmundsdóttir, upp-
lýsinga- og kynningarfulltrúi Isavia,
segir að stjórnendur flugstöðvarinnar
sjái ekki á hvaða grunni sú kæra ætti
að byggja. „Við höfum allan rétt til að
ákveða við hverja við gerum samn-
inga um aðstöðu inni í flugstöðinni
og á lóðinni sem tilheyrir flugstöð-
inni,“ segir í svari við fyrirspurn DV
um þetta atriði. Hér til hliðar má lesa
nánar um hvað deilan snýst en þar
er farið yfir samskipti Þóris Garðars-
sonar, sölu- og markaðsstjóra Allra-
handa, við Hlyn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóra Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar.
n Allrahanda er búið að eyða milljónum króna vegna áætlana um ferðir á milli Keflavíkurflugvallar og
Reykjavíkur n Flugstöðin segir sérleyfi enn í gildi n Ætlar að kæra til Samkeppniseftirlitsins
Ætla að kæra brot
á samkeppnislögum
„Við viljum fá sam-
bærilega aðstöðu
og að það sé ekki gerður
greinar munur á fyrirtækjum.
Ágreiningur um lagaatriði
Í svari sem Hlynur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar, sendi
Allrahanda 30. nóvember árið
2010 segir að Isavia ohf. telji að
Kynnisferðir hafi enn sérleyfi
á farþegaflutningum til og frá
flugstöðinni. Hins vegar séu
íslensk stjórnvöld að vinna að
stefnumótun í almenningssam-
göngum. Hluti af þeirri vinnu
sé endurskoðun á sérleyfis-
leiðum. „Ljóst má hins vegar vera að þegar ákvörðun stjórnvalda liggur fyrir, mun
félagið bregðast við þeirri breytingu, meðal annars með því að skoða hvernig haga eigi
skipulagi samgangna við flugstöðina verði sérleyfisferðir afnumdar og hvernig veita eigi
verðandi samkeppnisaðilum á slíkum markaði aðgang að nauðsynlegri aðstöðu, bæði
fyrir flutningabíla og til að selja farþegum miða,“ segir í bréfi frá Isavia til Allrahanda 30.
nóvember árið 2010.
Þórir Garðarsson, sölu- og markaðsstjóri Allrahanda, svaraði bréfi Isavia þann 3.
desember árið 2010. Þar vísar hann til þess að samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar sé
ekkert sérleyfi til staðar. Þess skal getið að Vegagerðin fer með framkvæmd laga um
fólksflutninga. Allrahanda hefur þegar tilkynnt Vegagerðinni um ætlan sína að hefja
áætlunarferðir á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar og hefur Vegagerðin ekki
mótmælt skilningi Allrahanda á lögum um fólksflutninga og framflutninga.
„Ekki stoðar fyrir Isavia að bera fyrir sig hugsanlegar breytingar á skipulagi samgangna
eða endurskoðun á tilhögun sérleyfisleiða. Starfa verður eftir núverandi lögum þar til
annað verður ákveðið,“ segir í svari Allrahanda til Isavia. Allrahanda tilkynnti Vegagerð-
inni um undirbúning að áætlunarferðum sínum þann 25. ágúst árið 2010 og sendi beiðni
til Isavia um aðstöðu í flugstöðinni tveimur dögum seinna. „Öflugu kynningarstarfi hefur
verið hrundið af stað og fjárfest í nýjum bifreiðum sem nýta á í þennan rekstur.“
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Milljónatjón Þórir Garðars-
son, sölu- og markaðsstjóri
Allrahanda, segir fyrirtæki sitt
tapa milljónum króna í hverjum
mánuði. MynD RóbeRt ReyniSSon