Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Qupperneq 32
32 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
ÍSLENSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA Í 35 ÁR
NORM-X HF | Auðbrekka 6 | 200 Kópavogur | Sími: 565 8899 | Netfang: normx@normx.is
n Okkar verð betra verð
n Yfir 10.000 ánægðir notendur á Íslandi
n Við bjóðum einnig allar lagnir,
nuddkerfi, lok og ljósabúnað
Fjármálaráðuneytið hefur ekki innt
af hendi lokagreiðslu vegna verkefnis
um skatta og velferð sem Félagsvís
indastofnun samdi um við ráðuneyt
ið haustið 2007. Fyrir verkið átti að
greiða 10 milljónir króna og var áskilið
í samningi að umsjón með verkefninu
hefði Hannes Hólmsteinn Gissurarson
stjórnmálafræðiprófessor.
Þegar ráðuneytið svaraði fyrir
spurn DV um greiðslur fyrir verkefnið
voru sundurliðaðar fimm greiðslur
sem náðu yfir tímabilið frá maí 2007 til
október 2008.
Samtals námu þær um 13,1 milljón
króna.
Í verksamningi Árna M. Mathie
sen, þáverandi fjármálaráðherra, og
Félagsvísindastofnunar, sem dagsett
ur er 3. september 2007, er ráð fyrir
því gert að greiðslur fyrir verkið berist
verktaka í fjórum hlutum, 2,5 milljón
ir króna í senn. Sú síðasta átti að ber
ast Félagsvísindastofnun og Hannesi
Hólmsteini, 2,5 milljónir króna, við
áætluð verklok í nóvember 2008. Til
þess að svo mætti verða urðu Hannes
Hólmsteinn og Félagsvísindastofnun
að skila lokaskýrslu. Þann 15. desem
ber 2008 sendi Félagsvísindastofn
un Baldri Guðlaugssyni, þáverandi
ráðuneytisstjóra, bréf með hjálögðum
gögnum, en augljóst er af bréfinu að
með því átti að tryggja síðustu greiðslu
fyrir verkefnið.
Knúið á um lokauppgjör
Í bréfinu segir orðrétt: „Hjálögð er
skýrsla sú sem þér báðuð um vegna
rannsóknarverkefnis um skatta og vel
ferð, svo ljúka megi fjórðu og síðustu
greiðslu frá fjármálaráðuneytinu til
verkefnisins. Þar er yfirlit yfir þá níu
fundi og ráðstefnur, sem haldnar hafa
verið á vegum verkefnisins, eina bók
og 15 fræðilegar greinar og ritgerðir,
sem birtar hafa verið á vegum verkefn
isins... Einnig eru hjálögð ýmis gögn
vegna verkefnisins, eins og þér báðuð
um.“
Síðan segir í bréfinu: „Vona ég að
þessi skýrsla og gögn nægi til þess, að
fjármálaráðuneytið greiði fjórðu og
síðustu greiðslu sína vegna verkefn
isins, en á henni er einmitt þörf til að
koma út lokaniðurstöðunum í fyrr
nefndri bók, Skattar og velferð á Ís
landi 1991–2004.“
DV hefur greint frá því að ráðuneyt
isstjórinn fyrrverandi tók ekki gild þau
gögn sem nefnd eru í bréfinu með vís
an til verksamnings. Því hafi hann ekki
innt lokagreiðsluna af hendi.
Skelfileg hrákasmíð
Fjármálaráðuneytið upplýsir nú að
greiðslurnar fimm, sem minnst er á
í upphafi greinar, hafi ekki allar ver
ið vegna skattaverkefnisins. Hið rétta
sé að þrjár greiðslur, um 9,4 millj
ónir króna með virðisaukaskatti, hafi
verið greiddar vegna verkefnis Fé
lagsvísindastofnunar og Hannes
ar Hólmsteins. Hinar greiðslurnar
séu verkefninu óviðkomandi og að
minnsta kosti önnur þeirra hafi runn
ið til Hagfræðistofnunar HÍ. Á þessu
biðst fjármálaráðuneytið velvirðingar.
Þessi staðreynd leiðir því í ljós að að
eins hafa verið inntar af hendi þrjár af
umsömdum fjórum greiðslum.
Ári eftir áætluð verklok skilaði
Hannes Hólmsteinn um 80 blaðsíðna
skýrslu eins og DV hefur nýverið greint
frá. Skýrslan spannar eins og áður seg
ir valdatíð Davíðs Oddssonar á forsæt
isráðherrastóli frá 1991 til 2004. Ætla
má að síðbúin skýrsla Hannesar hafi
átt að nægja fyrir síðustu útborgun, 2,5
milljónum króna, vegna verkefnisins.
Af framansögðu virðist sú ekki hafa
orðið raunin.
Í umræddri skýrslu er afar oft vikið
að umfjöllun Stefáns Ólafssonar próf
essors um aukinn ójöfnuð og aukna
skattbyrði láglaunahópa á umræddu
tímabili. Stefán gaf lítið fyrir skýrslu
Hannesar í DV fyrir skemmstu. „Þegar
skýrslan sem hann skilaði ráðuneytinu
er skoðuð kemur í ljós skelfileg hráka
smíð þar sem saman fara vísivitandi
ósannindi, afbankanir staðreynda
og stórtækar ófrægingar um verk og
persónur annarra... Markmiðið var að
freista þess að jarða þær staðreyndir
sem ég lagði fram. Þetta er auðvitað
einstakt í opinberri stjórnsýslu og í há
skólasamfélaginu.“
Engin lokagrEiðsla Enn
fyrir vErkEfni HannEsar
n Aðeins 75 prósent umsaminnar fjárhæðar voru greidd fyrir skattaverkefni Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar
n Ráðuneytisstjóri tók ekki lokaskýrslu gilda í desember 2008 n „Hrákasmíð“, segir prófessor í Háskóla Íslands
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
„En augljóst er af
bréfinu að með
því átti að tryggja síðustu
greiðslu fyrir verkefnið.
Flokksbræður í Valhöll Sem fjármálaráðherra samdi
Árni Mathiesen við Félagsvísindastofnun um 10 milljóna
króna verkefni í umsjón Hannesar Hómsteins Gissurarsonar.