Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 52
Dagskrá á Vestfjörðum um páskana
52 Páskar20.–26. apríl 2011
Margt skemmtilegt verður á dagskrá
Tírólahátíðarinnar í ár og ætti hver og
einn að finna eitthvað við sitt hæfi.
Miðvikudagur 20. apríl.
n 23.00–03.00 Ball með Mónó á
Rauða torginu í Neskaupstað
Fimmtudagurinn 21. apríl,
skírdagur
n 10.00–17.00 Dagur brettafólksins
á Skíðasvæðinu í Oddskarði.
Lögð verður Border Cross-braut
(snowboard racing) sem ætti að
kæta brettaunnendur
n 20.00–23.00 Super Jump-snjó-
brettamót, mótið verður haldið
við fyrstu lyftuna ásamt dynjandi
tónlist og fjöri. Dæmt verður út
frá getu, byltum, stíl og öllu sem
dómurum dettur í hug að gefa
einkunn fyrir
n 20.00–00.00 Pub Quiz á Rauða
torginu í Neskaupstað
Föstudagurinn 22. apríl,
föstudagurinn langi
n 10.00-17.00 Opið í Oddskarði,
þrautabraut fyrir yngstu kyn-
slóðina. Lögð verður skemmtileg
braut við litlu lyftuna með ýmsum
þrautum og stökkum
n 00.00–03.00 Rauða torgið á Norð-
firði verður opnað á miðnætti með
léttri barstemningu
n 00.00–03.00 18 ára ball með DJ
Óla Geir og Haffa Haff í Valhöll
Eskifirði
Laugardagurinn 23. apríl
n 09.30 Páskaeggjaleit fyrir alla
fjölskylduna hjá Ferðaþjónustunni
Mjóeyri á Eskifirði, frjáls framlög
n 10.00–17.00 Tírólastemning í
Austfirsku Ölpunum
n 13.00 Risastórsvig fyrir 16 ára og
eldri í minningu Gunnars Ólafs-
sonar. Keppnismenn fyrri ára og
aðrir eru hvattir til að skrá sig.
Skráning hefst kl.12 í skíðaskála.
Við hvetjum aðra gesti til að mæta
með bjöllur, flautur og jóðla í takt
meðan keppendur bruna hjá
n 16.00 Páskafjörs-strandblaksmót
Þróttar í Neskaupstað. Skráning og
dagskrá auglýst nánar síðar
n 17.00–19.00 Fjölskylduball í Valhöll
á Eskifirði með Ingó og Veðurguð-
unum
n 20.00–23.00 Meiri Tírólastemning
í Austfirsku Ölpunum – ekta Tíróla-
tónlist um allar brekkur í anda
Ómars Skarphéðinssonar
n 22.00–03.00 Létt barstemning á
Rauða torginu í Neskaupstað
n 23.00 Flugeldasýning að hætti
Skúla Hjalta og drengjanna hans í
björgunarsveitinni Gerpi
n 23.00–03.00 Ingó og Veðurguðirnir
halda uppi taumlausru stuði fyrir
fullorðna fólkið í Valhöll á Eskifirði
(18 ára aldurstakmark). Austfirsku
Alparnir
Sunnudagurinn 24. apríl,
páskadagur
n 06.00 Hátíðarganga út í Páskahelli á
Norðfirði. Mæting við vitann á Bakka-
bökkum. Fararstjóri Ína D. Gísladóttir.
Verð kr. 500 fyrir fullorðna
Páskafjör í
Fjarðabyggð
Austfirsku Alparnir:
Miðvikudagur 20. apríl
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalandsdal
opin
n 16.30 Setning Skíðaviku á Silfurtorgi. Lúðrasveit
Tónlistarskóla Ísafjarðar marserar ásamt meðlimum
úr Skíðafélagi Ísfirðinga frá Ísafjarðarkirkju kl. 16.00
að Silfurtorgi þar sem setningin fer fram. Skíðafélag
Ísfirðinga selur heitt kakó og pönnsur
n 23.00–3.00 Heimamenn hrista saman gesti hátíðar-
innar í Krúsinni
Fimmtudagur 21. apríl, skírdagur
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalandsdal
opin
n 10.00–19.00 Opið hjá Sæfara. Hægt verður að leigja
kajaka og litla seglbáta ásamt öryggisverði
n 13.00 Skíðaskotfimi á Seljalandsdal. Boðið verður upp
á æfingu og kennslu í meðferð skotvopna kl. 11.00
sama dag
n 15.00 Boarder Cross-mót fyrir börn í Tungudal
n 18.00–20.00 Opnun WAF–Westfjord Art Fest í húsnæði
Sæfara við suðurtanga. Allir velkomnir
n 19.00 Veitingastaðurinn við Pollinn á Hótel Ísafirði.
Kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson og gítar-
leikarinn Ómar Guðjónsson spila djasstónlist í dinner
og sjóðheitan latíntakt síðar um kvöldið. Boðið verður
upp á kvöldverð og/eða ostahlaðborð
n 19.00–22.00 Sóltún – Listasoppa, ljósmyndasýning,
pönnukökur og uppákomur
Ágúst Atlason, nýkjörinn bæjarlistamaður Búrsins, sýnir
í Sóltúni um páskana. Gefst Ísfirðingum og gestum
rokkhátíðarinnar Aldrei fór ég suður tækifæri ti að sjá
verk Ágústs
n 20.00 Big Jump-snjóbrettamót á Ísafirði. Staðsetning
keppninnar verður auglýst á skidavikan.is
n 20.00–22.00 Af fingrum fram í Hömrum. Jón Ólafsson
og Helgi Björnsson í stuði
n 20.00–24.00 Tónleikar í Simbahöllinni á Þingeyri
n 21.00 Á skíðum skemmti ég mér, Edinborgarhúsinu.
Bráðfjörug leik– og söngskemmtun þar sem fluttar eru
margar af flottustu perlum íslenskrar dægurlagasögu
n 22.00–00.00 Tónleikar og uppistand í Krúsinni
Föstudagur 22. apríl, föstudagurinn langi
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalandsdal
opin. Bolungarvík, nánari upplýsingar í síma 862-8411
n 10.00–19.00 Opið hjá Sæfara. Hægt verður að leigja
kajaka og litla seglbáta ásamt öryggisverði
n 10.00 Hin árlega gönguskíðaferð með Sjóferðum
Hafsteins og Kiddýjar. Gengið verður frá Látrum í
Aðalvík til Hesteyrar. Einstaklega skemmtileg og frekar
auðveld ganga. Leiðsögumaður og fararstjóri verður
að vanda Jón Björnsson, forstöðumaður Hornstrand-
astofu. Brottför frá Ísafirði klukkan 10 og komið aftur
milli 17 og 18. Nánari upplýsingar má fá hjá Sjóferðum í
síma 456–3879
n 10.00 Kirkjuganga. Gengið verður úr Valþjófsdal að
Holtskirkju. Eftir stutta helgistund í Holtskirkju verður
boðið upp á sjávarréttasúpu og nýbakað brauð í
Friðarsetrinu Holti
n 11.00–17.00 Furðufatadagur í Tungudal. Löng hefð er
fyrir því að fjölskyldan skemmti sér saman í Tungudal
á föstudaginn langa. Fólk er hvatt til að mæta upp-
áklætt. Kveikt verður í grillinu um hádegi, börnin geta
látið mála sig við undirleik lifandi tónlistar og sælgæti
mun rigna af himnum ofan
n 20.00–01.00 Aldrei fór ég suður – rokkhátíð
alþýðunnar. Haldin í áttunda sinn, nú í skemmu KNH
n 24.00–04.00 Ingó og Veðurguðirnir í Edinborgarhúsinu
n 24.00–04.00 Hljómsveitin Nýdönsk í Krúsinni
Laugardagur 23. apríl
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalands-
dal opin
n 10.00–19.00 Opið hjá Sæfara. Hægt verður að leigja
kajaka og litla seglbáta ásamt öryggisverði
n 10.00–18.00 Leikjadagur fyrir börn á öllum aldri í
íþróttahúsinu á Þingeyri á vegum Höfrungs
n 10.00–17.00 Gönguferð frá Höfða í Jökulfjörðum út
í Grunnavík. Siglt frá Bolungarvík með Bjarnarnesi
að Höfða og gengið þaðan út í Grunnavík þaðan sem
siglt er til baka. Fólk þarf að hafa með sér nesti og
góðan fatnað
n 13.00–17.00 Páskaheimsókn á Hesteyri. Siglt verður
frá bryggju Sjóferða á Ísafirði klukkan n 13.00.
Gengið verður um svæðið undir leiðsögn og síðan
boðið upp á kaffi og heimabakað í Læknishúsinu.
Þessi hefðbundna heimsókn í friðlandið verður þó
með óhefðbundnu sniði, þar sem lesið verður upp
úr bók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, en sögusvið
þessarar æsispennandi skáldsögu er einmitt
Hesteyri
n 18.00–02.00 Aldrei fór ég suður – rokkhátíð
alþýðunnar. Haldin í skemmu KNH
n 23.00–03.00 Bjartmar og Bergrisarnir halda uppi
stuði fram á rauða nótt í Krúsinni
Sunnudagur 24. apríl, páskadagur
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalands-
dal opin
n 10.00–19.00 Opið hjá Sæfara. Hægt verður að leigja
kajaka og litla seglbáta ásamt öryggisverði
n 24.00–04.00 Stórdansleikur í Edinborgarhúsinu,
Benni Sig og hljómsveitin Xpress leika.
n 24.00–04.00 Grafík og SSSól slá botninn í skíðavi-
kudjammið í Félagsheimilinu í Bolungarvík
Mánudagur 25. apríl, annar í páskum
n 10.00–17.00 Skíðasvæðin á Tungudal og Seljalands-
dal opin
n 10.00–19.00 Opið hjá Sæfara. Hægt verður að leigja
kajaka og litla seglbáta ásamt öryggisverði
Skíðavikan á Ísafirði á sér 77 ára sögu en hún var fyrst haldin um páska árið 1935 og hefur skíða-
vikan verið snar þáttur í menningarlífi
Ísfirðinga frá þeim tíma.
Fjöldi listamenna hefur troðið
upp í Skíðavikunni í gegnum tíðina
og eiga margir sinn fasta sess í dag-
skrá vikunnar. Skíðavikan nær einnig
til nágrannabyggða, Dýrafjarðar, Ön-
undarfjarðar, Súgandafjarðar og Bol-
ungarvíkur.
Nægt framboð verður af böllum á
Skíðavikunni og ólíklegt að fólk kom-
ist yfir að mæta á þau öll. Þetta eru
þær hljómsveitir sem auglýst hafa
böll. Ingó og Veðurguðirnir, Nýdönsk,
Húsið á sléttunni, Bjartmar og Berg-
risarnir, Benni Sig og hljómsveitin
Xpress og Grafík og SSSól. Þetta er í
fyrsta skipti sem Bjartmar og Bergris-
arnir mæta á hátíðina og taka jafn-
framt þátt í Aldrei fór ég suður.
„Við verðum í banastuði, það er
ekki spurning. Ég hef aldrei áður farið
á þessa hátíð, við erum stoltir að vera
með í ár,“ segir Bjartmar Guðlaugsson
sem ætlar að halda uppi stuði fram á
rauða nótt í Krúsinni á laugardags-
kvöldið. „Ég hef samt spilað mikið fyr-
ir Vestfirðinga og Vestfirðir voru sterkt
vígi hjá mér í gamla daga.“
En ætlar Bjartmar ekkert á skíði?
„Nei, algerlega útilokað mál, brans-
inn sjálfur er nógu mikið sport,“ segir
Bjartmar og hlær.
Bjartmar og Bergrisarnir
mæta í gamla vígið
Fjölbreytt dagskrá
á Vestfjörðum
um helgina:
Aldrei fór ég suður
Tónlistarhátíðin er
haldin í skemmu KNH.