Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Page 60
60 | Fókus 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes:
Tveir Íslendingar í Cannes
Tveir Íslendingar taka þátt í al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Tómas Lemarquis er ann-
ar þeirra en hann lék í kvikmynd-
inni Chatrak sem tekin var upp
á Indlandi. Myndinni er leikstýrt
af Vimuktthi Jayasundara og var
hún valin til sýninga í flokknum
La Quinzaine des Réalisateurs á
hátíðinni. Í myndinni leikur Tóm-
as evrópskan hermann en hann
talar íslensku. „Leikstjórinn vildi
það, þar sem það er enginn her
á Íslandi og því er þetta ekki bein
ádeila á ákveðið land,“ segir Tómas
um hlutverkið.
Tómas hefur áður unnið með
leikstjórum er tengjast Cannes-
kvikmyndahátíðinni en stuttu eftir
að hann lék í mynd Jayasundras
lék hann í kvikmyndinni La mai-
son de Nina, sem leikstýrt var af
óskarsverðlaunahafanum Richard
Dembo, sem er einn af stofnend-
um hátíðarinnar. Tómas er ánægð-
ur með að fá að taka þátt í hátíð-
inni. „Þetta er gamall draumur
fyrir mig sem er nú að rætast,“ segir
hann.
Hinn Íslendingurinn sem tekur
þátt í Cannes-hátíðinni í ár er Rún-
ar Rúnarsson en mynd hans Eld-
fjall verður sýnd á hátíðinni. Mynd
Rúnars keppir í tveimur mismun-
andi flokkum Directors Fortnight
og Camera d´Or, sem eru verðlaun
fyrir bestu fyrstu mynd leikstjóra.
Myndin var tekin upp hér á landi
síðastliðið haust en aðalleikar-
ar myndarinnar eru þau Theodór
Júlíusson, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og
Þorsteinn Bachmann.
Kvikmyndahátíðin fer fram 11.
til 22. maí en þetta er í annað sinn
sem íslensk mynd er valin í flokk-
inn Directors Fortnight. Atómstöð-
in í leikstjórn Þorsteins Jónssonar
keppti í þeim flokki fyrir 27 árum.
Hvað ertu að gera?
mælir með...
kvikmynd
Source Code
„Það er ekki á hverjum
degi sem góðar sci-fi
kvikmyndir rata á
hvíta tjaldið og er
Source Code klárlega
í þeim hópi.“ – Jón Ingi
Stefánsson
Tölvuleikur
Killzone 3
PS3 / Xbox 360
„Killzone 3 gerir
nákvæmlega það sem
hann þarf að gera, án
þess þó að verða einhver flugeldasýning.“
– Einar Þór Sigurðsson
Tölvuleikur
Fight Night Champion
PS3 / Xbox 360
„Fight Night Champion gefur fyrri leikjum
ekkert eftir í spilun, grafík eða gæðum en
framfarirnar og breytingar eru litlar og í raun
ekkert rothögg.“ – Sigurður Mikael Jónsson
Hemmi Gunn fjölmiðlakóngur
Hvaða bók ertu að lesa? „Það sem ég er
að lesa núna er bók sem kom út fyrir nokkrum
árum, sjálfsævisaga Errós sem Aðalsteinn
Ingólfsson skrifaði. Hún er rosalega vel fram-
sett og skemmtileg. Þarna lætur Erró móðan
mása, meðal annars um konurnar í lífi sínu.
Svo fá þær einnig tækifæri til að segja sína
skoðun á Erró þannig að úr verður mjög opin
bók sem er stundum kannski bönnuð innan
tólf ára.“
Hvaða tónlist er í uppáhaldi þessa
dagana? Hann Eyfi vinur minn var að færa
mér safndiskinn sinn í tilefni fimmtíu ára
afmælis síns. Ég þekki nú vel til Eyfa en ég
vissi ekki að hann ætti svona marga smelli,
algjörar perlur. Ég ætla að hlusta á þennan
disk um páskana sem fer ágætlega saman
því hann verður einn af gestum mínum í
páskagleði Bylgjunnar á annan í páskum.“
Hvernig páskaegg færðu?„Ég hef nú
verið svo heppinn að fá nokkur páskaegg. Ég
fékk tvö karamellupáskaegg frá Nóa Síríus.
Svo fékk ég einnig páskabolta, svona til að
rifja upp smá fortíðarþrá. Þetta er bolti fullur
af nammi og með málshætti. Ég sé því ekki
fram á neinar aðhaldsaðgerðir um páskana.“
Hvað ætlar þú að gera um páskana?
„Ég verð í Danmörku þar sem ég á ættingja.
Svo, ef það verður stuð á mér, fer ég til Spánar
þar sem ég á inni heimboð hjá gömlum vinum.
Aðeins svona til að fá sér smásól á kroppinn.
Ég ætti því að ná góðum páskum.“
V
ið ætluðum að setja upp
litla sýningu til að byrja
með. Svo fóru hlutirnir að
vinda upp á sig og fljót-
lega var þetta komið út
í stærðarinnar uppsetningu,“ seg-
ir Matthías Matthíasson söngvari
og Eurovision-fari um Hárið. Þessi
heimsfrægi söngleikur er nú sýndur
í menningarhúsinu Hofi á Akureyri
en verkið var frumsýnt síðastliðinn
föstudag. Matthías tók einnig þátt
í síðustu uppsetningu verksins en
nú er hann kominn í aðalhlutverkið
og sýningin er með nokkuð óhefð-
bundnu sniði.
Matthías eða Matti eins og hann
er jafnan kallaður er einn af Vinum
Sjonna sem flytja framlag Íslands í
Eurovision í ár. Hópurinn saman-
stendur af vinum Sigurjóns heitins
Brinks sem tóku lag hans í Söngva-
keppni Sjónvarpsins upp á sína
arma og sigruðu með glæsibrag.
Vinir Sjonna ætla að heiðra minn-
ingu hans með flutningi sínum á
laginu.
Matti segir mikið álag fylgja því
að vera að frumsýna og að undirbúa
sig fyrir keppnina en hann kvartar
ekki enda langþráður draumur að
rætast.
vildu vinna meira saman
„Það gekk frábærlega að frum-
sýna og þetta hefur verið agalega
skemmtilegt ferli,“ segir Matti um
Hárið sem er eins og fyrr sagði
einn vinsælasti söngleikur allra
tíma. „Við vorum ákveðinn hóp-
ur sem kynntist í Rocky Horror hjá
Leikfélagi Akureyrar,“ heldur Matti
áfram en þar er á ferðinni annar
sögufrægur söngleikur sem LA setti
upp nýlega.
„Okkur langaði til að gera eitt-
hvað meira saman og hittumst á
kaffihúsi og ræddum möguleikana.
Við fórum yfir raddir okkar og
hæfileika, hvar þeir lægju.“ Ásamt
Matta leika í sýningunni Eyþór Ingi
Gunnlaugsson, Magni Ásgeirsson,
Jana María Guðmundsdóttir, Erna
Hrönn Ólafsdóttir, Ólöf Jara Skag-
fjörð og Pétur Örn Guðmundsson.
„Við vorum sammála um að
þetta væri stykki sem lægi vel við og
Heiðra Sjonna
með flutningnum
matthías matthíasson og Vinir Sjonna eru staðráðnir í því að heiðra
minningu Sigurjóns Brinks með góðri frammistöðu í Eurovision. Hópurinn
heldur út 1. maí og er undirbúningur í fullum gangi. Matti er þessa dagana
að syngja og leika í Hárinu sem frumsýnt var í Hofi um helgina. Það hefur
verið þrautin þyngri að tvinna saman frumsýningu og undirbúning fyrir
stærstu stund ferilsins.
matthías matthíasson
Leikur Claud í Hárinu sem sýnt
er í Hofi um þessar mundir.
mynd ÞórHallur/Pedromyndir
rúnar rúnarsson Kvikmyndin Eldfjall
er fyrsta íslenska kvikmyndin til að vera
tilnefnd í flokknum Directors Fortnight
síðan Atómstöðin var tilnefnd fyrir 27 árum.
mynd Zik Zak
mælir ekki með...
kvikmynd
Sucker Punch
„Fyrir mér er málið
einfalt. Myndin er
mannskemmandi.
Ekki fara á hana
nema að þú viljir
ögra þér á einhvern
undarlegan máta.
Og ekki fara með unglingana ykkar á
þessa mynd. Þeir bíða þess varla bætur.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir
kvikmynd
Limitless
„Ég held að byrjunarsenan sé
minnisstæðasti parturinn af ræmunni.
Og svo var poppið ágætt líka.“ – Erpur
Eyvindarson
Með fótbolta
fullan af nammi