Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 61
Fókus | 61Páskablað 20.–26. apríl 2011
Ísland og Færeyjar saman á Bókamessunni í Frankfurt:
Færeyskir rithöfundar á Sögueyjunni
Opnaður hefur verið gluggi til
færeyskra bókmennta á vef Sögueyj-
unnar Íslands. Verkefnið er unnið af
Sögueyjunni Íslandi í samvinnu við
færeyska rithöfunda og útgefendur
með stuðningi frá færeyska mennta-
málaráðuneytinu. Tíu verk færeyskra
nútímahöfunda hafa verið valin til
þátttöku í verkefninu og hefur kynn-
ingarefni fyrir verkin verið útbúin
á sambærilegan hátt og Sögueyjan
hefur notað til að kynna íslenskar
bókmenntir í tilefni Bókamessunn-
ar í Frankfurt, en þar verður Ísland
heiðursgestur.
Kynningarefnið er unnið á þýsku
en það birtist á vef þýsks hluta
heimasíðu Sögueyjunnar. Starfsfólk
Sögueyjunnar verður Færeyingum
innan handar þegar kemur að því að
kynna verkefnin fyrir þýskum bóka-
útgefendum en stefnt verður að því
að Ísland og Færeyjar verði með bása
sína hlið við hlið á Bókamessunni í
Frankfurt, til að undirstrika langvar-
andi vináttu þjóðanna tveggja.
Meðal þeirra færeysku rithöfunda
sem fjallað er um á vefnum eru And-
ras Mortensen, Bárður Óskarsson,
Carl Johan Jensen og Gunnar Hoy-
dal.
Vefurinn Sögueyjan Ísland var
settur upp í tilefni Bókamessunnar
og er þar að finna kynningarefni um
íslenska – og nú færeyska – rithöf-
unda sem koma til með að leika hlut-
verk í Bókamessunni í Frankfurt sem
fram fer dagana 12. til 16. október.
Hvað er að gerast?
n Agent Fresco á Sódómu Páskadjammið
hefst á miðvikudaginn á Sódómu. Þá mun eitt
allra heitasta rokkband landsins, Agent Fresco,
koma fram ásamt völdum hljómsveitum sem
hafa vakið á sér athygli undanfarið, Vigri,
Saytan og Postartica. Húsið verður opnað kl.
23.00 og kostar 1.000 krónur inn.
n Hreindís heiðrar Erlu Ungstirnið
Hreindís Ylva Garðarsdóttir syngur á mið-
vikudagskvöldið lög eftir Erlu Þorsteinsdóttur
á sérstökum minningartónleikum á Café
Rosenberg. Erla var ein vinsælasta dægurlaga-
söngkona þjóðarinnar undir lok fimmta
áratugarins. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00
en þeir bera heitið Stúlkan með lævirkjarödd-
ina og kostar 2.000 krónur inn.
n Knox á blúshátíð Þessa dagana fer
fram mikil blúshátíð í Reykjavík á Hilton Hotel
Nordica. Á þriðjudagskvöldið verður krónprins
blústónlistarinnar frá Mississippi, Marquise
Knox, með tónleika á Hilton. Miðaverð er
krónur 3.990 en miðana á hátíðina má nálgast
á vefsíðunni midi.is.
n Jet Black Joe á Players Ein allra besta
og vinsælasta hljómsveit Íslands í gegnum
tíðina stígur enn eina ferðina á svið á Players
á miðvikudagskvöldið og kemur öllum í gírinn
fyrir páskana. Þetta er auðvitað hin magnaða
hljómsveit Jet Black Joe sem kann heldur betur
að rokka.
n Greifarnir á Spot Þeir sem vilja koma sér
í alvöru stuð á miðvikudagskvöldið þurfa að
kíkja á Spot í Kópavogi því þar gerir stuðbandið
Greifarnir allt vitlaust. Það er því úr nógu að
velja í Kópavoginum á miðvikudagskvöldið.
n Meiri blús Síðustu tónleikar Blúshátíðar
Reykjavíkur fara fram að kvöldi skírdags á
Hilton Hotel Nordica. Þar mun spila Vasti
Jackson & the Blue Ice Band en Vasti er einn
hæfileikaríkasti og afkastamesti blústón-
listamaður sinnar kynslóðar. Veislan hefst
klukkan átta en miðinn kostar 4.490 og
hægt er að kaupa einn slíkan á midi.is.
n Óskar fær gesti Stórsöngvarinn Óskar
Pétursson tekur á móti góðum gestum á
söngskemmtun í Hofi á laugardagskvöldið.
Gestir kvöldsins verða meðal annars Diddú
og Raggi Bjarna. Húmorinn verður í fyrirrúmi
en tónleikarnir fara fram í Hofi og kostar
miðinn 3.900 krónur.
n Hvanndalsbræður og Magni
Það ætti enginn að fara með skeifu út af Spot
í Kópavogi á föstudagskvöldið en þar verða
sprelligosarnir í Hvanndalsbræðrum að spila
ásamt Magna. Það verður því hlátur, gleði og
góð tónlist.
n Andri Björn syngur Á föstudaginn
langa mun einn efnilegasti söngvari landsins,
bassinn Andri Björn Róbertsson, ásamt
strengjakvartett, halda tónleika í Langholts-
kirkju. Meðal verka eru einsöngskantatan
Ich habe genug BWV 82 eftir J. S. Bach og
bassaaríur úr Jóhannesar- og Mattheusar-
passíum. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 en
miðaverð er krónur 3.000.
n Júlladiskó á Players Þeir sem vilja halda
í diskóið klikka ekki á því að kíkja á Players eftir
miðnætti á föstudaginn langa. Þá verður Júlli
mættur með sjálft Júlladiskó og sér til þess að
allir verði í stuði eins og alltaf.
20
apr
Miðvikudagur
21
apr
Skírdagur
23
apr
Laugardagur
22
apr Föstudagurinn
langi
ákváðum því að athuga með réttinn
á því og fengum hann.“
Hringleikahús í Hofi
Líkt og fyrr sagði ætlaði hópurinn
upprunalega að setja upp litla sýn-
ingu. En fljótt skipast veður í lofti
og fyrr en varði var sýningin komin
í Hof og búið að smíða hringleika-
hús. „Helsti munurinn á þessari
sýningu og hefðbundinni uppsetn-
ingu á Hárinu er sviðið,“ en Matti og
félagar notast ekki við sætin í saln-
um í Hofi. „Það er búið að smíða
hringsvið sem rúmar 270 manns í
sæti.“
Með þessu tekst að skapa meiri
nánd á milli áhorfenda og leikara.
„Það er enginn meira en sex til sjö
metra frá sviðinu. Það myndast al-
veg frábær stemning þarna á svið-
inu.“ Matti segir að einnig felist
breyting í því að nú sé hvorki kór
né hópur dansara líkt og vanalega
þegar sýningin er sett upp. Matti
og Pétur voru til að mynda hluti
af kórnum síðast þegar sýningin
var sett upp. „Núna eru þetta bara
átta einstaklingar sem sjá um allan
sönginn. Svo eru þrír í hljómsveit.
Söngvararnir sjá svo sumir um að
spila með hljómsveitinni á svið-
inu.“
Frjálsar ástir
Matti fer að þessu sinni með hlut-
verk Clauds í sýningunni. „Claud
er geimveran í hópnum. Hann er
utanaðkomandi gestur sem hrífst
með þessum Central Park-hipp-
um,“ en verkið fjallar um hóp hippa
á sjöunda áratugnum í New York.
Verkið vakti gríðarlega athygli þeg-
ar það var fyrst sýnt. Það var fyrsti
rokksöngleikurinn sem sló í gegn
og tónlist verksins náði langt út fyrir
leiksviðið. Andstæðingar Víetnam-
stríðsins gerðu lögin að baráttu-
söngvum sínum og efnistök verks-
ins á frjálsum ástum, eiturlyfjum
og notkun bandaríska fánans voru
einnig mjög umdeild.
„Næsta sýning er á föstudag-
inn langa en svo erum við að sýna
meira og minna alla páskana.“ Hægt
er að finna nánari upplýsingar um
verkið á menningarhus.is og hægt
er að kaupa miða á midi.is. „Eftir
páska eru svo einu sýningarnar á
dagskrá um hvítasunnuhelgina sem
er í júní. Þannig að það fer hver að
verða síðastur að tryggja sér miða
fyrir þessa törn.“
Brjálaður undirbúningur
Það hefur aukið heldur betur á álag-
ið við uppsetningu sýningarinnar
fyrir Matta að hann er að undirbúa
sig í leiðinni fyrir stærstu stund fer-
ilsins. Að keppa fyrir Íslands hönd
í Eurovision þann 10. maí. „Það er
búið að vera brjálaður undirbún-
ingur. Það er verið að leggja loka-
hönd á búningana og maður er bú-
inn að fljúga á milli í búningamátun
og á æfingar. Þetta er svona tíu sinn-
um meiri vinna en ég hélt.“
Vinir Sjonna eru ásamt Matta
þeir Hreimur Örn Heimisson, Pálmi
Sigurhjartarson, Benedikt Bryn-
leifsson, Gunnar Ólason og Vignir
Snær Vigfússon. Sexmenningarnir
voru allir vinir tónlistarmanns-
ins Sigurjóns Brinks sem lést langt
fyrir aldur fram fyrr á þessu ári.
Hópurinn ákvað að taka lag hans í
Söngvakeppni Sjónvarpsins upp á
sína arma og sigruðu þeir keppn-
ina. Þar hafði hópurinn betur gegn
ekki minni spámönnum en Rock-
star-stjörnunni Magna Ásgeirssyni
sem syngur með Matta í Hárinu og
Eurovision-prinsessunni Jóhönnu
Guðrúnu Jónsdóttur sem lenti eftir-
minnilega í öðru sæti árið 2009.
„Það leggst ótrúlega vel í mig.
Þetta er frábær hópur og ég býst við
hinni bestu skemmtun. Hreimur
er búinn að græja það að við fáum
að fara einn golfhring þarna,“ en
keppnin er haldin í Düsseldorf í
Þýskalandi.“
Hópurinn heldur út þann 1. maí
en Ísland keppir á fyrra undanúr-
slitakvöldinu þann 10. maí. „Ef við
komumst áfram þá keppum við svo
á lokakvöldinu 14. maí.
Súrsætt Eurovision
Matti hefur þó nokkrum sinnum
tekið þátt í Söngvakeppni Sjón-
varpsins og hann segir aðspurður
að það hafi óneitanlega verið súr-
sætt að komast loks alla leið við
þessar aðstæður. „Auðvitað er það
það. Þetta eru auðvitað mjög sér-
stakar aðstæður sem vonandi koma
aldrei aftur upp.“ Matti segir þá ætla
að heiðra minningu vinar síns með
því að leggja sig alla fram í keppn-
inni. „Hópurinn er staðráðinn í að
gera sitt allra besta í keppninni og
heiðra þannig minningu Sjonna
með góðri frammistöðu.“
Eins og venjulega er mikið spáð
og spekúlerað í úrslit Eurovision.
Vinum Sjonna og laginu Coming
Home hefur verið spáð nokkurri
velgengni og jafnvel sigri. „Það er nú
svo mikið af spádómum í tengslum
við þessa keppni og misgáfulegum
líka. Þannig að við erum nú rólegir
yfir því. En á þessum stærri miðlum
eins og eurovisiontv.com er okkur
hampað og það gefur okkur byr
undir báða vængi. Við höfum fulla
trú á þessu lagi og þetta er að mínu
mati eitt af fáum lögum í keppninni
sem hefur eitthvað að segja.
Eurovision-aðdáendur eru veik-
ir fyrir froðu og flippi þannig að við
höfum verið gagnrýndir líka fyrir
að hafa ekki formúluna á hreinu.
En það er bara mjög gott. Ég held
að formúlan sé á undanhaldi. Sem
betur fer.“
asgeir@dv.is
Heiðra Sjonna
með flutningnum
Hárið í hring Búið er að smíða sérstakt svið í Hofi undir sýninguna. Mynd ÞÓrHAllur/PEdroMyndir
Færeyskir rithöfundar Opnaður hefur
verið gluggi til færeyskra bókmennta á vef
Sögueyjunnar Íslands sem er liður í þátttöku
Íslands í Bókamessunni í Frankfurt.