Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 64
L
ítið er vitað um Amy Archer-
Gilligan fyrri hluta ævi henn-
ar, en hún var óbilgjörn og
sérvitur og rak endurhæfing-
arheimili í Windsor í Connecticut í
Bandaríkjunum í upphafi 20. aldar-
innar. Nánast það eina sem er vitað
um hana fyrir aldamótin er að hún
fæddist 1873 og giftist í fyrsta skipti
1896, James Archer, og fæddist þeim
dóttir, Mary E. árið 1900.
Árið 1901 fengu hjónakornin
starfa í Newington þegar þau fluttu
inn á heimili aldraðs ekkils, Johns
Seymours, og sáu um hann. Þau
bjuggu á heimili hans þar til hann
lést árið 1904 og eftir það bjuggu
þau þar áfram sem leigjendur. Erf-
ingjarnir settu á laggirnar heimili
fyrir aldraða og Archer-hjónin sáu
um rekstur þess og greiddu leigu
af tekjunum. Heimilið kölluðu þau
Umönnunarheimili systur Amy fyrir
aldraða.
Árið 1907 seldu erfingjar
Seymours húsið og brugðu Amy og
ektamaður hennar á það ráð að flytja
til Windsor þar sem þau festu kaup
á húsi og opnuðu Archer-heimilið
fyrir aldraða. Saman ráku þau heim-
ilið til 1910 þegar James lést vegna
óskilgreindra nýrnameina. Til allrar
hamingju hafði Amy líftryggt James
skömmu fyrir dauða hans og gat því
rekið heimilið áfram.
Þriggja mánaða hjónaband
Um 1913 krækti Amy sér í eiginmann
númer tvö, Michael Gilligan, vel efn-
uðan ekkil sem hafði hvort tveggja í
senn áhuga á Amy og því að fjárfesta
í Archer-heimilinu. Af einhverjum
orsökum varð hjónabandið frekar
stutt því eftir aðeins þriggja mánaða
„hjónabandssælu“ var Michael allur.
Dánarorsökin var sögð „bráð gall-
veiki“ sem á mannamáli eru alvar-
legar meltingartruflanir.
Enn og aftur var Amy ein á báti,
en fjárhagslega örugg því á meðan
stutt hjónaband hennar og Michaels
varði hafði hann gert erfðaskrá þar
sem hann ánafnaði henni öllum sín-
um eignum.
Einn og sér hefði dauði Gillig-
ans ekki vakið upp spurningar, en
á árunum 1907 til 1917 höfðu orð-
ið 60 dauðsföll á Archer-heimilinu.
Vaxandi tortryggni varð vart meðal
ættingja viðskiptavina Amy vegna
dauðsfallanna.
En svo virtist sem Archer-heim-
ilið hefði breyst í eins konar dauða-
gildru, sérstaklega hvað varðaði
menn sem greiddu með ákveðnum
hætti fyrir dvöl þar. Í boði var tvenns
konar greiðslutilhögun; annars veg-
ar eingreiðsla upp á 1.000 dollara og
hins vegar vikuleiga. Hin raungóða
ekkja ábyrgðist að þeir sem greiddu
eingreiðsluna þyrftu ekki að hafa
áhyggjur það sem eftir lifði – sem í
ótrúlega mörgum tilfellum var æði
skammur tími.
Ískyggilegur fjöldi dauðsfalla
Tólf höfðu farið yfir móðuna miklu á
árunum 1907 til 1910, en sú tala varð
ískyggilega há á milli 1911 og 1916; 48
dauðsföll. Á meðal þeirra sem skildu
við á því tímabili var maður að nafni
Franklin R. Andrews. Franklin hafði
verið við hestaheilsu og að morgni
29. maí 1914 hafði hann dundað sér
við garðyrkjustörf við Archer-heimil-
ið. Þegar leið á daginn hrakaði heilsu
hans ört og um kvöldið var hann all-
ur og var banamein hans opinber-
lega skráð sem magasár.
Persónulegar eigur Franklins féllu
systur hans Nellie í skaut, þar á með-
al pappírar og skjöl. Nellie varð þess
áskynja þegar hún fór yfir pappírana
að þar var að finna vísbendingar um
að Amy hefði nokkrum sinnum feng-
ið fé hjá Franklin.
Seinna átti eftir að koma í ljós
mynstur í dauðsföllunum; vistmenn
áttu það til að deyja skömmu eftir að
hafa látið Amy fá álitlegar fjárhæðir.
Morðverksmiðjan
Eftir því sem líkunum fjölgaði á
Archer -heimilinu jukust grunsemdir
Nellie og að lokum viðraði hún þær
við saksóknarann á svæðinu. Hann
tók erindi hennar fálega og hafði hún
ekki erindi sem erfiði.
En Nellie var ekki á þeim buxun-
um að leggja árar í bát og lagði leið
sína á dagblaðið Hartford Courant.
Þann 9. maí 1916, básúnaði Hart-
ford Courant: „Archer-heimilið fyrir
aldraða er morðverksmiðja að mati
lögreglu“. Um var að ræða fyrstu
grein blaðsins um Archer-heimilið
en þrátt fyrir fullyrðingar dagblaðs-
ins áttu eftir að líða nokkrir mánuðir
áður en lögreglan hóf fyrir alvöru
rannsókn á því sem átt hafði sér stað
innan veggja heimilisins.
Rannsókn á starfsemi Amy tók
tæpt ár og voru niðurstöðurnar væg-
ast sagt áhugaverðar. Upp úr krafsinu
komu lík Gilligans, Franklins R. And-
rews og þriggja annarra. Eitrað hafði
verið fyrir þeim öllum, annaðhvort
með arseniki eða strikníni.
Verslunarmenn í grenndinni gátu
borið vitni um að Amy hefði verið
allstórtæk í innkaupum á arseniki –
til að “drepa rottur” að hennar eigin
sögn.
Ákærð fyrir eitt morð
Nánari athugun á erfðaskrá Gilligans
varð til þess að staðfesta að um var
að ræða fölsun af hálfu Amy.
Amy Archer-Gilligan var hand-
tekin og ákærð fyrir morð, upp-
haflega fimm morð, en lögfræðingi
hennar tókst að ná kærunni niður í
eitt morð – á Franklin R. Andrews.
Þann 18. júní,1917, var hún fund-
in sek af kviðdómi og dæmd til lífláts,
en Amy áfrýjaði dómnum og náði
fram nýjum réttarhöldum árið 1919.
Bar Amy fyrir sig geðveiki og bar
dóttir hennar, Mary Archer, vitni um
að móðir sín væri háð morfíni.
Amy var engu að síður fundin sek
um annarrar gráðu morð , en í þetta
skipti dæmd til lífstíðarfangelsis.
Í fangelsinu var Amy fyrirmynd-
arfangi að sögn þeirra sem til þekktu,
hún var úrskurðuð geðveik og flutt
um set á stofnun fyrir andlega van-
heila glæpamenn. Hún lést árið 1962.
Köttur úti í mýri, setti upp á sér
stýri, úti er ævintýri.
64 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 20.–26. apríl 2011 Páskablað
n Amy Archer-Gilligan var ströng og sérvitur kona sem rak dvalarheimili fyrir aldr-
aða upp úr 1900 n Allt að 20 féllu fyrir hendi hennar og sumir telja fórnarlömbin
hafa verið mun fleiri n Lögreglan leit á dvalarheimili Amy sem „morðverksmiðju“
Dauðaheimili
alDraðra „Einn og sér hefði dauði Gilligans ekki vakið upp spurningar, en á árunum 1907 til 1917 höfðu orðið 60 dauðsföll á Archer-heimilinu.
Systir Amy Archer-Gilligan Því fór
fjarri að manngæska réði för þegar hún
veitti öldruðum ekklum umönnun.