Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 72
72 | Lífsstíll 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
igríður Heim
isdóttir nam
iðnhönnun
við Istituto
Europeo di
Design og Domus Aca
demy í Mílanó og út
skrifaðist með meist
arapróf árið 2000. Hún
vann hér heima um
tíma og árið 2001 flutti
hún til Svíþjóðar þar
sem henni bauðst starf
hjá IKEA þar sem hún
hannaði fjöldann all
an af hlutum og sá um
samstarf fyrirtækisins
við hönnunarskóla í
ýmsum löndum. Hún
vann hjá IKEA í átta
ár eða þar til henni
bauðst starf hönnunar
stjóra hjá danska hús
gagnaframleiðslufyrir
tækinu Fritz Hansen;
en það fyrirtæki fram
leiðir meðal annars
stólana eggið og svan
inn sem margir þekkja.
„Mér fannst tími til
kominn að stofna mitt
eigið fyrirtæki þegar ég
var búin að vinna hjá
Fritz Hansen í eitt og
hálft ár en eftir að ég
hætti hjá IKEA fékk ég
mikið af fyrirspurnum
frá hinum ýmsu fyrir
tækjum um hvort ég
gæti unnið fyrir þau.
Ég er svo mikið á
ferðinni að það er ekki
raunhæft að ég sé ein
að gera alla þessa hluti
og fylgja þeim eftir. Í staðinn fyrir að
ráða fólk þá held ég góðu sambandi
við vissa hönnuði sem ég hef unnið
með í gegnum tíðina og vinn verkefni
með þeim. Það er til dæmis best að
vera í samstarfi við hönnuði í Svíþjóð
þegar ég vinn verkefni
fyrir sænska aðila sem
geta þá litið á prótótýp
ur eða farið yfir teikn
ingar.“
Sigríður er með
vinnustofu í Reykjavík
og Malmö og fer hún
yfirleitt til Svíþjóðar
einu sinni í mánuði og
dvelur þar í um viku.
Þess á milli fer hún
stundum líka til ann
arra landa svo sem til
að fylgja framleiðsl
unni á hönnun sinni
eftir og til að halda fyr
irlestra og vinna með
hönnunarskólum víða
um heim.
LABLAND/SIGGA
HEIMIS hefur með
al annars unnið fyr
ir IKEA, Fritz Hansen,
Mio, Vitra Design Mus
eum, ALC India, Kabe,
Jensen og Indiska.
Einfaldleikinn
Sigríður hefur í gegn
um tíðina einbeitt sér
að hönnun hluta fyrir
heimilið hvort sem það
eru smáhlutir eða hús
gögn og svo hefur hún
líka hannað leikföng.
Hún fær hugmynd
ir víða að. Stundum
hefur hún í huga hluti
sem hún sjálf þarf á
að halda og stundum
fær hún hugmyndir á
ferðalögum.
„Mér finnst skipta miklu máli að
hlutirnir séu einfaldir og tímalaus
ir. Þeir eru oft einlitir eða með litlu
mynstri. Það er mitt merki. Gæði eru
mikilvæg þannig að hlutirnir endist.
Það er ekki góð hönnun þótt útlits
hönnunin sé falleg ef hluturinn er
ekki kláraður almennilega. Það þarf
að þróa vöruþróunarferlið til enda og
umhverfismál eru mikilvæg. Einfald
leikinn á líka við um framleiðsluna
og þegar flytja á vöruna á milli landa.
Mér finnst einfaldleikinn vera lykill
að svo mörgu.“
Hún segir að metnaður góðs iðn
hönnuðar sé að framleiða hluti sem
eru betri en þeir sem þegar eru til
staðar.
Sigríður segir að því fylgi mik
ið samstarf að hanna og framleiða
hluti. „Þegar ég teikna þarf ég að fara
eftir lögmálum framleiðslunnar og
verðviðmiðun markaðsfræðinnar.
Maður fær heilmikil tækifæri ef mað
ur er tilbúinn til að vera samstarfs
fús og er opinn, sveigjanlegur, for
vitinn og hlustar á aðra. Það þarf líka
að vera þrjóskur en það þýðir ekki
að vera nein prímadonna. Það þýðir
ekkert að gefast upp þótt einhver segi
„nei“ en það þýðir að það býður eft
ir manni „já“ einhvers staðar annars
staðar. Maður þarf að trúa dálítið á
sjálfan sig.“
Nýjungar á döfinni
Það má segja að starf Sigríðar hjá
IKEA og síðar Fritz Hansen hafi haft
þau áhrif að hún hefur einbeitt sér
að hönnun sem tengist heimilinu.
Hún segist alveg geta hugsað sér að
hanna íþróttahluti, hluti fyrir fatlaða
og rafmagnstæki. LABLAND/SIGGA
HEIMIS er að fara að hanna hjólhýsi
ætlað barnafjölskyldum. „Við hjónin
leigðum einu sinni hjólhýsi og urð
um alveg „hooked“. Ég er spennt fyr
ir að gera eitthvað nýtt. Ég er búin að
teikna svo marga kertastjaka sem er
skemmtilegt en það er gaman að tak
ast á við nýja hluti.“ Hugmyndin er að
hanna fleira sem tengist útivist svo
sem útivistarbúnað og hluti tengda
íþróttum.
Þegar viðtalið var tekið hafði Sig
ríður komið frá Svíþjóð daginn áður.
Stuttu síðar fór hún til Istanbul í
Tyrklandi en Vitrahönnunarsafnið
bauð henni að taka þar þátt í hring
borðsumræðum.
Eiginmaðurinn, sem er sænsk
ur verkfræðingur, vinnur með Sig
ríði auk þess að starfa hjá nýsköp
unarfyrirtæki hér á landi. Börnin eru
þrjú, auk þess sem hann á tvo syni
sem búa í Svíþjóð, og segir Sigríður
að þau geri ráð fyrir að fá sér aupair.
Vinnudagurinn er oft langur, oft er
unnið fram eftir kvöldi og um helgar.
Hjónin kynntust í Svíþjóð en eig
inmaðurinn vann hjá IKEA. Hönnun
er þeirra aðaláhugamál. „Við gefum
hvort öðru gjafir sem tengjast hönn
un svo sem ýmis verkfæri. Ég hef til
dæmis gefið honum rennibekk og
við leitum stundum að hönnunar
bókum sem okkar langar í. Það er
ótrúleg heppni að lenda á maka sem
er líka svona áhugasamur um hönn
un þannig að við erum saman í þessu
á fullu.“
Svava Jónsdóttir
og hjólhýsi
Kertastjakar
Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður er flutt heim
eftir að hafa um árabil unnið hjá IKEA og síðar hjá
Fritz Hansen. Hún einbeitir sér að fyrirtæki sínu LA-
BLAND/SIGGA HEIMIS og hannar fyrir ýmis alþjóðleg
fyrirtæki auk þess að halda fyrirlestra í erlendum
hönnunarskólum.
S
Systurnar Rebekka og
Katrín Alda ánægðar:
Rjúfland í
verslanir í maí
Systurnar Rebekka og Katrín Alda
Rafnsdætur hanna saman undir
heitinu KALDA og reka einnig versl
unina Einveru á Laugavegi.
Verslunin Liberties í London hef
ur gert samn
ing við hönn
unarmerkið
KALDA um
sölu á nýrri línu
þeirra. Liberty
verslunin var
stofnuð árið
1875 og þykir
einstaklega
spennandi
heim að sækja.
Hún var enda
valin besta
verslunin í
London árið
2010 af Time
Out Magazine.
Það hefur
verið nóg að
gera hjá þeim
systrum en þær
tóku þátt í CPH Vision sem hald
in var í tengslum við tískuvikuna í
Kaupmannahöfn í byrjun febrúar. Í
kjölfarið fengu þær samninginn við
Liberty. Samningurinn er að sögn
Katrínar Öldu fremur stór í sniðum
og þær hafa ekki undan að framleiða
föt úr nýju línunni sem kallast Rjúfl
and. „Við höfum haft nóg að gera
síðustu mánuði, bæði við sýninga
hald og kynningu og nú erum við á
kafi í framleiðslu á flíkunum.“ Ný lína
þeirra systra hefur hlotið mikla at
hygli og þeim gekk afar vel á Reykja
vik Fashion Festival, þær völdu að
ganga fremur langt og sýningin var
bæði myrk og hæg sem hentaði flík
unum vel. „Við vissum ekki hvort það
myndi ganga upp en getum verið
ánægðar með viðtökurnar,“ segir
Katrín Alda.
Rjúfland mun einnig fást í verslun
þeirra systra, Einveru, á Laugavegi.
MyNdiR: SAgA SiguRðARdóttiR
StíliSti: ElliE gRAcE cuMMiNg
FöRðuN: lucy BRidgE
FyRiRSætA: RoRy MANNiNg/PRoFilE ModElS
Hönnun eftir Siggu
Starfaði um árabil hjá IKEA
og Fritz Hansen.
Sigríður Heimisdóttir „Mér finnst skipta miklu
máli að hlutirnir séu einfaldir og tímalausir. Þeir eru
oft einlitir eða með litlu mynstri. Það er mitt merki.“