Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Page 78
78 | Lífsstíll 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Lítill vatnavinur
Hið skapandi teymi Jamin Puech býr til
undurfallegar töskur. Þessi er sér-
staklega skemmtileg í líki lítils fisks. Fyrir
draumlyndar konur sem mara stundum
undir yfirborðinu. Þessi taska og fleiri úr
smiðju þessara snillinga fást í Kisunni á
Laugavegi. Lítið á hönnunina á vefsíðunni:
jamin-puech.com
Létt og nær-
andi litað
dagkrem
Raka– og dag-
kremin frá Clinique
þykja nokkuð
góð. Rakakremið
Moisture Surge
hefur verið vinsælt
meðal íslenskra
kvenna. Það nærir
vel án þess að vera
feitt. Nú er komið
litað dagkrem með
sömu eiginleikum.
Það nærir húðina og
þekur jafnframt vel án þess að liggja of
þungt á húðinni. Fullkomið til að létta
á vetrardrunganum.
Fallegur
vorilmur
Þær eru verulega fallegar umbúðirnar utan
um nýja sumarilmvatnið frá Calvin Klein
undir merkinu Eternity. Fallegt, gagnsætt
blómamunstur, sem lýsir vel ilminum sem er
léttur blómailmur með muskus-undirtónum
sem hentar vel fyrir sumarið.
Fagnaðarflögg
Það er gaman að skreyta svolítið heima við
um páskana. Þessi fagnaðarflögg eru afar
einföld að gerð. Þú þarft aðeins skæri, lím,
silkipappír og góðan streng til þess að útbúa
þessa einföldu skreytingu. Góða skemmtun.
Fimmtudagskvöldið 21. apríl kl. 20.00 sýna níu nemendur við fatahönnunardeild Listaháskóla
Íslands lokaverkefni sín á tískusýn-
ingu í Listasafni Reykjavíkur.
Hönnuðirnir sem sýna verk sín
eru Elsa María Blöndal, Gígja Ísis
Guðjónsdóttir, Guðmundur Jörunds-
son, Gyða Sigfinnsdóttir, Halldóra
Lísa Bjargardóttir, Hjördís Gests-
dóttir, Jenný Halla Lárusdóttir, Signý
Þórhallsdóttir og Sigríður M. Sigur-
jónsdóttir. Sýningin er afrakstur
þriggja ára B.A. náms við Listahá-
skólann og verða viðstaddir virtir er-
lendir prófdómarar: Emily Harris frá
Sonia Rykiel og Rikke Ruhwald sem
unnið hefur fyrir Rykiel, Martine Sit-
bon, Lacroix og fleiri til að meta verk
nemenda.
Viðburðurinn er hluti af út-
skriftarsýningu nema við myndlist-
ar-, hönnunar- og arkitektúrdeildir
Listaháskóla Íslands, en laugardag-
inn 23. apríl opnar sýning á verkum
útskriftarnema í Hafnarhúsinu kl
14.00. Sýningin stendur til 8. maí
og er opin daglega frá 10 til 17 og á
fimmtudögum frá 10 til 20. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir. Sýning-
arstjórar eru: Erling Klingenberg, Atli
Hilmarsson og Hörður Lárusson.
Elsa María Blöndal:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Útskriftarverkefnið mitt er spunnið upp úr dagdraumum
mínum um eyðimerkur, dekadens, flauel og leður.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Músík dregur mig oftast inn í annan og betri heim. Og hjá
vinum mínum sem eru fullir af snilld. Veðrið veitir mér oft
innblástur líka.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Almættið er með framhaldið í kollinum sínum.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Ekki hugsa bara gera list.“
Guðmundur Jörundsson:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Línan er herralína sem fangar bæði þokka og karl-
mennsku.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Innblástur fyrir línuna fékk ég úr nokkrum áttum. Ég
rannsakaði mótorhjólaklæðnað, mongólska fatahefð og
einnig notaði ég mikið af smáatriðum úr meistaraverkinu
Hook. Karakterinn Rufio úr þeirri mynd hefur lengi verið í
huga mér.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Ég mun starfa sem yfirhönnuður fyrir Herrafataverzlun
Kormáks & Skjaldar ásamt því að taka á móti barni í
haust.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„ Virkilega, virkilega, virkilega, virkilega tilgerðarlegur.“
Gyða Sigfinnsdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Það er ákveðin svona sci-fi stemning í því, assymetría,
form og framúrstefna í bland við stílhreint silki, prjón og
rúskinn.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Það er mjög misjafnt, fyrir þetta verkefni sótti ég mér
innblástur í verk eftir Salvador Dalí, kvikmyndir á borð við
Mad Max og skylmingar.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Það er í rauninni allt opið, mig langar til að læra meira og
gera eitthvað skemmtilegt í tengslum við námið.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Svartur“
Gígja Ísis Guðjónsdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Ég er að gera skó og nærföt, litríka sumarlínu, formaða og
flæðandi í senn.“
2. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Ég var fá úthlutuðum styrk úr Nýsköpunarsjóði náms-
manna og fæ að halda áfram að þróa verkefnin mín.“
3. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Arkitektúr, vísindaskáldskapur, himinháir hælar.“
Sigríður M. Sigurjónsdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Ég er mest að vinna með textíl, lita öll efni sjálf og vinn
aðeins lengra með þau. Sauma í þau og nýti mér alls kyns
tækni í það. Ég er í samstarfi við Loðskinn á Sauðárkróki
sem litar og vinnur skinn fyrir mig.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Ég sæki innblástur minn í málverk eftir Alberto Abate
sem er ítalskur listmálari og hefur verið einn af leiðandi
listamönnum í svokölluðum anakrónisma stíl, Það þýðir
í raun tímaskekkjustíll. Það er smá Alfreðs Flóka fílingur
í þessu, svo það má segja að ég sé að sækja í hann líka.
Einnig er ég með næntís dramatík og og náttúruleg form.
Þetta er allt frekar mikið grunch. Ég er að taka viðkvæm
efni og svolítið að rústa þeim.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Ég stefni á að halda áfram námi.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Ég get ekki svarað þessu.“
Hjördís Gestsdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Ég myndi lýsa því sem stílhreinu og undir áhrifum frá
japanskri menningu.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Það er svo rosalega misjafnt, núna frá Japan og svo frá
alls konar efnisnotkun og flæði.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Það er vonandi starfsnám erlendis.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Stílhreinn, dökkur, efni og áferð.“
Halldóra Lísa Bjargardóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Línan mín er innblásin af þjóðbúningum kvenna frá
Sýrlandi, prjóni og laserskurði. Ég prjóna úr netagarni sem
er litað og svo nota ég laserskorinn spón sem er festur á
flíkurnar“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Alls staðar að, ég sanka að mér myndum úr blöðum,
bókum og umhverfinu og frá framandi menningar-
heimum.
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Ég stefni á mastersnám í náinni framtíð“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Bóhó með klassísku tvisti.“
Jenný Halla Lárusdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Þetta er prjónalína í grunninn, samtvinnast við föt úr
venjulegum efnum.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Aðallega frá suðuramerískum karnivalmyndum og úr
gömlum prjónabókum og uppskriftum.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Það er alveg óráðið, mig langar í framhaldsnám í
prjónahönnun.“
4. Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl í nokkrum orðum?
„Fyrst og fremst litríkur.“
Signý Þórhallsdóttir:
1. Hvernig myndir þú lýsa útskriftarverkefni þínu?
„Ég myndi lýsa því sem geómetrískum formum í bland
við silki og siffon. Ég nota mikið tréperlur og handofin
bómullarbönd.“
2. Hvaðan sækir þú þér innblástur?
„Ég sæki innblástur í gömul kúbísk málverk með geó-
metrískum formum og til dýra.“
3. Hvert verður framhaldið eftir útskrift?
„Ég býst við því að ég sæki um starfsnám erlendis og sæki
mér reynslu.“
Útskriftarnemendurnir segja hér frá helstu áherslum sínum
Efnilegir
fatahönnuðir
Elsa María Blöndal Útskriftarverkefni Elsu
er spunnið upp úr dagdraumum um eyðimerkur,
dekadens, flauel og leður. Mynd róBErt rEyniSSon
Guðmundur Jörundsson Guð-
mundur mun starfa sem yfirhönn-
uður fyrir Herrafataverzlun Kormáks &
Skjaldar eftir útskrift. Mynd Hörður SvEinSSon