Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Qupperneq 93
Fólk | 93Páskablað 20.–26. apríl 2011
Bolt
inn
í be
inni
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Tökum að okkur veislur og mannfagnaði
Miðvikudagur:
HLJÓMSVEITIN SíN
Laugardagur:
HErMaNN INgI
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn
n Réttur dagsins alla virka daga
n Hamborgarar, steikar-
samlokur og salöt
n Hópamatseðlar
UM páSkaNa:
Ný sending af Gardsman öryggiskerfum komin
Dalvegi 16b Sími: 554-2727
Öryggiskerfi fyrir fastlínu CTC-1131
hægt að tengja við 20 þráðlausa skynjara
Öryggiskerfi GSM CTC-1132
hægt að tengja 30 þráðlausa skynjara
Öryggiskerfi GSM CTC-1563
g e t u r u n n i ð e i n g ö n g u á r a f h l ö ð u m
Skoðið nánar á
www.hugna.is
20% páska afsláttur
Gildir út apríl
Vertu þinn eigin öryggisvörður
og verðu þína eign.
n
a
ms
dr
a
G
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
David Arquette horfist í augu við vandann:
„Ég lét eins
og krakki“
Skilnaður leikarans Davids Arquette og eiginkonu hans Courte-
ney Cox kom honum algjörlega úr jafnvægi og var hann gjörsam-
lega í öngum sínum í kjölfarið. En eftir að hafa verið edrú í rúma 100
daga áttaði hann sig á þeim átökum sem hann á í vændum. „Ég gekk
í gegnum rosalega erfiða tíma og mín aðferð mín til að takast á við þá
skildu allt eftir í rúst,“ segir Arquette, 39 ára, í samtali við bandaríska
tímaritið People. „Ég lét eins og krakki en ég þurfti þess einfaldlega –
ég var virkilega sár, það var erfitt að takast á við allt saman en það sem
ég þurfti á endanum að gera var að líta sjálfum mér nær,“ útskýrir Ar-
quette. Hann segir að sér hafi ekki litist á blikuna þegar hann sá hvern-
ig maður hann var orðinn, en í staðinn fyrir að drekkja vandamálun-
um með misnotkun lyfja og áfengis ákvað hann að takast á við þau.
„Ég er að komast í samband við tilfinningar mínar og er að reyna að
vinna úr þeim á skilvirkari máta,“ segir leikarinn. „Það er svo auðvelt
að deyfa þær en það er meira gefandi að finna þær. Ég hef ekki löngun
til að drekka.“ Í staðinn ætlar hann að skoða sjálfan sig og breyta því
sem hann kann ekki að meta. „Stóra málið hjá mér er að skoða hver ég
er í raun og veru.“
Stórleikaranum Nicolas Cage barst hjálp úr óvæntri átt eftir að hann var handtekinn í New Or-
leans um síðustu helgi. Duane „Dog“
Chapman, hausaveiðari sem þekktur
er í Bandaríkjunum fyrir raunveru-
leikasjónvarpsþátt sinn þar sem hann
hefur uppi á flóttamönnum og fram-
kvæmir borgaralega handtöku, borg-
aði 11 þúsund dala, eða 1,25 millj-
óna króna, tryggingu sem sett hafði
verið fyrir lausn leikarans. „Ég er svo
sannarlega aðdáandi herra Cage og ég
mun ekki ræða mál hans þar sem ég
virði einkalíf hans,“ sagði Chapman,
58 ára, í yfirlýsingu til slúðurfréttastof-
unnar E! News.
„Ég sinnti bara hlutverki mínu án
þess að það væri í tengslum við sjón-
varpsþáttinn. Þetta er það sem ég geri
að atvinnu. Það eru tvær hliðar á starfi
mínu – ég losa viðskiptavini mína úr
fangelsi ef þeir hafa verið handteknir;
og sæki þá ef þeir mæta ekki fyrir rétt.
Ég held að það verði ekki raunin með
herra Cage,“ útskýrði hausaveiðarinn.
Cage, 47 ára, á að koma fyrir dómara
31. maí næstkomandi en hann hefur
verið ákærður fyrir heimilisofbeldi og
óspektir.
Var bjargað af
hausaveiðara
K
ourtney Kardashian ætlar svo
sannarlega að koma sér fyrir
á heimili sínu – það jaðrar við
þráhyggju. Eftir að hafa ný-
lega flutt inn í 1.7 milljóna dala, eða
194 milljóna króna, heimili hefur hin
31 árs raunveruleikaþáttastjarna sett
alla orku sína í að gera heimilið eins
og hún vill hafa það. „Ég held að þetta
verkefni mitt eigi aldrei eftir að taka
enda,“ sagði hún síðastliðinn föstudag
þegar hún fagnaði afmæli sínu í Las
Vegas. „Það er svo gaman. Þetta er
eins og sjúkleg þráhyggja.“
Þegar bandaríska tímaritið People
ræddi við hana hafði hún ekki enn
fengið gjöf frá kærasta sínum Scott
Disick en það kæmi ekki á óvart að
hann hafi gefið henni eitthvað fyrir
heimilið. „Ég gæti skreytt og haldið
áfram að skreyta heimilið þangað
til ég dey,“ sagði Kardashian. „Ég er
með heimili mitt á heilanum akkúrat
núna.“
Það liggur þó alveg fyrir að hún
er ekki að skreyta barnaherbergi.
Aðspurð hvort annað barn væri á
leiðinni sagði hún: „Ég á fullt í fangi
með Mason. Ég segi samt ekki aldrei.
Aldrei að segja aldrei.“
„Ég er með heimili
mitt á heilanum“
Kourtney Kardashian hugar að heimilinu:
Tekst á við vandamálin David Arquette segist
ekki vilja deyfa tilfinningar sínar.
komDu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift